Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993 Verður fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu sviptur þinghelgi? Bettino Craxi ber af sér mútuþægni Verðum að uppræta maðkapláguna, segir dómsmálaráðherrann Róm. Reuter. BETTINO Craxi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, sem sagði af sér formennsku í Sósíal- istaflokknum í síðasta mánuði, gaf í gær út 135 blaðsíðna yfir- lýsingu þar sem hann mótmælir harðlega ásökunum um mútu- þægni. Þingnefnd ákveður í vik- unni hvort Craxi verður sviptur þinghelgi þannig að hægt verði að sækja hann tU saka. Víðtæk rannsókn fer nú fram á Ítalíu á því með hvaða hætti stjórn- málaflokkamir fengu mútufé frá fyrirtækjum. Craxi, sem var leið- togi sósíalista í tæp seytján ár, er þar ein aðalpersónan. I yfirlýsing- unni í gær svarar hann ásökunum Kófdrukkinn fornmaður? Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit- ara Morgunblaðsins. BANDARÍSKIR fræðimenn telja líklegt að fornmaðurinn sem fannst á jökli í Austurríki fyrir nokkru hafi sofnað svefninum langa eftir of mikla áfengis- neyslu. Vinstra eyrað á honum var beygt fram þegar hann fannst og hann hafði legið þann- ig á því í 5.000 ár. Það er al- gengt að dauðadrukkið fólk sofi þannig á eyranu. Austurrískir sérfræðingar könn- uðu hvort einhver merki um stein- aldaráfengi leyndust í leifum hans en fundu ekkert sem benti til þess. Áfengur bjór var bruggaður í Mið-Austurlöndum fyrir 8.000 árum og ekki útilokað að félagar fornmannsins hafi kunnað að búa til brennivín. Þeir hafa ef til vill haldið að áfengi væri hitagjafi eins og sumir jafnvel enn í dag. Craxi sem fram hafa komið og sakar rannsóknar- dómara um að hafa farið út fyrir valdsvið sitt. Krafðist Craxi opinberr- ar rannsóknar á ofsóknunum á hendur sér. Rannsóknarmenn hafa farið fram á það við þingið að Craxi verði sviptur þinghelgi. Fyrst mun þingnefnd fjalla um málið og fallist hún á málaleitunina verða greidd atkvæði á þingi. Á mánudag var frá því skýrt að Michele de Mita, bróðir Ciriaco De Mita, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, hefði verið handtekinn. Hann er grunaður um fjársvik í tengslum við neyðaraðstoð sem skipulögð var eftir landskjálfta sem reið yfír Suður-Ítalíu árið 1980. Stefna ríkisstj órnarinnar Giovanni Conso, dómsmálaráð- herra Ítalíu, segir að ríkisstjórnin muni tilkynna á föstudag aðgerðir til að bregðast við spillingunni í landinu. „Við verðum uppræta . þessa maðkaplágu sem heijar á stoðir lýðræðis vors,“ sagði ráð- herrann. Hann leggur áherslu á að hraða verði meðferð þeirra spill- ingarmála sem risið hafa. Tryggja verði starfhæfni ríkisins og að hægt verði að halda áfram opinber- um framkvæmdum en þær hafa stöðvast vegna óvissu um réttar- stöðu aðilja. Augljóslega verður, að sögn ráðherrans, að horfa fram hjá smæstu málunum því þau séu dómskerfmu ofviða. Conso segir að hugmyndir séu uppi um að bjóða þeim sem brotið hafa af sér væga refsingu ef þeir gefa sig fram, endurgreiða mútuféð og segja af sér opinberum embættum. Reuter Díönu fagnað með blómum Díana prinsessa við komuna til Nepals. Virtust sljórnvöld í landinu vera í nokkurri óvissu um hver raunveruleg staða hennar væri en hér er hún að taka við blómakrönsum frá ungum stúlkum í þjóðbúningi. „Samtar( Díönu og Gilbeys, vinar hennar Opinberrar rannsókn- ar krafíst á óhróðríniun Getgátur um að breska leyniþjónustan standi að baki upptökunum London. Reuter, Daily Telegraph. NÝJUSTU gróusögurnar um Díönu prinsessu, segulbandsupptaka, sem virðist sýna, að hún hafi haft náið samband við vin sinn, James Gilbey, hafa leitt til þess, að á þingi hefur verið krafist opinberrar rannsóknar á óhróðrinum. Díana kom til Nepals í gær í fimm daga heimsókn og er það fyrsta utanför hennar eftir að þau Karl skildu að borði og sæng. Talið er, að upptakan hafi verið birt sérstaklega með þetta ferðalag hennar í huga. Það var ástralska sjónvarpsstöð- in ABC, sem birti upptökuna en þar segir kona, sem hafði ekki ólíka rödd og Díana, að hún óttist að verða ólétt. Telja margir, að upp- takan hafi verið spiluð núna til að eyðileggja eða varpa skugga á Rúslan Khasbúlatov svarar yfirlýsingum Jeltsíns í Osló Telur hann ekki stefna að beinni forsetastjórn Osló. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins. RÚSLAN Khasbúlatov, forseti rússneska þingsins og einn helzti keppinautur Borís Jeltsíns Rússlandsforseta úr röðum harðlínu- manna, hélt blaðamannafund í Osló í gær í tilefni komu sinnar á þing Norðurlandaráðs. Khasbúlatov ýmist glotti eða hló að spurningum blaðamanna, sem vildu fá að vita álit hans á yfirlýs- ingum Borís Jeltsíns Rússlandsforseta þess éfnis að grípa yrði til róttæka aðgerða gegn „afturhaldsöflunum“. Hann sagðist ekki telja að Jeltsín gæti haft áform um að koma á beinni forseta- sljórn, vegna þess að í Rússlandi væri ekkert til sem héti bein forsetasljórn. „Við höfum stjómarskrá, sem er í gildi, og þar er ekki reiknað með beinni forsetastjórn,“ sagði þingforsetinn. Atkvæðagreiðsla gæti sundrað ríkinu Khasbúlatov var spurður hvers vegna hann væri á móti tillögu Jeltsíns um að haldin verði þjóðar- atkvæðagreiðsla um það hvort færa eigi framkvæmdavaldi í auknum mæli til forsetans eða hvort stjórn þingsins eigi að- ríkja.„Ég er ekki hræddur við þjóðaratkvæðagreiðslu, heldur af- leiðingar hennar," sagði Khasbúl- atov. Hann sagði rannsóknir sýna fram á að í flestum sjálfstjórnar- lýðveldum og héruðum Rússlands væru menn svo niðurdregnir, áhuga- og kærulausir um stjórn- mál að raunveruleg hætta væri á að fáir myndu mæta á kjörstað. Jafnframt hefðu mörg héruð og lýðveldi lýst því yfir að þau myndu ekki taka þátt í atkvæðagreiðsl- unni. Hann óttaðist því að at- kvæðagreiðslan gæti ýtt undir aðskilnaðarstefnu og ógnað rúss- neska ríkinu. Aðspurður hvemig hann myndi bregðast við, ef Jeltsín leysti upp þingið, sagði Khasbúlatov að ekki væri hægt að spyija svona spum- inga. „Þið gætuð eins spurt hvað ég myndi gera ef ég lenti í slysi eða ef það kæmi jarðskjálfti eða eldgos,“ sagði hann. „Áf hvetju spyijið þið ekki stjórnvöld í lönd- um ykkar þessarar spurningar? Það er kominn tími til að hætta að spá áföllum í Rússlandi." Persónulegnr stuðningur fyrir þá veiku Þingforsetinn var spurður hvort hann teldi að Norðurlönd ættu að hætta stuðningi við Borís Jeltsín. „Nei, ég tel ekki að neinn þurfi að breyta stefnu sinni," sagði hann, en bætti við að hann teldi stuðning frá útlöndum ekki hjálpa neinum stjórnmálamanni eða auka völd hans. „Þegar ég var ungur, var Krúsjeff vinur allra þjóðarleiðtoga. Stalín var vinur Bandaríkjaforseta og forsætisráð- herra Bretlands. Brezhnev og Kosygin áttu vini erlendis og •Gorbatsjov bauð öllum dús. En það sýndi sig að þessir vinir utan landamæra ríkisins voru einskis virði.“ Hann sagði að persónuleg- ur stuðningur væri aðeins fyrir þá veiku og óöruggu. „Ég þarf ekki persónulegan stuðning frá einum eða neinurn," sagði hann. „Það þarf að styðja lýðræðislegar stofnanir, en ekki persónur.“ ferðalag prinsessunnar en haft er eftir heimildum, að mörg, bresk blöð hafí haft þessa upptöku undir höndum í marga mánuði án þess að birta hana. Piers Merchant, þingmaður íhaldsflokksins, skoraði í gær á rík- isstjórnina að efna til opinberrar rannsóknar á óhróðrinum um Díönu og undir það er tekið í ýmsum blöð- um, jafnvel þeim, sem hingað til hafa keppst um að vera fremst í slúðrinu. „Ríkisstjórnin verður tafarlaust að efna til rannsóknar og komast til botns í málinu," sagði í leiðara Evening Standard og forsíðufyrir- sögnin í Daily Star var „Di ötuð auri þegar verst gegnir“. „Hver stendur nú fyrir óhróðrinum um Díönu?“ spurði Today í fyrirsögn þvert yfir forsíðu og hélt því fram, að tilgangurinn væri augljóslega sá að niðurlægja hana á ferðalaginu. Talið er, að upptakan, sem ástr- alska sjónvarpsstöðin birti, geti reynst Díönu skeinuhætt, ekki síður en „Camillagate", upptaka, sem á sanna framhjáld Karls ríkisarfa með gamalli vinkonu sinni, Camillu Parker Bowles. Litið var á ferð Díönu til Nepals sem nokkurs konar úrslitatilraun til að halsa sér völl sem sjálfstæður fulltrúi síns lands en þetta síðasta „hneyksli“ mun ekki auðvelda það. Var líka tekið til þess við komuna til Nepals, að stjórnvöld þar voru í mestu vand- ræðum með móttökurnar, hvort þær ættu að miðast við verðandi drottningu eða unga prinsessu á einkavegum. Leyniþjónustan að baki „Ef það er rétt, sem verður stöð- ugt líklegra, að þessar upptökur séu komnar frá bresku leyniþjón- ustunni, þá er hér um mjög alvar- legt mál að ræða,“ sagði Evening Standard í gær og Daily Express sagði, að undarlegt væri ef æðstu yfirvöld í landinu hefðu ekki áhuga á að vita hveijir stæðu að baki hler- ununum. Daily Mail furðaði sig líka á aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar. „Algert áhugaleysi núverandi valdhafa verður undarlegra með hveijum deginum, sem líður,“ sagði í blaðinu. Kókaínkóngxirinn einangraður . ■■ ii.i—J&l I iii I ■— "fc—" ■■ Þrengt að Escobar Bogota. Reuter. YFIRVÖLD í Kólombíu eru sann- færð um, að eiturlyfjakóngurinn Pablo Escobar gefist upp fljót- lega og virðist hringurinn um hann þrengjast stöðugt. Á mánu- dag gafst upp einn helsti sam- starfsmaður hans og annar var skotinn í árás hersins. „Escobar hefur um tvennt að velja, að gefast upp eða deyja,“ sagði II Tiempo, stærsta dagblað í Kólombíu, á sunnudag og önnur blöð hafa eftir heimildum, að hann sé einangraður og hræddur enda er ekki aðeins stjórnarherinn á hælum hans, heldur einnig útsend- arar annarra glæpasamtaka. William Cardenas Calle, hægri hönd Escobars í Medellin-kókaín- hringnum, gaf sig lögreglunni á vald á mánudag og sama dag féll Hernan Dario Henao, öryggisfor- ingi Escobars, fyrir kúlum her- manna. Að sögn lögreglunnar urðu Esco- bar á mikil mistök í fyrra þegar hann lét ráða af dögum suma keppi- nauta sína i Moncada- og Galeano- glæpafjölskyldunum. Eru ættingjar þeirra nú á höttunum eftir honum og hryðjuverkin hafa orðið til að breyta almenningsálitinu og svipt Escobar „Hróa hattar-ímyndinni“, sem hann hafði meðal margra Kólombíumanna. Síðast en ekki síst hefur féð, milljónir dollara, sem sett hefur verið til höfuð Escobar og öðrum glæpamönnum valdið því, að nú keppist hver um annan þveran við að segja til þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.