Morgunblaðið - 13.03.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MARZ 1993
Fyrsta skipið
legguraðnýja
miðbakkanum
RANNSÓKNASKIPIÐ Dröfn lagði
fimmtudaginn sl. að ófullgerðum
austurhluta miðbakkans í gömlu
höfninni í Reykjavík, fyrsta skipið
sem það gerir. Á myndinni sjást
kennarar ellefu ára nemenda í
Grunnskóla Reykjavíkur á leið í
sjóferð með rs. Dröfn út á Kolla-
§örð til að kynna sér verkefni sem
þau vinna að ásamt Náttúruvemd-
arfélagi Suðvesturlands og
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkurum-
dæmis standa að og kallast: Könn-
unarleiðangur grunnskólanemenda
út á Kollafjörð. Nemendaferðimar
hefjast á mánudaginn. Auk athug-
ana og skráningar á lífríki og vist-
kerfí fjarðarins verður tekið inn í
verkefnið stutt kynning á sögu og
landafræði svæðisins og einnig
skipinu og tækjum þess og siglinu.
f lok ferðarinnar verður Fiskmark-
aðurinn heimsóttur. Hugmyndin er
að sömu staðir á firðinum verði
árlega heimsóttir og kannaðir á
svipaðan hátt og þannig fáist vökt-
un á svæðinu. Þessar athuganir
verði svo notaðar af nemendum til
samanburðar á milli ára.
Morgnnblaðið/Þorkell
Olíufélagið Skeljungur hf. eykur hlutdeild sína á olíumarkaðnum
Hlutur blýlauss bensíns er
kominn í 7 6% hér á landi
íslenska útvarpsfélagið
Ingimundur
Sigfússon
kosinn stjóm-
arformaður
INGIMUNDUR Sigfússon, stjórn-
arformaður Heklu hf., var kosinn
formaður stjórnar íslenska út-
varpsfélagsins hf. á aðalfundi
félagsins í gær en Jóhann J.
Ólafsson lætur af stjórnarfor-
mennsku og hverfur úr stjórn
félagsins en hann var hins vegar
kosinn í varasljórn. Auk Ingi-
mundar var Þorgeir Baldursson,
forstjóri prentsmiðjunnar Odda,
kosinn nýr fulltrúi í stjórnina.
Breiður hópur hluthafa samein-
aðist fyrir nokkru um kjör fímm
af sjö stjómarmönnum félagsins í
kjölfar þess að eignarhaldsfélagið
Aramót, sem keypti hlutabréf Eign-
arhaldsfélags Verslunarbankans í
íslenska útvarpsfélaginu á síðasta
ári var leyst upp fyrir skömmu. Að
því stóðu Hagkaup, Vífílfell, Oddi,
Hekla og Bíóhöllin.
Hin nýja aðalstjóm Útvarpsfé-
lagsins er að öðm leyti skipuð sömu
mönnum og sátu í fráfarandi stjóm
eða þeim Jóhanni Óla Guðmunds-
syni, Haraldi Haraldssyni, Ásgeiri
Bolla Kristinssyni, Jóni Ölafssyni
og Stefáni Gunnarssyni.
171 millj. hagnaður
Á síðasta ári varð 171 milljóna
króna hagnaður af rekstri Útvarps-
félagsins. Eiginfjárstaða félagsins
hefur snúist við frá árinu 1991 og
var jákvæð um 51 milljón króna í
lok síðasta árs. í rekstraráætlun
fyrir yfirstandandi ár er gert ráð
yfir um 200 millj. kr. hagnaði.
HÖRÐUR Sigurgestsson forstjóri Eimskips var kosinn í stjóra
oiiufélagsins Skeljungs hf. á aðalfundi félagsins í gær. Kom
hann í stjórnina í stað Thors Ó. Thors sem lést í desember
síðastliðnum. Félagið hefur aukið hlutdeild sína á olíumark-
aðnum. Ný gasbirgðastöð verður reist í Straumsvík á árinu.
Aðrir stjómarmenn eru þeir
sömu: Indriði Pálsson, stjómarfor-
maður, Jónatan Einarsson í Bolung-
arvík, Bjöm Hallgrímsson forstjóri
og Sigurður Einarsson útgerðar-
maður. Skipan varastjómar er
óbreytt. Hana skipa. Gunnar Þ.
Ólafsson, Gunnar J. Friðriksson og
Haraldur Sturlaugsson.
Sala blýlauss bensíns eykst
Hlutur blýlauss bensíns fer ört
Sölustjóri belgísku prentsmiðjunnar
Vanskil og fjarlægðir
frá markaði ástæðan
LUC Mainil, sölustjóri belgísku prentsmiðjunnar United
Prints, UP, sem varð til við samruna belgísku prentsmiðj-
anna OPDA og OAD, segir að vanskil íslenskra aðila við
OPDA og fjarlægðir frá markaði hafí ráðið því að prent-
smiðjan sækist ekki eftir verkefnum á íslandi.
Við samruna prentsmiðjanna
hætti m.a. sölustjóri ÓPDA, Georges
Drappier, störfum en hann sá um
samskipti við íslenska útgefendur,
Þjóðleikhúsið
Rættumað
hagræða á
verkstæði
KOMIÐ hefur til tals að segja
upp leigu á húsnæði undir smíða-
og málningarverkstæði Þjóðleik-
hússins og hefja samvinnu um
starfsemi verkstæðisins við utan-
aðkomandi aðila eða koma á ann-
arri hagræðingu.
Stefán Baldursson, þjóðleikhús-
stjóri, sagði að þessar hugmyndir
væru enn á umræðustigi en hefði
komið til tals þar sem starfsemi
verkstæðisins væri afar kostnaðar-
söm, að hluta til vegna hárrar húsa-
leigu utan leikúsbyggingarinnar.
sem létu prenta ytra.
„Við verðum að helga markaði á
meginlandi Evrópu krafta okkar.
Þess vegna skrifuðum við einum við-
skiptamanni á íslandi sem vildi fá
tilboð okkar í prentun bréf, þar sem
við sögðum að eins og sakir stæðu
gætum við ekki starfað á svo fjarlæg-
um markaði," sagði Mainil.
Vandamál I samskiptum við
íslendinga
Mainil sagði að f bréfínu hefði
einnig komið fram að sökum marg-
víslegra vandamála sem hafi komið
upp í samskiptum fyrirtækisins við
íslenska viðskiptavini, hafi fyrirtækið
ákveðið að binda endi á allar samn-
ingaviðræður vegna íslenskra prent-
verka. Þetta hafí í för með sér að
fyrirtækið dragi sig út af íslenskum
markaði og muni ekki bjóða í verk
fyrir íslendinga né prenta fyrir þá.
Mainil sagði að fullnaðargreiðslur
hefðu ekki borist frá nokkrum ís-
lenskum viðskiptavinum vegna
prentunar. Þegar við fáum ekki greitt
missum við áhugann á frekari við-
skiptum," sagði Mainil, en vildi ekki
nafngreina þau fyrirtæki sem hér
ættu hlut að máli.
vaxandi og komst í tæp 76% af
heildarsölu síðasta árs, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
aðalfundi Skeljungs. Hjá Skeljungi
var hlutfallið 77%. Félagið jók sölu
á 95 oktana blýlausu bensíni um
rúmlega 44% en sala á 98 oktana
bensíni minnkaði um 27%. Sala á
92 oktana bensíni breyttist lítið.
Skeljungur hóf fyrst olíufélaganna
innflutning á 95 oktana blýlausju
bensíní árið 1991 og hefur sala
þess vaxið jafnt og þétt frá þeim
tíma. Heildarsala íslensku olíufé-
laganna nam 628 þúsundum tonna
í fyrra og hafði aukist um 7,5%.
Hún hefur aldrei verið meiri hér-
lendis og skýrist það aðallega af
aukinni sókn til loðnuveiða og
loðnubræðslu. Skeljungur jók hlut-
deild sína í markaðnum. Sala fyrir-
tækisins jókst um 11,6% og hlut-
deild þess í heildarmarkaðnum var
30% á móti 28% árið áður, sam-
kvæmt fréttatilkynningu félagsins.
Gasbirgðastöð í Straumsvík
Tekist hafa samningar milli
Skeljungs og ísals um yfirtöku
Skeljungs á gasstöð álversins í
Straumsvík. Skeljungur hefur feng-
ið úthlutað 16 þúsund fermetra lóð
við Straumsvíkurhöfn til að byggja
gasbirgðastöð og er verið að hanna
hana. Skeljungur annast allan inn-
flutning á própangasi til landsins
og nam hann 1.300 tonnum í fyrra.
Þriðjungurinn fór til álversins.
í fréttatilkynningu Skeljungs
kemur fram að stefnt er að hefja
notkun stöðvarinnar í ár og að á
næstu árum muni gasbirgðastöðin
flytjast í áföngum úr Skeijafirði í
Straumsvík. Reykjavlkurborg hafi
áhuga á að kaupa lóðina í Skeija-
firði.
Mikligarður
Mjólkin
á heild-
söluverði
MJÓLK vaF seld á heildsölu-
verði í Miklagarði í gær, eða
á 58 kr. Utrínn í stað 67 kr.,
en tilefnið var opnun svokall-
aðra „eldhúsdaga“.
Að sögn Bjöms Ingimarsson-
ar framkvæmdastjóra Mikla-
garðs verður næstu daga boðið
upp á tilboð á ýmsum algengum
eldhúsvörum og veittar leið-
beiningar í matargerð.
Samgönguráðherra um ferjuflutninga á Eyjafirði
Ohjákvæmilegt að at-
huga þessi mál áfram
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra segir að það komi
sér nyög á óvart ef ferjan Arnes fullnægi ekki skilyrðum
sem sett voru í útboði um ferjuflutninga á Eyjafirði. Hrepps-
nefnd Hríseyjar hefur hafnað hugmyndum Vegagerðar
ríkisins um semja við Eystein Ingvason.
„Eg hef ekki rætt við fulltrúa
Vegagerðarinnar um þessi mál og
vissi ekki um þennan fund þar sem
ég er erlendis, en útboðið og mál-
efni eyjanna hafa lengi verið í undir-
búningi og verið unnið að því allan
tímann í mjög nánu samstarfi við
hreppsnefndir Grímseyjar og Hrís-
eyjar," sagði Halldór Blöndal í sím-
tali við Morgunblaðið, en hann er
staddur í Bonn.
120 millj. hvíla á Sæfara
Ég hitti fulltrúa eyjaskeggja á
Akureyri og ég gat ekki fundið
betur en að samkomulag hefði ver-
ið um að fara þá leið sem ég síðan
fór. Það kemur mér því mjög á
óvart ef það á við rök að styðjast
að Ámes fullnægi ekki þeim skil-
yrðum sem óhjákvæmilegt er að
gera í sambandi við þjónustu við
eyjaskeggja. Um málið að öðm leyti
vil ég segja það að á Sæfara hvfla
120 milljónir kr. sem sýnir í hvaða
ólestri þessi mál hafa verið, van-
hugsuð frá upphafí, enda hef ég
orðið var við óánægju með það skip,
miðað við það mikla fjármagn sem
í því liggur. Væri út af fyrir sig
fróðlegt að fá skýringar á því að
hvemig á því geti staðið að það var
keypt á margföldu verði miðað við
gangverð þess í dag,“ sagði Halldór.
Málið athugað áfram
„Það er ekki rétt að Sæfari sé
sérlega velbúinn undir vöraflutn-
inga til eyjanna. Hann getur m.a.
ekki tekið gáma. Ég hygg að það
sé óhjákvæmilegt að athuga þessi
mál áfram. Mér finnst það ekki ein-
boðið að festa Sæfara í sessi til
þess að þjóna eyjunum til langrar
frambúðar skil ekki hvaða hugsun
liggur þar að baki.
Um Ámes hef ég ekki annað að
segja en það skip dugði mjög vel á
Eyjafirði, en það er ekki bflfeija
eins og nauðsynlegt er að hafa þar
vegna ástands vega LBarðastrand-
arsýslu. Ég veit ekki betur en ör-
yggisútbúnaður þess sé í fyllsta
lagi,“ sagði Halldór.