Morgunblaðið - 15.06.1993, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993
Morgunblaðið/Þorkell
Ýkt stuð
Bandaríska rokkhljómsveitin Rage
Against the Machine tryllti ung-
menni í Kaplakrika á laugardag
Tónlist
Ami Matthíasson
LANGT er síðan erlend hljóm-
sveit hefur komið hingað til tón-
leikahalds eins tímanlega og
bandaríska rokksveitin Rage
Against the Machine. Yfirleitt
hafa menn reynt að laða hingað
sigldar og sjóaðar rokksveitir
og oftar en ekki svo sjóaðar að
löngu er tekið að slá í líkið í
lestinni. Rage Against the Mac-
hine, sem lék í Kaplakrika á
Listahátíð Hafnarfjarðar, hafði
hinsvegar allt til að bera til að
vekja áhuga ungmenna; dulúð,
spennandi ímynd, skoðanir í
haugum, hráa en þó aðgengilega
tónlist og ekki síst er sveitin
spegilmynd uppreisnargjarnra
unglinga, sem treysta sér ekki
til að gleypa valdakerfi fullorð-
inna í heilu lagi.
Áhugi fyrir tónleikum Rage Aga-
inst the Machine var mikill þegar
og spurðist að sveitin væri væntan-
leg og þó miðasala hafi farið rólega
af stað gat aldrei leikið vafi á því
að uppselt yrði, eins og allir geta
vitnað um sem á annað borð eiga
samskipti við ungmenni; allir og
vinir þeirra ætluðu að fara. Þegar
dró að tónleikunum var ljóst sem
vonlegt var að ekki kæmust allir inn
og hófst þá svartamarkaðsbrask
með tónleikamiða sem er næsta
sjaldgæft hér á landi. Þar voru helst
á ferð þeir sem voru tii í að sleppa
Rage-tónleikum fyrir einhveija þús-
undkalla, en á milli voru opinberir
söluaðilar, ef marka má fréttir, sem
þannig brugðust trausti viðskipta-
vina sinna og umbjóðenda. Eftir því
sem leið að tónleikunum á iaugar-
dag hækkaði miðaverð og fregnir
bárust af því að skömmu áður en
Rage Against the Machine átti að
bytja leik sinn seldist miði á 8.000
krónur fyrir utan íþróttahúsið,
5.500 kr. hærra verði en miðinn
kostaði hjá Listahátíð.
Mergðin í íþróttahúsinu var gríð-
arleg, svo mikil reyndar að um
stund efaðist maður um að svo
mörgum mætti koma inn í húsið.
Líklega hafa gestir verið ríflega
4.000 og ösin gríðarleg. Áhorfend-
ur voru greinilega allir komnir til
að skemmta sér og það af alefli.
Vín sást víða, en þó líta mætti draf-
andi og slagandi ungmenni, er eins
víst að áfengi í blóði hafi ekki ver-
ið mælanlegt hjá öllum sem þannig
létu; frekar að spenningurinn, hit-
inn og sefjunin hafí ölvað við-
stadda. Öl! gæsla var með ágætum
- framan af.
Rage-liðar hófu leik sinn um kl.
22.00. Um það leyti var mátti skera
spennuna í loftinu með hníf, eða
kannski var það bara hita- og svita-
stækjan sem skera mátti, því hitinn
var nánast óbærilegur. Loftræsi-
kerfi hússins hefur líkast til aldrei
lent í annarri eins raun og réð
ekki við neitt - allir sem ekki voru
sprottin úr svonefndu hardcore-
rokki og þar, líkt og í flestum geir-
um harðrar tónlistar, tíðkast að
áheyrendur hlaupa upp á svið í
algleymi og stökkva fram af svið-
inu út i þvöguna. Að fylgjast með
slíku er eftirminnilegt, en þetta
atferli, sem ekki er hættulaust,
kom gæsluliðum í opna skjöldu -
kannski áttu þeir frekar von á sett-
legum barnatónleikum - og ekki
er laust við að hrollur hafi farið
um mann að sjá hvaða tökum þeir
beittu þá sem voru of sprækir. I
lok tónleikanna var söngvaranum,
Zack de la Rocha, greinilega nóg
boðið og hann skarst í leikinn og
bjargaði einum gesta úr klóm
gæslumanna, með herkjum þó. Á
milli þess sem gæslumenn tókust
fangbrögðum við þá tónleikagesti
sem skemmtu sér um of stóðu þeir
í ströngu við að draga upp úr þvög-
unni þá sem ekki þoldu hitann,
spennuna og það að hafa 4.000
manns á bakinu.
Rage-liðar fóru á kostum, þó
Tom Morello gítarleikari hafi verið
fremstur meðal jafningja, enda með
1' "
1 ■
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
meira eða minna berir urðu
snemma rennvotir og svitinn rann
af veggjunum. Það lét þó enginn
slíkt á sig fá og ekki var að merkja
að hitinn tálmaði hreyfingum, því
um leið og fyrstu tónamir heyrðust
trylltust viðstaddir og voru þó æst-
ir fyrir. Fyrsta lag Rage-liða er
dæmigert fyrir sveitina, Take the
Power Back, þar sem sveitarmenn
lýsa heilögu stríði á hendur vest-
rænu menntakerfi og í því stríði
séu ýmis vopn leyfileg. Áheyrendur
kunnu boðskapnum vel og ekki síð-
ur næsta lagi, Bombtrack, sem er
enn magnaðra. Stígandin í leik
hljómsveitarinnar eftir því sem liðs-
mönnum hennar hitnaði í hamsi
átti sér samsvörun í sefjun áheyr-
enda.
Rage Against the Maehine er
skemmtilegustu gítarleikurum sem
hér hafa sést á sviði. Rótarar fengu
meira að segja að spreyta sig í
laginu Bullet in the Head eftir að
Zack flutti magnaða einræðu um
Flóabardaga. Alls lék Rage Aga-
inst the Machine tíu lög, öll af sam-
nefndri plötu hljómsveitarinnar
utan eitt, Darkness of Greed, sem
er bara til á smáskífu, og ellefta
lagið, Freedom, kom í uppklappi.
Við útgöngudyrnar stóðu nokkr-
ir foreldrar að sækja börn sín og
margir ansi þungbrýndir, enda
komu flestir skjögrandi og ringlað-
ir út, en hjá velflestum var það
bara af gleðivímu og allir úrvinda
eftir magnaða tónleika, eða eins
og ung stúlka sagði dösuð við vin-
konu sína í tröppunum á leið út:
„Ýkt stuð.“
Sex nemendur hlutu
styrk úr Söngvara-
sjóði óperudeildar FIL
SEX söngnemendur hlutu styrk
úr Söngvarasjóði óperudeildar
FÍL, 100.000 krónur hver.
Þeir nemendur sem hlutu styrk
eru; Aðlsteinn Einarsson bassi.
Söngskólinn í Reykjavík. Kenriarar
Guðmundur Jónsson og Kristinn Sig-
mundsson. BA próf frá Tónlistarhá-
skólanum í Bloomington Indiana.
Hann stundar nú nám við óperudeild
Tónlistarháskólans í Maryland í
Bandaríkjunum.
Björn I. Jónsson tenór. Hann lauk
8. stigi frá Söngskólanum í Reykja-
vík. Kennari Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir. Mun Björn hefja nám við
Trinity College í London í haust.
Hann Dóra Sturludóttir sópran.
Hún lauk 8. stigi frá Söngskólanum
í Reykjavík. Kennarar Kristinn Sig-
mundsson og Snæbjörg Snæbjarn-
ardóttir. Hanna Dóra stundar nú
nám við Listaháskólann í Berlín.
Hlín Pétursdóttir sópran. Ein-
söngvarapróf frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík. Kennari Sieglinde Ka-
hmann. Hlín nemur nú við óperu-
deild Tónlistarháskólans í Hamborg.
Ingunn Ósk Sturludóttir mezzó-
sópran. Hún lauk 8. stigi frá Söng-
skólanum í Reykjavík. Kennarar
Ásrún Davíðsdóttir og Þuríður Páls-
dóttir. Ingunn Ósk stundar nú nám
við Sweelink Tónlistarskólann í
Amsterdam.
Tómas Tómasson bassi. Hann
lauk 8. stigi frá Tónlistarsskólanum
í Reykjavík. Kennari Elísabet Erl-
ingsdóttir. Tómas mun hefja nám
við óperudeild Royai College of
Music í London í haust.
Einn einsöngvari hlaut krónur
50.000 í styrk, en það er Signý
Sæmundsdóttir óperusöngkona. í
stjórn Söngvarasjóðs óperudeildar
FIL eru Elísabet Erlingsdóttir, Krist-
inn Hallsson og Júlíus Vífill Ingvars-
son.
Söngvarasjóður óperudeildar Fé-
lags íslenskra leikara styrkir efni-
lega söngnema til náms og starfandi
söngvara til frekari menntunar í list-
grein sinni. Skilyrði styrkveitingar
til söngnema er að umsækjandi hafi
lokið 8. stigi eða sambærilegri ment-
un í söng og hyggi á frekara nám
erlendis. Styrkur til einsöngvara er
ætlaður sem fararstyrkur til endur-
menntunar utanlands.
Það voru 25 manns sem sóttu um
styrk að þessu sinni. Stjórn sjóðsins
ákvað að skipta kr. 650.000 milli sjö
aðila.
Málmsuðusýning
SYNINGU Málmsuðufélags Is-
lands í Ráðhúsinu við Tjörnina á
verkum þriggja listamanna lýkur
næsta laugardag. Þar gefur að
líta málmmyndir Gríms Marínós
Steindórssonar, Sverris Ólafsson-
ar og Helga Gíslasonar.
Þeir hafa ekki sýnt saman áður
en haft samvinnu við málmiðnaðar-
menn um verk sín gegnum tíðina.
Sýningin í Ráðhúsinu verður opin
,út vikuna.
Málmsuðufélag íslands á tíu ára
afmæli á árinu og er sýningin haldin
í tilefni þess og í tengslum við nýaf-
staðinn fund norrænna málmsuðu-
manna. í félaginu eru bæði fyrirtæki
og menn sem starfa að málmiðnaði
og vilja stuðla að framþróun málms-
uðu með bættri upplýsingamiðlun af
ýmsu tagi og sameiningu verklegrar
og tæknilegrar þekkingar. Formaður
félagsins er Guðmundur Guðmunds-
son verkfræðingur í vélsmiðjunni
Norma.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Kammerhópurinn I
Salonisti með tónleika
KAMMERHOPURINN I
Salonisti er væntanlegur
til landsins dagana 19. -
23. júní nk. og mun halda
tvenna tónleika í Reykja-
vík, í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar á Laugarnesi,
sunnudaginn 20. júní kl.
14.30 og kl. 17. Félagarnir
munu einnig halda tón-
leika I Grunnskólanum á
Isafirði mánudaginn 21.
júní kl. 20.30 og í Safnað-
arheimilinu á Akureyri
þriðjudaginn 22. júní.
Kammerhópurinn I Salonisti.
I fréttatilkynningu segir: Mörg-
um er í fersku minni þegar I Salon-
isti hópurinn kom hingað á Listahá-
tíð í Reykjavík fyrir þremur árum
og hreif tónleikagesti með leik sín-
um. Þeir eru afar eftirsóttir víða
um lönd sakir afburða flutnings á
glaðværri og dillandi tónlist og frá
því þeir komu hingað síðast hafa
þeir meðal annars farið í árlegar
tónleikaferðir til Japan.
I Salonisti er kvjntett skipaður
svissneskum og ungverskum tón-
listarmönnum. Thomas Furi, sem
leikur á fyrstu fiðlu, er fæddur í
Bern og er fyrirliði virtra sviss-
neskra hljómsveita á borð við
Kammersveitina í Lausanne, Sin-
DEMANTAHU SIÐ
Sími 679944 • Borgarkfíflglunni og Faxafeni • sími 811300
Tvær skartgripaverslanir sem hafa eitt besta úrval handsmíðaðra skartgripa
úr gulugulli, hvítugulli og silfri með demöntum, perlum, eðalsteinum og
íslenskum steinum, trúlofunar- og giftingarhingar, perlufestar og perluarmbönd.
Verið velkomin. Gull- og silfursmiðirnir Stefán B. Stefánsson - Lára Magnúsdóttir.
fóníuhljómsveitina í Basel og
kammersveitina Camerata Bern.
Lorenz Hasler leikur á aðra fiðlu.
Hann er einnig svissneskur, fæddist
í Zurich og leikur í Sinfóníuhljóm-
sveitinni í Bern. Sellóleikarinn Fer-
enc Szedlák er ungverskur, fæddur
í Búdapest. Hann leikur og með
Sinfóníuhljómsveitinni í Bern og
kennir við Tónlistarháskóla borgar-
innar. Bela Szedlák, kontrabassa-
leikarinn, er sömuleiðis Ungverji,
fæddur i Búdapest. Hann er einn
af meðlimum Bernar-hljómsveitar-
innar og kennir að auki við Tónlist-
arháskólann. Werner Giger er
píanóleikari hópsins. Hann er sviss-
neskur, fæddur í Solothum og kem-
ur víða fram sem einleikari, bæði
heima fyrir og í öðrum löndum
Evrópu.
Á efnisskrá I Salonisti að þessu
sinni verður evrópsk salontónlist,
tónlist eftir Leonard Bernstein og
suðuramerískir tangóar. Forsala
miða á tónleikana í Listasafni Sig-
urjóns Olafssonar er hafin og er á
opnunartímum safnsins, laugar-
daga og sunnudaga kl. 14-18 og
mánudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga kl. 20-22.