Morgunblaðið - 03.03.1993, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993
3
Feeney dæmdur í 2 ára fangelsi og Grayson í 12 mánaða fyrir „barnsránið“
Faðirinn fékk
skilorðsbundinn
dóm en atvinnu-
maðurinn ekki
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Donald M. Feeney í
2 ára fangelsi og James Brian Grayson í 12 mánaða fangelsi, þar
af 9 mánuði skilorðsbundið, fyrir að nema á brott dætur Ernu
Eyjólfsdóttur, þar á meðal dóttur Graysons. Báðir eru mennirnir
sakfelldir fyrir barnsrán og frelsissviptingu, eins og þeim hafði
verið gefið að sök. Donald M. Feeney lýsti strax yfir áfrýjun
dómsins en James B. Grayson tók sér fjögurra vikna frest til að
íhuga áfrýjun. í Héraðsdómi var gæsluvarðhald Feeneys í gær
framlengt til 1. júní eða uns endanlegur dómur liggur fyrir. Far-
bann yfir James Brian Grayson var framiengt til 30. mars.
Morgunblaðið/Júlíus
Dómsins beðið
DONALD M. Feeney ræðir við James Brian Grayson og eiginkonu hans, Ginger, í Dómhúsi Reykjavíkur
í gærmorgun, skömmu áður en dómsniðurstaðan var kynnt.
Eins og margsinnis hefur verið
rakið í Morgunblaðinu voru menn-
imir ákærðir fyrir að hafa að
morgni 27. janúar numið hálfsyst-
umar Anne Nicole Grayson og El-
isabeth Jeanne Pittman á brott frá
móður þeirra á Hótel Holti með það
fyrir augum að koma telpunum í
umsjá hinna bandarísku feðra sinna
en þeir höfðu leigt Feeney og fyrir-
tæki hans, CTU til þess starfa.
Feeney og Grayson vom handtekn-
ir á Keflavíkurflugvelli en starfs-
fólk Feeneys komst undan til
Lúxemborgar með eldri telpuna,
Elísabetu, sem yfírvöld þar sendu
svo aftur til íslands.
Starfsfólk Feeneys, sem er for-
stjóri fyrirtækisins CTU, hafði unn-
ið sér traust móður telpnanna með
því að segjast vinna að undirbún-
ingi kvikmyndagerðar hér á landi.
Feeney kvaðst fyrir dórni ekki hafa
haft vitneskju um einstök atriði
málsins þar sem kona hans, ein
þeirra sem komst undan til Lúxem-
borgar, hafí skipulagt aðgerðina.
Grayson og Feeney bar saman um
að föðurnum hafí ekki verið greint
frá því hvað til stæði að öðru leyti
en því að verið væri að reyna að
semja um það að- Ema léti dætur
sínar af hendi gegn greiðslu.
Fráleitt að Erna hafi verið með
í ráðum
í dómi Hjartar 0. Aðalsteinsson-
ar héraðsdómara segir m.a.: „Þegar
litið er til þess að Erna ferðast til
Sviss með umræddu fólki og tekur
einungis aðra dóttir sína með sér
vegna óljóss grunar um að taka
eigi börn hennar frá henni, þess
að skilin eru eftir skilaboð til Ernu
um morguninn að Hótel Holti um
að Lawrence [starfsmaður Fee-
neys] hafí farið með bömin til að
gefa þeim að borða og viðbragða
Emu er hún uppgötvaði að böm
hennar vom horfín af hótelherberg-
inu og þá höfð hliðsjón af framburð-
um vitna um geðshræringu hennar,
verður að telja fráleitt að Ema
hafí verið með í ráðum um ætlað
brottnám barnanna."
Þá segir að þrátt fyrir að Gray-
son hafí ráðið sér til aðstoðar ís-
lenskan lögmann hafi hannog fjöl-
skylda hans leitað til fyrirtækis
Feeneys, CTU, sem Grayson hafi
verið íjóst að sérhæfði sig í að ná
aftur börnum sem flutt hafi verið
ólöglega frá Bandaríkjunum.
„Ákærði Feeney hefur borið að
hann sé stjómarformnaður og
framkvæmdastjóri CTU. Hlaut
Auður leikur í
Japan og Kína
AUÐUR Hafsteinsdóttir, fiðluleikari, heldur á morgun í hljómleika-
ferð til Japans og Kína. Ferðin stendur til 28. mars og leikur hún
á einum tónleikum í Peking og fjórum til sex i Tókýó. „Ég verð
með blandaða efnisskrá, en held þeim vana að flylja alltaf einhver
íslensk verk, enda vil ég nota tækifærið á hljómleikum erlendis og
kynna íslenska menningu," sagði Auður í samtali við Morgunblaðið.
Auður eyðir fyrstu dögum ferð-
arinnar við æfíngar í Japan, ásamt
píanóleikaranum Aki Gifford, en
þær hafa leikið saman áður. Þá
taka við hljómleikar í tónlistarskól-
anum í Peking þann 13. mars, en
undirleikari Auðar þar verður kín-
verskur píanóleikari. 17. mars
verða fyrstu tónleikarnir í Tókýó.
„Kínverski sendiherrann hér á landi
heyrði mig leika á tónleikum hér
og bauð mér að halda tónleika í
Kína,“ sagði Auður um tildrög ferð-
arinnar. „Aki Gifford stendur fyrir
tónleikunum í Japan, en ég fékk
styrk til ferðarinnar frá Scandinav-
ian Japan Sasakawa Foundation.“
Auður sagði að hún teldi nauð-
synlegt að tónlistarmenn færu
stundum út fyrir landsteinana.
„Það er gott að hitta aðra tónlistar-
menn og auka þannig víðsýni sína
sem listamaður," sagði hún. ,,Þá
finnst mér ekki síður mikilvægt að
fá tækifæri til að kynna íslenska
tónlist og íslenska menningu. Það
skiptir mig miklu máli að fólk viti
að ég er Islendingur og ég gæti
þess að leika ávallt íslensk verk á
Auður Hafsteinsdóttir
tónleikum erlendis.“
Á efnisskrá Auðar í austurferð-
inni verða m.a. sónötur eftir
Brahms og Grieg, verk eftir Atla
Heimi Sveinsson og eldri íslensk
verk.
honum sem slíkum að vera ljóst í
hverju aðgerðir samverkamanna
hans hér á landi voru fólgnar enda
ferðaðist hann bæði til Sviss og
íslands í tengslum við mál þetta.
Samkvæmt framansögðu bera
ákærðu því báðir fulla og sameigin-
lega ábyrgð á aðgerðum starfs-
manna CTU, sem miðuðu að ætluðu
brottnámi barnanna."
Létu ekki reyna á gildi
forræðisdómanna
Þá er rakið að í dómum Hæsta-
réttar um gæsluvarðahaldsvist
mannanna hafí því verið slegið
föstu að Ema Eyjólfsdóttir hafí
-umsjá dætra sinna hér á landi
meðan yfjrvöld geri ekki á því aðra
skipan. „Aðgerðir ákærðu leiddu
til þess að móðirin var svipt þess-
ari umsjá án þess að atbeina ís-
lenskra yfirvalda væri leitað og án
þess að látið yrði reyna á gildi
bandarísku forræðisdómanna hér á
landi með formlegum hætti.
Þá segir að með hliðsjón af því
að Grayson hafi verið dæmt for-
ræði dóttur sinnar í Bandaríkjunum
og því að hann tengdist eldri telp-
unni fjölskylduböndum um tíma
þyki mega fresta fullnustu 9 mán-
aða af þeirri refsivist sem hann var
dæmdur til og fella hana niður
haldi hann skilorð í þijú ár. Hins
vegar sé refsing Feeneys, sem ein-
ungis hafí átt íjárhagslegra hags-
muna að gæta, hæfíleg 2 ára fang-
elsi. Auk þess hvor mannanna
dæmdur til að greiða lögmanni sín-
um 300 þúsund króna málsvamar-
laun og sameiginlega 200 þúsund
krónur í saksóknarlaun í ríkissjóð
og annan sakarkostnað.
MF.NNINGARVERÐLAUN DV
T P'T'K’T T^iT*
IVliU M. •
eftir ÓlafHauk Símonarson.
ÚR UMMÆLUM DÓMNEFNDAR:
„Höfundur sem kann
að skrifa fyrir leikhús!“
„Undiraldan í Hafinu er þung og átökin hatrömm. Ólafur kemur
beint að kjarna málsins og í textanum togast á galsi og dýpsta alvara.
Hann' leggur net sín af kunnáttu, þróar persónurnar innan verksins og
flettir yfirborðinu af þeim lag fyrir lag uns þær standa berskjaldaðar
eítir.“ ... „Það dottar enginn á meðan öldurótið gengur yfir á sviðinu.“
...„úrvinnslan er sterk og einkum verður minnisstæð framganga leikarana“
... „Hafið er þróttmikið og dramatískt verk, memaðarfullt og ninnið upp
úr rammíslenskum veruleika.“
— Látið þessa frábæru sýningu ekki lfam hjá ykkur fara. —
NÆSTU SÝNINGAR:
Sunnudaginn 7. mars, laugardaginn 13. mars, sunnudaginn 21. mars.
Við óskum Ólafi Hauki Símonarsyni innilega til hamingju
meðþessi verðskulduðu verðlaun.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Miðasala í síma 11200.
Við minnum einnig á Gjafakort Þjóðleikliússins sem fást í bókaverslunum Eymundssonar.