Morgunblaðið - 10.03.1993, Síða 11

Morgunblaðið - 10.03.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993 ið fram lífið sem sýningargripur á markaðstorgum og verið álitinn fáviti vegna þess hversu örðugt hann átti um mál. Samskipti Merricks við vel- gjörðamann sinn, skurðlækninn Frederick Treves, eru þungamiðja verksins, en einnig koma mjög við sögu leikkonan Frú Kendal, stjórn- arformaður sjúkrahússins Carr Gomm að nafni og fleiri og fleiri. Alls eru leikendur um þrjátíu tals- ins og verður það að teljast vel unnið hjá leikstjóra að stýra þeim um lítið leiksvið vandræðalaust. Sviðsetningin sjálf skapar nokkra erfiðleika þar sem áhorfendur s'itja beggja vegna og breidd sviðsins er lítil og sú hugsun hvarflaði að mér hvort það myndi ekki henta þessu verki betur að vera sett upp í rammasviði eða fyrir enda salar. Leikmyndahönnuðurinn hefði a.m.k. notið sín betur í smáatriðum tímabilsins. Engu að síður hefur Guðrún Auðunsdóttir unnið mjög gott verk og sérstaklega voru bún- ingarnir sannfærandi og vel frá- gengnir. Leikhópurinn stendur sig í heild mjög vel, persónur eru allar skýrar og textameðferð yfirveguð og greinileg. Stjama sýningarinnar er hiklaust Davíð Kristjánsson í hlutverki Merricks, hann nær satt að segja ótrúlega góðum tökum á hlutverki sínu, er fullkomlega sannfærandi og hefur greinilega lagt sig mjög fram um að vinna hlutverk sitt af kostgæfni. Sú vinna skilar sér. Þau Kristinn Pálmason (Treves), Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson (Gomm) og Þóra Grétarsdóttir (frú Kendal) standa síðan traust við hlið Davíðs og ásamt öllum hópnum tekst þeim að gera þetta að eftirminnilegri sýningu. netu, og við höfum það ágætt þótt allt sé af okkur tekið og ekk- ert komi í staðinn. Vegna alls þessa hefði kannski mátt svipast betur um í nútímanum eftir tilvís- unum, í stað þess að horfa til for- tíðar og benda á fasisma 3. og 4. áratugarins. Það er túlkun sem segir við áhorfendur; í dag er ekk- ert að, en í gamla daga var ýmis- legt í ólagi. Sviðsetning Hallmars Sigurðs- sonar í Tjarnarbæ er áferðarfalleg og hnökralaus. Leikmyndin er í anda ævintýrsins og leikhópurinn stendur sig í heild vel en kemur ekki á óvart. Elín Lilja Jónasdóttir og Markús Þór Andrésson gerðu mjög vel en Markús má gæta þess á stöku stað, að hraðinn verði ekki of mikill. Ólafur Darri Ólafs- son sýndi talsverð tilþrif en hefði einnig hag af því að flýta sér hægt. Þá stóðu stúlkurnar þijár sem skiptu drekanum á milli sín sig ágætlega og er ekki hægt að gera upp á milli þeirra þar sem ógjörningur er að átta sig á hver var hvað. Skiptir kannski ekki meginmáli. í heild er þetta falleg sýning og vel unnin. Það er kannski stór krafa að heimta full- komnari skilning á verkinu af svo ungum og óþjálfuðum flytjendum, og krafan snýr kannski fremur að leikstjóranum, þar sem honum hefði verið í lófa lagið að halda betur fram „móral“ verksins með þeirri kunnáttu sem hann býr yfir. 11 ri— Evrópsk leikskálda- verðlaun í fyrsta sirni BÓKAFORLAGIÐ Bernd Bauer í Berlín hefur í samvinnu við Borg- arleikhúsið í Kassel í Þýskalandi og Alþjóða leikhúsmálastofnunina (International Theater Institut) ákveðið að efna til evrópskra leik- skáldaverðlauna. 1. verðlaun eru 20.000 mörk, 2. verðlaun 10.000 mörk, 3.-5. verðlaun eru 5.000 mörk. Gjaldgeng til verðlauna eru áður óbirt verk, fullskrifuð. Leikgerðir koma þó ekki til grina, né heldur leikrit sem þegar eru samningsbundin hjá leikhúsi, umboðs- manni eða forlagi. Frá sérhveiju aðildarlandi er hægt að tilnefna þijú verk. Með því að senda inn verk, veita höf- undar Bernd Bauer forlaginu for- gangsrétt til að gera samninga um uppfærslur á leikritinu. Jafnframt veita þeir Borgarleikhúsinu í Kass- el rétt til að kynna og færa upp verðlaunuð verk, án þess þó að leikhúsinu beri skylda til að gera slíkt. Með leikritasamkeppninni er ætlunin að efla kynningu á nútíma leikritun og höfundum í löndum Evrópu og miðla þeim á milli landa og menningarsvæða. í bæklingi um leikskáldaverð- launin segir: „Markmiðið ineð leik- ritasamkeppninni er sérstaklega að ná til ungra höfunda sem nota mál leikhússins og lifandi verður leikhúsið því aðeins að leikritunin sé okkar tíma afsprengi. Leikhúsið þarfnast verka, sem endurspegla veruleika dagsins í dag, sem lýsa okkar eigin sorgum og gleði. Og leikhúsið þarfnast margbreytileika evrópskrar menningar - einmitt núna.“ Leiklistarsamband íslands, sem aðild á að Alþjóða leikhúsmála- stofnuninni, sér um framkvæmd samkeppninnar hér á landi. Kostn- aður vegna þýðingar á tilnefndum verkum er borinn uppi af Bernd Bauer forlaginu. Dómnefnd sem velur úr íslenskum verkum til til- nefningar skipa Bríet Héðinsdóttir leikari og leikstjóri og Hafliði Arn- grímsson leikhúsfræðingur. Leikrit í samkeppnina skal senda undir dulnefni til Leiklistarsambands ís- lands. „Evrópsk leikskáldaverð- laun“, Hafnarstræti 9, 2. hæð, 101 Reykjavík, fyrir 31. mars nk. Nafn og heimilisfang höfundar skal fylgja með í lokuðu umslagi. (Fréttatilkynning.) Bryndís Þórarinsdóttir með eitt verka sinna. Sýnir vatnslitamyndir SÝNING á vatnslitamyndum eftir Bryndísi Þórarinsdóttur er í kaffistofunni Lóuhreiðri í Kjör- garði, Laugavegi 59. Bryndís hefur stundað nám í Handmenntaskóla íslands og JCS of Art, Pennsylvaniu, USA. Hún hefur haldið einkasýningar og sam- sýningar í Hafnarfírði, Mosfellsbæ, Garðabæ og á Blönduósi. Síðast á samsýningu með listamönnum í Garðabæ í júní 1992. Sýningin í Lóuhreiðri stendur til 20. mars nk. ■ TVEIR VINIR, Veitingahús- ið við Bláa lónið, Icelandic mod- els, Framtíðarferðir og fleiri aðilar standa að suðrænu skemmtikvöldi á Tveimur vinum nk. fimmtudagskvöld undir nafn- inu Sólarbamba. Icelandic models verða með sundfatatískuna frá Aqva Sport, heitur pottur með nuddi verður í húsinu og gefst fólki þar tækifæri á að skella sér í heitt vatn sefn verður flutt úr Bláa lóninu. Einnig verður boðið upp á pinnamat og suðræna drykki. Framtíðarferðir verða með ferðakynningu og Egill Ólafsson, Magnús Kjartansson og hljóm- sveitin Suðursveitin sjá um suð- ræna sveiflu fyrir dansi til kl. 1 eftir miðnætti. Föstudaginn 12. mars skemmtir Stjórnin á Tveimur vinum og laugardaginn 13. mars eru Vinir Dóra. FJÖLVÍTAMÍN FRAMTtDARINNAR FYRIR NÚTÍMAFÓLK. fl Sherwood FaUeg og vönduð hljómflutningstœki fyrir unga fólkið. Verð aðeins 52.500 ^Heimilistæki SÆTÚNI 8 • SÍMI: 6915 15 • KRIIMGLUNIMI • SÍMI: 6915 20 ALVEG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.