Morgunblaðið - 20.08.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
13
4?
ísland og EES;
Islendingar vinna
mest en hafa fjórða
hæsta kaupmáttinn
ISLENDINGAR vinna mest og lengst allra þjóða Evrópska efnahags-
svæðisins, en þó er verg landsframleiðsla á mann aðeins fjórða
hæst hér á landi. Miðað við aðrar þjóðir hafa íslendingar hlutfalls-
lega næstlægstan hluta tekna frá þjónustugreinum en næsthæstan
frá frumvinnslu. Þá erum við í hópi þeirra þjóða sem notar mestan
hluta tekna sinna til neyslu og minnst til fjárfestinga, samkvæmt
upplýsingum úr bæklingnum EES í tölum, sem gefinn er út af hag-
stofu Evrópubandalagsins.
Af EES-löndunum er hlutfall
vinnandi manna yfír 15 ára aldri
hæst á íslandi, eða 78,4%. Bæði
vinna hér hlutfallslega fleiri karlar
og konur en annars staðar, eða 85%
og 72%. Meðaltal EES er 59% karla
og 45% kvenna. íslendingar vinna
einnig mest, eða 49,4 stundir á viku
að meðaltali. Bretar, Portúgalir og
Svisslendingar koma næstir með
43,6, 42 og 41,7 stundir.
Verg landsframleiðsla á mann
er þriðja hæst á íslandi af EES-ríkj-
unum ef tekið er tillit til kaupmátt-
ar. Svisslendingar eru efstir, en
Lúxemborg fylgir fast á eftir, og
Norðmenn eru í Joriðja sæti.
Þá ráðstafa Islendingar 79,6%
tekna sinna til neyslu, en þar slá
aðeins Bretar og Portúgalir okkur
við, með 83,5 og 79,8%. Fimm
EES-landanna nota minna af tekj-
um sínum til fjárfestinga en íslend-
ingar, sem notuðu 19,4% á árinu
1990.
Vinnsluvirði þjónustugreina á ís-
landi árið 1990 var 54,7% heildar-
vinnsluvirðisins, en aðeins írar eru
lægri. Aftur á móti eru íslendingar
næsthæstir í flokki frumiðnaðar-
greina með 12,8%. Þar hafa Grikk-
ir vinninginn, með 17% heildar-
vinnsluvirðis.
Mestur hluti útflutnings íslend-
inga, eða 76,3%, fór árið 1990 inn
á markaði landa á Evrópska efna-
hagssvæðinu. Þá komu 66% inn-
flutnings frá EES, en mikilvægasta
viðskiptaland okkar var Bandaríkin.
Vepg þjóöarfpamleiðsla á mann 1990
í EES ríkjum að teknu tilliti til kaupmáttar, þús. kr.
LÚXEMBOR
#BOSCH
fyrir
fagmanninn
Gunnar Ásgeirsson hf.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Umboðsmenn um land allt
skífustærð 180 mm
„SDS“ skífufesting. Lykillaus
skífufesting. 2000 W.
GWS
20 180S
60PBE
Stingsög m/SDS blaðfestingu.
Lykillaus blaðfesting. Þreplaus
hraðastilling stillanlegt land
550 W.
Við bjóðum greiðslukortaþjónustu
.fyrir neytendur