Morgunblaðið - 20.08.1992, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992
--------j----------------------------
I\ýlt skrifstoftitæknmám
Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift að auka við
þekkingu þína og atvinnumöguleika á skjótan og
hagkvæman hátt.
Þú lærir bæði á Macintosh- og PC-tölvur, auk al-
mennrar skrifstofutækni, bókfærslu, tölvubókhalds,
verslunarreiknings og toll- og verðútreikninga.
Innritun stendur yfir.
Hringið og fáið sendan ókeypis bækling.
Minning:
Sigríður Krisljáns-
dóttir Beck
Sigríður Kristjánsdóttir Beck frá
Bolungarvík, ekkja Konráðs Becks
stjómarráðsfulltrúa, er látin á 86.
aldursári.
Sigríður var yngsta bam hjón-
anna Hjálmfríðar Guðrúnar Tyrf-
ingsdóttur og Kristjáns Guðmundar
Jónssonar. Föður sinn missti Sigríð-
ur er hún var á fyrsta ári og móður
sína á tíunda ári. Eldri'systkini Sig-
ríðar em: Jóhann, hreppsstjóri og
formaður í Bolungarvík; Guðrún,
eiginkona Árna E. Amasonar síma-
manns; Karitas, dó ung; Unnur
hjúkmnarkona og Jón; dó 16 ára.
Sigríður er tengd fyrstu endur-
minningum mínum sem barns á
heimili mömmu og hjá Ölgu Elías-
dóttur, mágkonu mömmu og ein-
lægrar vinkonu Sigríðar.
Sigríður var mikil myndarkona
til hugar og handa, fríð sýnum og
hjartahrein.
Aldrei heyrði ég hana hallmæla
neinni manneskju, enda held ég að
allir sem henni kynntust hafi borið
til hennar afar hlýjan hug. Skap
hennar var með afbrigðum gott,
framkoman róleg og blíð. Hún var
manni sínum styrk eiginkona og
var hjónaband þeirra með eindæm-
um gott. Allt hennar starf miðaðist
við að hlúa að heimilinu. Einkabam
þeirra hjóna er Þórólfur Kristján
Beck, hæstaréttarlögmaður,
kvæntur Kirsti Lauritsen Beck.
Barnabömin era Sigríður Kristjáns-
dóttir Beck, Tómas Beck og Katrín
Dagmar Beck.
Eg vil Ijúka þessum fáu kveðju-
orðum til vinkonu mömmu með því
að votta djúpa virðingu fyrir vamm-
lausu ævilöngu dagsverki hennar,
sjaldgæfri hjartahlýju og góðvild,
sem ekki náði aðeins til náinna vina
heldur til allra, sem hugur hennar
og hönd komust í snertingu við.
Guðs blessun fylgi Sigríði í Sum-
arlandinu. Innileg samúðarkveðja
til ástvina.
Helgi Falur.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUNNBJÖRG STEINSDÓTTIR
frá Miðkrika,
síðast til heimilis
á Kirkjuhvoli, Hvolshreppi,
verður jarðsungin frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 22. ágúst
kl. 14.00.
Guðmundur Jóhannsson,
Steindór Ágústsson,
Óli Ágústsson, Ásta Jónsdóttir,
Sigurbjörg Diks, Donald Diks,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför sonar okkar,
ÓLA KR. SIGURÐSSONAR
forstjóra.
Ragnhildur og Sigurður Eyjólfsson.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og úför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÞURÍÐAR VILHELMÍNU
SIGURÐARDÓTTUR
frá Reynistað,
Vestmannaeyjum.
Sigurlaug Ólafsdóttir,
Þorleifur Sigurlásson,
Anna Sigurlásdóttir,
Kristfn Sigurlásdóttir,
Ásta Sigurlásdóttir,
Ólöf Sigurlásdóttir,
Jóna Sigurlásdóttir,
Gústaf Sigurlásson,
Helgi Sigurlásson,
Margrét Sigurlásdóttir,
Geir Sigurlásson,
Linda Sigurlásdóttir,
Aðalheiður Óskarsdóttir,
Þórhallur Þórarinsson,
Gunnar Berg,
Haraldur Gestsson,
Jóhanna Viglundsdóttir,
Marta Karlsdóttir,
Erlingur Pétursson,
Helga Gísladóttir,
Halldór B. Halldórsson,
Svanhvít Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HEIÐBJARTAR ÓSKARSDÓTTUR,
Víðimýri 4,
Sauðárkróki.
Viðar Vilhjálmsson, Sigrfður Kristjánsdóttir,
Hulda Vilhjálmsdóttir, Þórarinn B. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.