Morgunblaðið - 15.06.1993, Síða 1
64 SIÐUR B
132. tbl. 81.árg.
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hæstiréttur
Bandaríkjanna
Clinton
tilnefnir
Ginsburg
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hefur tilnefnt Ruth Bader Gins-
burg, dómara hjá áfrýjunardóm-
stól í Washington, sem hæstarétt-
ardómara. Mun hún leysa dómar-
ann Byron White af hólmi, sem
lætur af störfum fyrir aldurs sak-
ir. Ginsburg er önnur konan sem
tilnefnd er til Hæstaréttar.
Þetta er í fyrsta
skipti sem demó-
krati fær tækifæri
til að tilnefna
hæstaréttardómara
frá því Lyndon B.
Johnson tilnefndi
Thurgood Marshall.
Clinton hefur
leitað að heppileg-
um dómara í þrjá mánuði og var
Stephen Bryer, dómari í Boston, tal-
inn líklegastur til að hreppa hnossið.
Um helgina kom hins vegar í ljós
að Bryer hafði í tíu ár láðst að greiða
launatengd gjöld starfsmanns er ráð-
inn var til vinnu á heimili hans og
var óttast að ályktanir um tvöfalt
siðgæði skytu upp kollinum ef þessar
staðreyndir kæmu í ljós og forsetinn
stæði fast við tilnefninguna.
Ginsburg, sem er sextug, er talin
vera miðjumaður.
Ginsburg
ÞÚSUNDIR manna biðu í dögun í gær eftir því
að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu sem gæti
bundið endi á 30 ára einræði Hastings Kamuzu
Banda, 96 ára, „lífstíðarforseta" í Malaví. Kjós-
endur sögðu hug sinn með því að velja milli
tveggja blaða, því 58,8% íbúa eru ólæs. Á öðru
var mynd af svarta hananum, sem er merki
Banda gegn Banda
stjórnarinnar, og á hinu olíulukt, sem er merki
iýðræðissinna. Dagblöð hliðholl stjórnarandstöð-
unni hafa sprottið upp eins og gorkúlur undan-
fama daga. í einu þeirra, New Express, sagði
„Svarti haninn jarðaður 14. júní“. Fyrir
skemmstu hefðu slík skrif varðað frelsissviptingu
um óákveðinn tíma. Leiðtogi lýðræðissinna, Aleke
Reuter.
Banda, óskyldur forsetanum, sat inni í 12 ár því
einhver stakk upp á honum sem hugsanlegum
eftirmanni Hastings Banda. Lýðræðissinnar eru
sigurvissir og segja engan vafa á að þeir muni
sigra, einungis leiki vafi á hversu miklir yfírburð-
irnir verði. Þegar kjörstöðum var lokað í gær
höfðu báðir flokkarnir hrósað sigri opinberlega.
Tugir falla
í Gorazde
Sar^jevo. Reuter.
ÚTVARP múslima í Sarajevo
sagði í gær að 69 manns hefðu
farist í stórskotaliðsárásum
Serba á bæinn Gorazde undan-
farinn sólarhring og tugir til við-
bótar særst.
Bærinn er eitt af sex „griðasvæð-
um“ undir vemd Sameinuðu þjóð-
anna en talsmaður á vegum SÞ
sagði í gær að friðargæsluliðum
hefði verið meinað að fara til
Gorazde. SÞ mæltu í gær með að
7.500 hermenn til viðbótar yrðu
sendir til Bosníu en framkvæmda-
stjóri samtakanna telur nauðsyn á
34 þúsund til viðbótar.
Bandaríkjamenn halda áfram sprengjuárásum á stöðvar Aideeds
Árásir friðargæsluliða
harðlega gagnrýndar
Mogadishu, Vín. Reuter.
ALÞJÓÐLEGAR hjálparstofnanir hafa fordæmt árásir frið-
argæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Mogadishu, höfuðborg Sómal-
íu, og sérstaklega skotárás pakistanskra hermanna á sunnudag.
Þá-féllu 20 Sómalir, þar á meðal konur og börn. Talsmenn Sam-
einuðu þjóðanna halda þvi fram, að sómalskir byssumenn hafi
orðið fyrri til að skjóta en skýlt sér á bak við óbreytta borgara.
Bandarískar fallbyssu- og árás-
arþyrlur héldu áfram árásum á
vopnabúr Mohammeds Farah Aide-
ed, helsta stríðsherrans í Mogadishu,
í gær. Háttsettur bandarískur emb-
ættismaður sagði fleiri bandarískar
herþyrlur vera á leið til landsins og
Þrettán ára deilu Dana og Norðmanna um Jan Mayen lokið
Málamiðlun í Haag
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EFTIR þrettán ára deilur Norðmanna og Dana um hvar draga eigi
mörkin milli Grænlands og norsku eyjunnar Jan Mayen kvað al-
þjóða dómstóllinn í Haag upp dóm í gær. Niðurstaðan er málamiðl-
un milli danskra og norskra sjónarmiða. Efnahagslegum rökum
Dana er hafnað, en ekki er heldur að fullu tekið tillit til kröfu
Norðmanna um miðlínu.
Danir höfðuðu málið fyrir hönd
Grænlendinga. Krafa þeirra var að
viðurkennd yrði 200 mílna land-
helgi allt í kring um Grænland og
þá einnig milli þess og Jan Mayen.
Rökin voru þau að svæðið væri
mikilvægt fyrir Grænlendinga, en
hins vegar væri engin raunveruleg
búseta á Jan Mayen, því þar reka
Norðmenn aðeins veðurathugunar-
stöð og þar búa að jafnaði um 25
manns. Einnig bentu Danir á að
Norðmenn stæðu mun sterkar en
Grænlendingar efnahagslega og
ættu því lítilla hagsmuna að gæta
á svæðinu, miðað við þá.
í niðurstöðum dómsins var þess-
um efnahagslegu rökum hafnað og
sömuleiðis að búsetan skipti máli.
Hins vegar var fallist á landfræði-
leg rök Dana, að því leyti að tekið
var tillit til stærðar Grænlands á
móti hve eyjan Jan Mayen væri lít-
il. Niðurstaðan er sú að línan er
dregin milli 200 sjómílna og mið-
línu. Af því 65 þúsund ferkílómetra
svæði sem á milli bar hljóta Danir
30 þúsund ferkílómetra svæði, en
Norðmenn 35 þúsund. Þó svæði
Dananna sé minna fá þeir loðnu-
veiðisvæðið. Svæði Norðmanna er
hins vegar ekki talið auðugt.
yrði árásunum haldið áfram. Aideed
sakaði hins vegar SÞ um „þjóðar-
morð“ í gær.
Ýmsar alþjóðlegar hjálparstofn-
anir hafa gagnrýnt árásir friðar-
gæsluliðs SÞ í Sómalíu og ein þeirra,
CARE, sem Bandaríkjastjórn fjár-
magnar að mestu, fordæmdi þær
mjög harðlega í gær. Sögðu talsmenn
hennar, að með þeim væri verið að
gera allt hjálparstarf í landinu
ómögulegt og snúa fólkinu til liðs
við stríðsherrana.
Kelvin McGovern, aðstoðaryfir-
maður herliðs Sameinuðu þjóðanna
í Sómalíu, sagði hins vegar í gær,
að byssumenn Aideeds hefðu skotið
fyrstu skotunum að pakistönsku her-
mönnunum og skýlt sér á bak við
konur og börn. Þá sagði hann, að
sumir þeirra, sem féllu á sunnudag,
hefðu orðið fyrir skotum, sem komu
annars staðar frá. Vitni að blóðbað-
inu segja aftur á móti, að pakist-
önsku hermennirnir hafí látið vél-
byssuskothríðina dynja á fólkinu
hvað eftir annað.
Árásir fallbyssuþyrlna á vopna-
búrin hófust í fyrrinótt. Er aðeins
vitað um einn mann, ungan dreng,
sem lét lífið í árásunum.
J