Morgunblaðið - 04.05.1993, Page 56
Hugmynd að bjóða
stálverksmiðjuna
411 leigu án gjalds
Iðnþróunarsjóður vill reyna sölu í
3 mánuði og selja svo til niðurrifs
ÁGREININGUR er kominn upp á milli eigenda stálverksmiðjunnar
í Hafnarfirði, Búnaðarbankans og Iðnþróunarsjóðs, um til hvaða
ráðstafana skuli grípa varðandi verksmiðjuna en mjög litlar líkur
eru nú taldar á að takist að selja hana til áframhaldandi reksturs.
Hugmyndir hafa verið mótaðar um að auglýsa rekstur verksmiðjunn-
ar til leigu endurgjaldslaust, þar sem leigutaki myndi þurfa að
greiða stofnkostnað sem talinn er nema 50-60 millj. kr. Vill Búnaðar-
bankinn reyna þessa leið en stjórn Iðnþróunarsjóðs hefur nú fallið
frá þessum hugmyndum, skv. upplýsingum Jakobs Ármannssonar,
hjá Búnaðarbankanum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Litla og stóra
ÖRN Einarsson með risa-
gúrkuna og aðra venjulega.
Risagúrka
í Silfurtúni
Selfossi.
ENGIN skráð keppni á sér
. stað hér á landi í ræktun
stórra garðávaxta en Örn Ein-
arsson í Silfurtúni á Flúðum
gerði það að gamni sínu að
láta nokkrar gúrkur vaxa að
vild. Sú stærsta sem hann fékk
með eðlilegum lit vó 1,6 kíló
og var 54 sentímetrar að
lengd. Venjulegar gúrkur á
markaðnum eru 400-600
gromm.
Sig. Jóns.
Stjórn Iðnþróunarsjóðs vill þess
í stað að reynt verði til þrautar
að selja verksmiðjuna innanlands
í 2-3 mánuði til viðbótar en ef það
reynist árangurslaust verði verk-
smiðjan seld erlendum kaupanda
til niðurrifs.
Fjölmargir erlendir aðilar hafa
sýnt áhuga á að kaupa verksmiðj-
una til útflutnings og er söluverð
hennar til niðurrifs talið um 60
milljónir króna.
Hagkvæmniathugun
í síðasta mánuði voru kynntar
neikvæðar niðurstöður úr hag-
kvæmniathugun tveggja erlendra
sérfræðinga sem varð til þess að
dró úr áhuga Hafnarfjarðarbæjar
og verkalýðsfélaga í bænum á að
kaupa hlut Iðnþróunarsjóðs í sam-
vinnu við Harald Þ. Ólason í Furu,
sem að undanförnu hefur leitað
leiða til að kaupa verksmiðjuna.
Haraldur hefur hins vegar ekki
svarað því hvort hann vill taka
verksmiðjuna á leigu.
Að sögn Gunnars Rafns Sigur-
bjömssonar, bæjarritara í Hafnar-
firði, hefur verið rætt um það við
bæjaryfirvöld að ef verksmiðjan
yrði leigð myndi Hafnai-fjarðarbær
styðja það með því að fella niður
fasteignaskatta og önnur gjold en
engin afstaða hafi þó verið tekin
til þessa.
Litlu munaði að alvarlegt slys yrði á róluvelli
Spottírin
hertístad
hálsioja
ára stráks
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Hættuleg róla
GUÐMUNDUR litli Ólafsson með mömmu sinni, Hrönn Árna-
dóttur, þjá rólunni þar sem hann var nærri búinn að hengja sig
í óvitaskap. Hrönn heldur á spottanum en hann var strax skor-
inn niður eftir slysið svo ekki væri frekari hætta af honum.
Skagaströnd.
LITLU munaði að illa færi fyr-
ir Guðmundi Inga Ólafssyni,
þriggja ára snáða, þar sem
hann var að leik í rólunum við
næsta hús heima hjá sér á
Skagaströnd um helgina. Ról-
urnar voru bilaðar þannig að
spottarnir löfðu niður en engin
spýta var í spottunum. Á end-
ann á einum spottanum höfðu
stærri strákar splæst lykkju til
að stinga fætinum í og síðan
róluðu þeir sér fram og til baka.
Guðmundur litli er ekki nógu
stór til að geta komið fætinum í
lykkjuna svo hann setti hana utan
um hálsinn á sér og sneri sér síð-
an í hringi þar til hertist að. Það
vildi Guðmundi til happs að móðir
hans, Hrönn Árnadóttir, leit út
um gluggann hjá sér til að líta
eftir honum og sá þá hvað var
að gerast.
Hljóp strax út
„Ég hljóp strax út og kallaði
til hans að snúa sér í hina áttina
því ég sá að hann var farinn að
toga í spottann á hálsinum á sér
þar sem hann var að missa and-
ann ,“ sagði Hrönn er Morgun-
blaðið ræddi við hana um atburð-
inn. „Þegar ég kom svo til hans
hafði honum tekst að snúa ofan
af lykkjunni og sat dasaður á jörð-
inni. Ég má ekki til þess hugsa
ef hann hefði hrasað með lykkjuna
herta um hálsinn því hún var það
hátt frá jörðu.“
Spottinn var strax skorinn nið-
ur og verður ekki settur upp aft-
ur. „í tilefni af þessum atburði
vildi ég gjarnan minna foreldra á
að skoða leiksvæði bama sinna
því slysagildrurnar leynast víða
og það kemur enginn í veg fyrir
slys eftir á,“ sagði Hrönn. O.B.
Færri nýir
bílar skráð-
Forsætisráðherra segir að vextir verði að lækka og að lengja þurfi lán
Ærin ástæða til að bankar
lækki nafnvexti enn frekar
ir en í fyrra
VERULEGUR samdráttur hefur
orðið í skráningum á nýjum
fólksbifreiðum það sem af er
árinu, sérstaklega í apríl, en
hann er venjulega einn helsti
sölumánuður ársins.
Samkvæmt skýrslu Bifreiðaskoð-
unar íslands hf. fyrir nýskráningar
fólksbifreiða voru skráðir 1.965
nýir fólksbílar á fyrstu fjórum mán-
uðum ársins samanborið við 2.160
á sama tíma í fyrra.
Nýskráningar nýrra fólksbifreiða
í aprílmánuði voru 563 en í sama
mánuði í fyrra voru þær 755 tals-
ins. Þrátt fyrir þennan samdrátt í
nýskráningu hefur ekki dregið
merkjanlega úr innflutningi bíla á
þessu ári.
Hafnar því að atvinnuleysi verði það sama hér og í öðrum Evrópulöndum
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði við eldhúsdagsumræður á Al-
þingi í gærkvöldi að rík þörf væri á
að sú lækkun vaxta sem orðið hefur á
ísiandi haldi áfram og sagði að sú
þróun yrði ekki stöðvuð.
„Það er ekki vafi á því í mínum huga að verð-
bólguspár gefa ærna ástæðu til þess að bankar
lækki nafnvexti sína enn frekar en þeir hafa
þegar gert,“ sagði Davíð Oddsson. „ Það er
full ástæða til þess að hvetja bankana til þess
að fylgja þeirri þróun eftir. Þeir hljóta að hafa
í huga að stundarhagnaður bankakerfisins af
því að hafa vexti hærri en efnahagsskilyrðin í
raun gefa tilefni til, munu til lengdar bitna
harðast á bönkunum sjálfum. Það heldur eng-
inn góður bóndi mjólkurkúm sínum við felli-
mörk.
Davíð sagði ennfremur í ræðu sinni að inn-
lendir vextir yrðu að lækka og lánastofnanir
yrðu að lengja lán eins og kostur væri.
Sjávarútvegur til skoðunar
Þá sagði hann ljóst að óhjákvæmilegt verði
á næstu vikum og mánuðum að taka stöðuna
í sjávarútvegi til sérstakrar skoðunar ef mark-
aðsstaðan breyttist ekki.
Davíð vék einnig að atvinnuleysisvandanum
í ræðu sinni og sagðist hafna þeim sjónarmiðum
sem heyrst hefðu, að atvinnuleysi verði óhjá-
kvæmilega það sama á íslandi og í öðrum
Evrópulöndum. „Við horfum ekki framhjá því
að atvinnuleysi hefur aukist á Islandi. Sem
betur fer bendir flest til þess að þær aðgerðir
sem gripið var til í nóvember síðastliðnum hafí
verulega hægt á atvinnuleysisvextinum," sagði
Davíð.
Getiunekki
skoríð aflann
meira niður
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði
við eldhúsdagsumræður á Alþingi í gær
að við gætum ekki skorið afla meira
niður en þegar hefði verið gert.
„Það þýðir hæga en örugga uppbyggingu
þorskaflans ef marka má upplýsingar Haf-
rannsóknastofnunar á síðastliðnu ári,“
sagði Davíð. „Ljóst er að við erum að byggja
veiðistofninn upp og getum ekki tekið
stærri dýfur en við höfum þegar tekið,"
sagði forsætisráðherra ennfremur.