Morgunblaðið - 22.04.1993, Blaðsíða 50
MÖRgMbLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22 APRÍL 1993
50
Barði Erling Guð-
mundsson - Minning
„Það syrtir að, er sumir kveðja."
Þessi hending úr kvæði skáldsins
frá Fagraskógi flaug mér í hug
þegar ég frétti að mágs míns væri
saknað, eftir að ofsaveður skall
óvænt á stuttu fyrir hádegi hinn
17. mars sl.
Akranestrillurnar höfðu róið í
góðu veðri um morguninn og veð-
urspáin lofaði góðu. En skjótt skip-
ast veður í lofti og í einu vetfangi
var komið ofsarok og blindhríð. í
vestanáttinni verður umhverfi hafn-
arinnar eins og suðupottur, og þetta
voðaveður kostaði þijú mannslíf.
Þrír vaskir sjómenn, hetjur hafsins,
eins og þeir heita á hátíðastundum,
mættu sínu skapadægri.
Barði hafði aðeins átt trilluna
sína í fáeina mánuði, en hann hafði
stundað sjó alla ævi og vildi helst
ekki annars staðar vera. Enda átti
hann erfitt um ýmis verk vegna
fötlunar á hendi, er var afleiðing
slyss, er hann lenti í fyrir mörgum
árum. Oft furðaði maður sig á hvað
hann var harður af sér og dugleg-
ur, þrátt fyrir fötlunina.
Barði Erling var fæddur 28. nóv-
ember 1944 á Akranesi, en þar
bjuggu foreldrar hans Guðmundur
Jónsson skipstjóri frá Gamla-
Hrauni_ við Eyrarbakka og Hólm-
fríður Ásgrímsdóttir frá Efra-Ási í
Hjaltadal, Skagafirði, en þau eru
bæði látin. Guðmundur var einn 17
bama Jóns Guðmundssonar bónda
og formanns á Gamla-Hrauni af
Bergsætt og konu hans, Ingibjargar
Jónsdóttur af Reykjakotsætt.
Hólmfríður var dóttir Ásjgríms Stef-
ánssonar bónda í Efra-Asi og konu
hans, Sigmundu Skúladóttur. Þau
voru ættuð úr Fljótum í Skagafirði
af Stóru-Brekku- og Brúnastaða-
ættum. Það stóðu því að Barða
sterkir stofnar af Suður- og Norður-
landi og margt góðra sjómanna.
Barði ólst upp á Akranesi næst-
yngstur sex alsystkina, sem öll eru
á lífí. Einn bróður samfeðra átti
hann, og dóttur átti Hólmfríður af
fyrra hjónabandi, en hún lést ung
frá sex börnum.
Á yngri ámm var Barði ýmist á
bátum héðan af Skaganum eða frá
Þorlákshöfn, en þar voru tvö systk-
ina hans þá búsett.
Hinn 29. mars 1975 steig Barði
það gæfuspor að ganga að eiga
Eimýju Súsönnu Valsdóttur, sem
þá var aðeins 18 ára gömul. Eirný
t
ÓLAFUR HELGI ÓLAFSSON
bifreiðastjóri,
lést á heimili sínu, Tangagötu 10, ísafirði þann 20. apríl.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðmundur Ólafsson.
t
Minningarathöfn um eiginmann minn,
JOHN V. CARROLL,
er lést 3. febrúar 1993 í Newport, Rhode Island í Bandaríkjunum,
verður í Fossvogskapellunni föstudaginn 23. apríl kl. 13.30.
Úlfhildur J. Carroll.
t
Ástkaer eiginkona min,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
frá Vindási,
Laugarnesvegi 88,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Reynivallakirkju laugardaginn 24. apríl
kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur Ingvarsson.
t
Ástkær dóttir mín, eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA GUÐRÍÐUR ELLERTSDÓTTIR,
Tangagötu 4,
Stykkishólmi,
sem lést þann 19. apríl, verður jarðsungin laugardaginn 24. apríl
kl. 14.00 frá Stykkishólmskirkju.
Guðrún Ólafsdóttir,
Finnbogi Ólafsson,
Helga Finnbogadóttir, Reynir Gísli Hjaltason,
Kristfn Finnbogadóttir, Andrés Kristjánsson,
Ellert Finnbogason, Sigurlína Ragúels,
Anna Finnbogadóttir, Smári Steinarsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
JÓHANNAGRÓA
INGIMUNDARDÓTTIR,
Sólheimum 23,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
föstudaginn 23. apríl kl. 15.00.
Björn Sigurðsson,
Björn Jóhann Björnsson, Alma Guðmundsdóttir
og barnabörn.
er frá Hveragerði, dóttir Vals Ein-
arssonar og konu hans, Olgu Mörk.
Valur er látinn, en Olga lifír tengda-
son sinn, búsett í Hirtshals á Jót-
landi.
Barði og Eirný, eða Baddi og
Enna eins og fjölskyldan kallaðj þau
stofnuðu heimili í Þorlákshöfn, og
þar'bjuggu þau næstu árin. Hann
var á sjónum, en hún starfaði að
verslunar- og skrifstofustörfum.
Árið 1982 fæðist þeim sonur, sem
hlaut nafn föður síns, Barði Erling.
Áður hafði Barði eignast tvö böm
með Vigdísi Jóhannsdóttur, Katrínu
Ingibjörgu fóstru, f. 1966, búsetta
á Akranesi. og á hún dótturina
Söndru Kristínu fimm ára; og Hilm-
ar Þór trésmið, f. 1968, kvæntan
Sæunni Valdísi Guðmundsdóttur,
búsettan í Reykjavík.
Árið 1983 flytjast þau til ísa-
fjarðar og fyrit* vestan eru þau í tvö
ár. Þar starfaði Barði á netaverk-
stæði og mun það lengsti tíminn,
sem hann var í landvinnu. En haust-
ið 1985 komu þau hingað til Akra-
ness. Eimý hóf nám við Samvinnu-
skólann í Bifröst, en Barði sótti sjó-
inn. Þeir höfðu alltaf haft gott sam-
band bræðurnir, Sævar og Barði,
þrátt fyrir nærri 13 ára aldursmun
og ekki aldir upp saman, en eftir
að þau fluttust hingað þróaðist
samband þeirra í nána vináttu. þeir
áttu svo margt sameiginlegt, áhugi
þeirra á allskonar veiðiskap, hvort
sem það var fugl eða fiskur, var
þeim óþrjótandi umræðuefni. Við
höfðum því við þau mikil samskipti
og áttum með þeim margar ánægju-
stundir. Barði var hlédrægur,
stundum nærri um of, og alveg laus
við að trana sér á nokkurn hátt.
Er það ættarfylgja.
Frá því hann kom hingað til
Akraness aftur hafði hann róið fyr-
ir eða með þeim Símoni Símonar-
syni og Kristni Finnssyni, en á síð-
asta ári var kvóti þeirra orðinn svo
lítill að ekki dugði þremur. Því var
það að á liðnu hausti lét hann þann
draum rætast að eignast sjálfur
bát. Hann keypti fímm tonna trillu
austan af Borgarfirði, skírði hana
Akurey, og hóf róðra með línu í
nóvember sl. Hann hafði svo ekki
löngu skipt yfir á netin er hann fór
sína síðustu ferð. Kvöldið áður
hringdi hann í Sævar bróður sinn
og spurði hvort hann mundi ekki
fella fýrir sig nokkur net, því að
hann ætlaði að bæta við sig fleiri
netum. Það var að sjálfsögðu auð-
sótt mál. Þeir höfðu uppi ýmsar
áætlanir um skemmtiferðir á bátn-
um er sumraði að ná í fugl og físk.
„En mennirnir áætla, Guð ræður.“
I einu vetfangi er öllu breytt, og
Baddi kemur ekki framar í bílskúr-
inn eða eldhúskrókinn á Garða-
brautinni að heilsa upp á bróður
sinn og ræða um veiðiskap.
Barði var einstakur heimilismað-
ur og bar hag ijölskyldu sinnar
mjög fýrir bijósti, hann var einnig
jafnvígur á öll störf í eldhúsinu,
hvort sem það var matreiðsla eða
bakstur. Á meðan Eirný stundaði
nám sitt í Bifröst, en þaðan lauk
hún prófi í rekstrarfræði vorið
1990, sá hann um sig og son þeirra
að miklu leyti, enda afar kært með
þeim feðgum. En öllum fríum eyddi
fjölskyldan saman, að svo miklu
leyti, sem hægt var.
Björgunarsveitin Hjálpin, hjálp-
arsveit skáta á Akranesi, svo og
sjómenn hér, hafa leitað afar mikið,
bæði á sjó og landi, einnig þyrla
fyrstu dagana eftir slysið, en án
árangurs, aðeins brak úr stýris-
húsi, björgunarbátur og fleira smá-
legt hefur fundist. Barða virðist því
búin hin vota gröf, sem svo fjöl-.
margir íslenskir sjómann hafa gist.
Ég veit að ég mæli fýrir munn allr-
ar fjölskyldunnar þegar ég færi öll-
um þessum mönnum bestu þakkir
og bið þeim allrar blessunar í þeirra
fómfúsa starfi.
Ég kveð Barða mág minn með
virðingu og þökk fýrir öll liðnu ár-
in. Elsku Enna, Guð styrki þig,
bömin hans, dótturdóttur og aðra
aðstandendur í sorg þeirra, en sér-
staklega soninn unga, sem svo mik-
ið hefur misst.
Hið hvíta skip, með heflað segl við rána,
af hafi kom í gær
og fer í dag. - í hógværð hljóðrar stundar
það hverfur fjær og fjær.
En daufu bliki bylgjur sínar þekur
hinn breiði sær.
(Guðm. Böðvarsson)
Gréta Gunnarsdóttir.
I minningu
þriggja sjómmma
Barði Erling Guðmunds-
son
Fæddur 28. nóvember
1944
Dáinn 17. mars 1993
Nikulás Helgi Kajson
Fæddur 19. maí 1948
Dáinn 17. mars 1993
Ólafur Líndal Finnboga-
son
Fæddur 27. mars 1922
Dáinn 17. mars 1993
t
Útför konu minnar, dóttur, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
MAGNDÍSAR GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTUR,
Þórsgötu 4,
Patreksfirði,
verður gerð frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 24. apríl
kl. 14.00.
Gestur Ingimar Jóhannesson, Lovisa Magnúsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
GUÐRÚNAR LIUU ÓLAFSDÓTTUR
frá Strönd,
Vestmannaeyjum.
Guðrún Þorsteinsdóttir, Finnbogi Ólafsson,
Erna Þorsteinsdóttir, Tómas Guðmundsson,
Hulda Þorsteinsdóttir, Ingvi Guðnason,
Þorsteinn G. Þorsteinsson, Eygerður A. Jónasdóttir,
Ólafur D. Þorsteinsson, Sigríður Þórðardóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir til ykkar allra, er auð-
sýndu samúð og hlýhug við andlát
elskulegrar eiginkonu, móður, dóttur,
systur, mágkonu, dótturdóttur og
tengdadóttur,
SVÖVU INGVARSDÓTTUR,
Stallbacken 5, Bálsta,
Svíþjóð.
Guð veri með ykkur.
Páll Arnar Árnason,
Helga Svanborg Pálsdóttir,
IngvarÁrni Pálsson,
Svanborg Danielsdóttir, Ingvar Herbertsson,
Erna Hrefna,
Hildur Ingvarsdóttir,
Hulda Ingvarsdóttir,
Hrefna Asgeirsdóttir,
Július Óli Einarsson,
Valgerður Magnúsdóttir.
í mildu veðri árla morguns siglu
bátar úr Akraneshöfn. Vestanros-
inn virtist hafa gert hlé á beljanda
sínum og óþreyjufullir sjómenn
héldu út til að vitja um net sín.
Þegar þeir sigldu út á úfínn Faxa-
flóann hrönnuðust sunnar upp óveð-
ursský sem mögnuðu með sér
stórsjó og blindhríð.
Þegar leið á þennan miðviku-
dagsmorgun mátti sjá hvernig
svartur kólgubakkinn nálgaðist
Skagann og breytti fyrirvaralaust
mildu veðri í vetrarstórviðri og hríð-
arbyl. Kvíði greip þá sem vissu af
ástvinum sínum á sjó þennan dag.
Þessi kvíði sem fylgt hefur fjöl-
skyldum íslenskra sjómanna frá
ómunatíð og Öm Arnarson minnir
okkur á í kvæði sínu Veðuruggur:
Snemma bregður birtu í dag.
Bylur él á glugga.
Þegar hann heftír þetta lag,
þá er margt að ugga.
í veðurofsanum börðust menn við
að ná til hafnar á bátum sínum og
að áliðnum degi þegar þeir síðustu
skiluðu sér þá vantaði tvo báta, sem
á voru þrír menn. Rétt undan hafn-
argarðinum við Akranes hafði ólag
hvolft báti þein-a Nikulásar Helga
Kajsonar og Ólafs Líndals Finn-
bogasonar. Þrátt fyrir dirfskufulla
tilraun til björgunar þá varð þeim
ekki bjargað. Um svipað leyti braut
Ægir bát Barða Erlings Guðmunds-
sonar og fórst Barði með bátnum.
Þeir Barði, Nikulás og Ólafur
voru allir þrautreyndir sjómenn sem
áttu í landi góðar ftolskyldur. Frá-
fall þeirra er bæjarbúum öllum
harmafregn og í litlu samfélagi má
fínna hvernig allir eru þátttakendur
í sorg þeirra sem sárast eiga um
að binda. Ég vil leyfa mér að minn-
ast þessara þriggja mætu manna
með hlýju og virðingu og færi eigin-
konum þeirra og bömum innileg-
ustu samúðarkveðjur í sorg þeirra.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri.
’ Blóm Skrcytingar Gjafavii*
Kransar Krossar Kisruskreytingar
Opið alla daga frá ki. 9-22
Fákafeni 11
s. 68 91 20