Morgunblaðið - 01.04.1993, Side 44

Morgunblaðið - 01.04.1993, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRIL 1993 RISALILJA Cardiocrinum giganteum Blóm vikunnar Umsjón Ágústa Björnsdóttir Þáttur nr. 263 Risalilja sem nú verður lítið eitt sagt frá er heldur ólíkleg til þess að geta þrifist að nokkru ráði hér á landi, enda komin langt að, þ.e. úr skuggsælum skógum í sunnan- verðum Himalayafjöllum, en þar vex hún villt. Þaðan hefur svo þessi stórvaxn- asta af öllum liljum borist norður á bóginn og er nú ræktuð í görð- um í nágrannalöndunum með góð- um árangri, t.d. í Danmörku, en þar þykir hún spjara sig vel ef réttilega er að henni búið. Allt til síðustu áratuga var risa- liljan (Cardiorcrinum giganteum) talin til liljuættar (Liliaceae) en vísindalega séð þótti hún ekki bera nógu sterk einkenni ættar- innar og var því skipað í sjálfstæð- an ættflokk með örfáum meðlim- um. Það voru blöð jurtarinnar sem þar skiptu sköpum, en þau eru hjartalaga og því frábrugðin blöð- um annarra liljutegunda. Blöðin eru stór og gljáandi og þéttust neðst á stönglinum en stijálli þeg- ar ofar dregur. Stöngullinn er gildur og kröftugur og getur orð- ið á 4. metra á hæð og efsta á honum eru blómin í klasa, 10-20 að tölu, stór og glæsileg, trekt- laga, hvít á lit með gulan botn, lítið eitt drúpandi. Risaliljan vex upp af lauk sem deyr að blómgun lokinni, en á honum myndast hliðarlaukar sem taka við þannig að blómgun getur haldið áfram. Jurtin myndar auð- veldlega og þroskar fræ sem sá þarf svo fljótt sem auðið er, en betra er að ögn af þolinmæði sé til staðar þvi sagt er að það geti tekið 5-7 ár að rækta blómbærar plöntur, en heldur skemmri tíma þó ef hliðarlaukamir eru settir niður. Laukar risaliljunnar eru lagðir í mold á haustin með öðram blóm- laukum. Hún gerir ekki miklar kröfur til birtu, en jarðvegur þarf Risalilja. að vera laus og léttur, kalksnauð- ur, lítið eitt blandaður áburði og laufmold og umfram allt þarf að velja henni skjólgóðan stað sem er þurr og ekki hætta á að vatn setjist að á vetram. Blómgunartími risaliljunnar er um mitt sumar og fyrir nokkrum áram þegar hópur félaga í Garð- yrkjufélagi íslands var í garða- skoðunarferð í Skotlandi nokkru eftir miðjan júnímánuð var hún í fullu skrúði. Sennilega er hún mörgum okkar með minnisstæð- ari skrautjurtum sem við sáum í þeirri ferð og nú í útmánaðanepj- unni þegar beðið er með óþreyju teikna um komandi vor, sem enn virðist langt undan, er gott að geta séð fyrir sér í huganum þessa stórglæsilegu jurt „sólvermda í hlýjum garði“. Ekki er mér kunnugt um að risaliljan hafi verið ræktuð hér á landi en ef svo kynni að vera væri fróðlegt að hafa af því spurn- ir. Á dögunum frétti ég af því að einn af okkar ágætustu garð- yrkjumönnum er að rækta risalilju upp af fræi sem hann fékk frá erlendum grasagarði. Pöntumar hafa þegar lifað af tvo vetur í köldu gróðurhúsi — og nú væntum við þess að þeim verði áframhald- andi lífs auðið og muni færa rækt- andanum gnægð blóma þegar þar að kemur. Ums Ljósmynd/Ljósmyndastofan Mynd HJÓNABAND. Þann 13. mars sl. voru gefm saman í hjónaband í Bústaðakirkju af sr. Pálma Matt- híassyni þau Fanney Ingólfsdóttir og Birgir Vignisson. Heimili þeirra er á Kársnesbraut 51a. SJÁLFVIRKI OFNHITASTILLIRINN Kjörhiti í hverju herbergi. = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 Ljósmynd/Ljósmyndastofan Mynd HJÓNABAND. Þann 13. mars sl. vora gefin saman í hjónaband í Veginum af Birni Inga Stefánssyni þau Sigrún Ögmundsdóttir og As- geir Sigurðsson. Heimili þeirra er að Bústaðavegi 83. HÉR OG NÚ -------- <L \ o o o o ! i Baðinnrctt Á «3.343 ing með hvítum, sprautuðumT'~~~~^-. hurðum, spegli og ljósakappa... Gásar Borgartúni 29, Reykjavfk S: 627666 og 627667 • Fax: 627668 V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Þrj’ótur og þingmaður Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóborgin • Sagabíó Háttvirtur þingmaður - Dist- inguished Gentleman Leikstjóri Jonathan Lynne. Að- alleikendur Eddie Murphy, Cheryl Lee Ralf, Victoria Row- ell, Joe Don Baker, Charles G. Dutton, James Garner. Banda- rísk. Hollywood Pictures 1992. Murphy reynir hvað hann getur til að komast útúr þeirri tilvistar kreppu sem þessi bráðflinki gam- anleikari kom sér í með hroðvirkn- islegu hlutverkavali um árabil. Eftir að hafa sigrað heiminn með stórleik í myndunum Vistaskipti, 48 stundir og Beverly Hills Cop. En það er auðveldara að hlunkast niður en að ná toppnum því Murp- hy kemur sér ekki í umtalsverðar hæðir hér. Fær þó til liðs við sig Lynne, prýðisgóðan, breskan gam- anmyndaleikstjóra (Nunnur á flótta, Vinny frændi) og er sam- starf þeirra sæmilega lukkað. Hér reynir talsvert á gamanleikarann Murphy, hann breytir um persónur og raddir einsog að drekka vatn. En meinið er að handritið hefði Stykkishólmur 35 manns at- atvinnulausir Stykkishólmi. ÞAÐ MUNU nú vera 35 manns á atvinnuleysisskrá í Stykkishólmi, eftir því sem formaður Verkalýðs- félagsins, Einar Karlsson, segir. Hann segir þetta aðallega stafa af því að fiskur hefði verið seldur beint úr sjónum í stað þess að verka hann í Stykkishólmi. Hann kveðst hafa miklar áhyggjur af þessu og þyrfti að sínu mati að gera allt sem hugsast gæti til að fiskurinn yrði ekki seldur beint úr sjónum, en fólk sem áður hefur haft atvinnu af verk- un hans væri nú með héndur í skauti. - Ámi. 7/utancv Heílsuvörur nútímafólks gjarnan mátt vera fyndnara, þetta er enn ein sagan af skálkinum sem gerist Hrói höttur. Það virðist vera ótrúlega löður- mannlegt verk að komast inná þing í Bandaríkjunum, ef dæma má af Háttvirtum þingmanni. Murphy leikur strætisskelmi sem hefur lifi- brauð sitt af smáglæpum, einkum hverskyns svindli og svikabrögðum Bíóborgin, Saga bíó: Elskan, ég stækkaði barnið („Honey, I Blew Up the Kid“). Leikstjóri Randall Kleiser. Aðalleikendur Rick Moranis, Marcia Strassman, Llo- yd Bridges, Robert Oliveri, John Shea. Bandarísk. Walt Disney 1992. Fyrir nokkram áram skemmtu bíógestir sér dátt yfir óföram vís- indamannsins Moranis sem varð fyrir því óhappi að minnka krakka- hópinn sinn niður í örverar er hann var að gera tilraunir með nýjustu uppfmninguna, e.k. geislasmækk- ara. Þetta var bráðfyndin og frum- leg mynd af lífsbaráttunni úti á lóðinni þar sem hversdagsleg og meinlaus dýr og pöddur fengu heldur betur nýjan og hrollvekjandi svip. Að maður tali nú ekki um þarfaþing einsog ryksugur og garðsláttuvélar. Þetta var einum of góð hugmynd fyrir andlitla kvikmyndaframleið- endur til að láta hana falla í gleymsku svo hugvitsmaðurinn Moranis er aftur kominn á stjá og andagiftin lætur ekki að sér hæða því nú hefur honum tekist að klambra saman stækkunarvél og vitaskuld lendir yngsta barnið á en hefur símaklám að aukastarfi,- Kemst að því að þingmennskan gefi mun betur af sér. og henti honum betur en smáglæpirnir. Síð- an kemst pörapilturinn náttúrlega á þing og breytist í þjóðhetju. Hvort myndin dugar til að rétta ímynd Murphys af í augum bíó- gesta er sjálfsagt á nippinu en það er ekki við Murphy að sakast, hann stendur sig vel og reynir að gera sem mest úr ekkert alltof fyndnu hlutverkinu. Aukaleikaramir eru upp og ofan. Joe Don Baker kemur þægilega á óvart með ábúðamikl- um gamanleik og Lane Smith er í fínu formi sem slóttugur þing- maður og lærimeistari Murphys á Capitol Hill. Leikstjórn Lynnes er slétt og felld og hár framleiðslu- kostnaðurinn sýnir sig að nokkru leyti í fagmannlegu yfirbragði og íburðarmikilli leikmynd. Því miður er það sem vantar, ómissandi í gamanmyndum - bráðfyndið hand- rit. Þegar menn einsog Murphy eiga í hlut dugar ekkert minna. A.m.k. ekki ef hann á að komast aftur í upphæðimar. bænum í maskínunni. Og áfram- haldið ráða flestir í. Fyrr en varir er litli kútur orðinn stærri en King Kong. Framhaldsmyndin á forvera sín- um allt að þakka enda skortir hér bagalega ferskar hugmyndir. í rauninni er Elskan, ég stækkaði barnið lítið annað en eins brandara andhverfa fyrri myndarinnar. Reynt að burðast við að lífga uppá þráðinn með nokkram hliðarsögum sem bæta ekki úr skák, síst ásta- mál eldri sonarins og barnapíunn- ar. Hér, líkt og í Ástin, ég minnk- aði bömin, eru það brellurnar sem era meginkostur myndarinnar. Þær eru flestar fantagóðar og halda þeim fullorðnu af og til við efnið. Þá er litli guttinn aldeilis frábær og gefur öðrum leikurum langt nef. Astin, ég stækkaði barnið er vafalaust dágóð skemmtun fyrir smáfólkið en tæpast aðra. í raun- inni er hún ósköp klén og ómerki- leg endurtekning og hversdagsleg ef undan eru skildar brellurnar. Og nú er bara að bíða og sjá hvaða apparat hugmyndasmiðir Holly- woodborgar setja næst í hendurnar á honum Moranis. Það skyldi þó aldrei breyta börnum í bjöllusauði? Króginn Kong

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.