Morgunblaðið - 01.04.1993, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRIL 1993
9
Franskar dragtir
og blússur
fyrir fermÍMjarmmmur og -ömmur.
TESS
V NEi
NEZZa. °P'ð V|rka daga 9-18,
S. 622230. laugardag 10-14.
Dragtir og sett
frá Catherína Hetser
Guðrún,
Rauðarárstíg, sími 615077.
M
i Nuddstofa
þorbjörns Ásgeirssonar
Skeifan 7, s. 684011
Ég býð fram þjónustu mína, sem er heildrænt nudd, djúp-
skynjunarnudd, slökun, punktanudd ásamt öðrum árang-
ursríkum nuddaðferðum.
Ég fer einnig í heimahús ef með þarf.
Tímapantanir frá kl. 14-19.
Þorbjörn Ásgeirsson, nuddfræðingur.
2C
cn
c=
w
j
cn
öÖMUÍsi kúícjöcju
Sudurlanddbraut 54 • Bldu bií.u'n v/Faxafen • S: 682866
Viltu gera góð kaup?
Greiðslukjör
við allra hæfi.
Fallegur fatnaður
PELSINN
Kirkjuhvoli • sími 20160
DÆMI UM ÞESSA VIKU:
Minkapelskápur og jakkar,
pelsfóðurkápur
og jakkar,
kasmírkápur,
ullarkápur,
leðurkápur
og jakkar.
Sala Búnaðarbanka til einkaaðila?
M E Ð
M0TI
55-69 ára
45-54 ára
35-44 ára
25-34 ára
15-24 ára
Einkavæðing opinberra fyrirtækja
Skoðanakönnun Frjálsrar verzlunar á afstöðu til einkavæðing-
ar opinberra fyrirtækja sýnir að 67% þeirra sem afstöðu tóku,
það er tveir af hverjum þremur, styðja einkavæðingu. Hins veg-
ar styðja aðeins 40% sölu Búnaðarbankans. Aldurshópurinn 25
til 34 ára sker sig þó úr: 57% styðja sölu bankans. Frjáls verzl-
un hefur sínar skýringar á sérstöðu hópsins.
Fimmtíu millj-
arðar á altari
atvinnuleysis!
Aldurshópurinn sera
styður að meirihluta
einkavæðingu Búnaðar-
bankans er fólk á aldrin-
um 25-34 ára. Frjáls
verzlun lýsir þessum ald-
urshópi svo:
„Þetta er kynslóðin
sem horfir upp á hvemig
kerfi mikilla ríkisaf-
skipta hefur kastað íjár-
festingfum að andvirði 50
milljarða á glæ með
miklu atvinnuleysi sem
afleiðingu. Þetta er kerfi
svonefndra bjargvætta á
meðal sljórnmáJamanna;
manna, sem vilja sam-
þjappað vald og telja sig
hafa meira vit á fjárfest-
ingum en markaðurinn.
Miklu valdi fylgir ævin-
lega spilling.
Þetta er kynáíóðin sem
getur ekki búizt við sömu
aukningu lífskjara á ári
hverju og verið hefur frá
síðari heimsstyrjöld. Hún
getur ekki reitt sig á
happdrættisvinninga í
sjávarútvegi. Hún getur
þurft að búa við nýjan
þjóðfélagsvanda hér á
landi: atvmnuleysi.
Þetta er kynslóðin sem
hlustar á timasprengju
tifa í lífeyrissjóðakerf-
inu; að kerfið lofar meiru
en það getur staðið við
og hygUr sumum þjóðfé-
lagshópum. Hún verður
því að skapa sér sinn eig-
in lífeyrissjóð ætU hún
að fá einhvem lifeyri á
ævikvöldinu. Þetta er
kynslóðin sem nú hafnar
verkföllum og fylgir ekki
launþegaforingjum sín-
um vegna þess að hún
reiknar dæmið upp á eig-
in spýtur og fær út að
verkföU séu óarðbær á
tímum minnkandi þjóð-
arframleiðslu þegai-
raunhæfra kjarabóta er
ekki að vænta.“
Refsivextir
útlánatapanna
„Þetta er kynslóðin
sem er og hefur verið að
koma sér þaki yfir höfuð-
ið með dýmm Iánum og
er þvi skuldug. Hún
greiðir háa vexti í bönk-
um vegna þess að bankar
hafa verið of tengdir
stjórnmálamönnum og
arðsemi ekki ráðið ferð-
inni í útlánum til atvinnu-
veganna. Hún greiðir
núna refsivextina af út-
lánatöpunum. Hún greið-
ir líka refsivextina af sí-
felldum fjárlagalialla
hins opinbera síðustu
tuttugu árin.
Þetta er kynslóðin sem
hlær að deilumáli ríkis-
lögmanns og ríkisskatta-
nefndar um það hvort
útgerðarmenn þurfi að
að borga eignarskatt af
keyptum svonefndum
langtímakvóta. Hún veit
að þjóðin ÖU á fiskinn í
sjónum en ekki aðeins
útgerðarmenn.
Þetta er kynslóðin sem
hefur ekki sömu tilf-
inngatengslin við land-
búnað vegmi þess að for-
eldrar hennar, sem og
afar og ömmur, stunduðu
ekki landbúnað heldur
bjuggu í þéttbýU. Þetta
er kynslóðin sem stendur
í bamauppeldi og hún
viU þvi lækka matar-
kostnað heimila með inn-
flutningi búvara. Hún vill
líka lækka þann matar-
kostnað sem felst í bein-
um styrkjum til landbún-
aðar af skattpeningum.
Þetta er kynslóð sem
fær mikinn þjóðarauð í
vegamesti og stendur í
þakkarskuld fyrir fóm-
fýsi og baráttu foreldr-
anna við að lyfta þjóðfé-
laginu upp úr fátækt. En
hún erfir líka kerfi ríkis-
afskipta af fjárfestingum
sem leitt hafa til sam-
dráttar í íslenzku at-
vinnulifi og stóraukinna
þjóðarskulda. Veizlan er
búin í bUi. Lengur verður
ekki eytt um efni fram.
Eina leiðin til að bæta lífs-
kjörin er aukin verð-
mætasköpun og það verð-
ur forgangsverkefnið
næstu tuttugu árin.
Hin nýja stefna er auk-
in verðmætasköpun,
minni ríkisafskipti, einka-
væðing opinberra fyrir-
tækja og aukin sam-
keppni á borði en ekki
aðeins í orði.“
Heimdallur í skoðunarferð í varnarstöðina
Utanríkismálanefnd Heimdallar
stendur fyrir skoðunarferð um
varnarstöðina í Keflavík laugar-
daginn 3. apríl.
Lagt verður af stað frá Valhöll
klukkan 12.00 og komið aftur til
Reykjavíkur síðdegis. Friðþór Ey-
dal, upplýsingafulltrúi Varnarliðs-
ins, mun leiða hópinn um varnar-
stöðina og að skoðunarferð lokinni
verður máltíð á Wendy’s matsölu-
staðnum. Skráning og frekari upp-
lýsingar fást á skrifstofutíma í
Valhöll.
(Fréttatilkynning)
S
SUMIR HAFA EKKI HUGMYND UM ÞAÐ. EN ÞU?
Ef A beygir til hliðar,
hvorl sem það er lil þess að
skipta um akrein eða að aka
fram úr, getur hann lent í
órétti gagnvart B sem er að
aka fram úr A.
í 2. mgr. 17. gr. umferðar-
laga segir meðal annars:
„Ökumaður skal, áður en
liann ekur af stað frá brún
akbrautar, skiplir um akrein
eða ekur á annan hátt til hlið-
ar, ganga úr skugga um að
það sé unnt án liættu eða
óþarfa óþæginda fyrir aðra.“
Sýndu aðgæslu þegar þú
skiptir um akrein eða ekur
fram úr. 5
<
t/)
TILLITSSEMI í VMFERÐINNI
ER ALLRA MÁL.
SJOVAljDALMENNAR