Morgunblaðið - 24.03.1993, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
félk f
fréttum
Signrvegararnir glaðbeittir með verðlaunin. Aftari röð f.v.: Vala Hermannsdóttir, Ingólfur Guðmunds-
son, Kolbrún Ýr Jónsdóttir, Ólafur Hansson, Helga Dröfn Óladóttir, Hans Orri Kristjánsson, Brynjar
Steinbach og Berglind Helga Jónsdóttir. Neðri röð f.v.: Eva Hermannsdóttir, Ragnar Már Guðmunds-
son, Ingibjörg Anna Ingadóttir, Grétar Ali, Dóra Sigfúsdóttir (mótdansari hennar var Pálína Harðar-
dóttir) og Kristín Lóa Viðarsdóttir (mótdansari hennar var Kolbrún Helga Jóhannsdóttir).
DANS
Sigruðu í innanskólakeppni
Fyrir nokkru var haldin innan-
skólakeppni í latin- og stand-
ard-dönsum í Dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar. Keppt var í aldurs-
flokkunum 7 ára og yngri, 10-11
ára, 12-15 ára og 16 ára og eldri.
Keppnin fór fram í íþróttahúsi við
Digranesskóla.
Jóhann Páll Ingimarsson og
Þorbjörg Edda Björgvinsdóttir
kepptu í latin-dansi í aldurs-
flokknum 12-15 ára.
KYIKMYNDIR
Jodie Foster sem byrjaði þriggja ára göm-
ul að leika í kvikmyndum hefur aldrei
látið vaða yfir sig.
Með mótleikaranum Richard Gere í nýj-
ustu kvikmynd sinni „Summersby".
Viljasterk kona
ótt leikkonan Jodie Foster sé
ekki nema 30 ára gömul, hef-
ur hún verið á toppnum í nær 27
ár. Jodie, sem er ein af fimm böm-
um einstæðrar móður, byrjaði að-
eins þriggja ára gömul að leika í
kvikmyndum, og þrettán ára gömul
varð hún heimsfræg fyrir hlutverk
sitt í myndinni „Bugsy Malone".
Hún var aðeins §órtán ára göm-
ul þegar hún var útnefnd til Óskars-
verðlauna, en Óskarinn hefur hún
fengið tvisvar, í fyrra skiptið árið
1989 fyrir hlutverk sitt í myndinni
„Hinir ákærðu" og í seinna skiptið
árið 1991 sem FBI-lögreglukonan
í myndinni „Lömbin þagna“.
Þegar Jodie er spurð hver lykilinn
að velgengni hennar sé, minnist hún
lítið á leikhæfileika sína, en segir
-að það sé fyrst og fremst trúin á
sjálfa sig sem gildi. „Ég er vilja-
sterk og vel upp alin. Ég hef aidrei
látið nokkurn mann vaða yfír mig.
Því miður láta konur alltof oft
þvinga sig í stöðu lítilmagnans og
ná aldrei að þroska viljastyrk sinn.
Ég hef alltaf farið mínar eigin leið-
ir og þakka það uppeldi mínu.
Fjölskyldan batt miklar vonir við
mig og þegar ég var í háskóla hafði
ég miklar áhyggjur af því hvað ég
ætti að gera við líf mitt. Lengi vel
var ég að hugsa um að verða lög-
maður eða dómari, ég hef nefnilega
ætíð verið ágætis ræðumaður. Þeg-
ar ég hafði pælt nógu lengi í sjálfri
mér fann ég út hvað ég vildi og
framkvæmdi það síðan."
Nýjasta kvikmynd Jodie Foster
heitir „Summersby". Þar er mót-
leikarinn Richard Gere, og leikur
Jodie Suðurrikjakonu sem skeytir
engu um siði og íhaldssemi þegar
hlutverk kynjanna er annars vegar.
ARSHATIÐ
Nær allir nemendur
skólans komu fram
ISandvíkurskóla á Selfossi var
haldin árshátíð fyrir skömmu.
Nærri því allir nemendur skólans
komu þar fram í þeim fjölmörgu
atriðum sem sett voru upp.
Hátíðin fór fram í íþróttahúsinu
á Selfossi og mátti húsið vart vera
minna til þess að rúma öll börnin
og þá fjölmörgu foreldra sem
komu til að fylgjast með, en hús-
fyllir var. Segja má að ekkert
annað en úrslitaleikir í handbolt-
anum slái út aðsóknina að hátíð-
inni á hveiju ári.
Skemmtiatriðin voru fjölbreytt
þar sem saman fór leikur og söng-
ur. Lykilatriðið í uppfærslu hvers
atriðis var þátttakendafjöldinn, til
að sem flestir fengju að vera með.
Hátíðinni lauk með skemmti-
legu fimleikaatriði þar sem krakk-
arnir notuðu fallhlífar.
Eitt hinna fjölmennu atriða á árshátíðinni. Morgunbiaðið/Sigurður Jðnsson
IÞROTTIR
Upprennandi stjarna
Barcelona er danskur
eins og vínarbrauð
Thomas Christiansen, ein af upp-
rennandi stjörnum spænska
liðsins Barcelona, lék nýlega fyrsta
leik sinn fyrir liðið í Evrópukeppni.
Þótt hann sé ungur að árum leikur
hann einnig 1 spænska landsliðinu.
Thomas, sem er 19 ára, hefur alla
sína tíð búið í Danmörku, en faðir
hans er danskur og móðirin spænsk.
Danir segja með stolti, að hann sé
danskur eins og vínarbrauð.
Sumarið 1988 skrapp hann til
Madrid og spilaði þar til reynslu
með Real Madrid, sem gerði honum
tilboð í kjölfarið. „Foreldrar mínir
tóku það ekki í mál og vildu að ég
kláraði fyrst 10. bekk grunnskól-
ans,“ segir Thomas og þar við sat.
Það var síðan um sumarið 1991 að
Hollendingurinn Johan Cruyff
skrifaði undir samning við hann
fyrir hönd Barcelona. Thomas seg-
ist ennþá vera að klípa sig í hand-
legginn til að sannfærast um að
þetta sé ekki bara draumur.
Þrátt fyrir að eiga spænska móð-
ur kunni Thomas ekkert í málinu
þegar hann kom til Spánar og dreif
sig því á námskeið. Hann fékk líka
góða hjálp frá Siw og Michael
Laudrup, sem hafa verið honum
innanhandar. Stuttu eftir að hann
kom til Spánar fór hann að spila
með unglingalandsliðinu. Þar stóð
hann sig með prýði og var því fljót-
lega fluttur í landsliðið. Nú vonar
Thomas bara að hann lendi ekki í
neinum meiðslum, þannig að hann
geti orðið jafn frægur og Allan Sim-
onsen var á sínum tíma og Michael
Laudrup er núna.
Thomas (t.v.) er orðinn þekkt-
ur á Spáni eftir tvo leiki með
landsliðinu. Hér er hann
ásamt Michael Laudrup og
Ronnie Ekelund.
Eftir eins og hálfs árs veru
með Barcelona er Thomas
Christiansen nú kominn í
innsta hring liðsins.