Morgunblaðið - 01.04.1993, Blaðsíða 64
TVÖF/\LDUR |. vinningur
HEWLETT
PACKARD
---------------UMBOÐIÐ
HPA ÍSLANDI H F
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá mögaleika til vcruleika
MOHGUNBLADIÐ, ADALSTK-ETI C, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Bráðabirgðaniðurstöður togararallsins í mars
Litlar líkur á auknum
þorskafla á næsta ári
SAMKVÆMT bráðabirgðaniðurstöðum úr togararalli Haf-
rannsóknastofnunar í mars eru litlar líkur á að hægt verði
að auka þorskaflann á næsta fiskveiðiári. Stofnmæling á
þorski nú gefur sömu niðurstöðu og mælingin í fyrra en sú
mæling var m.a. notuð til grundvallar ráðgjöf Hafrannsókna-
stofnunar um þorskafla yfirstandandi fiskveiðiárs. Jakob
Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir að mæl-
ingin gefi vísbendingu um að litlar breytingar hafi orðið á
stofnstærðum frá síðasta ári. Samanburður við mælingar
fyrri ára bendir til að þorskárgangurinn 1992 sé enn ein
viðbótin í röð lélegra eða mjög lélegra árganga allt frá og
með árgangi 1985.
* Togararallið, eða árleg stofn-
mæling botnfiska, fór fram dagana
2.-18. mars og að venju voru leigð-
ir fímm togarar til verkefnisins.
Togað var á tæplega 600 stöðum
umhverfis allt landið þar með 31
stöð á grunnslóð til viðbótar við
„fastar“ stöðvar. Veður var með
besta móti á rannsóknartímanum
og aðstæður til rannsókna því góð-
ar. Þorsk- og ýsuafli var með svip-
uðu móti og í fyrra en karfaaflinn
heldur minni.
Stendur í stað
Aðspurður um hvort einhverjar
jákvæðar niðurstöður hefðu fengist
nú segir Jakob það helst að stofn-
mælingin sýni að þorskstofninn
standi í stað en fari ekki niður á
við miðað við síðasta ár. Raunar
hafi hann mælst örlítið stærri nú
en í fyrra en það sé innan skekkju-
marka.
Lengdardreifing þorsks ein-
kenndist af fiski 30-60 cm að lengd
og ætla má að þar sé um 3-4 ára
fisk að ræða. í togararallinu 1992
var mest af þorskinum 25-40 cm
að lengd og áætlar Hafrannsókn
að hér sé að líkindum um sömu
árganga að ræða og mest ber á nú.
Meira varð vart eins árs þorsks
nú en í fyrra en fyrsta mat á styrk
hans bendir ekki til annars en að
um lélegan árgang sé að ræða, eða
um 100 milljónir fiska framreiknað
til þriggja ára aldurs. Á síðasta
áratug náði þessi tala hámarki 1983
er stofninn mældist tæplega 340
milljónir fiska.
Kjörgripur á kirkjulofti
BIBLÍA á hebresku sem útgefin var í Hamborg árið 1578 og var í
eigu Guðbrands Þorlákssonar biskups hefur upp á síðkastið verið
geymd á kirkjuloftinu á Hólum í Hjaltadal, en nú í vikunni var
upplýst að þarna er um að ræða mjög fágæta bók og að öllum lík-
indum afar verðmætan kjörgrip. Sigurður Orn Steingrímsson prófess-
or var staddúr á Hólastað í vikunni ásamt Dr. Georg Braulik prófess-
or, sem er stjórnandi deildar gamlatestamentisfræða við Háskólann
í Vín. Bolli Gústavsson vígslubiskup sýndi þeim þá ýmsar bækur
sem geymdar eru á kirkjuloftinu, og staðnæmdist Dr. Braulik þá
við hebresku biblíuna og varð hann mjög hissa á að svo fágætur
gripur væri þarna niðurkominn. Á myndinni heldur Bolli Gústafsson
á dýrgripnum af kirkjuloftinu, sem er ívið stærri bók en Guð-
brandsbiblía.
Sjá bls. 29: „Fágæt og verðmæt...“
Veitingahús
með misháa
álagningu
á áfenginu
ALGENGT er að álagning
veitingahúsa á bjór sé ná-
lægt 250% samkvæmt nið-
urstöðum úr skyndikönn-
un sem Morgunblaðið
gerði í vikunni.
Nokkur munur reyndist á
álagningu drykkja á 17 stöðum
þar sem verð var kannað.
Rauðvínsflaska sem kostar 920
kr. hjá ÁTVR kostaði 1.800-
2.458 kr. á veitingastöðum í
úrtaki Morgunblaðsins. Var
lægsta álagning 95% og sú
hæsta 167%. Hvítvínsflaska
sem hjá ÁTVR kostar 1.300
kr. kostaði 2.230-3.420 krón-
ur. Var lægsta álagning þar
71% og sú hæsta 163%. Dý-
rasti gosdrykkurinn var 30%
dýrari en sá ódýrasti. Einnig
var nokkur munur á verði
kaffibolla og koníaksstaups.
Sjá bls. 38: „Dropinn
dýr . . .“
Um 1.5001
á mánuði
LANDANIR rússneskra fiski-
skipa hér á landi hafa verið
um 1.500 tonn á mánuði á
árinu. Verð á Rússaþorski
hefur haldist tiltölulega stöð-
ugt frá áramótum og greiddar
um 95 krónur fyrir kílóið.
„Vegna mikils framboðs af físki í
febrúar og mars dró heldur úr lönd-
unum rússneskra fískiskipa," sagði
Eyþór Ólafsson hjá E. Ólafsson, ein-
um innflytjanda Rússafísks. Hann
sagði að landanir rússneskra fiski-
skipa væru um 7% af þorskafla sem
hér berst á land.
Meistar-
ar fagna
KEFLVÍKIN GAR tryggðu
sér í gær íslandsmeistaratit-
ilinn í körfuknattleik annað
árið í röð er þeir lögðu
Hauka að velli, 108:89, í
þriðja sinn í jafnmörgum
leikjum.
Keflvíkingar höfðu mikla yfir-
burði í tveimur fyrstu leikjunum
en í gær var viðureignin jöfn og
skemmtileg. Karlalið IBK er einn-
ig bikarmeistari og kvennalið fé-
lagsins vann líka tvöfalt þannig
að segja má að það hafí veri fjór-
falt í Keflavík í vetur. Á myndinni
fagna Jonathan Bow, Jón Kristinn
Gíslason, Sigurður Ingimundarson
og Albert Oskarsson.
Sjá bls. 62: „Fjórfalt"
Kröfuhafar í þrotabú EG í Bolungarvík samþykkja ekki tilboð Ósvarar
Vinnslustöðin óskar við-
Morgunblaðið/Sverrir
ræðna um kaup á Dagrúnu
VINNSLUSTÖÐIN hf. í Vestmannaeyj-
um hefur lýst áhuga á viðræðum við
bústjóra þrotabús Einars Guðfinnsson-
ar hf. í Bolungarvík um kaup á togaran-
um Dagrúnu og tæplega 2.000 tonna
kvóta hennar. I bréfinu voru settar
fram hugmyndir um verð og fleira.
Hugsanlegt kaupverð er talið vera 450
milljónir kr. að frádregnum 30 milljón-
um kr. vegna þess kvóta sem skipið
hefur þegar veitt á árinu.
Bústjórar kynntu þetta bréf fyrir veðkröfu-
höfum á fundi á þriðjudag ásamt 660 milljóna
kr. tilboði útgerðarfélagsins Ósvarar hf. í Bol-
ungarvík í báða togarana og kvóta þeirra. Kröfu-
hafarnir tóku ekki afstöðu til tilboðanna en fólu
bústjórum að setja skipin í sölu og verða þau
auglýst á næstunni ásamt frystihúsi þrotabús-
ins.
Stefán Pálsson bústjóri staðfesti að Vinnslu-
stöðin hf. hefði skrifað þrotabúinu bréf með ósk
um viðræður um kaup á Dagrúnu en neitaði
að skýra frá innihaldi þess að öðru leyti. Þar
sem skipin hefðu ekki verið auglýst til sölu
hefði ekki verið tekin afstaða til bréfsins á fundi
kröfuhafanna. Sighvatur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, vildi í gær
ekki segja neitt um þetta erindi til þrotabúsins
né upplýsa um áform fyrirtækisins.
Heimamenn í Bolungarvík sem stofnuðu Út-
gerðarfélagið Ósvör til að reyna að fá eignir
þrotabús Einars Guðfínnssonar leigðar eða
keyptar buðu 660 milljónir í togarana Dagrúnu
og Heiðrúnu og kvóta þeirra sem er 3.440
þorskígildistonn. Á skipunum hvíla veðskuldir
að fjárhæð um 860 milljónir kr.
Kröfur í uppnámi
Ef skipin yrðu seld á 660 milljónir myndi
bærinn væntanlega tapa 86_milljónum sem eru
á aftasta veðrétti skipanna. I uppnámi eru einn-
ig kröfur Atvinnutryggingasjóðs, ríkissjóðs,
Landsbankans og Skeljungs. Stefán sagði tilboð
Ósvarar með ýmsum fyrirvörum, t.d. væri tekið
fram að eftir væri að afla hlutafjár og samþykk-
is veðhafa fyrir skuldbreytingum og nýju
greiðslufyrirkomulagi skulda. Hann sagði að
tilboð Ósvarar væri í lægri kantinum. Niður-
staða fundarins hefði verið að samþykkja ekki
tilboðið en slíta heldur ekki viðræðum og aug-
lýsa skipin til sölu. Frystihús þrotabúsins yrði
jafnframt auglýst til sölu.