Morgunblaðið - 15.06.1993, Qupperneq 51
I
I-
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNI 1993
Morgunblaðið/Bjarni Helgason.
Vorlax
VEIÐIMENN með fallegan vorlax af Hvararhylsbroti fyrir
skömmu.
Um þessar mundir er að
hefjast veiði I nokkrum af
þekktari laxveiðiám landsins,
Víðidalsá, Vatnsdalsá, Mið-
fjarðará, Langá, EUiðaánum
og víðar. Síðast er fréttist
var mikill vöxtur í ánum fyr-
ir norðan, en lítið hafði sést
til Iaxa í hinum ánum.
Skot í Norðurá
Það er helst að Norðuráin
gefi þessa fyrstu erfiðu daga
veiðitímans, en í gærmorgun
veiddust 9 fallegir laxar á aðal-
svæðinu og voru þá komnir 58
laxar á land af svæðinu og um
10 stykki til viðbótar af Munað-
amesveiðum. Það gerir tæplega
70 laxa og að sögn veiðimanna
við ána var hún með albesta
móti í gærmorgun og talsvert líf
að sjá á helstu veiðistöðum, eins
og að gengið hefði talsvert af
nýjum fiski. Stærsti fiskurinn til
þessa var 14 punda hængur
dreginn úr Myrkhyl. Flestir lax-
anna til þessa hafa verið af góðri
stærð, algengt 9 til 12 pund.
Lítið líf í Laxá í Leir.
Sex laxar veiddust fyrsta dag-
inn í Laxá í Leirársveit, en það
var í fyrradag. Að sögn Guð-
mundar Ágústssonar veiðimanns
sem Morgunblaðið hafði tal af í
veiðihúsinu við ána, veiddist eng-
inn lax fyrri vaktina í gær og
menn sáu lítið líf. „Það eru
nokkrir fískar í Laxfossi og það
var reynt vel við þá, því máttu
trúa,“ sagði Guðmundur. Lax-
amir sex vógu 4,5, 7, 9 ,9 ,9,
og 11 pund og veiddust í Grettis-
strengjum, Flóðmýrastreng og
Valsstreng.
Þverá sein í gang
Ásta, aðstoðarstúlka í veiði-
húsinu á Helgavatni við Þverá,
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gærdag, að þrír laxar hefðu
veiðst þá um morguninn og
hefðu þá alls verið 35 fiskar ver-
ið komnir á land úr ánni. Verr
gengur í Kjarrá og taldi Ásta
innan við tíu laxa komna úr ánni.
„Áin er í sæmilegu ástandi, hef-
ur hitnað og er ekki mikið skol-
uð. Menn sjá bara lítið af fiski
og bíða eftir almennilegum
göngum," sagði Ásta.
Slakt í Laxá á Ásum
Brösulega gengur í Laxá á
Ásum og aðeins milli 10 og 20
fiskar komnir á land. „Það vant-
ar lax í ána, við voram þarna í
tvo daga og eina lífið var, að ég
sá einn lax síðasta morguninn.
Þegar ég renndi á hann kom
urriði þeysandi, hrifsaði í og
fældi laxinn,“ sagði Ómar Sig-
geirsson, þaulvanur Ásamaður í
samtali við Morgunblaðið, en
Ómar var að veiðum fram á helg-
ina. Sagði Ómar veiðimenn um
land allt bíða á bæn eftir stór-
streyminu 22. júní og ef göngur
brygðust þá, byði hann ekki í
framhaldið.
Islendingar í 14. sæti eftir fyrstu þijár umferðir á Evrópumótinu í brids
Sigur vannst á Ungverjum
í fyrstu umferð mótsins
# Menton, Frakklandi. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, biaðamanni Morgunblaðsins.
ISLENSKA bridslandsliðið hóf Evrópumótið í brids með sigri
en var eftir þrjár fyrstu umferðirnar í 14. sæti með 47 stig.
Danir voru í efsta sæti með 61 stig en næstir komu Pólveijar
og Frakkar með 59 stig og Svisslendingar með 58 stig.
Fyrstu dagar Evrópumótsins
hafa ekki gengið með öllu áfalla-
laust hjá íslendingum því einn liðs-
maðurinn, Jón Baldursson, varð að
sitja heima sökum veikinda þegar
lagt var af stað til Menton á föstu-
dag. Hann náði sér þó og kom á
mótsstað á sunnudagskvöld og er
vonast til að þetta hafi ekki áhrif
á spilamennsku íslenska liðsins.
Fleiri þjóðir urðu fyrir skakka-
( föllum. Keppendumir frá Rússlandi
og Hvíta Rússlandi vora stöðvaðir
á þýsku landamærunum þar sem
( þeir höfðu ekki vegabréfsáritun inn
í landið. Hvítrússarnir komust þó á
leiðarenda í gær, degi of seint, en
( af Rússunum hefur ekkert frést.
Þá datt kunnasta par Evrópumeist-
ara Breta, þeir Forrester og Rob-
son, út úr breska liðinu á síðustu
stundu, að sögn vegna persónulegra
ástæðna hjá Forrester. Forrester
hefur af mörgum verið talinn besti
spilari Breta undanfarin ár, en hann
getur að sama skapi verið erfiður
í umgengni.
Góður sigur
ísland spilaði fyrsta leikinn við
Ungverjaland. Þeir Aðalsteinn
Jörgensen, Bjöm Eysteinsson, Guð-
mundur Páll Arnarson og Þorlákur
Jónsson spiluðu allan leikinn. í fyrri
^ hálfleik buðu spilin ekki upp á mikl-
ar sveiflur. Besta spil Islendinga
var þegar Bjöm og Aðalsteinn dobl-
i uðu Ungveijana í 2 tíglum og
uppskára 500 meðan Guðmundur
og Þorlákur fengu að spila sama
á samning ódoblaðan og sluppu 100
' niður. Ungveijarnir fengu síðan
geimsveiflu í lok hálfleiksins og
staðan eftir 12 spil var nær jöfn.
í seinni hálfleik spiluðu bæði ís-
lensku pörin vel og unnu leikinn
Norður
♦ ÁK109862
T5
♦ G8
+ Á85
pass
pass
+420
2 spaðar pass
4 spað.//
3 spaðar
20-10. Guðmundur og Þorlákur
voru óánægðir með eitt spilið þar
sem þeir voru ekki alveg samstíga
í sagnkerfínu og spiluðu 4 hjörtu
sem voru 1 niður en hægt var að
spila 5 lauf sem hlutu að vinnast.
En við hitt borðið spiluðu Bjöm og
Aðalsteinn 4 spaða á hinar hend-
urnar. Með bestu vöm er hægt að
taka þann samning tvo niður en
Ungveijamir misstigu sig hrapal-
lega í vöminni og gáfu spilið og
Guðmundur og Þorlákur græddu
því 8 IMP-stig á vonda spilinu sínu.
í annari umferð spilaði ísland við
írland. íslenska liðið var óbreytt.
Leikurinn þróaðist óheppilega fyrir
íslendinga og írarnir græddu á
flestum þeim spilum þar sem spilar-
arnir tóku mismunandi lokaákvarð-
anir. íramir höfðu 20 stiga forskot
í hálfleik og í seinni hálfleik bættu
þeir jafnmörgum stigum við.
Stærsta sveiflan kom þegar Björn
opnaði á 4 laUfum sem í kerfi þeirra
Aðalsteins sýna 6-lit í láglit og 5-lit
í hálit til hliðar. Bjöm átti í þessu
spili 5 lit í spaða og 6-lit í laufi.
Aðalsteinn átti á móti þessu 6-6
skiptingu í hjarta og tígli og valdi
að passa niður 4 lauf, sem fóru
þijá niður. Við hitt borðið spiluðu
Irarnir 4 hjörtu sem unnust eftir
smávægileg varnarmistök.
Sagnbaráttan gaf stig
ísland spilaði við Króatíu í 3.
umferð á mánudagsmorgun og enn
spiluðu sömu spilarar fyrir íslands
hönd. Eftir fyrri hálfleik leiddu ís-
lendingarnir 38-15. Króatarnir
gáfu Guðmundi og Þorláki tvö geim
sém töpuðust við hitt borðið og
sagnkerfíð og sagnbaráttan gaf ís-
landi 11 stig í þessu spili:
Suður/Enginn
Vestur
♦ G52
VK642
♦ K
♦ 107642
Austur
+ -
V ÁG1097
♦ Á943
♦ DG93
Suður
♦ D74
VD83
♦ D107652
♦ K
Opinn salur
Vestur Norður Austur Suður
Bjöm Sver Aðalst. Dicic
- - - pass
pass 4 tíglar pass 4 spaðar
pass pass dobl pass
5 lauf pass pass 5 spað.//
-60
Lokaður salur
Vestur Norður Austur Suður
Antonio Þorl. Rase Guðm.
- - - 2 lauf
Opnun Svers á 4 tíglum sýndi
góð spil með langan spaðalit. Bjöm
ákvað að beijast yfír 4 spöðum með
úttektardobli sem var vel metið því
5 lauf vinnast með því að finna
hjartadrottningu. En suður hélt
áfram í 5 spaða sem fóru einn nið-
ur. Við hitt borðið opnaði Guðmund-
ur á sögn sem gat haft ýmsar merk-
ingar, m.a. sýnt veik spil með tígul-
lit. Eftir það vora sagnir eðlilegar
en austur sá ekki ástæðu til að
skipta sér af sögnum og Þorlákur
vann 4 spaða auðveldlega svo ísland
græddi 11 stig.
íslenska liðið spilaði við Þjóðveija
í 4. umferð í gærkvöldi og þá tóku
Jón Baldursson og Sævar Þor-
bjömsson í fyrsta skipti upp spilin
i mótinu. í dag spilar liðið við San
Marino og ísrael.
Til sölu
3 stk. Benz sendibílar: 1984 309, 1985 309, 1986 209.
Jqlm* Skeifunni 6, sími 686222.
O O 101 bíll í sal.
bTlabÖrg Opið öll kvöld og allar helgar.
51
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
671800
%
Ford F-250 6.9 diesel '84, 4ra g., nýl.
uppt. vél. V. 790 þús.
Renault Express '92, hvítur, 5 g., ek. 40
þ. V. 790 þús., vsk-bíll.
Toyota Corolla XL ’90, 5 dyra, rauöur, 5
g., ek. 45 þ. V. 750 þús., sk. á ód.
Honda Civic GL '87, sjálfsk., steingrár,
ek. 84 þ. V. 470 þús.
Peugout 205 XL '88, 4ra g., ek. 75 þ.
Gott eintak. V. 390 þús.
Daihatsu Charade Sedan SG '90, blár, 5
g., ek. 35 þ., aflstýri o.fl. V. 690 þús. stgr.
s—-,V:—
Toyota Hilux Double Cap diesel ’91, vsk-
bill, blásans, 5 g., ek, 39 þ., álfelgur o.fl.
V. 1690 þús., sk. é ód.
Fjöldi bifreiða af öllum árgerðum
á skrá og á sýningasvæðinu.
Verð og kjör við allra hæfi.
Subaru Justy J-10 4x4 '86, ek. aðeins
43 þ. V. 290 þús.
MMC Lancer GLXi '91, 5 g., ek. 40 þ.
V. 980 þús.
Citroen CX 22 TRX '87, 5 g., ek. aöeins
58 þ. V. 790 þús.
Toyota Douple Cap diesel '86, 5 g., ek.
160 þ. V. 980 þús.
Ford Bronco Eddie Bauer '87, 5 g., ek.
100 þ. Óvenju gott eintak. V. 1150 þús.
MMC Pajero langur, diesel, turbo,
m/lnterc., '92, 5 g,, ek. 67 þ., sóllúga
o.fl. V. 3.150 þús., sk. á ód.
V.W. Jetta CL '91, svartur, sjálfsk., ek.
29 þ. V. 1.050 þús.
Volvo 440 SE '92, brúnsans, sjálfsk., ek.
20 þ.t rafm. í rúðum, élfelgur o.fl. V. 1.350
þús.
Toyota Corolla Liftback '88, sjálfsk.,
steingrár, ek. 98 þ. V. 630 þús. stgr.
Nissan Patrol háþekja dlesel '86, hvltur,
5 g., ek. 170 þ., 6T spil o.fl. gott eintak.
V. 1.550 þús.
Toyota Corolla Sedan '87, 5 g., ek. 85
þ. Mjög gott eintak. V. 420 þús., sk. á ód.
—efþú spiíar til að vinna!
| 23. ltlkvlka, 12.-13. Júni 1993
Nr. Leikur:
Röð'ut:
1. Göteborj - Östcr - X ■
2. Halmstad - Örgrytc 1 -
3. Helsingborg - Hðcken 1 -
4. Norrkfiplng - Dcgerfoss 1 - -
5. Örebro - Brage 1 - -
6. Bronunap. - Lulei 1 - -
7. Djurg&rden - GIF Sundsv - - 2
8. Gefle - SpirvSgen - X -
9. Slrius - UMEA - X -
10. IFK Sundsv. - Hanunarby - - 2
11. Myresjð - Elfsborg - - 2
12. Oddevoid - Forward 1 - -
13. SkSvde - MjSUby - X -
HeUdarvinningsupphæðin:
82 milljón krónur
13 réttir: 279.400 | kr.
12 réttir: (_ 5.710 | kr.
11 réttlr: 410 | kr.
10 réttir: 0 J Icr.