Morgunblaðið - 01.04.1993, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ KIMMTUDAGUR L APRÍL 1993
53
ARSHATIÐ
Nemendur MK sýndu
atriði úr Hárinu
Ljósm./Kjartan Einarsson
Sýndur var söngleikurinn Hárið
undir stjórn Jóns Ólafssonar. Hér
má sjá nokkra þátttakendur, m.a.
Hrafnhildi Þórhallsdóttur, sem
lifir sig vel inn í hlutverkið, enda
samdi hún alla dansana. Við hlið
hennar eru Ragnheiður Kolviðs-
dóttir og lengst til hægri Alda
Björg Breiðfjörð.
KOMNIR
*
Arshátíð Menntaskólans í Kópa-
vogi var haldin 25. mars sið-
astliðinn í Súlnasal Hótels Sögu.
Skemmtunin hófst með sýningu
skólakórsins á söngleiknum Hárinu
undir stjórn Jóns Ólafssonar, sem
jafnframt er kórstjóri. Auk kórsins
tóku dansarar þátt í uppfærslunni.
í kjölfarið var fluttur leikinn annáll
og fengu bæði kennarar og nem-
endastjóm á baukinn við mikinn
fögnuð gesta. Því næst sýndu nem-
endur föt frá versluninni Kúmen
og að skemmtuninni lokinni hófst
kvöldverður. Síðar um kvöldið upp-
hófst síðan dansleikur, þar sem
hljómsveitin Todmobile sá um tón-
listina.
Stúdentsefnin, allt prúðbúið fólk, stillir sér upp fyrir myndatöku.
BANDARIKIN
Chelsea Clinton
skotmark grínista
Amy Carter er hrein fegurð
samanborið við Chelseu
Clinton hefur bandarískur grín-
isti látið út úr sér. Og hann er
ekki einn um slíkar athugasemd-
ir, því ijöldi bandarískra grínista
hafa látið háð sitt bylja á
Chelsea, sem er rétt nýlega orð-
in 13 ára. Skopið kemur fram í
sjónvarpi, teiknimyndum og víð-
ar. Chelsea er gagnrýnd fyrir
að hafa of stórt nef, of breiðar
varir og að hárið sé ömurlegt.
Jafnvel fegrunarfræðingar hafa
látið hafa eftir sér að vel mætti
laga nefið með fegrunaraðgerð.
Þeir gleyma hins vegar að geta
þess, að langflestir unglingar fá
uppblásið nef á unglingsárunum.
Foreldrarnir, Hillary og Bill
Clinton, hafa fengið nóg af
áganginum og hafa farið fram
á að látið verði af einelti við
barnið. Hillary segist ekki geta
skilið að fólk hafi ekki annað að
gera en að bijóta niður 13 ára
barn. Þá hafa einhveijir Banda-
ríkjamenn tekið upp hanskann
fyrir forsetadótturina og stofnað
samtökin „Látið Chelseu í friði“.
Chelsea hefur ekki látið í jjós
hvað henni finnist um lífið og
tilveruna eftir að hún fór að
verða fyrir aðkasti grínista.
Hafa þeir að sjálfsögðu látið
prenta boli með áletruninni, sem
seljast eins og heitar lummur.
S3113
Gengi ítöfsku Urunnar er okkur ihag
og viÖgerum betur
20/AFSLÁTTUR 771PÁSKA
K
RISTALL
Knnglan,Sími689955
iSTALL
Faxafeni v/Suöurlandsbraut
Sími 68^020
Líttuinníspeglasalokkar við Faxafen.