Morgunblaðið - 19.06.1993, Síða 14

Morgunblaðið - 19.06.1993, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993 ísland áfram í toppbaráttunni á Evrópumótinu í brids Sigur vannst bæði á Svíum og Bretum íslenska kvennaliðið vann einnig báða leiki sína í gær Menton, Frakklandi. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblað-úns. ÍSLENSKA karlaliðið vann bæði Svía og Breta í 12. og 13. umferð á Evrópumótinu í brids í gær og er í 5. sæti með 233 stig. Frakkar leiða með 249 stigum, Danir eru í 2. sæti með 248 stig, Pólverjar í 3. sæti með 245,5 stig, Norðmenn í 4. sæti með 233 stig, Hollendingar hafa 229 stig, Svíar 228 og Bretar 222 stig. Þá vann kvennaliðið báða leiki sína í gær, gegn Dönum og Spánverjum og er í 8. sæti kvenna- mótsins. Sigrarnir í gær í opna flokkn- um voru mjög mikilvægir. Bæði eru Bretar og Svíar í hópi sigur- stranglegri þjóðanna hér og eins þurfti íslenska liðið nauðsynlega á stigunum að halda eftir slaka frammistöðu daginn áður, sem var raunar þjóðhátíðardagurinn 17. júní. ísland var í 3. sæti í opna flokknum að morgni þjóðhátíðar- dagsins eftir ágætan sigur í 9. umferð á Tyrkjum, 22-8, kvöldið áður. í 10. og 11. umferð átti íslenska liðið frekar auðvelda leiki á pappímum, við Slóvena og Svisslendinga sem voru í neðri helmingi stigatöflunnar. í fyrri hálfleik gegn Slóvenum var lítið að gerast og ísland leiddi 14-5; þess má geta að í leik Frakka og Grikkja var staðan 5-2 í hálf- leik. En í síðari hálfleiknum gekk allt Slóvenum í vil og þeir skor- uðu 46 stig gegn 5 stigum ís- lands og unnu leikinn 23-7. Á sama tíma var íslenska kvenna- liðið að spila við það breska og tapaði þeim leik 10-20. í 11. umferð opna flokksins spilaði ísland við Sviss. Eins og í fyrri leiknum var ísland aðeins yfir í hálfleik. í síðari hálfleik voru spilin villt og sagnharkan borgaði sig vegna þess að spilin lágu vel. I leik íslands og Sviss var þó ekki mikið um sveiflur og síðari hálfleikurinn var jafn svo ísland vann 16-14 og var nú komið niður í 6.-7. sæti í mótinu ásamt Svíum. Á meðan spilaði kvennaliðið við ísrael í 4. umferð en ísra- elska kvennaliðið er talið í hópi sterkari liða hér. í hálfleik hafði ísrael yfír, 27-1. En í síðari hálf- leik spilaði íslenska liðið besta leik sinn til þessa. Nýliðamir í liðinu, Anna ívarsdóttir og Gunnlaug Einarsdóttir, spiluðu sinn fyrsta leik og nýttu þau færi sem spilin buðu upp á. Við hitt borðið áttu Esther Jakobs- dóttir og Valgerður Kristjóns- dóttir einnig góðan leik og hálf- leikurinn vannst 48-14 og leikur- inn 16-14. Konurnar höfðu því nokkra ástæðu til að gleðjast að kvöldi þjóðhátíðardagsins, en þær spiluðu með íslenska fánann á borðunum í tilefni dagsins. Traustvekjandi sagnir Fyrri leikur karlaliðsins í gær var við Svía. í fyrri hálfleik voru miklar sveiflur sem til að byija með voru flestar til Svíanna. Um miðjan hálfleikinn vom Svíarnir komnir með tæplega 30 stiga fomstu en undir lokin náðu Is- lendingarnir að saxa á forskotið. Þar munaði einna mest um þetta skiptingarspil: Suður/Enginn Norður ♦ ÁD3 ¥ ÁG875 ♦ KD643 *-- Vestur Austur ♦ 762 * 9 ¥ - ¥ K1064 ♦ Á108 ♦ 752 ♦ KDG10962 * A7543 Suður ♦ KG10854 ¥ D932 ♦ G9 ♦ 8 Opinn salur Vestur Norður Austur Suður Bjerreg. Þorl. Morath Guðm. - - --j 2 tíglar 3 lauf 4 lauf 5 lauf 5 spaðar pass 6 spaðar pass pass 7 lauf pass pass dobl/ +500 Lokaður salur Vestur Norður Austur Suður Jón Nielsen Sævar Brunz. - - - pass 1 tígull dobl 2 lauf 2 spaðar 5 lauf 5 tíglar dobl pass pass 5 hjörtu dobl 6 lauf dobl/ +100 Það var engu líkara en spilar- arnir vildu helst segja þá liti sem þeir áttu minnst í. I opna salnum opnaði Guðmundur á svokölluð- um multi, sem gat sýnt annan hvorn hálitinn og veik spil. 4 lauf Þorláks var krafa í geim og þegar Guðmundur sýndi litinn sinn á 5. sagnstigi bætti Þorlák- ur einum við. Bjerregaard fannst sagnir íslendinganna svo sann- færandi að hann tók fórnina. Vörnin var svo nákvæm. Þorlák- ur spilaði út spaðaás, og þegar Guðmundur kallaði spilaði hann meiri spaða. Eftir það komst Bjerregaard ekki hjá því að gefa tvo tígulslagi. Við hitt borðið opnaði Jón á tígli, sem sýndi opnun og ójafna hönd. Branzell sýndi fyrirstöð- urnar sínar áður en hann sagði 5 spaða, og Jón tók fórnina. Við þetta borð brást Svíunum vörnin þannig að spilið fór 1 niður og Island græddi 9 stig. Raunar fengu AV víða að spila 5 lauf dobluð; í leik Pólveija og Breta féll spilið t.d. í 5 laufum dobluð- um og unnum. í síðasta leik dagsins vann ísland Breta örugglega 22-8. ísland var 19 yfir eftir fyrri hálf- leik og bætti öðm eins við síðari hálfleik. Lokahnykkurinn var í síðasta spilinu þegar Þorláki og Guðmundi tókst með blekkisögn- um að fæla akkerispar Breta, Armstrong og Kirby, úr geimi þar sem raunar mátti vinna slemmu. Þá vann kvennaliðið Spánveija 18-12 í gærkvöldi. Sódóma Reykjavík til Chicago KVIKMYNDIN Sódóma, Reykjavík hefur verið valin til þátttöku á 29. alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Chicago, sem haldin verður í haust eða 7. til 25. október næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum frá Skífunni hf. segir Michael Lutza stjórnandi hátíðarinnar, í bréfi, sem hann ritar Alez Massis hjá Angelika Films í New York, sem annast dreifingu myndarinnar í Bandaríkjunum, að það sé mikill heiður að fá að sýna myndina á hátíðinni. Óskar Jónasson leikstjóri og handritshöfundur Sódóma, Reykjavík vann árið 1990 „The Silver Hugo Award“ fyrir stutt- myndina SSL25 á þessari sömu hátíð. Gömlu hús- in að hverfa? ÞAÐ hús sem síð- ast hefur verið rifið í miðbæ Húsavíkur er húsið Hornbjarg og sýnar mynd- irnar hvernig það var fyrir og eftir. Morgunblaðið/Silli Enn hverfa hús- in úr miðbænum Húsavík. í VOR hafa þijú hús sem voru í fullu notagildi verið látin hverfa úr miðbæ Húsavíkur. Tvö brotin niður og eitt flutt til fjalls. Það má segja að undanfarin 40 ár hafi sá hugsunarháttur ríkt hjá stjómvöldum á Húsavík að öll hús sem komin væru til ára sinna væm til óprýðis og ættu að hverfa og því hafi viðhaldi þeirra ekki verið sinnt. Þau hafa verið látin grotna niður og síðan brotin niður eða brennd. Á sl. 20 ámm hafa um 20 hús verið fjarlægð úr miðbæ Húsavíkur en ekkert hús byggt í þeim bæjarhluta á þeim tíma. Viðhald gamalla húsa sem hafa verið í eigu hins opinbera hefur verið mjög ábótavant. En gömlum húsum í eigu einstaklinga er betur við haldið. Lítið viðhald er t.d. á gamla Pósthúsinu, Garðarsbraut 12, Formannshúsinu, Garðars- braut 2 og gamla sjúkrahúsinu, sem er vel byggt steinhús 1936 og þjónaði Þingeyingum til 1970 að flutt var í nýtt og glæsilegt sjúkrahús sem vel er við haldið. En viðhald á hinu gamla er ekki sinnt og þær raddir heyrast að það sé ónýtt hús. Þó gott sé að hafa næg bíla- stæði geta þau orðið of mörg og ekki er ástæða til að þau séu við dyr hvers fyrirtækis sem í mið- bænum em. Samkvæmt athugun Víkurblaðsins gætu nú verið um 1.000 bílastæði í miðbænum. - Fréttaritari. ------»—♦—♦---- Göngu-og leiðbeingakort yfír Heiðmörk SKÓGRÆKTARFÉLAG Reylqavíkur hefur gefið út Göngu- og leiðbeiningakort yfir Heiðmörk í samvinnu við Reykjavíkurborg. Kortið sýnir bæði aksturs- og gönguleiðir um mörkina, svo og helstu ör- nefni. í texta kortsins segir m.a.: „Sá sem vill finna andblæ liðinna tíða ætti að leggja leið sína í Þinga- nes. Elsti þingstaður landsins stór þar, samkomustaður á landnáms- öld með græna hrosshaga allt í kring. Heiðmörk - friðland borg- arbúans þar sem kynslóðabilið hverfur og tilveran tekur á sig lit. Þar er eitthvað sem endurnærir, útileikir eða von um veiði, einvera eða íhugun“. ROYAL SKYNDIBÚÐINGARNIR ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragötegundir Miðnæturgolf á íslandi vekur athygli erlendis Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Mbl. ARTIC-golfmótið á Akureyri, sem orðinn er árlegur viðburður í miðnætursól Jónsmessunnar, vekur æ meiri athygli meðal er- lendra kylfinga. I fyrra birtist athyglisverð grein með litmynd- um um mótið í helsta tímariti atvinnumanna í golfi. Þar var nokkrum brautum á íslenskum TÆLENSKUR MATUR TÆLENSKT UMHVERFI ^BANTHAI golfvöllum líkt við brautimar á Pebble Beach-vellinum í Kalifor- níu, sem þykir einn erfíðasti en um leið einn fallegasti völlur Bandaríkjanna. Einar Gústavsson, framkvæmda- stjóri skrifstofu Ferðamálaráðs í New York, telur að þessi grein sé ein ástæðan fyrir því að nú fara fjórir blaðamenn til íslands til að skrifa um mótið. Einn þeirra er frá Sport Illustrated, sem talið er víð- lesnasta íþróttablað heims og með góðri umsögn þar má segja, að Artic-mótið sé endanlega komið á heirnskort kylfinga. í síðugrein um mótið í tímaritinu The Desert Sun er þess getið að mótið sé opið atvinnumönnum jafnt sem áhugamönnum, körlum og kon- um. Þátttökugjald er 200 dollarar en innifalið í því verði er ótakmark- að golf í viku og aðgöngumiði að setningarhátíð með kvöldverði. Get- ið er um náttúrufegurðina og útsýn- ið frá velli Akureyringa, minnst á hótelin og hópferðir fyrir kylfinga, m.a. til Mývatns og Grímseyjar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.