Morgunblaðið - 22.04.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 22.04.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1993 Ozal forseti kvaddur HEIÐURSVÖRÐUR forsetaembættisins í Tyrklandi dregur vagn um götur Ankara með kistu Turguts Ozals forseta sem lést sl. laugardag, er ætlunin að hann verði jarðsettur í dag í Istanbúl. Dagblöð lýstu óánægju með vestræn ríki sem sendu flest lágtsetta embættismenn til Ankara. Þýski forsetinn, Ric- hard von Weizsácker, var þó viðstaddur athöfnina. Arabar fallast á friðarviðræð- ur við Israela Damaskus. Reuter. FULLTRÚAR arabaríkja og Palestínumanna samþykktu í gær að hefja að nýju friðarviðræður við ísraela í Washington 27. apríl. Þeir bundu þar með enda á fjögurra mánaða óvissu vegna útlagadóms yfir Palestínumönnum frá hernumdum svæðum ísraela sem stefndi friðarumleitunum í hættu. I sam- eiginlegri yfirlýsingu utanríkisráðherra Sýrlands, Jórdaníu, Líbanons, Egyptalands og Yassers Arafats, leiðtoga Frelsisam- taka Palestínumanna (PLO) sagði að Bandaríkjastjóm yrði nú að efna loforð sem hún gaf til að fá araba að samninga- borðinu að nýju. Arabarnir höfðu tvisvar frestað því að taka ákvörðun í málinu á meðan Palestínumenn reyndu allt sem þeir gátu til að knýja fram til- slakanir af hálfu Bandaríkjastjórn- ar og ísraela. Þeir kröfðust þess að ísraelar hættu að senda araba í útlegð, féllust á tilslakanir varð- andi sjálfstjórn hernumdu svæð- anna og féllu frá ýmsum aðgerðum sem þeir hafa gripið til, svo sem lokun Vesturbakkans og Gazasvæð- isins sem hefur leitt tilþess að arab- ar geta ekki starfað í ísrael. Stjórn- völd í Bandaríkjunum og Israel buðu aðeins loforð sem yrðu ekki efnd fyrr en Palestínumenn féllust á að halda' friðárviðræðunum áfram, en þeim var hætt í desem- ber eftir að ísraelar sendu 415 Palestínumenn frá hernumdu svæð- unum í útlegð til Líbanons. Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, fagnaði ákvörðun arabísku fulltrúanna en tveir samningamenn Palestínumanna, Ghassan al- Khatib, og Samir Abdullah, ákváðu að segja sig úr samninganefndinni í mótmælaskyni. Harmleikurírm í Waco FBI bárust hótunarbréf Waco. Reuter. DAVID Koresh, leiðtogi sér- trúarsafnaðarins skammt frá Waco í Texas, sendi tvö hótun- arbréf til bandarísku alríkis- lögreglunnar, FBI, áður en lögreglan réðst til atlögu við söfnuðinn á mánudag. í bréfunum varaði Koresh við gíf- urlegri sprengingu og hótaði að nota tvö böm sem gísla til að veija sig, að sögn talsmanna FBI. Um 40 lík höfðu fundist í rústum trúboðsstöðvar Koresh í gær. Voru nokkur þeirra þakin skotsárum og tíu voru lík kvenna og bama. Föt eins þeirra, sem fannst með skotsár- um, vom sviðin sem þykir benda til þess að hann hafi reynt að flýja víti- seldana er hann varð fyrir skoti. Hampað sem þjóðhelju fyrir að sigla umhverfis jörðina á 79 dögum Siglingametið bjargar Peyron frá gjaldþroti Reuter Fagnað með neyðarblysunum BRUNO Peyron og áhöfn fagna unnu siglingaafreki með því að brenna neyðarblysin sem höfð voru með í för. Nokkrum sinnum komust þeir í hann krappann á siglingunni en aldrei kom þó til þess að þeir þyrftu að treysta á þær birgðir. París, La Baule. Daily Telegraph. Reuter. FRANSKA skútustjóranum Bruno Peyron var hampað sem þjóðhetju í Frakklandi í gær en í fyrradag lauk hann hnattsiglingu á 26 metra langri tvíbytnu sinni Commodore Explorer á 79 dögum og sex klukkustund- um. Vann hann sérstök verðlaun sem kennd eru við Jules Verne, sem ritaði skáldsöguna Umhverfis jörðina á 80 dögum. Reynd- ar var ekki búist við að neinum siglingagarpi tæk- ist í bráð að Ijúka hnattsigl- ingu á 80 dögum eða skem- ur og því hafði bandarískur listamaður, sem falin var styttugerðin, ekki lokið við smíði hennar. Peyron verður því fyrst um sinn að gera sér eftirlíkingu af stytt- unni að góðu. Hins vegar hlaut hann einnar milljónar dollara verð- laun fyrir afrekið og það kemur að góðum notum, bjargar honum frá persónulegu gjaldþroti því hann hafði safnað stórskuldum til að fjármagna siglinguna. Kostn- aðurinn var átta milljónir franka, jafnvirði 94 milljóna króna, og þar af varð hann að leggja sjálfur til 29 milljónir. Afganginn lögðu styrktaraðilar til. Reyndist það honum mjög erfitt að fínna stuðn- ingsaðila fyrir siglinguna en síð- ustu tvær vikur siglingarinnar, þegar allt stefndi í að hann kæm- ist á spjöld sögunnar fyrir merki- legt siglingaafrek, vildu margir eignast hlutdeild í því; Qöldi lítill og stórra fyrirtækja beið í röðum eftir að ná símasambandi við skútu Peyrons um gervihnött til þess að bjóða fjárstuðning. Jafnað við Magellan, Kólumbus og Gama Franskir fjölmiðlar gerðu mikið úr afreki Peyrons, sem er 37 ára, og fjögurra samferðamanna hans. Liberation lagði sjö síður undir frásögn af sægarpnum og sigling- unni. Annað blað, France-Soir, jafnaði honum óhikað við helstu landkönnuði sögunnar og sagði hann hafa skipað sér á bekk með Magellan, Kristófer Kólumbus og Vasco da Gama. Matur á þrotum Þegar nálgaðist markið bað Peyron um að þar biði þeirra bát- ur með skammt af franskbrauðum, osti, eplum og súkkulaði. Matur var efst í huga skipveija sem urðu nær matarlausir viku áður en þeir náðu á leiðarenda. Tvær skútur til viðbótar lögðu upp í kappsiglingu umhverfís hnöttinn 31. janúar en tvær helt- ust úr lestinni. Ekki gekk siglingin áfallalaust hjá Peyron og áhöfn hans því stórviðri og fjallháar öld- ur á Indlandshafi og við Góðrar- vonarhöfða, borgarís við suður- odda Suður-Ameríku og búrhvalir á Atlantshafi höfðu nær gert út um ævintýrið. Góður byr í árekstrinum við tvo 35 tonna búrhvali um páska kom tveggja metra sprunga á skrokk skútunnar en hún stóðst álagið og komst sjór ekki inn þrátt fyrir að skútan klyfí öldumar á lokasprettinum. Lagði Peyron t.d. að baki 507 mílur eða 816 kílómetra á sólarhring frá sl. sunnudegi til mánudags sem er einstakt í skútusiglingum. Waigel Fleiri handtökur í S-Afríku LÖGREGLAN í Suður-Afríku telur að morðið á blökkumanna- leiðtoganum Chris' Hani hafi verið skipulagt af samsær- ismönnum, ef til vill með tengsl við erlenda aðila. Eftir að lög- regla hafði yfirheyrt íhaldsleið- togann Clive Derby-Lewis, sem var handtekinn á laugardag, voru fímm hvítir menn að auki handteknir í morgunsárið í gær, grunaðir um aðild að tilræðinu. Meðal þeirra var eiginkona Derby-Lewis, Gaye, sem fædd er í Astralíu. Afríska þjóðarráð- ið, ANC, samtök Nelsons Mand- ela, segir að handtökumar sýni að grunsemdir þeirra um sam- særi hafi átt við rök að styðj- ast. Morðinginn sjálfur hefur þegar verið handtekinn. Þýskur fjár- lagahalli eykst HALLINN á fjárlögum Þýska- lands mun vaxa enn og verða um 65 milljarðar marka, yfir 2500 milljarða króna, á þessu ári en hann var um 39 milljarð- ar marka í fyrra, að sögn Theos Waigels fjármálaráðherra. Hann segir orsök þessarar þró- unar vera vaxandi útgjöld vegna atvinnuleysisbóta og opinberra framlaga til sköpunar nýrra at- vinnutækifæra. I síðasta mánuði var spáð að hallinn yrði aðeins 54 milljarðar marka. Gegnjarð- sprengjum ALÞJÓÐA Rauði krossinn hvatti til þess í gær að hætt yrði að nota jarðsprengjur gegn óbreyttum borgurum eins og mikið hefur verið um í átökum síðustu áratuga. Samtökin létu þó hjá líða að krefjast algers banns við notkun þessara vopna enda eru þau oft notuð í varnar- skyni gegn brynvörðum farar- tækjum árásaraðila. í nokkrum löndum, þ. á m. Kambódíu, Afg- anistan og Sómalíu, einnig á svæðum í fyrrverandi - Júgó- slavíu, er jarðsprengjur mikið vandamál þar sem þeim hefur sums staðar verið dreift í tug- milljónatali og hafa gert fjölda fólks örkumla, ekki síst börn. Rauði krossinn gerir ráð fyrir að það muni taka 15 ár að hreinsa Afganistan af sprengj- unum. Vilja fríversl- un við Eystra- saltslöndin FINNAR, Svíar og Norðmenn, sem sótt hafa um aðild að Evr- ópubandalaginu, EB, eru ákveðnir í að láta aðildina ekki hafa það í för með sér að samn- ingum þeirra við Eystrasaltsrík- in þijú; Eistland, Lettland og Litháen, verði lagt fyrir róða. EB hefur ekki gert fríverslunar- samninga við Eystrasaltsríkin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.