Morgunblaðið - 19.06.1993, Page 1
64 SIÐUR LESBOK/C
STOFNAÐ 1913
135.tbl. 81.árg.
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Nýja höllin
keisarans
MARGA Berlínarbúa dreymir
um að endurreisa keisarahöllina,
sem kommúnistar sprengdu til
að rýma fyrir austur-þýska þing-
húsinu. Til að afla þeirri hug-
mynd fylgis hafa máluð leiktjöld
verið hengd á vinnupalla til að
sýna fram á hvernig byggingin
myndi taka sig út.
2.000 Króatar sagðir
hafa fallið eða særst
Zagreb, Kaupmannahðfn, Lundúnum. Reuter, The Daily Telgraph,
LEIÐTOGAR Króata í Bosníu sögðu í gær að rúmlega 2.000
Króatar hefðu beðið bana eða særst og 60.000 hefðu hrökklast
frá heimkynnum sínum í „þjóðernishreinsunum" múslima í Mið-
Bosníu frá 4. júní. Danir, sem eru í forsæti í ráðherraráði Evrópu-
bandalagsins, boðuðu til bráðafundar utanríkisráðherra banda-
lagsins á sunnudag vegna stríðsins í Bosníu.
hótunum
Moskvu. Reuter.
EISTNESK stjórnvöld eru harð-
lega gagnrýnd í yfirlýsingu frá
rússneska utanríkisráðuneytinu,
sem fréttastofan Itar-Tass greindi
frá í gær. í tilkynningunni er var-
að við „óbilgjamri þjóðerais-
stefnu“ gagnvart - rússneska
minnihlutanum i Eistlandi og þeim
alvarlegu afleiðingum, sem það
gæti haft, ef stefnu þessari yrði
haldið til streitu.
Þetta er harðorðasta yfirlýsing
sem Rússar hafa sent Eistlendingum
til þessa. í henni segir að hugsanleg-
ar ýfingar geti haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir Eystrasaltsþjóðimar og
granna þeirra. Yfirvöld í Kreml hafa
dregið úr brottflutningi herliðs frá
Eistlandi og Lettlandi þar til lýðrétt-
indi rússneska minnihlutans eru
tryggð. Stjómvöld í Eistlandi vísa
ásökunum Rússa á bug og segja að
með stefnu sinni vilji þau aðeins varð-
veita þjóðarsérkenni sín og tungu.
David Owen lávarður, milligöngu-
maður Evrópubandalagsins, hefur
viðurkennt að friðaráætlun, sem
kennd er við hann og Cyrus Vance,
sé nú búin að vera. Hann sagði í gær
að leiðtogar Evrópubandalagsins (EB)
yrðu að samþykkja nýja stefnu sem
hann gæti haft til viðmiðunar í friðar-
umleitunum sínum í Bosníu. Málið
verður rætt á leiðtogafundi EB á
mánudag og þriðjudag.
Slobodan Milosevic, forseti Serbíu,
og Franjo Tudjman, forseti Króatíu,
hafa samþykkt að beita sér fyrir þeirri
breytingu á friðaráætluninni að Bosn-
íu verði skipt í þijú smáríki, ekki tíu
sjálfstjómarhéruð eins og Owen og
Vance vildu.
Owen lávarður kvaðst ekki alls-
kostar ánægður með þessa tillögu en
bætti við að nota mætti hana með
öðrum ákvæðum friðaráætlunarinnar,
sem fjallar meðal annars um rétt
minnihlutahópa, mannréttindi og lýð-
ræðislegar kosningar undir eftirliti
Sameinuðu þjóðanna.
Klaus Kinkel, utanríkisráðheira
Þýskalands, sagði augljóst að ekki
væri hægt að knýja friðaráætlunina
fram. „Þetta er napurleg niðurstaða
því við þurfum nú að viðurkenna þær
staðreyndir sem við höfum aldrei vilj-
að viðurkenna, það er að segja þjóð-
ernishreinsanir og landamærabreyt-
ingar með hervaldi."
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í fyrradag
að Þjóðveijar bæm „sérstaka ábyrgð“
á því að stríð blossaði upp í Bosníu
og Króatíu þar sem þeir hefðu knúið
á Evrópubandalagið um að viður-
kenna sjálfstæði þessara ríkja. Viður-
kenningin hefði verið ótímabær og
reynst „alvarleg mistök".
Forseti Azerbajdzhans á flótta
Uppreisnarmenn
stöðva framsókn
Alíjev, sem er sjötugur að aldri,
var áður í stjórnmálaráði sovéska
kommúnistaflokksins og eftir
valdatöku hans í Azerbajdzhan eru
fyrrverandi kommúnistaleiðtogar
aftur við stjórnvölinn í 11 af 15
fyrrverandi lýðveldum Sovétríkj-
anna.
að beiðni Alíjevs
Moskvu, Baku. Reuter.
GEIDAR Alyev, sem kosinn var forseti azerska þingsins fyrir fjórum
dögum, lýsti yfir í gær, að hann hefði tekið við sem forseti Az-
erbajdzhans. Abulfaz Elchibey, kjörinn forseti, var þá flúinn frá
höfuðborginni, Baku, en uppreisnarmenn innan hersins og stuðnings-
menn Alíjevs höfðu hótað að ráðast á hana segði hann ekki af sér.
Tyrkir, sem hafa haft mikil samskipti við frændur sína Azera að
undanförnu, hafa mótmælt valdaskiptunum sem lögleysu.
Tyrkneska fréttastofan Anatólía
sagði í gær, að Elchibey hefði
ákveðið að flýja þegar hershöfðingj-
arnir, sem hann hafði skipað í emb-
ætti varnar-, innanríkis- og örygg-
ismálaráðherra, hefðu lýst yfir, að
þeir myndu ekki veijast uppreisnar-
mönnum réðust þeir á höfuðborgina
og er Elchibey nú kominn til Nak-
hítsjevan, sem er sjálfstjórnarhérað
í Azerbajdzhan en umlukið Arme-
níu, Tyrklandi og íran. Þar hefur
Alíjev verið leiðtogi.
Uppreisnin innan azerska hersins
hófst 4. júní sl. og síðan hafa upp-
reisnarmenn lagt undir sig borgir
og bæi í framsókn sinni til höfuð-
borgarinnar. Þeir hafa nú stöðvað
hana að beiðni Alíjevs. Er uppreisn-
in að nokkru rakin til óánægju inn-
an hersins í kjölfar ósigra hans í
stríðinu við Armena um Nagomo-
Karabakh en svo virðist einnig sem
um hreina valdabaráttu í landinu
sé að ræða.
Rússar
hafaí
Múslimar taldir hafa hrakið 60.000 manns frá heimkynnum sínum í Mið-Bosníu
Ýmis ríki, Evrópubandalagsríkin,
íran og Tyrkland, hafa lýst áhyggj-
um með þróun mála í Azerbajdzhan
og tyrkneski utanríkisráðherrann
sagði, að stjóm Tyrklands styddi
ekki valda rán af þessu tagi.
Fjölmenni á þjóðhátíð
Morgunblaðið/Odd Stefán
MIKILL íjöldi manns kom saman í miðborg Reykjavíkur á fimmtudag til að halda þjóðarhátíðardaginn 17.
júní hátíðlegan. Að mati lögréglu vom allt að 40 þúsund manns samankomnir í miðbænum þegar mest var.