Morgunblaðið - 01.04.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 27
‘■r-'r— 1 T T j 7—f yr^ ■■ r-r:\—-------------------------------------------------------------------f-H ‘
Bent Scheving Thorsteinsson
Bis-reglur veita
Islandsbanka
nægilegt adhald
Orri Vigfússon vill breyta stjórnskipun
STAÐA íslandsbanka kallar á aðhald og festu í útlánastýringu
og hörkuátak í innheimtum, að mati Bents Schevings Thorsteins-
sonar, hluthafa í íslandsbanka. „Hvort tveggja er óvinsælt, en
afar nauðsynlegt eins og nú er ljóst. Hinar svonefndu Bis-regl-
ur, er tóku gildi um síðustu áramót, herða mjög áhættumat
útlána og munu trúlega veita nægilegt aðhald í þeim efnum,“
sagði Bent í ræðu sinni á aðalfundi bankans á mánudag.
Bent sagði að Bis-reglurnar gerðu
jafnframt strangar kröfur um eig-
infjárstöðu banka. „Hins vegar er
vandi íslandsbanka fyrst og fremst
uppsöfnuð vanskil og lánatöp, því
eiginfjárstaða bankans er sterk og
langt umfram þær kröfur sem Bis-
reglurnar krefjast. Þótt afskrift-
arreikningur útlána hafi allt frá
stofnun Islandsbanka verið hlutfalls-
lega miklu hærri en hjá öllum öðrum
bönkum landsins telur stjórn bank-
ans, sennilega að kröfum endurskoð-
enda, nú nauðsyn á gífurlegri aukn-
ingu til þess að allra hugsanlegra
varúðarsjónarmiða í afskriftum lána
sé gætt, vísast er ætlunin að vera
einnig í þessu efni langt ofan við
ströngustu kröfur Bis-reglna. En í
þessu efni sem öðrum er meðalhófið
■best,“ sagði Bent.
Hann vék einnig að arðgreiðslum
og sagði: „í ljósi þess sem hér hefur
verið sagt er að sjálfsögðu tilhlýði-
legt, að bankaráðið endurskoði og
breyti arðstillögu sinni með einu
pennastriki í 7%, til þessa hefur
bankinn fulla burði, jafnvel fremur
en Flugleiðir, og það er ekki vansa-
laust til þess að vita að bankinn sé
lakari kostur en Flugleiðir."
2,5% vart viðunandi
í ræðu sinni á fundinum vék Orri
Vigfússon, forstjóri Sprota, einnig
að arðgreiðslum og sagði að 2,5%
arðgreiðsla væri vart viðunandi fyrir
hluthafana, þar sem hún nægði tæp-
ast til að standa undir eignarskatti
af hlutabréfunum. „Ég hefði talið
að 5-7% arðgreiðslur hefðu verið
nauðsynlegar, þ.e. að hluthafarnir
fengju greiddan arð sem væri svipað-
ur og almennir innlánsvextir á spari-
fé og tel að fyrir þvi séu margvísleg
rök, m.a. sterk eiginfjárstaða bank-
ans.“ Orri ræddi um nauðsyn á
breytingum í stjómskipun bankans
og sagði að hann teldi heppilegra
að hafa aðeins einn aðalbankastjóra,
sem þá beri jafnframt mestu
ábyrgðina. „Slíkt stjórnskipulag
hefur reynst hvað best hjá öðrum
fyrirtækjum sem eru með
sambærilega veltu og Islandsbanki
og nefni ég_ þar sem dæmi
Eimskipafélag íslands hf., Flugleiðir
hf. og Olíufélagið hf. en fleiri dæmi
mætti vitanlega nefna,“ sagði hann.
Launagreiðslur til ríkisstarfsmanna
744 með 3 millj. og yfír
ALLS fengu 744 ríkisstarfsmenn þrjár milljónir eða meira í
laun á síðasta ári. Þar af voru 685 karlar eða 92,1% og 59
konur eða 7,9%. Þessir einstaklingar eru allir í fullu starfi
hjá ríkinu en um er að ræða samanlögð grunnlaun, yfir-
vinnu, þóknanir, bílastyrki, nefndarlaun og aðrar launatengd-
ar greiðslur. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við
fyrirspurn Kristínar Astgeirsdóttur á Alþingi.
Alls var um að ræða 2.679 þúsund
kr. laun til þessara 744 starfsmanna.
Þar af námu grunnlaun 1.430 þúsund
kr. Meðalárslaun karlanna voru
3.617.978 krónur og þar af voru
grunnlaun 1.928.319 kr. Meðallaun
kvennanna voru 3.402.115 kr. og þar
af voru grunnlaun 1.849.213 kr.
Flestir starfsmannanna störfuðu
hjá stofnunum sem heyra undir heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytið, eða
157, samgönguráðuneytið 146, og
menntamálaráðuneytið, 116.
NISSAIM
DDIMCD /v
HHImtKA
HEFUR VIIMIMINGININI
Verö á bílunum komnir á götuna:
Nissan Primera SLX 2000 Sedan 1.457.000.- kr.
Toyota Carina E Sedan GLI 1.630.000.- kr.
Mitsubishi Galant 4 d. GLSI 1.848.000.- kr.
PRIMERA -BETRI BÍLL Á BETRA VERÐI
■ Nissan Primera er stórglæsilegur
og þægilegur lúxusbíll sem unnið
hefur til fjölda verðlauna.
■ Primera er hlaðinn aukabúnaði.
■ Eigum einnig Primera skutbíla
með bensín eða díselvél.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfði 2,112 Reykjavík
P.O. Box 12260, Sími674000
MÁ _BJ ÓLÐA TÉIÍ AiÐ PM DTA
þennan ódýra, góða og heimilislega mat?
Lifur er ódýrt hráefni sem fæst allt árið um kring. Það er tilvalið að lækka matarreikninginn með því að hafa rétti úr lifur á borðum minnst einu
sinni í viku. Hér eru tvær góðar og einfaldar uppskriftir að ljúffengum og fljótlegum réttum úr lifur. Gerið svo vel og verði ykkur að góðu.
1 lifur, um 450 g
2 msk hveiíi eda heilhveiti
salt ogpipar
1-11/2 dl mjólk
2 laukar, í sneiðum
smjörliki éða olía
Hreinsið lifrina og hakkið.
Blandið saman við hana
hveiti, kryddi og mjólk.
Athugið að deigið er mjög
þunnt. I það er líka ágætt
að bæta 1/2-1 dl af
haframjöli.
Brúnið laukinn létt í
smjörlíki eða olíu og
geymið hann. Bætið við
feiti og setjið lifrardeigið á
pönnuna með skeið. Steikið
buffin fallega brún í 2-3
mín. hvorum megin.
Leggið laukinn ofan á
buffin og berið þau fram
heit með kartöflum og
soðnu grænmeti, og ef til
vill með bræddu smjöri.
Lifrarbuff er þægilegt að
eiga í frysti og fljótlegt að
hita það upp á pönnu eða í
ofni.
1 lambalifur, um 450 g
2 tsk hveiti
2 tsk sítrónusafi
2 msk sojasósa
1 eggjahvíta
1- 2 laukar, í sneiðum
2- 3 msk olía
salt ogpipar
2 dl kjötsoð (af teningi)
3 hvítlauksrif söxuð smátt
fint maísmjöl (maisena)
Blandið saman í skál hveiti,
sítrónusafa, sojasósu og
eggjahvítu. Hreinsið lifrina
og skerið hana í þunnar
sneiðar. Veltið þeim upp úr
blöndunni og látið þær
liggja í henni í 20 mínútur.
Brúnið laukinn og hvít-
laukinn létt á pönnu og
geymið síðan.
Steikið lifrina í 2-3 mín.
hvorum megin, kryddið
hana með salti og pipar og
takið hana af pönnunni.
Hellið soðinu á pönnuna,
bætið lauknum við og
sjóðið í 3 mín. Þykkið soðið
hæfilega með fínu
maísmjöli hrærðu saman
við kalt vatn og látið sjóða í
1-2 mín. Setjið lifrina út í
sósuna og látið hana sjóða
með, en alls ekki lengur en
nauðsynlegt er því að lifrin
á að vera mjúk og safarík.
Berið réttinn fram með
hrísgijónum og grænu
salati.
SAMSTARFSHÓPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS