Morgunblaðið - 10.03.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 10.03.1993, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993 Akureyrskir trillukarlar huga að ígulkeraveiðum Igulkerin beint frá borð- stokknum til New York FÉLAGARNIR Sigurður Jóhannsson, sem gerir út smábátinn Eddu EA, og Erlendur Bogason kafari fóru á ígulkeraveiðar i gærmorgun, sendu aflann um hádegi suður til Njarðvíkur og þaðan fór hann beint til neytenda í New York. 342 kíló Sigurður sagði að ígulkerin hefðu þeir fengið á fjögurra til átta metra dýpi skammt utan við Svalbarðs- eyri, handan Akureyrar, en á þeim slóðum væri mikið um íguiker innan um þarann. Þeir félagar byijuðu að veiða um kl. 9 í gærmorgun og voru að landa upp úr hádeginu í gær, en á þessum tíma fengu þeir 342 kíló af ígulkerum, sem send voru svo til beint frá borðstokknum áleiðis til New York með viðkomu hjá Islenskum ígulkerum hf. í Njarðvík. Á síðustu vikum hafa nokkrir trillukarlar sem gera út frá Sandgerðisbót á Akureyri reynt fyrir sér með ígulkeraveiðar og hafa þær gengið þokkalega. Atvinnuskapandi Á fræðslufundi um ígulker sem sjávarútvegsdeild Háskólans á Ak- ureyri efndi til í lok janúar síðastlið- ins kom m.a. fram að ef rétt er á haldið er hugsanlegt að hægt sé að skapa störf fyrir 100 til 200 manns við vinnslu ígulkera hér á landi og gæti slík vinnsla skilað Færeyskur vísnasöng’ur í Grófargili VÍSNASÖNGKONAN Annika Ho- ydal frá Færeyjum kemur fram á tónleikum í Tilraunasalnum i Grófargili, Kaupvangsstræti 23, annað kvöld, fimmtudagskvöldið 11. mars og hefjast þeir kl. 20.30. Annika er fædd og uppalinn í Færeyjum, en bjó í Ekvador um tíma með fjölskyldu sinni og að loknum námi og störfum á Spáni hóf hún nám í Leiklistarskóla ríkisins í Kaup- mannahöfn. Hún hefur sungið inn á margar hljómplötur, m.a. með Hark- aliðinu, en á tónleikunum syngur hún m.a. lög af nýjustu plötu sinni, Dulc- inea. Gunnar Hoydal borgararkitekt í Þórshöfn, sem semur texta við lög Anniku, og Gaiy Snider bassaleikari koma fram átónleikunum með henni. (Fréttatilkynning) nokkrum hundruðum milljóna króna í gjaldeyristekjur á ári. Helsti markaður fyrir unnin ígul- kerahrogn og svil er í Japan og einnig í Bandaríkjunum, þangað sem eyfírsku ígulkerin voru send, en vænlegasti markaðurinn fýrir lifandi eða heil ígulker er í Frakk- landi. Fram kom á ráðstefnunni að fýrir heil ígulker eru greiddar 160 til 170 krónur fyrir kílóið, en 190 krónur fyrir hrognin. Morgunblaðið/Rúnar Þór Verðmætur afli á land ÞEIR fylgdust vandlega með þegar ígulkerin voru hífð frá borði, Erlendur Bogason kafari og Sigurður Jóhannsson sjómaður, en þeir voru að veiðum í gærmorgun undan Svalbarðseyri. Átak í atvinnumálum á Akureyri fer vel af stað Um 30 manns til starfa UM 30 manns af atvinnuleysisskrá hafa fengið vinnu timabundið í átaki í atvinnumálum sem fór af stað á Akureyri í síðustu viku. Þrátt fyrir það hefur fjölgað á atvinnuleysisskrá frá því um síðustu mánaðamót. Sigrún Björnsdóttir forstöðu- maður Vinnumiðlunarskrifstofunn- ar sagði að í síðustu viku hefðu um 20 manns fengið störf við átakið og um 10 manns í þessari. Einkum er um að ræða störf á söfnum bæjarins, í skólum og við íþrótta- mannvirki. Byijað er að bjóða því fólki störf sem lengst hefur verið á atvinnu- leysisskrá og greiðir Atvinnuleysis- tryggingasjóður sem nemur bóta- rétti fólks, en hann er misjafn. „Þetta hefur gengið vel og færri komast að í vinnu en vilja,“ sagði Sigrún, en hún vonaðist til að hægt væri að fá fólk til starfa í næstu viku í störf á vegum ríkisins. Alls er um að ræða 70 störf og eru 50 þeirra á vegum bæjarfélagsins og 20 á vegum ríkisins. Fjölgun á skrá Þó svo að um 30 manns af at- vinnuleysisskrá hafi fengið vinnu við átakið hefur fjölgað á skránni frá því um mánaðamót. Þá voru 516 manns skráðir atvinnulausir hjá Vinnumiðlunarskrifstofunni en voru á föstudag í síðustu viku 535 talsins. ■ ■ ■ HI K fln 1 fl» m ■B H m fillGAl fl ■ fl fl fl m m Hfl ■ ■ Viljum komast í samband við lyfjafræðinga sem uppfylla skilyrði til þess að fá lyfsöluleyfi skv. ákvæðum væntanlegra lyfjalaga. Einnig er leitað eftir samvinnu við starfandi apótekara og lækna um stofnun hlutafélags um rekstur lyfjabúða. Áhugasamir, vinsamlegast hafið samband bréflega við Pharmaco hf. Hörgatúni 2, 210 Garðabœ fyrir 31. mars nk. Pharmaco HÖRGATÚNI 2 PÓSTHÓLF 200 210 GARÐABÆ SÍMI 44811 TELEFAX 656485 ^fl < U) |||| co ^HÍ i fl fl flfl m

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.