Morgunblaðið - 15.06.1993, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 15.06.1993, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993 Dagur frá Búlandi og Þormar Andrésson sigruðu í A-flokki af miklu öryggi. Oddur frá Selfossi sýndi góð tilþrif á skeiði og hlaut að launum 9,0, knapi er Einar Oder Magnússon. Hestamót Geysis Sigurvegararnir allir með svipaða einkunn Nýtt form á gæðingakeppni reynt í fyrsta sinn Hestar Valdimar Kristinsson Geysismenn líta fram á veginn og eru óhræddir við að prófa nýjungar í háalvarlegri gæð- ingakeppni. Um helgina reyndu þeir nýtt form á gæðingakeppn- inni þar sem fj'órir hestar voru inn á velliijum í einu í forkeppn- inni og dómarar gáfu upp eina heildareinkunn. Var riðið eftir skipun þular og tónlist leikinn undir. Virtust menn almennt ánægðir með þessa tilraun sem sparar augljóslega tíma. Hug- mynd að þessari útfærslu mun runnin undan rifjum hins sífrjóa hugsuðar Sigurðar Har- aldssonar í Kirkjubæ. Dómar- arnir þeir Eysteinn Leifsson, Guðmundur Hinriksson óg Hafliði Halldórsson töldu þetta mjög góða hugmynd sem mætti fínpússa en bentu á í léttu gríni að laun dómaranna stórlækk- uðu með þessu fyrirkomulagi. Athygli vakti að allir sigurvegarar í gæðingakeppni fullorðinna, barna og unglinga voru með svo til sömu einkunnina 8,40 og 8,41. I B-flokki sigraði Bylgja frá Stekkjardal og Kristjón Kristjáns- son með 8,41. A-flokkinn unnu hinsvegar Dagur frá Búlandi og Þormar Andrésson með 8,40. Sig- ur þessara beggja hrossa var mjög sannfærandi í úrslitunum. Í barna- flokki sigraði Erlendur Yngvason á hinum margverðlaunaða gæðing Fána frá Hala með 8,40 og ungl- ingaflokkinn sigraði Sigríður The- ódóra Kristinsddóttir á Dúfu frá Hofsstöðum í Skagafirði. Sömu sögu var að segja í þessum flokk- um Erlendur og Sigríður voru hin- ir öruggu sigurvegarar. Lækkandi einkunnir Ekki er hægt að skilja svo við börn og unglinga án þess að geta þess hve vel ríðanda þau voru, allir keppendur í úrslitum méð einkunn vel yfir átta. En talandi um einkunnir þá virðast þær lægri í gæðingakeppnum þessa árs en einkunnir síðustu ára og spurn- ingin hvort hrossin séu lakari nú. Ekki var óalgengt að sigurvegarar hafi verið með einkunnir á bilinu 8,50 til 9.0. Einnig læðist að mörgum sá grunur að aukin um- ræða á þessum svokölluðu endur- hæfínganámskeiðum verki á þennan veg. En gæðingar Geysis- manna voru alveg prýðilegir ekki neinar stórstjörnur en þó vel fram- bærileg hross. Hestamannafélagið Geysir er Þeir höfðu ástæðu til að sperra sig Þórður Þorgeirsson og Jór frá Kjartansstöðum en sá síðar- nefndi hlaut hæstu einkunn fjögra vetra stóðhesta en Þórður fyrstu ágætiseinkunn fyrir að sýna hátt j tuttugu hross á mót- inu með mikilli prýði. Bylgja dansaði létt í gegnum B-fiokkskeppnina og sigraði, knapi er Kristjón Kristjónsson. Vel ríðandi krakkarnir að iokinni verðlaunaafhendingu ásamt formanni félagsins Hauki Kristjánssyni, næst honum er Erlendur og Fáni, Eivar og Sindri, Erlendur og Fákur, Hrefna og Boði og Birkir og Dimma. skipt í einar sjö deildir og kepptu þær sín á milli í töltkeppni með firmakeppni sniði var keppnin einnig einstaklings keppni þar sem keppt var í karla og kvenaflokki. Oddur fremstur kynbótahrossa Um 210 kynbótahross voru leidd fyrir dómnefnd í síðustu viku og var ijóminn af þeim hópi sýnd- ur á sunnudeginum. Formaður dómnefndar Þorkell Bjarnason kvaðst vera ágætlega ánægður með hópinn í heild en kvað þó skeiðið vera minna áberandi hjá hrossunum en oft áður. Ekki taldi hann sig hafa skýringar á þessum mismun milli ára en hann væri greinilegur. Af þeim hrossum sem þarna komu fram má telja þeirra efnilegastann Jó frá Kjartansstöð- um fjögra vetra hest undan Trost- an frá sama stað og Vöku frá Ytra-Skörðugili var hann eina hrossið sem hækkaði sig á yfirlits- sýningu en dómurum þótti ástæða til að gefa honum 7,5 fyrir skeið í stað 7,0. Má hiklaust spá þessum hesti bjarta framtíð en hann hlýt- ur fyrstu verðlaun. Af fimm vetra hestum stóð efstur Dropi frá Með- alfelli en hann er hálfbróðir Adams 978 frá sama stað undan sömu hryssu og Anga frá Laugarvatni. Prýðis foli rétt við fyrstu verðlaunin. Hæstu aðaleinkunn allra, 8,24, hlaut Oddur frá Sel- fossi undan Kjarval og Leiru frá Þingdal. Var hann með góðar ein- kunnir bæði fyrir byggingu og hæfileika og ekki spillir liturinn. Ánægjulegt var að sjá hross frá Kirkjubæ í verðlaunsætum á nýj- anleik en hross þaðan hafa verið fáséð á kynbótasýningum síðustu ára. Ein Kirkjubæjarhryssan Nös stóð efst af hryssum sex vetra og eldri en sú er undan Ljóra og Löpp frá Kirkjubæ. Stjömunótt frá Bólstað stóð efst í fimmvetra flokki með 9 fyrir vilja og fegurð í reið og fyrstu verðlaun. Sérstök verðlaun voru veitt fyrir hæstu byggingareinkunn og hæfileika- einkunn og hlutu þau Máni frá Raufarfelli 8,25 fyrir byggingu en Spá frá Varmadal hlaut hæstu einkunn fyrir hæfileika, 8,39. Af þessum rúmlega tvö hundruð hrossum hlutu níu fyrstu verðlaun og eitt hundrað og ein hryssa náði einkunn yfir 7,50 sem eru gömlu ættbókarmörkin. Fjórtán stóðhestar náðu einkunn yfir gömlu ættbókarmörkum stóð- hesta, 7,75. Úrslit urðu annars sem hér segir: A-flokkur: 1. Dagur frá Búlandi. F.: Kolfínnur, Kjarnholtum. M.: Sóley, Garðsauka, eigandi Sigurlín Óskarsdóttir, knapi Þormar Andrésson, 8,40. 2. Riddari frá Syðra-Skörðugili. F.: Ófeigur 822, Flugumýri. M.: Kvika, Hesti, eigandi Guðni Kristinsson o.fl., knapi Kristinn Guðnason, 8,38. 3. Már frá Sandhólafeiju. F.: Þokki 1048, Garði. M.: Möggu-Jörp, Sandh.f., eigandi Joehum Mart, knapi Birgir Ólafsson, 8,39. 4. Hjalti frá Hala. F.: Þokki 1048, Garði. M.: Glóa, Hala, eigandi Jón Karlsson, knapi Þórður Þorgeirsson, 8,25. 5. Sendill frá Syðra-Skörðugili. F.: Glaður, Skr. M.: Kolfinna, S-Skörð- ug., eigandi Jónas Jónsson, knapi Leifur Helgason, 8,25. B-flokkur: 1. Bylgja frá Stekkjardal. F.: Bylur 892, Kolkuósi. M.: Svala 5974, eig- andi og knapi Kristjón Kristjánsson, 8,41. 2. Glanni frá Kálfholti. F.: Byr, Skol- lagr. M.: Blíða, Kálfholti, eigandi og knapi ísleifur Jónasson, 8,39. 3. Tenór frá Torfunesi. F.: Riddari 1004, S-Skörðug. M.: Kvika, Rangá, eigandi Margrét Magnúsdóttir, knapi Sveinn Jónsson, 8,36. 4. Sokka frá Árbakka. F.: Sokki 1060, Kolkuósi. M.: Svartblesa, Dýrfínn- ust., eigandi Jakob Hansen, knapi Marjolyn Tiepen, 8,30. 5. Nettla frá Voðmúlastöðum. F.: Fannar. M.: Hrefna, eigandi Guðlaug- ur Jónsson, knapi Leifur Helgason, 8,29. Unglingar: 1. Sigríður Th. Kristinsdóttir á Dúfu frá Hofsstöðum, Skag., eigandi Krist- inn Guðnason, 8,41. 2. Magnús Agústsson á Loga frá Hemlu, eigandi er knapi, 8,21. 3. Hlynur Arnarson á Hvíta riddara, eigandi Einar Blandon, 8,33. 4. Kristín Þórðardóttir á Andvara frá Ási, eigandi er knapi, 8,09. 5. Jakobína Valsdóttir á Fjörugu frá Sandhólafeiju, eigandi Jochum Mart, 8,08. Börn: 1. Erlendur Yngvason á Fána frá Hala, eigandi Hekla Katarína Krist- insdóttir, 8,40. 2. Elvar Þormarsson á Sindra frá Svanavatni, eigandi er knapi, 8,19. 3. Erlendur Guðmundsson á Fáki frá Háriaugsstöðum, eigendur Guðmund- ur og Sigurlaug, Hárlaugsst., 8,26. 4. Hrefna Hafsteinsdóttir á Boða, eigandi Anton Á. Kristinsson, 8,27. 5. Birkir Jónsson á Dimmu frá Vind- ási, eigandi er knapi, 8,13. Tölt kvenna.: 1. Kolbrún Jónsdóttir á Vöku frá Stóra-Hofi. 2. Eyrún Jónasdóttir á Toppi frá Kálfholti. 3. Sigríður Th. Kristinsdóttir. 4. Fransiska Laak. 5. Elsa .Ingjaldsdóttir á Geisla frá Ögmundarstöðum. Tölt karla.: 1. Ársæll Jónsson á Blíðu frá Bakka- koti. 2. Ágúst Sigurðsson á Garpi frá Kirkjubæ. 3. Kristinn Karlsson á Garpi frá Ey. 4. Haukur G. Kristjánsson á Dagrenn- ingu frá Hólmum. 5. Svavar Ólafsson á Stormi frá Ból- stað. 150 metra skeið: 1. Snarfari frá Strandarhöfða, eig- andi og knapi Sigurbjörn Bárðarson, 15,4 sek. 2. Gleði frá Selfossi, eigandi Haf- steinn Kristjánsson, knapi Hallgrímur Birgisson, 15,5 sek. 3. -4. Sóti frá Stóra-Vatnsskarði, eig- andi og knapi Sigurbjörn Bárðarson, 16 sek. 3.-4. Þór, knapi Orri Snorrason, 16 sek. 250 metra skeið: 1. Eitill frá Akureyri, eigandi Bragi Ásgeirsson, knapi Hinrik Bragason, 24 sek. 2. Grani frá Saurum, eigandi Viðar Sæmundsson, knapi Sigurður Sæ- mundsson, 24,4 sek. 3. Þjótandi frá Ármóti, eigandi og knapi Hinrik Bragason, 24,7 sek. Stóðhestar 6 vetra og eldri: 1. Oddur frá Selfossi. F.: Kjarval 1025, Skr. M.: Leira 4519, Þingdal, eigandi og knapi Einar Ödér Magnús- son, bygging: 8,10, hæfíleikar: 8,37, aðaleinkunn: 8,24. 2. Huginn frá Bakka. F.: Hrafn 802. M.: Fluga 6090, St.-Hofi, eigandi Jón Kristján Ólafsson, knapi Þórður Þor- geirsson, b.: 7,85, h,: 8,19, a.: 8,02. 3. Krummi frá Kálfholti. F.: Byr, Skollagr. M.: Hrefna, Kálfh., eigandi Jónas Jónsson, b.: 8,15, h.: 7,87, a.: 8,01. Stóðhestar 5 vetra: 1. Dropi frá Meðalfelli. F.: Angi 1035, Laugarv.. M.: Vordís 4726, Meðal- felli, eigandi Einar Ellertsson, knapi Einar Oder Magnússon, b.: 7,98, h.:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.