Morgunblaðið - 15.06.1993, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993
Miðar seld-
ir á allt að
8.000 kr.
UPPSELT var á tónleika banda-
risku rokkhljómsveitarinnar Rage
Against the Machine í Kaplakrika
á laugardagskvöld. Nokkrir buðu
miða til sölu á hærra verði þegar
nær dró tónleikum.
Mikil ásókn var í miða á tónleik-
ana og seldist upp á þá á föstudag.
Á laugardag bar nokkuð á því að
miðar væru seldir á hærra verði og
dæmi voru um að viðurkenndir sölu-
aðilar seldu ósóttar pantanir á hærra
verði, um 3.500 kr., en miðinn kost-
aði 2.500 kr. hjá Listahátíð Hafnar-
íjarðar. Verðið hækkaði svo eftir því
sem leið að tónleikunum og skömmu
áður en hljómsveitin átti að byija
leik sinn seldist miði á 8.000 krónur
fyrir utan íþróttahúsið, 5.500 kr.
hærra verði en miðinn kostaði.
Sjá frásögn af tónleikunum,
„Ýkt stuð“ á bls. 12.
» »-■♦----
Kærður fyr-
ir nauðgun
KONA kærði í gærmorgun mann
á fertugsaldri fyrir nauðgun i
húsi í Reykjavík þar sem bæði
voru gestkomandi í samkvæmi.
Málið er til rannsóknar hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. í gær fóru
fram yfirheyrslur yfir manninum,
konunni og vitnum.
Síðdegis í gær lá ekki fyrir hvort
óskað yrði gæsluvarðhalds yfir
manninum.
Morgunblaðið/Alfons
ÓTTAR Guðlaugsson, skipstjóri á dragnótar-
bátnum Auðbjörgu SH, og áhöfn hans hafa
ástæðu til að vera ánægðir með aflabrögðin. í
gær komu þeir inn með 25 til 27 tonn af góð-
um þorski, sem þeir fengu í einu kasti. Aflinn
í síðasta túr þar á undan var 20 tonn af þorski
og slatti af kola. Þó eitthvað þyrfti að kasta
oftar þá, voru menn ánægðir, en mest fengust
um 5 tonn af þorski í kasti. Þeir afrekuðu reynd-
ar meira þá, því einn af fjölmörgum trillukörlum
á Breiðafirði renndi upp að þeim og bað um
aðstoð við að ná öngli úr fingrinum á sér, en
hann hafði gengið í gegnum hann. Rafn Guð-
laugsson, stýrimaður, brá sér í læknishlutverk-
ið og deyfði trillukarlinn áður en hann skar
öngulinn úr fíngrinum. Var honum síðan boðið
í kaffi og með því hjá Sigga kokki. Að því loknu
hélt trillukarlinn út á ný með nýja vettlinga
og sagði að hann treysti Rafni og félögum fyr-
ir hjartauppskurði.
María fær
tilboð um
hlutverk
hjá Disney
„EF SAMNINGAR nást þá verð-
ur lítið um langþráð sumarleyfi
á íslandi, þvi ég verð þá að drífa
mig á íshokkínámskeið í Los
Angeles," segir María Ellingsen,
leikkona. Henni barst fyrir fá-
einum dögum tilboð um að leika
í unglingakvikmyndinni „The
Mighty Ducks“, sem er framhald
kvikmyndarinnar „The Champi-
ons“, eða Sigurvegararnir. Em-
ilio Ezsteves leikur aðalhlut-
verkið í þeirri mynd og einnig í
framhaldsmyndinni. Framleið-
andi er Disney kvikmyndafyrir-
tækið.
„íslendingar koma við sögu í
myndinni hvort sem ég kem til með
að leika i henni eða ekki,“ sagði
María. „Fyrri myndin segir frá
krökkum úr fátækrahverfí og ís-
hokkíþjálfaranum þeirra. í fram-
haldsmyndinni skipa krakkamir
unglingalandslið Bandaríkjanna í
greininni og eiga nú að keppa við
Leikur María Maríu?
EF AF samningum verður, leik-
ur María Ellingsen íslenska
nöfnu sína í Disneymyndinni.
sjálfa heimsmeistarana, hina al-
ræmdu íslensku Víkinga.
Maríu er boðið að leika hlutverk
aðstoðarþjálfara íslenska liðsins,
sem er „íslenskur" eins og þjálfar-
inn. „Svo virðist sem hugmynda-
flug handritshöfundanna hafí ekki
náð lengra en að nefna þessar per-
sónur eftir þeim tveimur íslending-
um sem þeir könnuðust við í kvik-
myndagerðinni í Los Angeles, Jonni
eftir Siguijóni Sighvatssyni og
María eftir Maríu Ellingssen,"
sagði leikkonan í gær.
María segir skýrast endanlega á
næstu dögum hvort hún leiki í
myndinni, en kvikmyndatökur hefj-
ast í Los Angeles þann 7. júlí nk.
í dag
Hestamót Geysis________________
Nýtt form á gæðingakeppni reynt
í fyrsta sinn 34
Islenskur skinnaiðnaóur
Nýir rekstraraðilar og stöðugiidum
fækkar um 50 22
Vatnaskil í Tyrklandi
Tansu Ciller fyrsta konan til þess
að gegna staríi forsætisráðherra í
landinu 24
teiöari________________________
Stefnufesta í stað glundroða 26
íþróttir
► Úlfar sigraði í bráðabana á
stigamóti í golfi - Þrjú íslands-
met á Evrópubikarmótmu í
fijálsíþróttum - Phoenix lagaði
stöðuna í keppninni gegn
Chicago.
Vinnuafl eykst í OECD en samdráttur á íslandi
Arsverkum fækkaði
um 7.000 sl. sex ár
Aukning vinnuafls í OECD-löndum
1960-94
Árið 1960 er sett á 100
“O—o
ÍSLAND,-
1960-1993
Áætlaö
Vísitala
- 240
Heimild: OECD og
Þjóðhagsstofnun
Ástralía/
Nýja Sjáland
— 160
EB-lönd
- 100
VINNUAFL á íslandi hefur dreg-
ist umtalsvert saman á síðastliðn-
um sex árum á sama tima og
vinnuafl hefur aukist í OECD-
löndunum en vöxtur þess hefur
verið hvað mestur í Bandai íkjun-
um, á Nýja Sjálandi, í Ástralíu og
Japan. Aukning vinnuafls á ís-
landi var mjög ör frá 1960 og fram
yfir miðjan síðasta áratug, sem
er einhver mesti vöxtur sem átti
sér stað í ríkjum OECD til lengri
tíma litið. Samdrátturinn á síðast-
liðnum sex árum svarar til um
7.000 ársverka en það er fækkun
úr um 132.000 ársverkum í
125.000.
Þessar staðreyndir eru ein af skýr-
'ingum á því atvinnuleysi sem við er
að glíma um þessar mundir að sögn
Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar.
Þórður benti á að á íslandi hefur
verið stöðnun og samdráttur í þjóðar-
búskapnum alveg frá árinu 1987.
Var ríkjandi kyrrstaða frá 1988 til
ársloka 1991 en síðan hefur verið I
samdráttur í efnahagslífinu bæði á
síðasta ári og á þessu ári. Á sama |
tíma var tiltölulega ör hagvöxtur í
OECD fram til ársins 1991, en nú
hefur hægt á honum.
ísland í 7. sæti eftir sig-
ur á Þýskalandi í brids
Menton, Frakklandi. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunbiaðsins.
ÍSLENSKA liðið vann það þýska 25-5 i 4. umferð opna flokksins á
Evrópumótinu í brids í gærkvöldi en mótið hófst á sunnudag í Menton
í Frakklandi. Þá komust Hjördís Eyþórsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir
í 28 para úrslit í Evrópumóti kvenna í tvímenningi.
spilaður af íslands hálfu og íslenska
liðið vann báða hálfleiki með tals-
Eftir fjórar umferðir er íslenska
liðið í 6.-7. sæti ásamt Bretum með
72 stig. Frakkar eru efstir með 84
stig, Svisslendingar voru í öðru sæti
með 83 stig, Pólveijar í 3. sæti með
81 stig og Danir og Tyrkir í 4.-5.
sæti með 79 stig.
Leikurinn við Þjóðveijana var vel
verðum mun. Jón Baldursson, Sævar
Þorbjörnsson, Guðmundur Páll Arn-
arson og Þorlákur Jónsson spiluðu
allan leikinn. í dag spilar ísland við
San Marino og ísrael.
Alls tóku 128 kvennapör frá aliri
Evrópu þátt í undankeppni tvímenn-
ingsins. Þær Ljósbrá og Hjördís end-
uðu í 9. sæti en 28 pör komust áfram
í úrslitakeppnina. Margar þekktár
bridskonur komust ekki áfram í úr-
slitin, þar á meðal nokkrar landsliðs-
konur Frakka sem eru fýrrverandi
Evrópumeistarar í kvennaflokki. Tví-
menningskeppninni lýkur í kvöld en
Evrópumót kvenna í sveitakeppni
hefst á morgun.
Sjá bls 51. „Sigur vannst ...“