Morgunblaðið - 22.04.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FTMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993
43
r- 1 I I —I V
óJSHÍlí, JjJJi
,rJJi'J_f1J jjJJ l
íJJjjj'JJ
f
JJjJjj
Framkvœmdir í miðborginni í sumar vegna endurnýjunar
og nýlagninga torga, gatna og gangstétta.
Á komandi sumri verður ráðist í all viðamiklar framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur. Þær miða allar
að því að fegra miðborgina, skapa betri aðstöðu til útivistar, bæta götur og torg, auk þess að sinna
eðlilegu viðhaldi og endurnýjun lagna og gatna.
Við hönnun og framkvæmd þessara breytinga hefúr verið lögð áhersla á að halda truflun umferðar í
lágmarki og hraða framkvæmdum. Nefna má nokkur atriði:
•Umferð um Tryggvagötu truflist ekki.
•Umferð Austurstrætis til vesturs hafi eðlilegt flæði með gerð nýrrar tengibrautar við Hafnarstræti.
•Starfsemi strætisvagna verði óhindruð.
•Starfsemi Kolaports truflist ekki.
Framkvæmdirnar hefjast um mánaðarmótin apríl/maí og
mun þeim ljúka í september/október.
Óhjákvæmilegt er, að af þessum framkvæmdum hljótist
nokkur truflun á umferð gangandi vegfarenda og öku-
tækja, meðan á þeim stendur.
Borgarbúar eru beðnir að sýna þessum framkvæmdum
skilning og gæta sérstakrar varúðar í umferðinni meðan á
breytingum stendur.
Tjarnargata. --
Vesturbakki Tjarnarinnar endurbyggöur meö grænum
svæöum, betri aöstööu fyrir mannlíf og fuglalíf.
Ingólfstorg
(áður Hallærisplan og Steindórsplan) veröur byggt og fært í
framtíöarhorf meö stórbættri aöstööú til útivistar og umferöar
gangandi fólks. Breytingar veröa gerðar á umferö úr
Austurstræti í Hafnarstræti.
Gleðilegt sumar!
REYKJAVIKURBORG
VjS / QISQH VljAH