Morgunblaðið - 20.08.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
19
Tafir á hjálparflugi Bandaríkjamanna í Sómalíu:
Franskir læknar lýsa áður
óþekktum hungursvæðum
Nairobi, París. Reuter.
FULLTRÚAR frönsku samtakanna Læknar án landamæra segjast hafa
uppgötvað svæði í Sómalíu þar sem ríki jafnvel enn skelfilegri neyð
en áður var vitað um þar í landi. I héruðum umhverfis borgirnar Ba-
idoba, Bardera, Dinsor og Audinie í vesturhluta landsins liggi manns-
lík eins og hráviði um allt. „Margir naga föt sín eða geitarskinnspoka.
Vatnsskorturinn er ægilegur og fólk drekkur úr pyttum sem verða æ
grynnri... Flest minni þorp hafa verið yfirgefin, húsin brennd eða
eyðilögð á annan hátt,“ sagði í yfirlýsingu samtakanna.
Zhírínovskí
Smáríkin
eign Rússa?
Einn þekktasti þjóðemis-
sinninn úr röðum rússneskra
stjómmálamanna,- Vladímír
Zhírínovskí, formaður Fijáls-
lynda lýðræðisflokksins, segir
að Eistland, Lettland og Lithá-
en séu enn hluti Rússlands.
„Ég vil eðlileg samskipti við
Finnland og hin Norðurlönd-
in,“ sagði hann í viðtali við
Vasabladet í Finnlandi í gær.
„En látið málefni Eystrasalts-
landanna og sjálfstæðisbaráttu
þeirra eiga sig. Þau eru hluti
Rússlands“.
í yfírlýsingunni segir einnig að
skyndikönnun hafí leitt í ljós að öll
börn undir fímm ára aldri hafí sýnt
merki um næringarskort, þar af
80% mjög alvarlegan skort.
Umfangsmikil áætlun Banda-
ríkjamanna um að hefja loftflutn-
inga á mat og öðrum hjálpargögn-
um til sveltandi íbúa Sómalíu, er
hefjast átti í dag, tefst nokkuð
vegna þess að fyrst þarf að fella
tré við flugvöll sem nota átti í land-
inu. Markmiðið er að 145.000 tonn
af matvælum verði flutt til landsins
en talin er hætta"á að hálf önnur
milljón manna deyi þar úr hungri
á næstunni. Notaðar verða 11 flug-
vélar í hjálparfluginu og sumar afar
stórar, af tegundinni C-141. Sagði
talsmaður Bandaríkjastjómar að
trén væru of nálægt mjóum braut-
um vallarins sem er í borginni
Wajir.
Álgert stjórnleysi ríkir í Sómalíu
og vopnaðir óaldarflokkar stela
hjálpargögnum þegar færi gefst.
Oöldin hófst er einræðisherranum
Mohammed Siad Barre var steypt
af stóli fyrir hálfu öðru'ári en þá
hófst borgarastríð. Tugþúsundir
manna liggja þegar í valnum, flest-
ir hafa dáið úr hungri en margir
falla einnig fyrir byssum sem nóg
er af; risaveldin kepptu lengi um
hylli Siad Barre sem þá öll vopn
með þökkum. Sameinuðu þjóð-
imar hófu hjálparflug til Sómal-
íu á laugardaginn en nokkrar
alþjóðastofnanir, þ. á. m. Rauði
krossinn, byrjuðu að liðsinna
fólki á nokkmm svæðum fyrir
fáeinum mánuðum. Frakkar hófu
að fljúga með birgðir frá nágranna-
ríki Sómala, Djibouti, í gær til borg-
arinnar Baidoba en einnig senda
þeir 2.000 tonn af matvælum með
skipi til höfuðborgarinnar Mogadis-
hu. Fyrr í mánuðinum sendu Frakk-
ar skip með um 2.200 tonn af mat
til Mogadishu en það tók tíu daga
að losa skipið vegna framferðis
stríðandi óaldarflokka í borginni.
Bandaríkjamenn munu senda nokk-
ur hundruð hermenn á vettvang til
að tryggja að hjálpargögnin komist
til þurfandi fólks.
Breska vikuritið The Economist
segir í forystugrein að þegar að-
stæður séu jafn ægilegar og í Sóm-
alíu eigi menn ekkert að hafa
áhyggjur af því hvort eitthvað af
matvælum lendi hjá vopnuðu óald-
arhyski sem reyni ef til vill að græða
á því að selja þau. Slíkar vangavelt-
ur skipti engn máli, á endanum
hljóti matvælin að metta almenning
í landinu, komist nóg af þeim á
áfangastað. Senda beri mat úr
geymslum Evrópubandalagsins, þar
sem offramleiðslan sé varðveitt, og
jafnvel komi til greina að varpa
matnum niður við mannabyggðir,
nánast af handahófi, úr flugvélum,
bókstaflega „drekkja landinu í
mat“.
------» ♦ ♦----
*
Irar kæra
niðurskurð
Dyflinni. Reuter.
IRSKA stjórnin hefur ákveðið að
leita álits Evrópudómstólsins á til-
lögum framkvæmdastjórnar Evr-
ópubandalagsins um niðurskurð á
írska fiskiskipaflotanum. Michael
Woods, sjávarútvegsráðherra Ir-
lands, skýrði frá þessu í gær.
í tilkynningu Woods sakaði hann
framkvæmdastjómina um að bijóta
grundvallaratriði Rómarsáttmálans
og spáði hörðum átökum. Irski fiski-
skipastóllinn er 50.000 brl. en EB
vill skera hann niður í 38.000. Wo-
ods segir að það muni hafa skelfileg-
ar afleiðingar í för með sér og valda
miklu atvinnuleysi.
„Orrustan
um tána á
Fergie“
London. Reuter.
ÁSTANDIÐ í Bosníu og hugsan-
legar hernaðaraðgerðir í írak eru
ekki ofarlega á blaði hjá gulu
pressunni í Bretlandi. Það, sem
hún vill vita, er hvað líði myndum
af hertogaynjunni af Jórvík þar
sem hún er berbijósta að kela við
kunningja sinn frá Texas á sund-
laugarbarmi í Frakklandi. Og ekki
nóg með það. Sagan segir, að á
einni myndanna sjáist Texasbúinn
sjúga aðra stóru tána á Fergie.
Þetta mál, sem
kallað hefur verið
„Orrustan um
tána á Fergie“,
hefur kætt mjög
gulu pressuna í
miðri gúrkutíð-
inni en Evening
Standard heldur
því fram, að Da-
ily Mirror hafí
skotið Sun ref
fyrir rass í kapp-
hlaupinu um myndimar og greitt
fyrir þær allt að 7,5 milljónir ísl. kr.
Yfirmaður myndadeildar Daily Mirr-
or, John Nead, vildi aðeins segja það
um þessa staðhæfingu, að honum
hefðu að vísu verið sýndar einhveijar
myndir „en heldur óskýrar".
Orðrómur var um, að franska
tímaritið Paris Match ætlaði að birta
myndimar en Iögmenn Texasbúans
og milljónamæringsins John Bryans
fengu sett lögbann á hugsanlega
birtingu þeirra þar. Var haft eftir
ritstjóra tímaritsins, að myndimar
myndu birtast í bresku blaði í dag,
fímmtudag.
Bresku blöðin fengu fyrst áhuga
á Bryan fyrir íjórum mánuðum þeg-
ar hann gerðist fylgdarmaður her-
togaynjunnar í ferð um Austurlönd
fjær, skömmu eftir að tilkynnt var,
að skilnaður þeirra Andrésar prins
stæði fyrir dyrum.
John Bryan
2
Tveggja daga námskeið
um fjármál einstaklinga
27. og 28. ágúst kl. 9-11:30 eða 2. og 3. september kl. 20-22:30 í
YIB-stofunni, Ármúla 13a, 1. hæð.
6.900,- kr.
Námsgögn innifalin
- Ég hef unnid í brádum 20 ár hjá sama
fyrirtœki, ég hef ágœt laun en fmnst samt að
ég eigi ekki mikib.
Hvernigget ég best aukid eignimar og tryggl
þannig öryggi og afkomu fjölskyldunnar?
Emföl
(0L
eigiMJ
Lögð er áhersla á: Markmib íjjármálum, bæbi til lengri og skemmri tima, þar sem reynt er áb
samræma drauma og veruleikann; reglulega uppsetningu á eignum og skuldum meb tengingu vib
rekstur heimilis; markvissa eignastýringu þar sem vegin er saman áhœtta og ávöxtun; reglubundinn
samanburb á árangri og settum markmibum.
Einstakt námskeib jyrir einstaklinga
sem vilja hnitmibaba leibsögn vib
hámörkun eigna sinna, á hvába aldri
sem er. Ldbbdnandi erSigurburB.
Stejánsson, framkvœmdastjóri VIB.
Þátttaka tilkynnist til afgreibslu VIB,
Arnheibar Eddu Rafnsdóttur, í síma
91-681530.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.
BESTU
KAUPIN
Vegna hagkvæmra
innkaupa getum við
boðið takmarkað magn
af AM ljósritunarvélum
á ótrúlega góðu verði.
Ódýrar í rekstri, skjót
og góö viÖhaldsþjónusta.
Dvergshöfða 27, sími 673737.