Morgunblaðið - 01.04.1993, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.04.1993, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 Viðræður um kjarasátt halda áfram Forseti ASI segir þörf sértækra fjár- mögnunaraðgerða FULLTRÚAR ASÍ og VSÍ hitta ráðherra ríkisstjórnarinnar kl. 14 í dag. ASÍ leggur m.a. áherslu á að komið verði á fjár- magnstekjuskátti til að fjármagna aðgerðir sem lagðar hafa verið til. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, segir að ráðherrar hafi hvorki afskrifað né samþykkt þá tillögu. Aðspurður hvort ráðherrar vildu að slík skattheimta næði líka til lífeyrissjóða sagði Benedikt að þessu fylgdu engin skilyrði en ASÍ telji nauðsynlegt að fjármögnun aðgerða verði ekki með þeim hætti að fjármagn verði flutt á milli vasa á sömu aðilum. „Við teljum að það þurfi sértækar fjármögnunaraðgerðir." Á fundi forystumanna sjávarút- vegs með ráðherrum á þriðjudag var farið yfir stöðu atvinnugreinarinnar og að sögn Amars Sigurmundsson- ar, formanns Samtaka fiskvinnslu- stöðva, eru skiptar skoðanir um leið- ir. „Það virðist vera borin von að farið verði í niðurfærslu launa og verðlags. Sú leið virðist ekki eiga miklu fylgi að fagna, hvorki meðal launþega né atvinnurekenda," sagði hann. Arnar sagði að menn væru aftur á móti að fara rækilega yfir svokallaða kostnaðarlækkunarleið, en í henni fælist að samhliða vaxta- lækkun muni ríkið standa að lækkun útgjaldaliða útflutningsatvinnu- gTeina, m.a. tryggingagjalds. Gallinn við þá leið sé þó sá að sjávarútvegur- inn yrði áfram rekinn með verulegum halla, auk þess sem hún valdi tekjus- amdrætti hjá ríkinu. Sagði Amar að lítið hefði verið fjallað um gengis- breytingar á fundinum en litið væri á þá leið sem neyðarúrræði. Eiga von á útspili Benedikt Davíðsson kveðst vænta viðbragða frá ráðhermm á næstu fundum aðila. „Það hefur komið fram opinberlega hjá ráðherrunum að þeir telja mikilvægt að samningar komist. á og rennt verði frekari stoðum und- ir atvinnulífið. Með tilliti til þeirra viðhorfa verður maður að ætla að það verði einhveiju spilað út í sömu átt,“ sagði hann. Stóra samninganefnd ASí verður væntanlega boðuð til fundar síðdegis í dag. Morgunblaðið/Sverrir Kaupsamningur undirritaður í GÆR var undirritaður í Ráðhúsi Reykjavíkur kaup- framkvæmdastjóri Morgunblaðsins, Hallgrímur samningur milli Árvakurs hf., útgáfufélags Morgun- Geirsson, stjórnarformaður Árvakurs hf., Markús blaðsins, og Reykjavíkurborgar um kaup borgarinn- Örn Antonsson borgarstjóri, Hulda Valtýsdóttir, ar á eignarhluta Árvakurs hf. í Aðalstræti 6, fyrir varaformaður stjórnar Árvakurs hf., Ólafur 0. John- Borgarbókasafn Reykjavíkur. Myndin var tekin við son og Stefán Eggertsson, sem báðir eiga sæti í undirritun kaupsamnings. Við borðið sitja frá vinstri: stjóm Árvakurs hf. Að baki þeim standa frá vinstri: Hjörleifur Kvaran, framkvæmdastjóri lögfræði- og Matthías Johannessen ritstjóri, Styrmir Gunnarsson stjómsýslusviðs borgarinnar, Haraldur Sveinsson, ritstjóri og Þórdís Þorvaldsdóttir borgarbókavörður. Utlit fyrir hækkun bensíns á næstunni ÚTLIT er fyrir að bensínverð muni hækka á næstunni hér á landi í kjölfar hækkana á heimsmarkaðsverði bensíns að undanförnu. Skráð verð í Rotterdam á 98 oktana bensíni var að meðaltali 196 dollarar tonnið í febrúar en var í fyrra- dag skráð 204 dollarar. Hins vegar miðaðist síðasta verð- ákvörðun olíufélaganna þann 20. febrúar við 193 dollara fyrir hvert tonn. Þá var verð á 92 oktana bensíni 187 dollar- ar tonnið að meðaltali í febrúar en var í fyrradag skráð 201 dollari. Síðasta verðákvörðun miðaðist við 184 dollara. Geir Magnússon forstjóri Olíufé- lagsins hf. sagði í samtali við Morg- unblaðið að þrátt fyrir hækkanir á heimsmarkaðsverðinu ætlaði félag- ið ekki að breyta verðinu nú um mánaðamótin. Að öðru óbreyttu þjufti hins'vegar að endurskoða verðið þegar birgðaverð í landinu gæfi tilefni til þess. Olíufélagið ætti von á bensínfarmi frá Noregi á næstunni og kvaðst hann eiga von á að verð þess farms yrði í takt við núgildandi heimsmarkaðs- verð. Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs segir að þeir eigi von á nýjum farmi eftir 13 daga og ef heldur sem horfír á heimsmarkaði megi eiga von á verðbreytingum innan tveggja vikna eða jafnvel fyrr. Óvíst hve mikil hækkunin verður „Það er alveg ljóst að við verðum að taka tillit til heimsmarkaðsverðs við verðlagningu okkar en það er ekki hægt að segja til um það nú hve hækkanir verða miklar,“ segir Kristinn. „Við eins og aðrir kaupum okkar olíuvörur á meðalverði sem reiknað er yfir ákveðið tímabil, 60 daga, en kaupum ekki á verði dags- ins. Því geta forsendur breyst, verð á heimsmarkaði lækkað eða gengi dollars breyst. Taka verður tillit til þessara þátta við verðákvörðun." Kristján Ólafsson fjármálastjóri Olís segir að engar verðbreytingar verði hjá Olís nú um mánaðamótin en þeir muni fylgjast grannt með þróun mála á heimsmarkaði á næst- unni og taka sínar ákvarðanir í samræmi við þá þróun. Til umræðu hafi verið meiri markaðstenging á verði en nú séu verðsveiflur á heimsmarkaði jafnaðar út með kaupum á verði sem sé meðaltals- verð yfir nokkum tíma. Á morgun rennur út það reynslu- tímabil sem gefið var á frjálsa álagningu á olíuvörum hérlendis en það gilti frá 1. apríl 1992. Kristján segir að þeir hafí ekkert heyrt frá Verðlagsráði enn og reikni með að fijáls álagning gildi áfram þar til annað er ákveðið enda hafi reynslan af fijálsri álagningu verið góð að hans mati. í dag Verkfallsheimild_______________ Félagsfundur Dagsbrúnar í gær samþykkti verkfallsheimild 26 Vaxtalækkun____________________ Vextir óverðtryggðra útlána lækka í dag. Seðlabankastjóri á von á lækkun aftur síðar í mánuðinum 28 Sjónvarp Umsóknir hafa borist um leyfi til að endurvarpa óþýddu erlendu sjónvarpsefni 32 Leiðari_________________________ Ítalía nálgast hættumörkin 32 Dagskrá ► Sonur minn, kvikmyndastjarn- an - Bamaefni á Stöð 2 á skírdag - Lék keðjusagarmorðingja - Fær hálfan miHjarð fyrir hlutverk - Saga Amlóða kvikmynduð Viðskipti/Atvinnulíf ► NIB fjármagnar nýja Ijósleið- arastrenginn - Jarðboranir með viðbótarverkefni á Azoreyjum - Burt með bölmóðinn - Útlit fyrir stöðnun í ferðaþjónustu hérlendis 113 Áfengi 12 Tóbak I DRYKKJARV. 0G TÓB. II Drykkjarvörur 02 Fiskur og fiskvörur III Gosdrykkirogöl 09 Aððrar matvörur 01 Kjöt og kjötvörur 00 Mjöl, grjón og bakaðarv. 0 MATVÖRUR 04 Feitmeti og olíur ■■ 3,1 % 08 Kaffi, te, kakó og súkkul. ■|2,2% Breyting á matvöruliðum 05 Grænmeti, ávextir og ber |o,9% framfærsiuvísitölunnar 03 Mjólk, ijómi, ostarog egg |o,5% ffá jan. 1990 til mars 1993 Hækkun umfram rramfærsluvisrtölu Framfærsluvísitalan var 141,5 stig í febrúar 1990 en er nú 165,4 stig. Þetta er hækkun um 16,9%. 06 Kartöflur og vörur úr þeim 07 Sykur Matvöruverð frá 1990 til 1993 Mjólkurvörur hafa hækkað um 0,5% VERÐ á flestum tegundum matvöru hefur hækkað mun minna en sem nemur heildar- hækkun vísitölu framfærslu- kostnaðar frá I febrúar árið 1990, þegar þjóðarsáttar- samningarnir voru undirrit- aðir, til mars á þessu ári. Af einstökum matvöruliðum hef- ur verð á sykri lækkað um 24,5% og kartöflur og vörur unnar úr þeim hafa lækkað um 3% á tímabilinu. Mjólkurverð, ijómi, ostar og egg hafa hækkað um 0,5% á sama tíma og framfærsluvísitalan hefur hækk- að um tæp 17% og vísitala vöru og þjónustu um tæp 19%. Verð grænmetis, ávaxta og beija hefur hækkað um tæpt 1% á sama tímabili. Afengi og tóbak hefur aft- ur á móti hækkað talsvert umfram meðalhækkun liða framfærsluvísi- tölunnar. Á þessu þriggja ára tíma- bili hefur áfengi hækkað um 25,3% og tóbak um 23,5%. Meðal annarra matvörutegunda sem hafa lítið hækkað í verði á tíma- bilinu eru kaffi, te, kakó og súkkul- aði sem hafa hækkað um 2,2% og feitmeti og olíur hækkuðu um 3,1%. Kjöt og fisk- ur kaupir Kaupstað MIKLIGARÐUR selur að lík- indum verzlunina Kaupstað í Mjódd í dag til Björns Sveins- sonar kaupmanns og fjöl- skyldu en þau reka verzlun- ina Kjöt og fisk við Selja- braut. Björn staðfesti þetta í gærkvöldi og sagði að samn- ingar yrðu væntanlega undir- ritaðir í dag. Að sögn Inga Más Aðalsteins- sonar, framkvæmdastjóra Mikla- garðs, er söluverðið yfir bók- færðu verði eignarinnar og sagði hann forráðamenn Miklagarðs sætta sig ágætlega við það. Gert er ráð fyrir að nýi eigandinn taki við rekstrinum á föstudag. Tilboð hafa borizt í aðrar Kaup- staðarverzlanir, en Ingi Már vildi ekkert tjá sig um það hvemig sölumál gengju.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.