Morgunblaðið - 10.03.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1993
HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ
Hræðilega
óstyrkir
- sagði Bengt Johansson, þjálfari Svía
Bengt Johansson, þjálfari
Svía, var óánægður með
Sveinn
Agnarsson
skrifar frá
Svíþjóð
byijun sinna manna. „Við vor-
um hræðilega taugaóstyrkir
fyrstu mínúturn-
ar og til að bæta
gráu ofan á
svart varði
markmaður ís-
lands [Sigmar Þröstur Óskars-
son] afar vel,“ sagði hann við
Morgunblaðið eftir leik.
„Að vissu leyti minnti þessi
leikur á fyrsta leik okkar á HM
í Tékkóslóvakíu 1990. Þá rétt
mörðum við sigur á Alsír,
20:19, _en síðan gekk okkur
betur. íslendingar héldu hrað-
anum niðri fyrir hlé og við spil-
uðum ekki jafn góðan vamar-
leik og við getum. Samspil milli
vamar og markmanns var ekki
nógu gott fyrsta fjórðung leiks-
ins og Héðinn Gilsson gerði
þrjú mörk með skotum í „rangt“
hom, það er homið, sem vömin
átti að taka.“
Bengt var ánægður með
Seinni hálfleikinn. „Þá jukum
við hraðann og tókum okkur á
í vörninni. Fyrir bragðið feng-
um við nokkur hraðaupphlaup,
sem við nýttum okkur. Mér
fannst Ola Lindgren leika best
af mínum leikmönnum. Hann
gerði að vísu ekki jafn mörg
mörk og Magnus Anderson, en
gerði færri mistök."
Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir
Góður stuðningur í Gautaborg
íslendingar fjölmenntu i höllina í Gautaborg í gærkvöldi og létu vel í sér heyra undir kunnugum trumbuslætti
að heiman.
■ TÍU af tólf leikmönnum
sænska landsliðsins, spáðu sjálfum
_sér heimsmeistaratitli fyrir leikinn
Segn Islendingum.
I MARGIR blaðamenn sem fylgj-
ast með HM í Gautaborg eru undr-
andi á blaðamannamiðstöðinni. Hún
er í næsta húsi við íþróttahöllina
og þar er bannað að reykja. Það
finnst mörgum furðulegt þar sem
margir blaðamenn reykja og sér-
staklega þegar þeir eru að vinna.
■ ÞAÐ sem ef til vill vekur enn
meiri furðu er að í miðstöðinni er
ekkert salerni og því þurfa menn
að fara á milli húsa, bæði til að
reykja og til að fara á salernið.
■ ÞJÓÐVERJAR hafa flest stig
ef allir leikir þjóða í HM í hand-
knattleik frá árinu 1938 til dagsins
í dag eru taldir. Þjóðveijar hafa
ISkið 62 leiki, unnið 42, tapað 16
og fjórum sinnum gert jafntefli.
Þeir hafa hlotið 88 stig.
■ NÆSTIR eru Rúmenar með
87 stig og Svíar með jafn mörg
stig. Rúmenar hafa leikið 60 leiki
en Svíar 69.
■ ÍSLAND er í 12. sæti af þeim
þijátíu þjóðum sem tekið hafa þátt.
Island er með 25 stig eftir 38 leiki.
Tólf sigrar hafa unnist, 25_ leikir
tapast og eitt jafntefli orðið. Á und-
an okkur eru Spánverjar með 35
stig eftir 33 leiki og á eftir okkur
Japanir með 22 stig eftir 38 leiki.
■ CURT Wadmark var þjálfari
Svía þegar þeir urðu heimsmeistar-
ar 1954 og 1958 og hann var einn-
ig þjálfari þegar Svíar urðu í öðru
sæti árið 1964 og fengu bronsið
árið 1961.
H ÞAÐ hafa verið 16 lið í HM í
handknattleik alveg frá árinu 1964,
en í keppninni þar á undan, 1961
voru 12 lið en 16 árið 1958. Flest
mörk í einni keppni gerði Jae-Won
Kang frá Suður- Kóreu i keppn-
inni 1986 í Sviss, 67 talsins.
■ VASILE Stinga, rúmenski
snillingurinn, gerði 65 mörk í HM
1982 og Peter Kovacs frá Ung-
w*ijalandi gerði þá 58 mörk. í
keppninni 1978 voru Kovacs og
Jerzy Klempel frá Póllandi
markahæstir með 47 mörk hvor. í
síðustu keppni varð Julian Duran-
ona frá Kúbu markahæstur með
55 mörk. Meðal þekktra marka-
skorara fyrri ára má nefna Petre
Ivanescu frá Rúmeníu, en hann
varð markakóngur keppninnar
1961.
Undrandi að sjá Sig-
mar Þröst í markinu
- sagði Ola Lindgren, stórskyttan í liði Svía. „Við þekktum hann ekki neitt“
„VIÐ áttum von á að Guðmund-
ur Hrafnkelsson myndi byrja í
íslenska markinu og urðum því
mjög undrandi þegar Sigmar
Þröstur byrjaði — hann þekkt-
um við ekki neitt," sagði Ola
Lindgren, stórskytta Svía sem
gerði 5 mörk.
Lindgren hældi íslensku vöminni
og sagði að Sigmar Þröstur
hefði varið vel framan af leiknum.
„Svo brenndum við af úr mörgum
mjög góðum færum. íslendingar
náðu einnig að halda hraðanum niðri
Sveinn
Agnarsson
skrifar frá
Sviþjóð
í fyrri hálfleik. Eftir
hlé náðum við að
keyra upp hraðann
og bæta skotin og
þegar við komumst
almennilega yfir urð-
um við heldur ekki jafn hræddir við
að skjóta og áður.
Mikil taugaspenna var í liðinu
fyrstu mínútumar og þess vegna
náðum við ekki að sýna okkar rétta
andlit. Þessi sigur gefur sjálfstraust-
inu hins vegar byr undir báða vængi
og er einmitt sú byijun á mótinu sem
við óskuðum okkur,“ sagði Lindgren.
Per Carlén
„Þetta var erfður leikur eins og
við reiknuðum með og við vomm
stressaðir í byijun," sagði línumað-
urinn Per Carlén. „En við emm sterk-
ari og eftir að við komumst yfir í
síðari hálfleik var aldrei spuming
hvomm megin sigurinn myndi lenda.
Þetta er óskabyrjun og ég held að
við eigum eftir að leika enn betur.
Það er alltaf erfítt að leika fyrsta
leikinn á stórmóti, og ísland er eng-
inn óska andstæðingur í opnunar-
leik.“
LEIKIR I DAG
A-RIÐILL:
Tékkóslóvakía - Egyptaland...l7
Spánn - Austurríki.......19
■Stefán Arnaldsson og Rögn-
vald Erlingsson dæma leikinn.
B-RIÐILL:
Frakkland - Sviss........17
Rúmenía - Noregur........19
D-RIÐILL:
Rússland - S-Kórea.......17
Danmörk - Þýskaland......19
Aldrei verið eins
taugaveiklaður
- sagði Magnús Andersson, sem skoraði níu mörk lyrir Svía
„EG hef aldrei áður skorað jafn
mörg mörk f mikilvægum
landsleik og er þetta sennilega
besti landsleikurinn sem ég hef
leikið," sagði Magnús Anders-
son, sem skoraði níu mörk
gegn íslendingum. „Ef ég á að
komast almennilega inn í leiki
verð ég að fá að vera með frá
byrjun. Ég hef rætt þetta við
Bengt Johansson og bent hon-
um á að það sé afar erfitt fyrir
mig að koma seint inn í leik-
ina.“
Eg er ekki vanur að leika á vinstri
vængnum. Hjá Schutterwald
leik ég alltaf í stöðu leikstjórnanda,
en það er staða sem
ég nýt mín best í.
Það skiptir í raun
litlu máli fyrir okkur
hvor okkar Magnús-
ar Wieslander leiki á miðjunni og ég
held að landslið okkar sé mun betra
nú en þegar við urðum heimsmeistar-
ar í Tékkóslóvakíu fyrir þremur
árum. Þá treystum við alltof mikið
á Per Carlén og Wieslander, en nú
erum við með breiðari hóp.
Það var ótrúleg tilfinning að koma
inná völlinn í upphafi leiks, stemmn-
ingin á áhorfendapöllunum var raf-
mögnuð og við vorum sjálfir aiveg
að fara á taugum. Ég aldrei áður
verið eins taugaveiklaður fyrir nokk-
um leik og mér fannst allir vera
uppspenntir á hótelinu fyrir leikinn.
Taugaspennan setti mark sitt á leik
okkar í fyrri hálfleik og við náðum
ekki að leika vel - þorðum ekki að
taka neina áhættu. Við vorum samt
afar rólegir í Ieikhléi, því að þó við
hefðum brennt af fjölda dauðafæra,
var staðan jögn og við enn með í
leiknum. Við ræddum um það að
breyta ekki um leikkerfi, heldur að
spila meira út á kantana," sagði
Andreson.
Hvað viltu segja um varnarleik
ykkar?
„Hann var ekki nægilega góður í
byijun leiksins og Héðinn Gilsson
fékk næði til að skora með þremur
skotum í fjærhomið. Þegar á leið
skánaði vömin og þegar við vorum
komnir yfir eftir hlé, hvarf öll tauga-
spennan og við fórum að leika af
eðlilegri getu.“
Þú náðir að skora með fjölbreyti-
legum skotum?
„Já, ég á nokkur leynivopn í
handraðanum - þar á meðal að
stökkva jafnfætis upp og skjóta.
Yfirleitt reyndi ég að skjóta meðfram
vamarmönnunum þar sem mark-
verðirnir eiga erfitt með að sjá þau
skot út - því að oft sér markvörður-
inn knöttinn mjög seint og hefur
ekki tíma til að komast fyrir skotið.“
Ahorf-
endamet
í Svíþjóð
Aðsóknarmet var sett á leik Sví-
þjóðar og íslands í gærkvöldi, er
heimsmeistarakeppnin hófst í Gauta-
borg. Alls greiddu 10.017 manns
aðgangseyri að leiknum. „Það hafa
aldrei verið fleiri áhorfendur á hand-
boltaleik í Svíþjóð," sagði kynnirinn
í Scandinavium íþróttahöllinni í gær-
kvöldi — en það var enginn annar
en sænski dómarinn Bromann.
Öruggt má telja að metið verði
slegið á ný þegar Svíarnir verða
komnir til Stokkhólms og fara að
leika í Globen höllinni glæsilegu í
milliriðli og um sæti, en sú höll tek-
ur mun fleiri áhorfendur.
1961 í Essen: ísland - Svíþjóð ........... 10:18
Gunnlaugur Hjálmarsson var markahæstur með fjögur mörk og Krist-
ján Stefánsson skoraði þijú.
1964 i'Bratislava: ísland - Svíþjóð...................12:10
Ingólfur Óskarsson var markahæstur með fimm mörk.
1986 í Bern: ísland - Sviþjóð ..23:27
Alfreð Gíslason var markahæstur með sex mörk og Atli Hilmarsson
og Bjarni Guðmundsson skoruðu fímm.
1993 í Gautaborg: ísland • Svíþjóð....................16:21
Héðinn Giisson var markahæstur með fímm mörk.
Sveinn
Agnarsson
skrifar frá
Sviþjóö