Morgunblaðið - 10.03.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
19
Geysilegur lestraráhugi í Hallormsstaðarskóla á Fljótsdalshéraði
Lesið í skóginum
NEMENDUR í Hallormsstaðarskóla nutu veðurblíðunnar við bóklesturinn.
Lestrar-
verkefni
sótt ót í
skóginn
í FRIÐSÆLD og fögru um-
hverfi er gott að einbeita
sér við lestur. Hvorugt ætti
að skorta í Hallormsstaðar-
skóla, sem er staðsettur í
stærsta skógi landsins. Ekki
spillir veðurblíðan, en sól
og blíða hafa ríkt á Héraði
í samfleytt í 5 vikur. Sigfús
Grétarson skólastjóri segir
að geysilegur metnaður hafi
skapast hjá mörgum nem-
endum sem leggi ekki frá
sér bækurnar. „Við höfum
áhyggjur af því að þau nýti
sér ekki útivistartímana, því
var brugðið á það ráð að
leyfa þeim að lesa úti í
skógi.“
Sigfús segist vera ánægður
með þá hvatningu til aukins lestr-
ar sem felst í Lestrarkeppninni
miklu. „Einnig hér í sveitinni
hefur bóklestur dregist saman,
en þó ekki eins mikið og víða
annarsstaðar. Hér eru ekki kvik-
myndahús eða myndbandaleigur
á hveiju götuhorni.
Þjálfun í ræðumennsku og
frásagnarlist
Lestrarátak hefur verið í gangi
í vetur hjá 9-12 ára krökkunum,
en Sigfús segir, að hið talaða orð
sé ekki síður mikilvægt og skól-
inn sé með átak í frásagnarlist
og ræðumennsku áfangabundið.
„Eg tel það skerðingu á almenn-
um mannréttindum, ef- nemendur
fá ekki þjálfun í að tjá skoðanir
sínar. Hér var starfandi ræðu-
klúbbur í fyrra og vel má hugsa
sér að krakkarnir stofni lestrar-
klúbb í haust eftir þetta lestrar-
átak.“
Fámennu skólarnir betri
Hallormsstaðarskóli er heima-
vistarskóli sem þjónar þremur
sveitahreppum. Sextíu nemendur
eru í skólanum og kennt að mestu
samkvæmt opnu kerfi, sem býður
upp á mikinn sveigjanleika í námi
og kennslu. „Við höfum þá bjarg-
föstu trú að fámennir skólar geti
í flestum tilfellum verið betri.
Rætt hefur verið um faglega ein-
angrun kennara, en fámennir
skólar á Héraði og í Borgarfirði
bæta sér það upp með öflugu
samstarfi."
Unnu bækling um tijásafnið
fyrir ferðamenn
Skógurinn er allsstaðar nálæg-
ur og heillar ferðamenn til sín á
sumrin, enda sumarhótel í Hall-
ormsstaðarskóla. „Við reynum
að nýta umhverfið sem best í
kennslunni, tökum mið af skógin-
um í líffræði og erum með gott
samstarf við skógræktina," segir
Sigfús. Skógurinn kemur inn á
fleiri lesgreinar.
I samfélagsfræði, íslensku og
myndmennt var unnið rit um tijá-
safnið í mörkinni, sem er eitt hið
stærsta á norðlægum slóðum.
Krakkarnir útbjuggu líka tölusett
skilti við gönguleiðir í skóginum,
merktu aldur og tegund við ein-
stök tré og unnu kort af svæð-
inu. Þetta var heilmikil vinna,
sem þau fengu greitt fýrir frá
skógræktinni og var liður í söfn-
unarátaki þeirra til utanlands-
ferðar.
Tónlistarskóli er starfandi inn-
an skólans og um 80% nemenda
stunda hljóðfæranám. „Skólinn
þarf líka að sinna verkefnum sem
íþrótta- og æskulýðsfélög eru
með annarsstaðar. Við erum of
fámenn til að taka þátt í íþrótta-
mótum stærri skóla, höldum þess
vegna eigin íþróttamót.“
Semja leikrít og frumsýna
um páskana
„Litlu krakkarnir sjá um jóla-
skemmtun, en eldri nemendur
eru að undirbúa páskaskemmtun.
Þau eru búin að semja leikrit
með aðstoð kennaranna, sem á
að frumsýna um páskana og ber
hið dularfulla heiti EF.“
Stefnt að
sameiningu
sýslumanna
í Keflavík og
á Vellinum
Á VEGUM utanríkisráðuneyt-
isins er unnið að undirbúningi
þess að rekstur embættis
sýslumannsins á Keflavíkur-
flugvelli verði sameinaður
rekstri sýslumannsins í Kefla-
vík. Með þessu er stefnt að
því að spara 30-50 milljónir
króna af rúmlega 300 milljóna
króna útgjöldum embættanna
tveggja.
Sýslumaður á Keflavíkurflugvelli
annast tollgæslu og útlendingaeftir-
lit í flugstöðinni og á varnarsvæðinu
auk löggæslu og heyrir embættið
undir utanríkisráðuneytið en önnur
lögregluembætti heyra undir dóms-
málaráðuneyti en tollgæsla annars
staðar undir fjármálaráðuneyti.
Embættið á Keflavíkurflugvelli hef-
ur 60-70 stöðugildi, þar af um 30
við tollgæslu og um 30 við lög-
gæslu. 63 stöðugildi eru við emb-
ætti sýslumannsins í Keflavík sem
annast löggæslu á öllum Suðurnesj-
um, að flugvallarsvæðinu frátöldu.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
fela hagsýslu fjármálaráðuneytisins
að undirbúa sameiningu embætt-
anna tveggja í lok yfirstandandi árs
og er talið, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, að með því megi
spara allt að 50 milljónir króna en
rekstur beggja embættanna er
áætlað að kosti í ár 323 milljónir
króna.
Þesar fyrirætlanir voru kynntar
fyrirsvarsmönnum embættanna og
starfsmanna með bréfi í síðustu
viku og munu fulltrúar þeirra á
næstunni eiga fundi með forsvars-
mönnum Varnarmálaskrifstofu ut-
anríkisráðuneytisins, sem annast
undirbúning málsins fyrir ríkisins
hönd en samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er talið að ef til
uppsagna komi vegna sameiningar-
innar muni þær helst bitna á lög-
reglumönnum á Keflavíkurflugvelli.
Guðjón Valgeirs-
son fulltrúi látinn
Guðjón Valgeirsson, fulltrúi
hjá Hlutafélagaskrá, er látinn 63
ára að aldri.
Guðjón fæddist 13. maí 1929 í
Reykjavík, sonur Valgeirs Guðjóns-
sonar múrarameistara og Sigríðar
Arnbjargar Sveinsdóttur. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum
í Reykjavík árið 1950 og lauk lög-
fræðiprófi frá Háskóla Islands árið
1955 og varð héraðsdómslögmaður
árið 1958.
Guðjón var fulltrúi hjá lögreglu-
stjóra á Keflavíkurflugvelli á árun-
um 1955 til 1959 og fulltrúi hjá
borgarfógeta í Reykjavík árið 1959
til 1972. Hann var framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Hólaness hf.
á Skagaströnd frá 1972 til 1974
er hann tók að sér verkefni fyrir
Rafmagnsveitu Reykjavíkur og
varð síðar fulltrúi þar til ársins
1977 er hann varð fulltrúi á Skatt-
stofu Reykjavíkur. Hann var fulltrúi
hjá Hlutafélagaskrá frá 1989 til
dánardags.
Guðjón starfaði að félagsmálum,
meðal annars fyrir Flugbjörgunar-
sveitina, Skíðadeild Armanns og
Sjálfstæðisflokkinn.
Fyrri kona Guðjóns var Margrét
Guðjón Valgeirsson
Árnadóttir og eignuðust þau þijú
börn, Valgeir, Guðrúnu Órnu og
Sigríði Önnu. Eftirlifandi kona Guð-
jóns er Hallveig Halldórsdóttir.
pitírgmirilílalitli
Metsölublaðá hverjum degi!
Nýjar vorvörur
Öáunto.
fataverslun
v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Opið daglega frá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
Frá GARDEUR
Dragtir
Stakir jakkar
Frá DIVINA
Ýmiss samstæðufatnaður
Plíseruð pils
Blússur
Jakkar
Peysur
Dömubuxur
Pils, margar síddir
Stakir jakkar
Hnébuxur
Stuttbuxur
Bómullarbolir
Frá GEISSLER