Morgunblaðið - 01.04.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR l’- APRÍL 1993
43
Fyrsta starfsár Mið-
skólans senn á enda
eftir Braga
Jósepsson
Síðastliðið haust tók til starfa
nýr einkaskóli á grunnskólastigi,
Miðskólinn í Reykjavík. Skólinn,
sem er fyrir 4. til 7. bekk, er til
húsa í hinum gamla og virðulega
Miðbæjarskóla, sem var reistur fyr-
ir rúmri öld til afnota fyrir fyrsta
barnaskóla borgarinnar, sem þá
nefndist Barnaskóli Reykjavíkur.
Miðskólinn var settur við hátíð-
lega athöfn 1. september í fyrra
og hófst kennsla daginn eftir sam-
kvæmt stundaskrá. Nú eru því liðn-
ir réttir sjö mánuðir skólaársins og
aðeins tveir mánuðir eftir þar til
sumarfrí taka við. Af þessu tilefni
er viðeigandi að skoða hvernig til
hefur tekist þetta íyrsta starfsár
Miðskólans.
Heilsdagsskóli
Miðskólinn er heilsdagsskóli, þar
sem daglegur starfstími er 7-8
klukkustundir. Tekið er á móti
börnunum kl. 8 að morgni en
kennsla hefst kl. 8.30 og lýkur kl.
15.30. Umsjón er með börnunum
til kl. 16. í stórum dráttum er skóla-
dagurinn skipulagður þannig, að
tvær kennslustundir, 40 + 40 mín-
útur, eru teknar í einni lotu. Fyrir
hádegi eru því fjórar kennslustund-
ir, einnig í tveim lotum og eftir
hádegi jafn margar kennslustundir,
einnig í tveim lotum. Kennslustund-
ir eru því alls átta á dag í fjórum
lotum.
Eftir fyrstu tvær kennslustund-
irnar taka við úti-íþróttir, fríminút-
ur, nestistími og morgunsöngur,
alls 45 mínútur. Þá tekur við önnur
kennslulota, 40 + 40 mínútur, fram
að hádegi, en matarhlé er 35 mínút-
ur. Eftir mat eru svo frímínútur úti
á leikvelli eða hvíldartími innan-
húss.
Eftir hádegi taka svo við tvær
kennslulotur, á sama hátt og fyrir
hádegi. Eftir fyrri lotuna koma úti-
íþróttir aftur og frímínútur. í lok
síðasta tíma taka börnin svo upp
nesti, sem þau koma með að heim-
an. Oft geyma þau ávexti eða jóg-
úrt frá hádeginu og borða í seinni
nestistímanum.
Heitur matur í hádeginu
Matmálstími í heilsdagsskóla
gegnir mikilvægu hlutverki í skóla-
starfinu. í hádeginu fá börnin heit-
an mat, sem tilreiddur er á mat-
bökkum og sendir eru í skólann
fétt fyrir hádegi frá Matstofu Mið-
fells. Börnin borða saman, hver
bekkur í sinni stofu, ásamt umsjón-
arkennara sínum. Börnin skiptast á
um að setja bakkana á borðin,
dreifa hnífapörum, vatnsglösum og
handþurrkum.
Matmálstíminn er þýðingarmikill
og eykur á vellíðan barnanna. Þá
eru börnin búin að vera að störfum
í 31/2 til 4 klukkutíma og eiga álíka
langan vinnutíma framundan.
Að því er hádegismatinn varðar
hefur verið lögð mikil áhersla á fjöl-
breyttan, næringarríkan og lystug-
an mat. í könnun sem nýlega var
gerð meðal foreldra barnanna kom
fram almenn ánægja með matinn.
Verð á hádegismatnum í vetur hef-
ur verið 350 krónur á dag, en stærð
matarskammta hefur verið sniðin
eftir þörfum bamanna. Samkvæmt
því var t.d. ákveðið að stækka
matarskammtinn fyrir börnin í 7.
bekk.
Þótt börnin fái þannig heitan
mat í hádeginu koma þau einnig
með nesti að heiman, ávexti, sam-
lokur og drykk, sem þau neyta í
tveim nestistímum.
Morgunsöngur og tónmennt
A hveijum morgni kl. 10 koma
allir nemendur skólans saman á
efri gangi og syngja undir stjórn
Bragi Jósepsson
„Matmálstími í heils-
dagsskóla gegnir mikil-
vægu hlutverki í skóla-
starfinu. í hádeginu fá
börnin heitan mat, sem
tilreiddur er á mat-
bökkum og sendir eru
í skólann rétt fyrir há-
degi frá Matstofu Mið-
fells.“
og undirleik Jónasar Þóris, tón-
menntakennara. Af og til fá ein-
stakir nemendur tækifæri til að
koma fram í þessum morguntímum
og spila eitt eða fleiri lög á hljóð-
færi, sem þeir eru að æfa á. í skól-
anum fá þessi börn, sem venjulega
eru í tónlistarskóla að auki, sér-
staka æfingatíma fyrir hljóðfæra-
leik. Flest læra á píanó, en í skólan-
um eru nú þijú hljóðfæri til afnota
fyrir nemendur. Nokkrir nemendur
æfa á önnur hljóðfæri, og má þar
nefna, þverflautu, saxófón, básúnu,
fiðlu og selló. Auk þess sem hér
hefur verið nefnt fá nemendur fasta
tónmenntatíma, tvær kennslu-
stundir á viku.
Úti-íþróttir og íþróttatímar
Tvisvar á dag fara allir nemend-
ur út í skólaport og taka þátt í
úti-íþróttum. Þessar úti-íþróttir eru
fastur liður í skólastarfinu og eitt
af sérkennum Miðskólans. Þær
standa yfir í u.þ.b. 10 mínútur. Að
þeim loknum taka við frímínútur
og fijáls leikur. Auk úti-íþróttanna
eru tveir fastir íþróttatímar á viku
í íþróttahúsi skólans. Sundkennsla
fer fram í Vesturbæjarlaug.
L-tímar (leiðsögn og
heimanám á skólatima)
L-tímar nefnast sérstakir vinnu-
tímar á stundatöflu. í L-tímunum
geta nemendur undirbúið sig fýrir
næsta dag með aðstoð kennara. í
þessum tímum ljúka flestir nemend-
ur við allt sitt heimanám. Skólinn
hvetur nemendur við allt sitt heim-
■ Á TVEIMUR VINUM verður
Fimmtudagskvöldið 1. apríl svo-
kallað Radíuskvöld. Þeir Steinn
Ármann Magnússon og Davíð
Þór Jónsson láta gamminn geysa
fyrir gesti og gangandi. Þetta er
fjórða Radíuskvöldið sem haldið
er. Föstudagskvöldið 2. apríl halda
nemendur Verslunarskóla ís-
lands skemmtikvöld og verður
opnað fyrir almenning á miðnætti.
Hljómsveitin Undir tunglinu
skemmtir. Laugardagskvöldið 3.
apríl leikur svo hljómsveitin Júpít-
ers. I samvinnu við Regnbogann,
Rás 2 og fleiri aðila ætla Tveir
anám. Skólinn hvetur nemendur
jafnframt til að lesa heima, bækur
eftir eigin vali, til afþreyingar, fróð-
leiks og skemmtunar.
Þótt L-tímarnir séu að formi til
eins og hveijar aðrar kennslustund-
ir eru þeir í eðli sínu mjög frá-
brugðnir; í L-tímum vinnur hver
nemandi út af fýrir sig. Þá eru
L-tímar ei'nnig notaðir fyrir ýmis-
konar hópvinnu og æfíngar.
Kennslugreinar
Vikulegur fjöldi kennslustunda
og skipting þeirra eftir námsgrein-
um er í meginatriðum í samræmi
við ákvæði laga og reglugerða. En
vegna þess að hér er um rýmri
kennsludag að ræða en almennt
gerist í grunnskólum gefst kostur
á viðbótartíma, sem nýttur er í
skólastarfinu. Mest af þessum við-
bótartíma hefur farið í móðurmál
og stærðfræði. Þá hefur einnig ver-
ið lögð sérstök áhersla á listgrein-
ar, svo sem leiklist, listdans og
myndlist, auk tónlistar sem áður
er getið.
Greining, próf og ráðgjöf
Skólinn leggur mikla áherslu á
greiningu á námshæfileikum og
námsstöðu hvers og eins nemanda.
Einnig er fylgst reglubundið með
heilsufari þeirra. Nemendur sem
eiga í námserfiðleikum, t.d. í lestri
eða reikningi, fá sérkennslu og leið-
sögn eftir föngum.
Nemendur, sem hafa búið erlend-
is um lengri eða skemmri tíma eða
eru af erlendu þjóðerni fá sér-
kennslu í íslensku, þar sem áhersla
er lögð á aukinn orðaforða, myndun
setninga, beygingu fallorða og
sagnorða, undirstöðuatriði íslenskr-
ar hljóðfræði og raddbeitingu.
Nemendur taka próf í undir-
stöðugreinum þrisvar á skólaárinu,
fyrst í lok september, síðan um
miðjan janúar og loks í byijun
maímánaðar. Þá eru einnig fram-
kvæmd svonefnd þrekpróf og al-
menn heilsufarspróf, einnig þrisvar
á skólaárinu.
Óhætt er að fullyrða að náms-
árangur barnanna þetta fyrsta
skólaár hefur verið mjög góður.
Þetta er almennt skoðun þeirra for-
eldra sem eiga börn í skólanum og
þetta er einnig mat kennaranna,
sem hafa fylgst með þroska og
framförum barnanna frá því í haust.
Starfslið skólans
Við skólann starfa í vetur 5 fast-
ráðnir kennarar, tveir stundakenn-
arar, skólaráðgjafí og ritari auk
skólastjóra. Auk þessa starfsfólks
nýtur skólinn reglubundinnar þjón-
ustu skólalæknis, hjúkrunarfræð-
ings, sálfræðings og sérkennara.
Skólastjóri Miðskólans er Greta
Kaldalóns.
Opinber framlög, skólagjöld
og matarkostnaður
Eins og bent var á í upphafi er
Miðskólinn til húsa í gamla Miðbæj-
arskólanum, sem er í eigu borgar-
innar. Samkvæmt samningi við
Reykjavíkurborg hefur skólinn
fengið til afnota umrætt húsnæði,
vinir að halda allsheijar Elvi-
skeppni fimmtudaginn 15. apríl.
Þetta er haldið í beinu framhaldi
af páskamynd Regnbogans „Ho-
neymoon in Vegas“. Þar birtist
margur Elvisinn en enginn þeirra
íslenskur. Því skal keppt í Karaoke
um besta Elvis-sönginn og einnig
hver verður talinn líkastur konung-
inum. Eftir páska er von á Snigla-
bandinu annan í páskum. Todmo-
bile ætlar ekki að láta sitt eftir
liggja og ekki heldur SSSól. Von
er á Jet Black Joe og hinum
ýmsu uppákomum.
(FréUatilkynning)
fullbúið til skólahalds og er raf-
magns- og hitakostnaður innifalinn.
Á fjárlögum þessa árs fékk skólinn
framlag úr ríkissjóði að upphæð
krónur þijár milljónir.
Skólagjöld á yfirstandandi skóla-
ári eru kr. 15.000 á mánuði. For-
eldrar sem innrita böm sín fyrir
næsta skólaár, 1993-94, greiða kr.
10.000 í skráningargjald og síðan
fast mánaðargjald fyrir 10. hvers
mánaðar. Greiðsla fýrir hádegismat
er innt af hendi mánaðarlega, eftir
á.
Miðskólinn er sjálfs-
eignarstofnun
Miðskólinn er sjálfseignarstofn-
un. Skipulagsskrá skólans var stað-
fest af menntamálaráðherra, Ólafi
G. Einarssyni, hinn 4. júní 1992. í
skólanefnd eiga sæti 7 fastafulltrú-
ar, sem upphaflega voru stofnendur
skólans og tveir fulltrúar foreldra,
sem kjörnir em til eins árs í senn.
Þegar fastafulltrúi hverfur úr skóla-
nefndinni velja þeir, sem fyrir eru,
nýjan fastafulltrúa.
Næsta skólaár, 1993-94
Innritun nemenda fýrir næsta
haust er nú hafin og má gera ráð
fýrir að nemendur verði á bijinu 100
til 120 skólaárið 1993-94. í megin-
atriðum er gert ráð fyrir óbreyttri
kennsluskipan. Þó má geta þess,
að í athugun er, að hefja kennslu
í ensku strax í 5. bekk, tvo tíma í
viku og svo áfram í 6. og 7. bekk.
Þá verða gerðar nokkrar lagfæring-
ar í ljósi þeirrar reynslu, sem þetta
fyrsta skólaár hefur gefið okkur.
Hötundur er prófessor í
uppeldisfræði við Kennaraháskóla
Islands og skólaráðgjafí við
Miðskólann.
YDDA F57.2/SlA|