Morgunblaðið - 26.05.1993, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1993
Skák
Margeir Pétursson
NIGEL Short vann Indverjann
Vyswanathan Anand í síðustu
umferð á minningarmótinu um
Max Euwe í Amsterdam sem
lauk nýlega og náði þar með
efsta sæti. Keppendur á mótinu
voru aðeins fjórir. Þeir Short,
Anand og Kramnik hlutu allir
þrjá og hálfan vinning af sex
mögulegum, en heimamaður-
inn Piket rak lestina með einn
og hálfan vinning. Short telst
þó sigurvegari á stigum, því
hann lagði bæði Anand og
Kramnik að velli. Short byrjaði
hörmulega á mótinu, fékk von-
lausa stöðu strax í byijuninni
gegn Kramnik í fyrstu umferð.
Það er einmitt stærsti kostur
Shorts hvað mótlæti er hvetjandi
fyrir hann og á það mun örugg-
lega reyna í einvíginu við Ka-
sparov í haust. í úrslitaskákum
teflir Englendingurinn líka ískalt
og yfirvegað eins og Anand fékk
að reyna í Amsterdam.
Þessi endasprettur Shorts kem-
ur á besta tíma fyrir hann og
skipuleggjendur einvígisins í
London. Nái Short að sýna allar
sínar bestu hliðar og haldi hann
í við Kasparov fram yfir mitt ein-
vígi er aldrei að vita hvað gerist.
Úrslitaskákina við Anand tefldi
Short af gífurlegum sigurvilja og
hörku:
Hvítt: Nigel Short
Svart: Vyswanathan Anand
Rússnesk vörn
I. e4 - e5, 2. Rf3 - Rf6, 3.
Rxe5 — d6, 4. Rf3 — Rxe4, 5.
d4 - d5, 6. Bd3 - Rc6, 7. 0-0
- Be7, 8. c4 - Rb4, 9. Be2 -
Be6, 10. Rc3 - 0-0, 11. Be3 -
Bf5, 12. Re5!?
Þetta mun vera nýr leikur í
stöðunni en Hiibner lék 12. Hcl
gegn Timman í áskorendaeinvígi
þeirra 1991.
12. - Bf6, 13. g4 - Be6, 14. f4
— Rxc3, 15. bxc3 — Rc6, 16.
Bf3 - Bxe5, 17. dxe5!?
Leggur út í miklar flækjur.
Eftir 17. fxe5 - Re7, 18. Bg5
c6 hefði svartur trausta stöðu.
Nú býður Short upp á peðsfóm,
en eftir 17. — dxc4, 18. f5 Bd7,
19. Bf4 hefur hann allgóðar bæt-
ur, svo Anand velur aðra leið.
Short er sterkur
í úrslitaskákum
Guðmundur Guðjónsson, landsmótsstjóri og Birgir Jónsson, úti-
bússtjóri Landsbankans á ísafirði, lengst til hægri, ásamt keppend-
um i yngri flokki
Helgi Áss Grétarsson, sigurvegari í eldri flokki, t.v., teflir við
Matthías Kjeld.
jafntefli í fyrstu umferð við Unnar
Þór Guðmundsson úr Borgamesi
og sá hálfi vinningur réði úrslitum
þegar upp var staðið.
Frá því landsmótin hófu göngu
sína hefur Landsbanki íslands
gert Skáksambandinu kleift að
halda landsmótin með þeim mikla
keppendaíjölda og glæsibrag sem
raun ber vitni. Af hálfu ísfirðinga
hafði Jón Bjömsson, kjördæmis-
stjóri skólaskákar, veg og vanda
af skipulagningu. Skákstjóri var
Haraldur Baldursson, en lands-
mótsstjóri var Guðmundur Guð-
jónsson. Úrslit urðu þessi:
Eldri flokkur, 13—16 ára:
1. Helgi Áss Grétarsson, Rvk 7'/2 v.
2. Amar E. Gunnarsson, Rvk 7‘/2 v.
3. Matthías Kjeld, Reylganesi Vh v.
4. Guðm. Daðason, Vestfj. 6‘/2 v.
5. Halldór I. Kárason, NL—A 5 v.
6. Erling Tómasson, Suðurlandi 4 v.
7. Bjöm Margeirsson, NL—V 3‘/2 v.
8. Vigfus Pétursson, Vesturl. 2 v.
9. Gunnar B. Jónsson, Austurl. l‘/2 v.
10. Ómar Ómarsson, Vestprðum 0 v.
Yngri flokkur, 12 ára og yngri
1. Jón V. Gunnarsson, Rvk 8‘A v.
2. Bergsteinn Einarsson, Rvk 8 v.
3. Einar H. Jensson, Reykjanesi 7 v.
4. Unnar Þ. Guðm.son, Vesturl. 6 v.
5. Bjöm Finnbogason, NL—A 5'/2 v.
6. Halldór Bjarkason, Vestfj. 4 v.
7. Guðjón Sveinsson, NL-V 3 v.
8. Einar H. Jónsson, Austurl. l'ú v.
9. Björgvin R. Helgason, Suðurl. 1 v.
10. Albert Skarphéðinss., Vestfj. Vrv.
Jóhann heillum horfinn
Jóhann Hjartarson hefur ekki
náð sér á strik á SKA-Mephis-
to-mótinu í Miinchen. í síðustu
þremur umferðunum hefur hann
tapað fyrir Mikhail Gurevich og
Artúr Júsupov, en gert jafntefli
við Adams. Staðan eftir sjö
umferðir er þessi:
1. M. Gurevich 5*/2V.
2-3. Gelfand og Shirov 5 v.
4-6. Adams, Barejev og Júsupov 4 v.
7. Lutz 3'/2 v.
8. Hiibner 3 v.
9. Lobron 2 Vi v.
10—11. Hertneck og Hiibner 2 v.
12. Jóhann Hjartarson U/2 v.
í síðustu umferðunum teflir
Jóhann við þá Hiibner, Lobron,
Lautier og Hertneck, sem einnig
hafa verið fjarri sínu besta og á
því góða möguleika á að bæta
stöðuna mikið.
Jón Viktor Gunnarsson, sigurvegari i yngri flokki, t.v., teflir við
Bergstein Einarsson.
á brott. 37. Kf2? gekk hins vegar
ekki vegna 37. — Rg6. Anand sér
sig knúinn til að grípa til örþrifa*
ráða, en þau leiða strax til taps.
37. - h6?, 38. gxh6 - Hh8,
39. He4 - Kf6, 40. e7 - Kxf5,
41. Hxe5+ og svartur gafst upp.
Úrslit á landsmóti
skólaskákar
Úrslit á landsmóti í skólaskák,
því fimmtánda í röðinni fóru fram
dagana sjötta til níunda maí í fé-
lagsmiðstöð Grunnskóla ísafjarð-
ar. Teflt var í tveimur aldursflokk-
um og voru keppendur af höfuð-
borgarsvæðinu sigursælir. Helgi
Áss Grétarsson úr Breiðholtsskóla
vann nauman sigur í eldri flokki
og Jón Viktor Gunnarsson, Hvas-
saleitisskóla, sigraði í yngri flokki.
Þúsundir skólabama og unglinga
hófu keppni víðsvegar um landið
en eftir skólamót, sýslumót og
kjördæmismót stóðu tíu keppend-
ur uppi í hvorum flokki 0g reyndu
þeir með sér á ísafírði.
Það kom mjög á óvart að Helgi
Áss Grétarsson þurfti að hafa
mikið fyrir sigri sínum í eldri
flokki. Hann tapaði óvænt fyrir
Amari E. Gunnarssyni og mátti
teljast heppinn að komast í auka-
keppni við þá Amar og Matthías
Kjeld. í henni gaf Helgi engin
grið og vann þá báða.
í yngri flokki vann Jón Viktor
Gunnarsson ömggan sigur, gerði
aðeins jafntefli við Bergstein Ein-
arsson, Breiðholtsskóla, sem varð
annar. Bergsteinn gerði einnig
17. — d4!?, 18. cxd4 — Bxc4,
19. d5!
Short verður að fórna skipta-
mun til að halda fmmkvæðinu.
• b c d • » q h
19. - Re7, 20. Bc5 - Bxfl, 21.
Kxfl - Dd7
Eftir 21. - He8, 22. f5! hefur
hvítur einnig góðar bætur.
22. Db3 - b6, 23. Ba3 - Hae8
Ákveður að gefa skiptamuninn til
baka, en svo virðist sem Anand
hafi vanmetið 25. leik hvíts.
24. Hdl - Rg6, 25. e6! - Dd8,
26. f5 - Re5, 27. Be2 - Dh4,
28. Dg3 - Dxg3, 29. hxg3 -
fxe6, 30. Bxf8 — Kxf8, 31. dxe6
- Ke7, 32. g5!
Hindrar svart í að skorða með
3f2. — h6. Vegna frípeðsins á e6
hefur hvítur nú góða vinnings-
möguleika.
32. - c6, 33. g4 - g6, 34. Hd4
- gxf5, 35. gxf5 - Hf8, 36. Hf4
- b5, 37. Kel
Hótar að fara með kónginn alla
ieið til e4 og stökkva riddaranum
Dragtir
Kjólar
Blússur
Pils
Ódýr náttfatasett
Mmmm
i 12, simi 44433.
1
LEGSTEINAR
UMEIM7
720 Borgarfirði eystra,
sími 97-29977, fax 97-29877
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Ingiríður Sveinbjöms-
dóttir — Minning
Fædd 24. desember 1908
Dáin 15. maí 1993
•Mig langar til þess að minnast
hennar ömmu minnar, Ingiríðar
Sveinbjömsdóttur, í fáeinum orðum.
Inga amma fæddist 24. desember
1908 í Geirshlíðarkoti í Flókadal
sem nú heitir Giljahlíð, en henni var
mikið í mun að eldra nafnið félli
ekki í gleymsku. Hún var ein af
fimm bömum hjónanna Sveinbjam-
ar Sveinssonar og Guðlaugar Ingi-
mundardóttur, afkomanda Snorra á
Húsaelli.
Hún giftist Sigurði Daníelssyni
frá Skarðshóli í Miðfirði árið 1942,
en þá hafði hún þegar eignast föður
mihn, Hilmar bifreiðastjóra í
Reykjavík, fæddan 1936, með Guð-
mundi Þorkelssyni sjómanni í
Reykjavík. Með Sigurði eignaðist
hún svo þrjú börn, Gylfa bifreiðar-
stjóra í Reykjavík, fæddur 1942,
Svein bónda á Indriðastöðum í
Skorradal, fæddur 1947 og Guð-
laugu starfsstúlku í Reykjavík,
fædda 1952. Fyrstu búskaparárin
bjuggu amma og Sigurður á Skarðs-
hóli, þaðan sem Sigurður var ættað-
ur, en árið 1945 fluttust þau að
Indriðastöðum í Skorradal og
bjuggu þar allan sinn búskap síðan.
Sigurður lést árið 1973 og stuttu
seinna fluttist amma til Reykjavík-
ur.
Fyrsta minning min um samveru-
stundir okkar ömmu er frá því að
ég var hjá henni lítil hnáta í sveit-
inni á Indriðastöðum og hún söng
mig í svefn þar sem ég lá innan um
allar dúkkurnar hennar Gullu
frænku. í sveitinni opnaðist mér,
borgarbaminu, ævintýraheimur. Ég
man þegar ég fór með ömmu í
hænsnakofann 0g fjósið, út á tún í
heyskap eða í gönguferðir upp í fjall.
En best man ég þó eftir henni í eld-
húsinu þar sem ég skottaðist í kring-
um hana eða hjálpaði henni við að
skera og baka kleinur. Það var oft
gestkvæmt á heimilinu og mikið að
gera, en amma var dugnaðarforkur
og féll henni sjaldan verk úr hendi.
Ég á margar góðar minningar frá
þessum árum og alltaf vakti amma
yfir velferð minni þessi björtu
bernskusumur.
Þegar ég var níu ára fluttist
amma til Reykjavíkur og það er nú
svo, þótt undarlegt sé, að í erli dags-
ins gefur maður sér allt of sjaldan
tíma til að heimsækja þá sem næst
manni búa. Þannig urðu samveru-
stundir okkar ömmu færri eftir að
hún fluttist suður. Samt þótti mér
alltaf jafn notalegt að koma til henn-
ar, fá kaffisopa og kleinur, spjalla
og fá fréttir af ættingjunum, því
að amma fylgdist alltaf vel með því
sem gerðist í kringum hana.
Amma var aldrei sátt við að flytj-
ast á mölina og saknaði sveitarinnar
alla tíð. í Reykjavík hélt hún lengst
af heimili með Guðlaugu dóttur sinni
sem reyndist henni vel til hinstu
stundar. Seinni árin þjáðist amma
af slæmum asma og gerði það henni
lífið mjög erfitt. Hún tók því þó eins
og öðru mótlæti því að lífið fór ekki
alltaf mjúkum höndum um hana
ömmu mína. Hún bar sig þó jafnan
vel og sótti styrk til æðri máttar-
valda því að hún var trúuð kona.
Það er mér mikils virði að amma
skyldi lifa það að sjá son minn og
þótt hann sé ungur að árum "ona
ég að hann geymi einhverja minn-
ingu um Ingu ömmu.
En nú er komið að leiðarlokum,
samverustundirnar verða ekki fleiri.
Eftir lifir minningin um góða ömmu.
Blessuð sé minning hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Hrönn Hilmarsdóttir.