Morgunblaðið - 03.11.1992, Page 61
i
i
i
i
i
i
i
i
1
s<?cí íimM'dvövi.« HUDAauiaifld aiaAiaMUDMOM_________________________________________ _ 00
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1992 61
Falskir sölumenn
Frá Kristni Eysteinssyni:
Ég var að ganga niður Lauga-
veginn þegar ungur maður kemur
til mín og heilsar mér á ensku. Ég
tek undir kveðju hans og þá réttir
hann mér bók og segir „here, this
is for you“ sem á íslensku útleggst
„gjörðu svo vel, þetta er handa
þér“. Með öðrum orðum, hann gaf
mér bókina. Fræðir hann mig síðan
lítillega um innihald bókarinnar. í
henni er að finna fímm þúsund ára
gamla speki (og svo tala menn um
Nýöld). Var þetta ein af uppáhalds
bókum Mahatma Ghandi, að sögn
þessa unga manns. Þetta var lítil
falleg bók, á íslensku, og af mynd-
inni framan á henni mátti sjá að
hún hafði eitthvað með austræn
trúarbrögð að gera.
Maðurinn hafði verið hinn kurt-
eisasti fram að þessu (að því undan-
skildu að hann kynnti sig aldrei),
en næst fór hann að biðja mig um
peninga. Það skal tekið fram að
hann bað um ftjáls framlög (dona-
tion), en hann lagði greinilega aðra
merkingu í það orð en ég hef van-
ist. Ég hef sjálfur tekið þátt í því
að dreifa bókum gegn fíjálsum
framlögum og hefur reglan alltaf
verið sú að viðtakandinn ræður
sjálfur hvað hann gefur mikið, eða
hvort hann gefur nokkuð yfírleitt
(þess vegna heitir það Frjáls fram-
lög), en bókina má hann eiga hvort
sem hann gefur nokkuð eða ekki.
En þegar ég kvaðst ekki hafa neina
peninga á mér þreif maðurinn bók-
ina af mér, sagði „maybe next time“
(kannski næst) og labbaði í burtu.
Ég vil eindregið vara fólki við
þessum mönnum, en þeir eru nokkr-
ir sem nú ganga um götur borgar-
innar og dreifa títtnefndri bók. Af
framangreindu má sjá að þessir
menn stunda iðju sína eingöngu í
gróðaskyni (ef þeir gerðu það af
hugsjón hefði hann gefíð mér bók-
ina). Það er e.t.v. ekki rangt í sjálfu
sér að gera eitthvað svona lagað í
gróðaskyni, en verra er að þeir sigla
undir fölsku flaggi, þ.e. þeir „gefa“
manni bókina, en ef þeir geta ekki
haft af manni peninga breytist öll
framkoma þeirra og þeim virðist
alveg sama hvað verður um mann.
Og svo er talað um frið og kærleika.
og að allir menn eigi að lifa í sátt
og samlyndi. En hvemig á það að
vera hægt ef menn láta sér ekki
annt hver um annan nema þeir
geti haft af manni peninga?
En hvað um boðskap bókarinnar,
getur hann ekki verið góður, hvem-
ig sem boðberar hans em? Eins og
áður segir var bókin tekin af mér
og því hef ég ekki haft tækifæri
til að lesa hana, en mér finnst rétt
að minnast nokkrum orðum á aust-
ræn trúarbrögð almennt.
Fyrirgefning er ekki til í aust-
rænum trúarbrögðum. Menn verða
að vinna sér inn „sáluhjálp" með
því að vinna góðverk. Þetta endur-
speglast í framkomu manna við
aðra. Ein af ástæðunum fyrir hinni
miklu fátækt á Indlandi er að sam-
VELVAKANDI
KÖTTUR
Gulur fressköttur hefur ver-
ið á flækingi í Aratúni í lang-
an tíma. Hann er um það bil
tveggja ára gamall. Éigandi
hans er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 642996.
GÓÐIR
ÚTVARPS-
ÞÆTTIR
Sigrún Jónsdóttir:
Ég hlusta aðallega á Bylgj-
una og Aðalstöðina en nú
bregður svo við að það eru
engir þættir fyrir okkur sem
erum á miðjum aidri. Ég sakna
þátta sem vom á Aðalstöð-
inni. Gullöldin í umsjá Berta
Möller, þar sem leikin var
rokktónlist, og Í dægurlandi í
umsjá Garðars Guðmundsson-
ar, sem var eingöngu með ís-
lenska tónlist. Lög sem heyr-
ast sjaldan á hinum stöðvun-
um í síbyljunni dags daglega.
Ég skora á útvarpsstöðvamar
að fá þessa heiðursmenn til
starfa. Ég veit um fjöldan all-
an af fólki sem er sama sinnis
og ég.
PENNI
Silfurlitaður penni, merktur
„Sextíu ára“ fannst nýlega í
Breiðholti. Upplýsingar í síma
33281.
KÖTTUR
Svartur fressköttur með
hvítar loppur og hvíta bringu,
sem heitir Elvis, tapaðist frá
heimili sínu í Hólahverfi,
Breiðholti, 4. október.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 71034.
LYKLAR
Lyklar fundust við Ægisíðu
á móts við efnalaugina Hraða
og eru þeir líklega í eigu bams.
Vitja má lyklana hjá efnalaug-
inni Hraða.
VONDAN RÓG
EIVARAST MÁ
Hreiðar Jónsson:
Þegar ég fylgdist með sam-
talsþætti á Stöð 2 í vikunni
þar sem Davíð Oddsson for-
sætisráðherra var borinn ýms-
um sökum kom mér í hug eft-
irfarandi vísa sem ég lærði í
bernsku. Mér er ekki kunnugt
um hver er höfundur vísunar
en hún er svona: Vondan róg
ei varast má varúð þó menn
beiti. Mörg er Gróan máluð á
marnnorðsþjófa Leiti.
GULLNÆLA
Gullnæla með perlu tapaðist
annað hvort í íslensku Óper-
unni eða á leið þaðan að Am-
arhvoli. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
34569.
HÁLSKEÐJA
Gullhúðuð hálskeðja tapað-
ist fyrir utan Danshúsið eða
skemmtistaðin Gullið.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í Sölva í síma
612276. Fundarlaun.
PÁFAGAUKUR
Grængulur páfagökur með
fjólubláum doppum flaug út
um glugga að Meistaravöllum
19 á miðvikudagskvöld. Vin-
samlegast hringið í síma
27134 ef hann hefur einhvers
staðar komið fram.
GULLARM-
BAND
Gullarmband fannst fyrir
skömmu. Upplýsingar í síma
73483.
kvæmt þeirra trú má ekki hjálpa
hinum fátæku, þeir em áð taka út
refsingu fyrir þær syndir sem þeir
drýgðu í fyrra lífí og með því að
lina þjáningar þeirra emm við að
draga úr refsingunni og þeir verða
bara að taka hana út í því næsta.
En ef menn ná því að vera „nógu
góðir“, sem þeir geta aldrei verið
vissir um, fara þeir samt ekki til
himnaríkis heldur hætta þeir að
vera til sem einstaklingar og sam-
einast guðdóminum, en guð aust-
rænna trúarbragða er ekki persónu-
legur, eins og kristindómurinn
kennir að hann sé, heldur einhver
óskilgreindur alheimskraftur sem
stjómar öllu og öllum. Hann er
hvorki illur né góður, en um leið
er hann bæði illur og góður(?)
Kristindómurinn kennir hins veg-
ar að maður geti aldrei unnið sér
inn sáluhjálp og því hafi Jesús
Kristur komið til jarðarinnar til að
deyja fyrir syndir okkar. Ef við
gefumst honum og viljum fylgja
honum af öilu hjarta mun hann
fyrirgefa okkur syndir okkar og við
munum eignast eilíft líf með honum.
Að lokum þetta. „En vér vitum,
að maðurinn réttlætist ekki af lög-
málsverkum heldur fyrir trú á Jes-
úm Krist. Og vér tókum trú á Krist
Jesúm til þess að vér réttlætumst
af trú á Krist, en ekki af lögmáls-
verkum. Enda réttlætist enginn lif-
andi maður af lögmálsverkum."
(Galatabréfíð 3:16).
KRISTINN EYSTEINSSON,
Vífilsgötu 1, Reykjavík.
Pennavinir
Nítján ára Breti með norrænt
nafn og skrifar á sæmilegri norsku
auk ensku, frönsku og þýsku. Hefur
áhuga á tungumálum, ferðalögum
og tónlist. Nemur norsku og sænsku
í háskóla:
Kristjan Svemsson,
7 Salter Walk,
Headland,
Hartlepool,
Cleveland GB-TS24 OEH,
Britain.
Einstæð 35 ára ungversk móðir
sem býr með syni sfnum í höfuð-
borg landsins, með áhuga á leik-
húsi, tónlæist, bókmenntum, ferða-
lögum og erlendum tungumálum:
Aranka Varga,
Budapest,
Futórózsa u.llO.fsz.l,
H-1165,
Hungary.
Benínmaður, 27 ára, sem býr í
Níger, tryggingasali, með áhuga á
kvikmyndun, sundi, útivist o.fl.:
Frank Fahouegnon,
s/c Fahouegnon Simon-Marie,
Maison de l’Afrique,
B.P. 11207,
Niamey,
Niger.
Frá Ghana skrifar 26 ára kona með
áhuga á kvikmyndum, ferðalögum,
bókalestri o.fl.:
Evelyn Asamoah,
P.O. Box 1120,
Castle Road,
Cape Coast,
Ghana.
VMngMk* 31.0kt. 1992
laugardaginn
FJOLDI
VINNHGSHAFA
UPPHÆÐAHVEBN
VINNINGSHAFA
1.
6.934.589
2.
ni6<
4af 5™
8
161.183
3.
280
10.131
7.944
4.
512
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
22.570.034 kr.
upplýsingar:símsvari91 -681511 lukkulína991002
■ PÚLSINN og sparisjóðimir
gerðu miðvikudaginn 28. október
1992 með sér samstarfssamning
vegna Liðveislu, námsmannaþjón-
ustu sparisjóðanna. Allir Liðveislu-
félagar frá 50% afslátt af miðaverði
á tónleika íslenskra flytjenda á Púls-
inum og 20% afslátt á alla tónleika
erlendra flytjenda gegn framvísun
Liðveisluskírteina og meðan húsrúm
leyfir. Einu sinni í mánuði verða sérs-
takir Liðveislutónleikar þar sem Lið-
veislufélagar fá ókeypis inn. Tónleik-
ar þessir verða í nóvember 1992,
janúar 1993, febrúar 1993, mars
1993 og apríl 1993. Gengið verður
út frá því að um úrvalstónleika sé
um að ræða, þ.e. erlendir gestir og
þekktir íslenskir tónlistarmenn. Skól-
ar innan BÍSN og Iðnnemasambands
Islands eiga þess kost í nafni Lið-
veislu að fá afnot af Púlsinum fyrir
nemendur og nemendafélög án end-,
urgjalds. Ákveðið er að þessi kvöld
verði skipulögð af nemendum í sam-
starfí við Púlsinn. Það má ætla að
þama geti verið um að ræða t.d.
fyrirlestra, námsstefnur, skemmti-
kvöld með tónlistaruppákomum o.fl.
Samningur þessi gildir frá og með
1. nóvember 1992 til 1. júlí 1993.
(Fréttatilkynning:)
Þa𠧧m §p svo sk§mmtil§gt við Luiidby hornsófami
er hvað hann er fallegur og þægilegur og hentar vel fyrir
barnmargar fjölskyldur því hann er klæddur sterku vel
vörðu leðri á slitflötum og svo er hann til afgreiðslu strax
í hvorki meira né minna en 13 leðurlitum svo ailir ættu að
fá þann lit sem hentar best hverjum og einum.
Góð greiðslukjör. Visa Euró raðgreiðslur eða Munalánsgreiðslur.
Eiruiig gefum við vaenan staðgreiðsluafelátt.
flúsgagnahöllin
BÍLDSHÖFDA20 - 112 REYKJAVÍK • SÍMl 91-681199
Í
mm