Morgunblaðið - 10.03.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
13
Um „skipulagsleg
og fjárhagsleg rök“
'A ^ X'A
eftir Stefán
Sigurkarlsson
Á síðum Morgunblaðsins sl.
sunnudag stíga tveir riddarar rétt-
lætisins fram á sviðið, þeir Jón
Sæmundur Siguijónsson og Einar
Magnússon. Boðskapur þeirra er sá
að dagar hins hörmulega fyrir-
komulags í lyfsölumálum íslend-
inga séu nú senn taldir. Nú skuli
frelsi til lyfsölu aukið svo um muni
til þess að allir sem vettlingi valdi
eigi þess kost að koma sér upp
apóteki. Ekki aðeins lyfjafræðing-
amir heldur allar góðar og gildar
stofnanir. Og því ekki það? Hvers
vegna skyldu Strætisvagnar
Reykjavíkur, Stangveiðifélagið eða
Karlakórinn Fóstbræður ekki mega
opna apótek eins og hver annar?
Fyrir þessu eru bæði „skipulags-
leg og fjárhagsleg rök“, segja þess-
ir menn. Lítum nánar á þau.
Samkvæmt þeim skilst manni að
í Kringlunni t.a.m. mættu apótekin
vera svo mörg sem verða vildi, en
um apótekin í Stykkishólmi,
Blönduósi, Neskaupstað og Hvera-
gerði mætti skeika að sköpuðu.
Þetta voru skipulagsrökin.
Víkjum nú að ijárhagslegu rök-
unum. Inntak þeirra virðist vera það
að með fjölgun útsölustaðanna
muni lyíjaverðið lækka, „ef að lík-
um lætur". Nema náttúrlega úti á
landi! Þeir minnast hins vegar ekk-
ert á reynslu annarra þjóða af þess-
um málum og er það bagalegt. Við
reynum að bæta úr því.
Grikkir t.a.m. bjuggu til skamms
tíma við fyrirkomulag þeirra Jóns
Sæmundar og Einars, en gáfust upp
á því þegar meðalaskorturinn í
sjoppunum var orðinn óþolandi og
á bak við hveija þeirra stóðu ekki
eftir nema rúmlega þúsund sálir.
Nú veit ég ekki betur en að
frændur vorir Þjóðveijar séu eina
Evrópuþjóðin sem enn býr við óska-
fyrirkomulag þeirra tvímenninga,
hvað sem sú dýrð stendur lengi, en
nýverið bárust þær fregnir hingað
til lands að gjaldþrot vofði yfir
a.m.k. fjögur þúsund þýskum lyfsöl-
um, jafnt fyrir það þótt þeir hafi
haldið lyfjabirgðum sínum í slíku
lágmarki að teljast hlýtur á mörkum
þess sem boðlegt væri og þurftu
þeir þá að fá til sín sendibíla með
lyf frá heildsölunum minnst fjórum
sinnum á degi hveijum.
En eru lyfin þá ekki ódýr í Þýska-
landi? Ó, nei, því miður; einmitt í
því landi eru lyfin dýrust í allri
Evrópu! Og það þrátt fyrir mjög
mikla lyfjasölu, en Þjóðveijar láta
í sig helmingi meira af meðulum
en frændur þeirra á Fróni.
Þetta voru fjárhagslegu rokin.
Fyrir langa löngu fór riddari um
héruð ásamt skjaldsveini sínum.
í Kaupmannahöfn
FÆST
I BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Riddarinn reið hrossi og var albrynj-
aður, en slqaldsveininn sat asna og
hafði flókahatt á höfði. Báðir töldu
höfuðskyldu sína að beijast gegn
ranglæti heimsins, rétt einsog þeir
Jón Sæmundur og Einar, og dag
einn þegar þeir sáu ijárhóp renna
niður hlíð fylltist riddarnn heilagri
bræði, mundaði lensuna og réðst
gegn óvininum, en skjaldsveinninn
dyggi fylgdi fast á eftir. Öðru sinni
sáu þeir félagar á hæð nokkurri
vængjaðar verur í rökkrinu. Hinn
treggáfaði skjaldsveinn hélt að
þetta væru vindmyllur, en riddarinn
hugumstóri reyndi að útskýra fyrir
honum að þetta væru risar sem
þyrfti að jafna um; sté af baki og
réðst til atlögu með sverði sínu. En
nú tókst ekki betur til en svo að
einn vængurinn kræktist í jámar-
uslið sem umlukti líkama riddarans
góða; hann hófst á loft og kom
hart niður. En slqaldsveinninn hljóp
þegar til herra síns að stumra yfir
honum.
Stefán Sigurkarlsson
„Samkvæmt þeim skilst
manni að í Kringlunni
t.a.m. mættu apótekin
vera svo mörg sem
verða vildi, en um apó-
tekin í Stykkishólmi,
Blönduósi, Neskaup-
stað og Hveragerði
mætti skeika að sköp-
uðu.“
En hvers vegna voru þessir menn
að ráðast á sauðfé, og beijast við
vindmyllur? Um það er ekki gott
að segja, en ugglaust hafa þeir
haft sín rök fyrir því, bæði skipu-
lagsleg og fjárhagsleg.
Höfundur er lyfsali.
AFMÆLIS-
TILBOÐ!
Við bjóðum bílakaupendum nokkra nýja MAZDA bíla
frá fyrra ári á einstökum kjörum.
Verðdæmi nr. 1:
MAZDA 323 F, 1600 16 ventla GLXi, 5 gíra með eftirtöldum búnaði:
Vökvastýri, samlæsingu, loftneti og 4 hátölurum, upphituðum sætum,
rafdrifnum rúðum og útispeglum.
Bíllinn sem sameinar kosti sportbílsins og fjölskyldubílsins!
Fullt verð: Kr. 1.340 þús.
Tilboðsverð m.v. stgr. 1.107 þús.
Mismunur 233 þús.
ARA
1943 1993
Verðdæmi nr. 2:
MAZDA 626, 2000 16 ventla GLXi, sjálfskiptur með eftirtöldum búnaði:
Vökvastýri, samlæsingu, rafmagnsloftneti og 4 hátölurum, upphituðum
sætum, rafdrifnum rúðum, rafdrifnum upphituðum útispeglum, álfelgum.
Bíllinn sem var sæmdur „Gullna stýrinu“ í Þýskalandi!
Fullt verð: Kr. 1.895 þús.
Tilboðsverð m.v. stgr. 1.558 þús.
Mismunur 337 þús.
Eigum einnig fleiri gerðir á sambærilegum kjörum.
Nánari upplýsingar veita sölumenn okkar og umboðsmenn um land allt.
Athugið: Takmarkað magn!
Opið laugardaga frá kl. 10-14
SKÚLAGÖTU 59. REYKJAVÍK S. 6195 50