Morgunblaðið - 01.04.1993, Page 38

Morgunblaðið - 01.04.1993, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ PAGLEGT LIF . FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993 Lítið mál að fela rispur ÞÓ heimiliskötturinn hafi rispað viðarhúsgögnin, þarf tjónið ekki að vera óbætanlegt. Hægt er að fylla upp í rispur með innsiglingarlakki, en það er víða fáanlegt og í nokkrum litum. Éinnig má nota vaxlit í sama lit og húsgagnið. Athugið að nudda alltaf í sömu átt og æðar viðarins. Hlynur:B\and\ð til helminga joði og spritti. Berið á með eymapinna, þurrkið og bónið á eftir. Tekk: Nuddið varlega með fínni stálull. Nuddið með blöndu af linolíu og terpentínu, blandað til helminga. Hnota: Takið kjarna úr ferskri ósaltaöri valhnetu og brjótið í tvennt. Nuddið rispuna með sári hnetunnar. íbeinholt: Notið svart- an skóáburð, augnabrúnalit eða vaxlit til að nudda rispur. ■ 'Edik gott til margra nota Edik er nytsamlegt til margra hluta og gömul ráð segja að fiskur haldist lengur ferskur ef hann er vafinn í klút sem hefur verið und- inn upp úr borðediki. Þá mun edik duga vel til að eyða fisklykt af höndum. Gott að nota edik í suðuvatn fyrir egg, þá sýgur hvítan síður úr egginu ef þ'að spring- ur í suðunni. Einnig glansa kristalsglös fagur- lega ef þau eru skoluð úr heitu vatni sem borðediki hefur verið bætt f. VIKUNNAR Hvað kosta veigar J veitingahúsanna? Santa Cristina, ein flaska rauðvín, Riesling Hugel, ein flaska hvítvín, Eigils silfur, ein flaska bjór, ákr. 130ÍÁTVR Gos, Kaffi Remy Martin V.S.O.P. koníak einfaldur (3cl.) Verð á kr. 920 í ÁTVR Umfram Verð ÁTVR ákr. 1.300 ÍÁTVR Umfram Verð ÁTVR {' Lövenbrau, kr. 147) Umfram Verð ÁTVR eitt glas (* ein flaska) Verð (■ konfekt fylgir) Verð Argentína, Barónsstíg 11a, R. - - - - 470 261% 170 170 440 Asía, Laugarvegi 10, R. 1.990 116% 2.560 97% 450 246% 130 130 470 Skólabrú, Skólabrú 1, R. 2.340 154% 2.960 127% 500 284% 150 150* 500 Óðinsvé við Óðinstorg, R. 2.420 163% 3.390 160% 450 246% 160 140 485 Hornið, Hafnarstræti 15, R. 1.800 95% 2.340 80% 420 220% 140 140 390 Taj Mahal, Hverfisgötu 56, R. 2.100 128% 2.450 88% 470 261% 160 150 500 Ítalía, Laugarvegi 11, R. 2.080 126% - - 500* 241% 160 160 470 Jónatan Livingston mávur, Tryggvagötu 4-6, R. - - - - 500 284% 165* 160* 470 Lauga-ás, Hótel Esja, Suðurlandsbraut 2, R. - - 2.460 89% 380 192% 140* 120 480 Lækjarbrekka, Bankastræti 2, R. - - 2.995 130% 500 284% 155 155 460 Perlan, Öskljuhlíð, R. - - 3.420 163% 450 246% 170 160 510 Þrfr frakkar hjá Úlfari, Baldursgötu 14, R. - - 2.800 115% 450 246% 150 160* 450 Grill, Hótel Saga við Hagatorg, R. 2.340 154% 3.260 150% 480 269% 150 160* 500 Skrúður, Hótel Saga við Hagatorg, R. - - 3.260 150% 390 200% 150 140 500 Listasafnið, Hótel Holti, Bergstaðastræti 37, R. 2.458 167% - - 430 230% 170 170* 495 Smiðjan, Hafnarstræti 92, Akureyri - - 2.230 71% 390 200% 150 150* 410 Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum - - 2.980 129% 450 246% 150 150* 490 Dropinn dýr á veitingahúsum ÞEIR sem hafa gaman af að smakka áfengi eru væntanlega sammála um að veigarnar séu í dýrari kantinum hér á landi. Er þá miðað við útsöluverð úr einkaverslun ÁTVR. Þegar álagning veitingahúsa bætist ofan á álögur ríkisins, verður illmögulegt fyrir sauð- svartan almúgann að drekka vín með matnum, nema endrum og eins. Daglegt líf gerði skyndikönnun á verðlagi hjá nokkrum veitingahúsum í vikunni. Meðal annars var spurt um verð á íslenskúm bjór í flösku en engin tegund .tilgreind. Verð í töfl- unni er það sem starfsfólk gaf upp en í út- reikningum á álagningu er miðað við Egils silfur-bjór sem kostar 130 kr. flaskan úr ÁTVR-verslunum, nema annað sé tilgreint í töflunni. Ákveðið var að reikna ekki út álagningu á koníak, þar sem um er að ræða lítið magn úr flösku, en til gamans má geta þess að koníaksstaup kostar um 190 kr. sé það drukk- ið annars staðar en á veitingahúsi. Það er því um 150% dýrara að fá sér koníak á veitinga- stað en í heimahúsi. Gosdrykkir eru ýmist úr flöskum eða þar til gerðum vélum og var ekki gerður greinarmunur þar á í könnuninni. Al- gengt er að innihald úr gosflösku kosti um 65 kr. og því er álagning á gos oft um 150% á veitingahúsum. Af gefnu tilefni skal tekið fram að veitinga- staðir voru valdir af handahófi og ekki er tek- ið tillit til þjónustu sem staðimir bjóða, heldur einblínt á verð og álagningu. ■ BT Því ekki að borða reykta folaldatungu eða humarsúpu með laxagellum? MEÐAL rétta á matseðlinum í Perlunni í gærkvöldi voru laxa- og steinbítskinnar, folaldatunga, ungnautalifur og grafin grásleppa. Tilefnið var að kynna ráðamönnum þjóðarinnar góðan mat úr hráefnum sem við yfirleitt hendum. ^ Frumkvæðið eiga forsvars- menn Perlunnar og Meistar- * ans sem segjast ekki hafa 55 efnt til veislunnar til að slá OC um sig eða auglýsa heldur til !■■ að vekja athygli á því að búa má til herramannsmat úr því “ sem við hendum og borgum fé fyrir að láta urða eða losna við á annan hátt. Þeir varpa fram þeirri spumingu til ráðamanna og lands- irianna hvort ekki sé hægt að nýta betur það hráefni'sem við höfum úr að spila og þannig skapað ný störf. „Við getum líka lagt okkar af mörkum til hjálpar við sveltandi þjóðir með því að henda ekki mat og þannig komast nær því að standa við skuldbindingar okkar í hjálparstarfi." Gísli Thoroddsen matreiðslu- meistari hjá Perlunni og Þórarinn Guðlaugsson matreiðslumeistari hjá Meistaranum segja að eflaust mætti mikið spara ef hætt væri að henda mat með öllum þeim kostnaði sem það felur í sér. „Síð- ustu fimm ár fluttum við inn tæp- lega 179 tonn af kjöt-, grænmet- is- og fiskikrafti fyrir alls 58,7 milljónir króna. Á sama tíma hend- um við beinum sláturdýra og fiski- beinum með talsverðum tilkostn- aði.“ Þeir segja að margir kaupi t.d. dýrum dómum humarkraft en benda á að stórum hluta humars- ins sé hent áður en hann kemst til neytenda. Þann hluta gætu ein- hverjir nýtt í kraft. Gísli og Þórarinn telja að við eigum að stefna á sælkeramarkaði og gera hráefnið eftirsótt og sér- stakt. Þessu til stuðnings benda þeir á að þegar þeir fari utan sækist þeir eftir að kaupa sér kálfalifur. Það sé mesta lostæti. Hér heima hendum við í stórum stíl ungnautalifur. Sama er uppi á teningnum með físk eins og lax. Það er tilvalið að nýta gellurnar og bjóða þær góð- um veitingahúsum hér og erlendis. „Möguleikarnir eru óteljandi og óhugsandi annað en borgi sig að nýta þessi hráefni betur en við gerum. Þetta er herramannsmat- ur.“ Við báðum Gísla og Þórarinn um uppskrift en eftir að hafa far- ið í gegnum hráefnalistann kom í ljós að það er afskaplega erfitt fyrir neytendur að nálgast það sem þarf í flesta réttina í Perlunni í gær. Hér kemur samt uppskrift að reyktum og söltuðum lamba- nýrum. Það mun vera hægt að láta reykja og salta nýru fyrir sig hjá sumum kjötkaupmönnum. Viö getum líka lagtokkar af mörkum til hjólpar við sveltandi þjóöir með því aö henda ekki mat og þannig komast nær því aö standa við skuldbind- ingarokkar í hjólparstarfi. Reykt lambanýru með karamellu og ananas Lambanýru sykur _____________rjómi___________ gnanasbitar Nýrun eru skorin í tvennt og hreinsuð vel. Soðin í tíu mínútur og síðan sett í eldfast mót. Sykur er settur í pott og hann brúnaður, ijómi settur út í og þetta soðið saman í karamellu. Ananasbitar eru settir út í kara- melluna og síðan er öllu hellt yfír nýrun og þau bökuð í ofni í tíu mínútur. Rétturinn er borinn fram með eplasalati, rauðkáli og ijóma- sveppasósu ■ Ýmislegt um avokado Avokado þroskast fyrr ef það er geymt í pappírspoka ásamt eplum. Kanna má hvort ávöxtur er þrosk- aður með því að taka hann í lófann og þrýsta létt. Ekki borgar sig að þrýsta aðeins á einn stað á ávextin- um. Avokado ætti að ekki að geyma við minna en 5°C. Sé hann ekki al- veg þroskaður geymist hann a.m.k. í viku í ískáp. Þegar ávöxturinn hef- ur verið skorinn er gott að setja sítr- ónudropa yfir aldinkjötið til að koma í veg fyrir að það dökkni. Ekki skal mauka avokado í rafmagnsblandara, því þá myndast loftbólur í maukinu. Bónus- ís í Bónus Bónus-verslanirnar eru nú að hefja sölu á sérstökum Bónus-ís, sem framleiddur er af Kjörís, en undir Bónus-merkinu. Tvær ístegundir verða fáanlegar, með vanillu- og súkkulaðibragði, og aðeins í 1,1 lítra pakkningum. Pakk- inn kostar 159 krónur sem er sér- stakt kynningarverð fyrstu vikumar að minnsta kosti. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.