Morgunblaðið - 20.08.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
(Ajrmstrong
KERFIS-LOFT
Yíir 250 gerðir
aí loftaplötum.
CMC -
upphengikerfi
og lím.
Leitið tilboöa
EINKAUMBOÐ
TEPPABUÐIN
BY GGING AVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 26.
SÍMI 91-681950
Tðlvunámskeið
20. ágúst-4. september
Windows 3.1 • PC grunnur
26.- 28. ágústkl. 9:00-12:00 eða
2. • 4. september kl. 16:00-19:00
•tt
Macintosh fyrir byrjendur
Ritvinnsia, gagnasðfnun og síýrikerfi
20. ág - 3. sep. kl. 19:30-22:30 tvisvar í vikn
eða 24.-28. ágústkl. 13:00-16:00
•••
QuarkXpress umbrot
31. ág. - 4. seg.Jd. 16:00-19:00
Kennarabraut Macintosh
Frábært Macintoshnámskeið fyrir kennara
20. ág - 3. sep. kl. 19:30-22:30 tvisvar í viku
eða 24. - 28. ágúst kl. 13:00-16:00
•••
WordfyrirWindows g
24.- 28. ágústkl. 16:00-19:00 |
•••
Word 5.0 á Macintosh
24.- 28. ágústkL 16:00-19:00 eða
kvöldnámskeið mán og mið. 26. ág.-8. sep.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Grensásveai 16 • stolnað 1 mars 1986
Sími 68 80 90
’igJK)
CW
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir
fljótt
stíflum
Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að þaö er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 77878.
©
Tilbúinn
stíflu
eyðir
Tvíliliða eða tvísaga?
Um tvíhliða samning Alþýðubandalagsins og Evrópubandalagsins.
eftir Jón Baldvin
Hannibalsson
Alþýðubandalagið ákvað á mið-
stjórnarfundi sínum nýverið að taka
afstöðu gegn EES-samningnum.
Formaður flokksins fékk það lítt
öfundsverða hlutverk að skýra það
fyrir þjóðinni, hvers vegna flokkur-
inn sat í ríkisstjóm í þijú ár, án
þess að stöðva viðræður um EES.
Tvíhliða samningur
Fyrsta innlegg hans í þá umræðu
birtist í Morgunblaðinu 8. júll sl.
þar sem hann dregur fram gömlu
hugmyndina um tvíhliða viðræður
við Evrópubandalagið. Niðurstaða
hans er að „Ef ísland hafnar að
verða samferða hinum EFTA-ríkj-
unum í aðildarumsókn að EB, þá
er eina raunhæfa leiðin að hefja
nú þegar í haust formlegar samn-
ingaviðræður milli Íslands og EB
um framtíðarskipan samskipta
landsins við bandalagið, sjálfstæðan
tvíhliða samning milli Islands og
EB um viðskipti og samvinnu.“
Þessi nýja stefna er þeim athygl-
isverðari fyrir þær sakir að Sjálf-
stæðisflokkurinn, á meðan hann var
í stjómarandstöðu undir forystu
Þorsteins Pálssonar, hampaði mjög
hugmyndinni um tvíhliða viðræður.
En ekki einungis Alþýðuflokkurinn,
heldur Framsóknarflokkurinn og
Alþýðubandalagið einnig, leitt af
sama formanni, hafnaði þeirri leið.
Sjálfstæðisflokkurinn skipti um
skoðun þegar fyrir lá að EES skil-
aði árangri langt umfram björtustu
vonir en hann hafði þor til að viður-
kenna að hafa haft rangt fyrir sér,
sbr. grein Bjöms Bjamasonar hér
í Morgunblaðinu um það efni.
Inntakið í þessum tvíhliða samn-
ingi, telur Alþýðubandalagið, ætti
að vera í stómm dráttum hið sama
og EES-samningsins, þ.e. að færa
íslandi ávinninginn af ijórfrelsinu í
viðskiptum, en án stofnanaþáttar
EES-samningsins, sem er ætlað að
tryggja áhrif EFTA-landa á reglu-
mótun, eftirlit og framkvæmd með
leikreglum viðskiptalífsins.
Hér skal farið nokkmm orðum
um þessa hugmynd um tvíhliða
samning. Grein formannsins er full
af rangfærslum og mistúlkunum,
sem ekki verða allar eltar uppi hér.
Forsaga EES
Fyrst er þess að geta að samn-
ingaviðræður um EES-samninginn
stóðu frá 19. desember 1989, þegar
utanríkisráðherrafundur EFTA og
EB, sem fór fram í Brussel, tók
ákvörðun um nánara samstarf að-
ildarríkja þessara samtaka, þar til
2. maí 1992, þegar EES-samning-
urinn var undirritaður í Óportó.
Þessar viðræður hófust undir
EFTA-formennsku íslands og þeim
lauk undir formennsku íslands.
Tvær ríkisstjómir stóðu að samn-
ingnum, en þar áttu sæti fjórir af
fimm núverandi stjómmálaflokkum
á þingi. Engin ábyrg ríkisstjórn
gæti leyft sér að standa ekki við
gerðan samning eða að gera ekki
það sem í hennar valdi stæði til
þess að samningurinn öðlist gildi á
stjórnskipulegan hátt. Annars yrði
litið svo á að við íslendingar hefðum
samið í vondri trú og að íslandi sé
ekki treystandi í alþjóðasamskipt-
um.
í þessu sambandi breytir það
engu að mörg EFTA-ríki hafa nú
sótt um EB aðild. Austurríki var
þegar búið að sækja um inngöngu
í EB þegar EES-samningaviðræð-
umar hófust. Önnur EFTA-ríki
stefndu ekki þá að aðild, en sú staða
breyttist í kjölfar nýrrar stöðu
heimsmála. Ástæður fyrir breyttri
afstöðu þeirra em margvíslegar og
verða ekki raktar hér.
Formaðurinn undrandi
En formaður Alþýðubandalags-
ins finnur að því í grein sinni að
þessi lönd skuli voga sér að sækja
um aðild að EB, án þess að biðja
ísland um leyfi! Hann orðar þetta
svo: „Satt að segja er það sérkenni-
legt að hvorki utanríkisráðherra né
ríkisstjóm íslands hafa flutt hinum
samningsaðilunum að EES undmn
íslenskra stjómvalda yfir þessu
framferði ríkja (að sækja um EB
aðild — innsk.) sem talið var í góðri
trú að ætluðu sér að verða sam-
ferða íslandi."
Og síðar segir: „Það er staðreynd
sem íslendingar verða að horfa á
að EFTA-ríkin og EB hafa í engu
hirt um ísland í þessari ákvarðana-
töku síðustu mánuði.“ Þessi afstaða
formannsins ber vott um óraunsæi.
Að sjálfsögðu geta öll EFTA-ríkin,
sjálfstætt, tekið ákvarðanir um ör-
yggis- og viðskiptamál sín, þ.á m.
að sækja um EB aðild, án þess að
spyrja önnur EFTA-ríki um leyfi.
Hvers vegna ekki tvíhliða
samningnr?
Hugmyndin um tvíhliða samning
við EB hefur áður verið vandlega
íhuguð, skoðuð frá öllum hliðum
og hafnað, af ástæðum sem hafa
verið margreifaðar. Þær ástæður
em enn í fullu gildi. Með því að
taka þátt í marghliða samningavið-
ræðum með hinum EFTA-ríkjunum
reyndist unnt að fá ávinning fyrir
ísland, sem er í litlu hlutfalli fyrir
það sem látið var á móti.
Þannig létu stærri EFTA-þjóð-
imar töluvert af mörkum til þess
að fá samninginn í gegn. Svisslend-
ingar og Austurríkismenn gerðu
tilslakanir i vegagerð og flutninga-
málum, Norðmenn létu veralegar
veiðiheimildir af hendi og hinar rík-
ari EFTA-þjóðir greiddu vemlega
fjármuni í þróunarsjóð EB. íslend-
ingar nutu alls þessa.
Fyrir EB var það einnig kapps-
mál að láta innri markað þess ná
til EFTA-ríkjanna, bæði af pólitísk-
um og efnahagslegum ástæðum,
en EFTA-markaðurinn skiptir vem-
legu máli fyrir EB. Við slíkar kring-
umstæður var hvorki tími né vilji
til að láta stórmál á borð við EES-
samninginn stranda á kröfum
gagnvart íslandi.
Þessa stöðu tókst okkur íslend-
ingum að notfæra okkur til hins
ítrasta í samningaviðræðunum. Sá
árangur verður aldrei endurtekinn
í tvíhliða samningum, þegar EB
stendur frammi fyrir afmörkuðu
viðfangsefni, hefur nægan tíma og
er laust við sviðsljósið sem EES-
samningamir voru í.
Þessu til frekari áréttingar má
benda á nýlegan fríverslunarsamn-
ing Færeyinga við EB frá desember
1991. Þrátt fyrir að Færeyjar séu
hluti af aðildarríkinu Danmörku
náðu Færeyingar mun lakari samn-
ingum en Islendingar. Samningur-
inn jafngildir því að um 90% af flsk-
útflutningi þeirra til EB er toll-
frjáls, á meðan EES-samningurinn
tryggir íslendingum um 96,5% toll-
frelsi.
EES lagt niður?
Formaðurinn heldur því fram að
bæði Evrópubandalagið og hin
EFTA-ríkin hafí nú þegar ákveðið
þá stefnu að leggja EES og EFTA
niður á næstu tveimur til þremur
ámm með umsókn margra EFTA-
ríkja að EB. Þetta er mikill mis-
skilningur. Jafnvel þótt öll hin
EFTA-ríkin gangi í EB stendur
EES-samningurinn eftir sem áður
og hefur framkvæmdastjóm EB
staðfest þann skilning. Áð sjálf-
sögðu yrði að gera breytingar á
stofnanaþætti samningsins og taka
mið af breyttum fjölda aðildarríkja
EFTA megin. En þær breytingar
myndu í engu raska gmndvallaratr-
iðum samningsins fyrir íslands, þ.e.
aðild að innri markaði Evrópu og
tollfríðindi fyrir sjávarafurðir.
Þess utan em litlar sem engar
líkur á því að hin EFTA-ríkin verði
komin í EB innan tveggja til þriggja
ára. Eftir að Danir felldu Maastric-
ht-samkomulagið innan EB varð
þetta strax Ijóst. Samningaviðræð-
ur við ný aðildarríki munu byggja
á Maastricht-samkomulaginu. Það
verður því að leysa úr þeirri flækju,
sem þjóðaratkvæðagreiðsla Dana
hefur skapað, áður en aðildarvið-
ræður EFTA-ríkja geta hafíst fyrir
alvöru. Þá er það margreynt að
slíkar viðræður geta dregist í mörg
ár. Tafír eru einmitt líklegar í að-
ildarviðræðum Austurríkis, Sviss,
Svíþjóðar og Finnlands, sem hafa
þegar látið í ljós margar sérkröfur
og undanþáguóskir frá grundvallar-
reglum EB. Loks yrðu þjóðþing
allra aðldarríkja að staðfesta hugs-
anlega stækkun EB.
Stofnanir EES
Formaðurinn talar um í grein
sinni að gera „sjálfstæðan samning
við EB ... án stofnanabáknsins"
þannig að „ísland og EB yrðu jafn-
réttháir aðilar en í EES er EB æðra
í allri ákvarðanatöku um ný lög og
reglur". Hér er enn á ferðinni piis-
skilningur og óraunsæi. EES-samn-
ingurinn er þjóðréttarsamningur og
sem slíkur byggir á fullkomnu jafn-
ræði samningsaðila. Með honum
fær ísland áhrif langt umfram
stærð sína og efnahagslegt mikil-
vægi í heimsviðskiptum. ísland hef-
ur neitunarvald gagnvart nýjum
reglum á EES-svæðinu, sem í fram-
kvæmd veitir því tækifæri til þess
að hafa áhrif á efni reglnanna, jafn-
vel þótt neitunarvaldinu yrði ekki
beitt.
Stofnanaþáttur samningsins er
einn sá mikilvægasti fyrir ísland
vegna þess að með honum er geng-
ið eins langt og unnt er til að
tryggja fulla framkvæmd samn-
ingsins og eftirlit með honum gagn-
vart íslenskum hagsmunum, ríkis-
borgurum og fyrirtækjum. Slíkt
fyrirkomulag er hagstæðast fyrir
minni ríkin í öllu alþjóðasamstarfi
vegna þess að stærri ríkin era í
mun betri aðstöðu til þess að
tryggja sína hagsmuni á pólitíska
vísp.
I þessu sambandi er við hæfí að
vitna í orð Einars Karls Haraldsson-
ar, framkvæmdastjóra Alþýðu-
Jón Baldvin Hannibalsson
„Engin ábyrg ríkis-
stjórn gæti leyft sér að
standa ekki við gerðan
samning eða að gera
ekki það sem í hennar
valdi stæði til þess að
samningurinn öðlist
gildi á stjórnskipulegan
hátt. Annars yrði litið
svo á að við Islendingar
hefðum samið í vondri
trú og að Islandi sé
ekki treystandi í al-
þj óðasamskiptum.“
bandalagsins, úr efni sem hann tók
saman fyrir utanríkisráðuneytið í
desember sl. á meðan hann vann
hjá almenningstengslastofunni At-
hygli hf.: „Sameiginlegur markaður
kallar á sameiginlegar leikreglur.
Meginreglan er um fjórfrelsið og
EB rétturinn er þar lagður til
gmndvallar. Fríverslun er óhugs-
andi án samkeppnisreglna. Sam-
keppnisreglur vemda smærri fyrir-
tækin með virku eftirliti og úr-
skurðavaldi. í stað reglugerða um
eitt og annað munu koma sam-
ræmdir staðlar Evrópuþjóða, sem
mæla fyrir um gæði vöm og þjón-
ustu. EES-nefndin, EES-dómstóll-
inn og EB-dómstóllinn skera úr
ágreiningsefnum og kæmmálum og
opinberar stofnanir eða viðurkennd-
ar einkastofnanir hafa eftirlit með
því að farið sé að leikreglum."
EES sama og EB aðild?
Formaðurinn talar um að „ekki
(sé) hægt að draga afdráttarlausa
stöðvunarlínu milli EES-samnings-
ins og EB aðildar". Þetta er einnig
rangt. Áður hefur verið að því vikið
að margar ástæður liggja að baki
ákvörðunar Austurríkis, Sviss, Sví-
þjóðar og Finnlands að sækja um
EB aðild, en meðal þeirra er ekki
aðild þeirra að EES-samningnum.
Austurríkismenn höfðu þegar
sótt um EB aðild þegar EES-samn-
ingaviðræðumar fóm af stað, sem
áður sagði. Fyrir Svía vó það þungt
að að sænsk fyrirtæki voru í hrönn-
um farin að flýja land og erlendar
fjárfestingar fóm minnkandi, en
beindust í staðinn að EB í kjölfar
áætlunar um að afnema öll höft á
innri markaðnum fyrir lok 1992.
hagstœð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar
u
IÐNÞROUNARSJOÐUR
Kalkofnsvegi 1 150 Reykjavík sími: (91) 69 99 90 fax: 62 99 92