Morgunblaðið - 24.03.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
Gagnrýnandi The New York Times hrósar Kristjáni Jóhannssyni
„Orkaði mjög
sterkt á mig“
Boston. Frá Karli Biöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
Alex Ross, gagnrýnandi bandaríska dagblaðsins
The New York Times, kvaðst í viðtali við Morgun-
blaðið í gær hafa þótt mikið til söngs Kristjáns
Jóhannssonar koma, er hann hlýddi á hann í óper-
unni Cavalleria Rusticana í Metropolitan-óperunni
í New York fyrir viku.
„Flutningur Kristjáns vakti hrifningu mína,“ sagði Ross,
sem er einn fjögurra óperugagmýnenda blaðsins. „Hann hefur
sterka rödd, vítt raddsvið, gott jafnvægi í röddinni og persónu-
sköpun hans var góð. Hann orkaði mjög sterkt á mig.“
Ross sagði að það væri „stórkostlegur árangur“ að koma
fram í Metropolitan-óperunni. „Það er ekki hægt að ná mikið
hærra,“ sagði Ross og bætti því við að Kristján hefði náð „vel
til áhorfenda" og fengið „frábærar viðtökur".
Sama kvöld og Kristján söng í Cavalleria Rusticana kom
Placido Domingo fram í Pagliacci. „Kristján hefur ekki náð
því að standa jafnfætis Domingo og það er ekki hægt að
búast við því,“ sagði Ross. „En ég vænti þess að hann eigi
gifturíka framtíð fyrir sér. Þótt ekki sé hægt að dæma af því
að hafa aðeins séð hann í Cavalleria Rusticana, er víst að
hann er fjölhæfur.“
Tenórinn
Kristján Jóhannsson í hlutverki sínu í II
Trovatore í uppfærslu Metropolitan.
VEÐURHORFUR I DAG, 24. MARS
YFIRLIT: Nálægt Jan Mayen er 970 mb. lægð sem hreyfist suður i kvöld
en fer síðan allhratt norðaustur. Skammt vestur af landinu er hæðarhrygg-
ur sem þokast austur. Á sunnanverðu Grænlandshafí er lægöardrag sem
hreyfist norðaustur en milli Grænlandshafs og Nýfundalands er vaxandi
995 mb. lægðarsvæði sem hreyfist norðnorðaustur.
SPÁ: Vestanlands þykknar upp með vaxandi suðaustanátt, og síðdegis
verður allhvasst og rigning sunnantil, en stinningskaldi eða allhvast og
slydda eða snjókoma norðantil. Norðvestanlands verður norðvestan stinn-
ingskaldi og él í fyramálið, en síðan hæg breytileg átt og léttskýjað. Suð-
austanlands verður léttskýjað um morguninn en síðdegis þykknar upp
með vaxandi suðaustanátt. Veður fer hlýnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Suðlæg átt og hlýtt um mest-
allt land. Rigning sunnanlands og vestan en úrkomulítið norðaustanlands.
HORFUR A LAUGARDAG: Suðvestlæg átt og heldur kólnandi. Slydda eða
rigning suðaustanlands en él um vestanvert landið.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veöurstofu Islands — Veöurfregnir: 990600.
▼
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað Hálfskýjað
* r * * * *
* r * *
r * r * * *
Slydda Snjókoma
Skýjað Alskýjað
v $ ý
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður ef 2 vindstig.^
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
riig..
0
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 igær)
Ágæt færð er á vegum í nágrenni Reykjavíkur og fært með suðurströnd-
inni austur á firði og góð færð er eystra, nema Breiðdalsheiði er þungfær
og Fjarðarheiöi er ófær. Á Vesturlandi er fært um aðalleiðir og fært allt
vestur í Reykhólasveit. Brattabrekka er ófær. Á sunnanverðum Vestfjörð-
um er fært milli Brjánslækjar og Patreksfjarðar og Bíldudals. Fært er um
Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og þaðan til ísafjarðar. Botns- og Breiða-
dalsheiðar eru færar. Fært er um flesta vegi á Noröur- og Norðaustur-
landi nema þungfært er til Siglufjaröar. Möðrudalsöræfi eru ófær.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti i síma 91-631500 og í
grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti ■i-3 veður úrkomaígr. heiðskírt
Bergen 4 skýjað
Helsinki 2 rlgning
Kaupmannahöfn 7 skúr
Narssarssuaq vantar
Nuuk +16 skúr
Ósló vantar
Stokkhólmur 8 léttskýjað
Þórshöfn +1 snjóél
Algarve 19 skúr
Amsterdam 8 léttskýjað
Barceiona 16 þokumóða
Berlín 9 hálfskýjað
Chicago 3 súld
Feneyjer 14 þokumóða
Frankfurt 11 skýjað
Glasgow 6 skúr
Hamborg 8 hálfskýjað
London 10 léttskýjað
LosAngeles 16 þokumóða
Lúxemborg 8 hálfskýjað
Madríd 14 rigning
Malaga 19 skýjað
Mallorca 17 skýjað
Montreal +10 heiðskírt
NewYork 2 léttskýjað
Orlando 18 skýjað
París 10 skýjað
Madeira 19 hálfskýjað
Róm 16 heiðrkírt
Vín 16 skýjað
Washington 7 mistur
Wlnnipeg +4 léttskýjað
Viðskiptaráðherra útilokar ekki
einn bankastjóra Seðlabanka
Olafur Ragnar
stingnr upp á
Jónasi Haralz
JÓN Sigurðsson viðskiptaráðherra útilokar ekki að Seðlabankastjóri
verði einungis einn í framtíðinni. Ólafur Ragnar Grímsson vill gjarnan
að sá maður verði Jónas Haralz, fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans, næstu þrjú árin.
Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, gagnrýndi
harðlega í umræðum í gær á Alþingi
frumvarp til iaga um Seðlabanka
Islands; stjórnákvæði frumvarpsins
sérstaklega. Ólafur Ragnar vildi að
í stað þriggja yrði einungis einn
bankastjóri.
Þingmaðurinn taidi þtjá möguleika
koma til greina. í fyrsta lagi að Birg-
ir ísleifur Gunnarsson núverandi
Seðlabankastjóri skipaði áfram sína
stöðu einsamall en ekki yrði skipað
í stöðu Jóhannesar Nordal eða Tóm-
asar Ámasonar þegar þeir létu af
störfum. í öðru lagi að velja hæfí-
leikaríka og vel mehntaða unga menn
í stöðuna. Olafur Ragnar nefndi nafn
Ingimundar Friðrikssonar sem væri
nú fulltrúi Norðurlanda hjá Alþjóða
gjaldeyrissjóðnum í Washington,
einnig nefndi ræðumaður Má Guð-
mundsson forstöðumann hagrann-
sóknadeildar Seðlabankans.
Til að skapa festu
Í þriðja lagi greindi Ólafur Ragnar
frá þeirri hugmynd að til þess að
skapa festu um Seðlabankann, a.m.k.
á meðan ákveðnar breytingar ættu
sér stað, yrði þess farið á leit við
Jónas Haralz, fyrrum bankastjóra
Landsbankans, að hann gegndi
bankastjórastöðu næstu þrjú ár.
Ólafur taldi Jónas vel til þess fallinn
að hafa forystu fyrir bankanum á
breytingarskeiði; festa bankann í
sessi sem faglega sjálfstæða stofnun.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
taldi Ólaf leggja heidur mikið upp
úr stjómákvæðum framvarpsins og
mannaskipan í stöður. En ráðherra
taldi fyllilega til umræðu vert að
Seðlabankastjóri yrði aðeins einn.
Brimborg vill
fá Bíldshöfða 1
BRIMBORG hf., hefur boðið 17.150.000 krónur í hús og lóð slökkviliðs-
ins við Bíldshöfða 1, en eigning var auglýst til sölu fyrir rúmu ári síð-
an. Lóðin henti vel starfsemi Brimborgar hf., þar sem Veltir hf., hefur
aðstöðu handan götunnar en það fyrirtæki sér um alla þjónustu fyrir
Brimborg hf. Erindið var lagt fram í borgarráði í gær og var af-
greiðslu þess frestað.
I erindi Brimborgar til borgarritara
kemur fram að fyrirtækið hafí ætlað
að byggja yfír starfsemi sína á lóð-
inni við Suðurlandsbraut 56 og að sú
lóð hafí aldrei verið boðin til sölu af
fyrirtækinu eða hafí verið ætlunin að
falla frá starfsemi þar. Síðan segir
að, „Af viðræðum okkar hefur mátt
ráða að Brimborg hf. hefur ekki get-
að sætt sig við aðgerðir Reykjavíkur-
borgar vegna Suðurlandsbrautar. 56
og telur sig þurfa að leita til dóm-
stóla vegna þess máls fínnist ekki
önnur viðunandi lausn.“
Lögbann á framkvæmdir
í erindi borgarritara til borgarráðs
segir, að eftir að ákveðið var að aft-
urkalla úthlutun Brimborgar hf., á
byggingarrétti á lóðinni Suðurlands-
braut 56 hafi komið fram af hálfu
fyrirtækisins að það teldi afturköll-
unina ólögmæta og myndi setja lög-
bann á byggingarframkvæmdir ann-
ars aðila á lóðinni. Þá segir, „Afleið-
ing lögbanns verða þær, 'að fram-
kvæmdir stöðvast, væntanlega ekki
skemur en í 3-4 ár, meðan staðfest-
ingarmál er rekið í dómskerfínu. Eft-
ir að niðurstaða liggur fyrir í staðfest-
ingarmáli, og á hvern veg sem hún
verður, má ætla að kröfur um skaða-
bætur hefjist og að málaferli geti
staðið yfir í nokkur ár til viðbótar."
Síðar segir að fyrirtækið óski eftir
að kaúpa húsið og lóðina á grund-
velli tilboðs og muni þá falla frá öll-
um aðgerðum eða málaferlum vegna
afturköllunar á lóðinni að Suður-
landsbraut.
Morgunblaðið/Kristinn
Klippt fyrir skattinn
LÖGREGLUMENN og tollverðir fara nú tveir og tveir saman um
höfuðborgarsvæðið og leita að bílum sem bifreiðagjöld og þungaskatt-
ur hafa ekki verið greidd af. Númeraplötur hafa verið klipptar af
tugum bíla vegna þessa undanfarna daga. Að sögn Ómars Smára
Ármannssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns eru þúsundir bíla á listunum
og er stefnt að þvi að leita þá uppi á næstu dögum. Að sögn Óm-
ars munu löggæslumennirnir í fyrstu einbeita sér að því að hafa upp
á hinum skuldseigustu, en nokkrir munu skulda allt að milljón króna
í þungaskatt.