Morgunblaðið - 13.03.1993, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 13. MARZ 1993
HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ
IÞROTTAMANNVIRKI
UPPAVIÐ
ÍSLENDINGAR eiga góða möguleika á að leika um fimmta
sætið á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Svíþjóð. Strák-
arnir virðast tilbúnir til þess, andinn íliðinu erekki ósvipaður
og hann var i B-keppninni í Frakklandi þar sem ísland sigraði
eins og frægt er orðið.
Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir
Skipstjórabúningurínn mátaður
Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, var fær í allan sjð eftir að hafa stýrt
liði sínu til glæsilegs sigurs gegn Ungveijum í fyrrakvöld. Hann fékk skipstjóra-
búninginn lánaðan í Bakkafossi og eins og sjá má, var honum ekkert að vanbún-
aði. Með honum á myndinni er Kjartan Jónsson, ræðismaður íslands í Gauta-
borg og yfirmaður Eimskips í sænsku borginni.
Það er létt yfir mönnum og ef
léttleikinn og hæfilegt
„kæruleysi“ helst það sem eftir
er mótsins er alls ekki ólíklegt að
AF liðinu takist að ná
INNLENDUM
VETTVANGI
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar frá
Sviþjóð
því marki að leika
um fimmta sætið.
Ef til þess kemur
er spuming hvort
íslenskt handknatt-
leikslandslið er búið
að vinna sig útúr
þeim leiða ávana að
tapa alltaf leik um
sæti. íslendingar hafa ansi oft
orðið í sæti með sléttri tölu.
Undantekningin er auðvitað B-
keppnin í Frakklandi. Tvívegis
höfum við náð sjötta sæti á HM
en nú ætla strákamir að sigra í
leik um sæti, eins og U-21 árs lið-
ið gerði á HM í Grikklandi fyrir
tveimur árum. Það er mikilvægt
_að sigra í svona leikjum, menn
mega ekki sætta sig við að tapa
þó svo þokkalegt sæti náist. Það
er svo miklu skemmtilegra að vera
í fimmta sæti en því sjötta. Ef það
tekst þá er það besti árangur okk-
ar í HM og leiðin virðist vera
uppávið þrátt fyrir þá skoðun
margra að við séum ekki með
nærri eins sterkt lið og við vorum
með fyrir nokkrum árum. Við
sjáum hvað setur.
Þrlðja sætlð sennllegt
Þegar þetta er ritað er nokkuð
ljóst hvaða lið komast í milliriðil-
inn, en ekki með hvað mörg stig.
Danir, Þjóðverjar og Rússar koma
væntanlega úr D-riðli og gera má
ráð fyrir að Rússar verði með fyög-
ur stig, eins og Svíar úr C-riðli,
en Þjóðveijar og Danir fara
væntanlega með eitt stig hvor
þjóð. ísland verður því í 3. sæti í
milliriðlinum með tvö stig.
Liðið verður þá líklega að sigra
Dani og tjóðverja til að leika um
fímmta sætið, en þó er það alls
ekki víst því aðrir leikir geta end-
að þannig að við mættum tapa
fyrir annarri hvorri þjóðinni. Ann-
ars er fyrirkomulag heimsmeist-
aramótsins dálítið skondið. Við
gætum talist tíunda besta þjóð í
heimi með því að vinna aðeins einn
leik! En „strákamir okkar" ætla
sér ekki tíunda sætið, þeir ætla
sér það fimmta.
íslenska liðið hefur leikið ágæt-
lega það sem af er mótinu. Leikur-
inn gegn Svíum var skynsamlega
leikinn í 48 mínútur en eftir það
brotnaði liðið enda við sjálfa
heimsmeistarana að eiga og að
auki á þeirra eigin heimavelli. Það
var einkum eitt atriði sem réði
úrslitum. Sigurður Sveinsson, okk-
ar aðalskytta, lék sinn lélegasta
leik í áraraðir og hafði það að sjálf-
sögðu slæm áhrif á sóknarleikinn.
Menn höfðu alls ekki búist við að
Sigurður myndi bregðast, en hins
vegar var mikið rætt um það fyrir
keppnina hvað ætti að gera ef
Sigurður yrði tekinn úr umferð.
Það hvarflaði ekki að nokkrum
manni að Sigga gætu verið mis-
lagðar hendur. Svona eru nú kröf-
umar miklar.
Leiklð með hjartanu
Sigurinn gegn Ungverjum var
frækinn. Eftir að hafa haft yfir-
höndina lenti liðið í pólskum vand-
ræðum, dómaramir voru landar
Bogdans Kowalczyks fyrram
landsliðsþjálfara okkar, en náði
að rífa sig upp úr lægðinni með
mikilli baráttu og sigurvilja. Ein-
hvem tíma hefði það verið kallað
að leika með hjartanu. Ótti sumra
um að erfíðlega gæti gengið að
koma strákunum í stuð eftir tapið
gegn Svíum reyndist sem betur
fer ástæðulaus. Sjálfstraustið var
í góðu lagi og þeir menn sem hing-
að til hafa ekki þurft að bera hit-
ann og þungann af leik liðsins
komu sterkir inná á örlagastundu
og stóðust eldraunina með miklum
sóma. Sigurður var tekinn úr
umferð, eins og búast mátti við,
en það leystu strákamir vel, eða
Ungveijamir illa. Þeir létu mann-
inn elta Sigurð niður í homið í
— _ _ m m m • Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir
Stynmenn i brunni
íslenska landsliðshópnum var boðið í hádegismat um borð í Bakkafossi í gær. Það var ánægjuleg tilbreyting og eins og
sjá má kunnu Guðmundur Hrafnkelsson, Gunnar Gunnarsson og Júlíus Jónasson vel við sig í brúnni.
stað þess að skipta og taka Bjarka
úr umferð í staðinn en láta Sigurð
vera í hominu. „Þetta vora mikil
mistök hjá þjálfaranum," sagði
Þorbergur Aðalsteinsson.
Hægra hornlð vandamál
Það sem hefur komið mér einna
mest á óvart í leik íslenska liðsins
er hversu lítið kemur út úr hægra
hominu þar sem tveir af burðarás-
um landsliðsins undanfarin ár
leika. Valdimar hefur ekki náð sér
á strik. Hann missti af undirbún-
ingum vegna meiðsla og
sjálfstraustið virðist ekki enn
nægilega mikið til að leika mikil-
væga leiki. Hann fær þó tækifæri
í dag gegn Bandaríkjamönnum og
vonandi smellur þetta þá saman
hjá honum.
Bjarki hefur ekki heldur sýnt
hvað hann getur. Þorbergur Aðal-
steinsson þjálfari segir að þetta
sé ekki herbragð hjá sér, þetta
hafi bara spilast svona í leikjunum.
Á undirbúningstímabilinu gekk
þetta mun betur og við höfum oft
skorað mikið úr hornunum, en
ekki núna. Enn ein ástæða fyrir
fáum mörkum úr hominu er að
Valdimar og Bjarki era þekkt nöfn
í heimi handknattleiksins og því
hafa mótheijamir ávallt góðar
gætur á þeim.
Það er ánægjulegt til þess að
vita hve markvarslan hjá íslenska
liðinu er orðin góð og stöðug. Þar
á Einar Þorvarðarson, aðstoðar-
þjálfari, mikinn þátt. Guðmundur
Hrafnkelsson hefur skipað sér á
bekk með bestu markvörðum
heims. Það era ekki mörg ár síðan
rætt var um markvörsluna sem
veikasta hlekkinn í íslenska liðinu.
Þær raddir era nú þagnaðar.
Geir í heimsklassa
Það væri hægt að ræða hér enn-
frekar um framgang einstakra leik-
manna en það verður ekki gert.
Varla er þó hægt að tala um lands-
liðið án þess að nefna fyrirliða þess.
Línumaðurinn Geir Sveinsson hefur
leikið frábærlega hér og það era
ekki margir sem hafa leikið betur.
Geir er baráttuhundur sem er mjög
hvetjandi fyrir liðið. Hann er með
betri vamarmönnum í handknatt-
leiknum í heiminum og á línunni
tekur hann stöðugum framforam.
Það telst orðið til tíðinda ef hann
nýtir ekki færin sem hann fær.
Ef Geir heldur áfram að leika eins
og hann hefur gert kæmi það mér
ekki á óvart þó hann yrði valinn
besti maður mótsins.
\ þessarl telknlngu sést útlit hins nýja íþróttahúss Fram, séð frá Safamýri.
Borgarstjórinn í Reykjavíktekurfyrstu skóflustungu á morgun
íþróttahús Fram við Safamýri
„ÞAÐ verður mikil lyftistöng
fyrir félagið að fá nýtt íþrótta-
hús á félagssvæðið," sagði
Alfreð Þorsteinsson, formaður
Knattspyrnufélagsins Fram, en
á morgun kl. 15 tekur borgar-
stjórinn í Reykjavík, Markús
Örn Antonsson, fyrstu skóflu-
stunguna að nýju iþróttahúsi
félagsins við Safamýri.
Þetta er stór stund fyrir okkur.
Bygging hússins mun heíjast
nú þegar og er ráðgert að afhenta
húsið tilbúið til notkunar 17. júní
1994, þannig að byggingartími
hússins verður um fímmtán mánuð-
ir,“ sagði Alfreð. Kaffíveitingar
verða í félagsheimili Fram við Safa-
mýri að athöfn lokinni. „Ég vil
hvetja Framara til að láta sjá sig
og þiggja veitingar í tilefni dags-
ins,“ sagði Alfreð Þorsteinsson.
Að undangengnu alútboði var
samið við Byggðaverk hf. um bygg-
ingu íþróttahússins. íþróttahúsið
verður samtals 2.551 fermetrar
brúttó að stærð. íþróttasalurinn
sjálfur verður 45,8x32,2 metrar eða
rúmlega 1.473 fermetrar brúttó.
Mesta hæð salarins verður 8,9 m,
en hæð undir loftbita verður 7,1
m. Húsið mun rúma u.þ.b. 1.000
manns í sætum og stæðum.
í hliðarbyggingu, sem verður
samtals um 1.076 fermetrar brúttó
á tveimur hæðum, verða búnings-
herbergi, salemi og anddyri á neðri
hæð, en félagsaðstaða og veitinga-
sala á efri hæð. Úr veitingasal má
horfa út yfír íþróttasalinn.
Heildarrúmmál hússins verður
um það bil 15.790 rúmmetrar.
Hönnuðir hússins era eftirfarandi
aðilar. Arkitekt: Teiknistofan Ár-
múla 6. Burðarþol, lagnir og loft-
ræsting: Verkfræðistofa Stefáns
Ólafssonar. Raflagnir: Raftækni-
stofan hf.