Morgunblaðið - 19.06.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
HATIÐAHOLDIN 17. JUNI
40.000 manns
í miðborg
Reykjavíkur
SJALDAN eða aldrei hafa jafn margir íbúar Stór-Reykjavíkursvæðis-
ins tekið þátt í hátíðarhöldum I tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní.
Lögreglan í Reykjavík telur að um 30-40 þúsund hafi sótt hátíðina
í miðbæ Reykjavíkur og í Hafnarfirði og Kópavogi var þátttakan
með besta móti. Hátíðarhöld fóru að sögn lögregluembættanna í
Reylgavík, Hafnarfirði og Kópavogi í alia staði mjög vel fram. Olv-
un var almennt tiltölulega Iítil og óhöpp afar fá. Veður var hátíðar-
gestum hliðhollt nær allan daginn og batnaði eftir því sem leið á
daginn.
Mikill mannfjöldi í Reykjavík
Mikill fjöldi fólks var viðstatt
hátíðarhöld í Reykjavík. Lögreglan
gerir ráð fyrir að um 30-40 þúsund
manns hafi safnast saman í mið-
borginni þegar flest var enda veður
upglagt til útiveru og hátíðarhalda.
Óvenju margir fylgdust með dag-
skrá morgunsins en þá lagði Vigdís
Finnbogadóttir blómsveig að minn-
isvarða Jóns Sigurðssonar forseta
og Magnús L. Sveinsson að leiði
Jóns.
Fjöldi hátíðargesta náði hámarki
eftir hádegið en þá var boðið upp
á skipulagða dagskrá á öðruin tug
staða í borginni. Tónleikar hófust
að vanda á Lækjargötu um fimm
leytið og sjö hljómsveitir léku með
hléum til miðnættis. Mikill fjöldi
manns sótti þessa tónleika og milli
tíu og tólf er áætlað að um 15
þúsund manns ’nafi verið saman
komin í miðbænum.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík gengu hátíðar-
höld vel fyrir sig. Aðeins varð vart
ölvunar um kvöldið og hún jókst
nokkuð eftir miðnætti. Að öðru leyti
fór allt hið besta fram að mati lög-
regluyfirvalda utan einnar brot-
innar rúðu og nokkurra pústra.
Rólegt í Hafnarfirði
Hafnfírðingar komu fyrst saman
í Hellisgerði en gengu því næst
yfir á Víðistaðatún þar sem boðið
var upp á fjölbreytta hátíðardag-
skrá. Aður en yfir lauk var þar
saman kominn stór hópur bæjarbúa
og lögregluyfirvöld telja að um 5-6
þúsund manns hafi gert sér glaðan
dag á túninu. Að mati lögreglunnar
í Hafnarfirði var rólegt yfirbragð á
hátíðarhöldunum í bænum; óhöpp
urðu engin og ölvun var ennfremur
mjög lítil.
Fleiri nú en áður í Kópavogi
Kópavogsbúar heldu sína þjóðhátíð
á Rútstúni í grennd við nýja sund-
laug bæjarbúa og segir lögreglan í
Kópavogi að þar hafi allt farið frið-
samlega fram. Jafnframt því telur
hún að þátttaka á 17. júní hafi
verið mun meiri en undanfarin ár
í Kópavogi.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Þarfasti þjónninn tók þátt í hátíðahöldunum
ÝMISLEGT var á boðstólum í skúðgarðinum yngstu kynslóðinni til
skemmtunar og þar bauðst gestum að setjast á bak á þarfasta þjónin-
um í gegnum aldirnar — hestinum.
Fjölmenni í góðu
veðri í Keflavík
Keflavík.
KEFLVÍKINGAR og gestir þeirra fjölmenntu í skrúðgarðinn á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní til að taka þátt í hátíðarhöldunum og um leið
til að njóta veðurblíðunnar sem lék við Suðurnesjamenn á þjóðhátíð-
ardaginn. Nú þriðja árið í röð var listamaður Keflavíkur útnefndur
og var Halla Haraldsdóttir mynd-
maður Keflavíkur 1993.
Dagskráin hófst með þjó/Shátíð-
armessu í Keflavíkurkirkju þar sem
sr. Baldur Sigurðsson söng messu
og að því búnu var gengið í skrúð-
göngu frá kirkjunni í skrúðgarðinn
undir lúðrablæstri lúðrasveitar Tón-
listaskólans. Þar fór fram fánahyll-
ing sem Hrönn Torfadóttir útgerð-
armaður framkvæmdi og að því
búnu söng Ingibjörg Marteinsdóttir
þjóðsönginn. Því næst var listamað-
ur Keflavíkur kynntur, Bryndís Lín-
dal Arnbjörnsdóttir fegurðardrottn-
ing Suðurnesja kom fram í gervi
fjallkonunnar og ræðumaður dags-
ins var Jóhann Pétursson fv. póst-
meistari. Því næst voru skemmtiat-
og glerlistakona útnefndur lista-
riði þar sem þekktir og óþekktir
skemmtikraftar komu fram og lét
unga kynslóðin þar sitt ekki eftir
liggja-
Um kvöldið voru svo tónleikar í
miðbænum og í veitingahúsinu Þot-
unni fór fram kvöldskemmtun fyrir
unga sem aldna. Síðustu ár hefur
veðráttan sett nokkurn svip á þjóð-
hátíðardaginn en að þessu sinni
voru allir í hátíðarskapi, menn og
veðurguðir og var það mál manna
að aldrei hefðu jafn margir tekið
þátt í hátíðarhöldunum á þjóðhátíð-
ardaginn í Keflavík sem í heild tók-
ust ákaflega vel.
-BB
Mannfjöldi á Lækjarg’ötu
LÖGREGLAN í Reykjavík áætlar að um 30-40 þúsund manns hafi sótt hátíðardagskrá sem skipulögð var
á öðrum tug staða í borginni.
Hátíð barnanna
17. JÚNÍ er ekki síst dagur barnanna í landinu.
Hér má sjá nokkur þeirra að leik á risastórri dýnu
sem komið hafði verið fyrir í Hallargarðinum.
Jóns forseta minnst
VIGDÍS Finnbogadóttir forseti íslands minntist
Jóns Sigurðssonar fyrir hönd íslendinga með því
að leggja blómsveig að minnismerki hans á Austur-
velli.
Þjóðhátíðarahátíðahöld í Kaupmannahöfn
Hlaðborð o g glóðarveisla
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN
var haldinn hátíðlegur í Jóns-
húsi, þar sem íslendingafélagið
hafði boðið íslenskum eldri
borgurum í kaffi. Þann 19. júní
er venjan að halda strandveislu
úti á Amager fyrir íslenskar fjöl-
skyldur. I Jónshúsi er veitinga-
salan opin alla daga nema á
mánudögum.
íslendingafélagið hefur tekið
upp þann sið að bjóða eldri borgur-
um til kaffihlaðborðs í Jónshúsi á
þjóðhátíðardeginum og hefur sá
siður mælst vel fyrir. Ýmsir aðrir
landar, sem ekki eru bundnir á
vinnustað, mæta einnig. Sendi-
herrann Ingvi S. Ingvarsson hélt
ávarp og Jóhannes Hilmisson og
María Árnadóttir leikkona
skemmtu með söng og svipmynd-
um af 17. júní, eins og til dæmis
fjallkonunni í íslenskri rigningu.
Þau Jóhannes og María hafa kom-
ið fram við ýmis tækifæri og hafa
alltaf ágæta skemmtun fram að
færa.
Glíma og pylsur
Það er fastur siður að halda
strandveislu út á Amagerströnd
fyrir íslenskar fjölskyldur laugar-
daginn eftir 17. júní. Gestir eru
hvattir til að taka með sér mat á
glóðirnar, sem íslendingafélagið
sér um. Fyrir börn og unglinga eru
leikir og síðan pylsur handa börn-
unum í lokin.
í þetta sinn er einnig glímu-
keppni_ og tilsögn í þessari þjóðar-
íþrótt Islendinga. Verið er að koma
upp glímuhóp í Kaupmannahöfn,
sem fer yfir til Málmeyjar í æfing-
ar, því þar starfar öflugt glímufé-
lag íslendinga og Svía. Aðstand-
endur þessa framtaks vonast til
að ástundun íþróttarinnar verði
fastur liður í íþróttalífinu. Þó þjálf-
arinn sé sænskur eru öll heiti og
orð á íslensku. Takmarkið er að
hægt verði að halda Norðurlanda-
meistaramót í íslenskri glímu í
náinni framtíð, en í Svíþjóð hefur
þegar verið haldið Svíþjóðarmót í
íslenskri glímu.
Veitingasalan í Jónshúsi á Öster
Voldgade 12 er opin alla daga
var að venju haldinn hátíðlegur
á Hrafnseyri við Arnarfjörð,
fæðingarstað Jóns Sigurðsson-
ar.
Hátíðin hófst með guðsþjónustu
þar sem sóknarpresturinn, sr. Ólaf-
ur Jens Sigurðsson, messaði og
kirkjukórinn á Þingeyri söng.
Að messu lokinni kynnti Þórhall-
ur Ásgeirsson, formaður Hrafns-
eyramefndar, dagskrá hátíðarinn-
ar sem hófst með hátíðarræðu
Þórs Vilhjálmssonar, forseta
hæstaréttar. Því miður gat Þór
ekki flutt ræðuna sjálfur, þar sem
hann var staddur erlendis og flutti
því sonur hans, Helgi Þórsson,
deildarstjóri í Tryggingaeftirlitinu,
hátíðarræðuna í fjarveru hans. Að
nema mánudaga. Þriðjudaga til
laugardaga er opið frá 12-20 og
hægt að fá bæði mat og kaffi, en
á sunnudögum er opið frá kl.
14-18. það er eldhúsinu, sem er
lokað kl. 20, en hægt er að sitja
áfram. í veitingahúsinu liggja ís-
lensk blöð frammi og húsið er
bæði samkomustaður íslendinga,
sem eru búsettir í Kaupmannahöfn
og ekki síður þeirra, sem aðeins
eiga leið um.
því loknu lék Rögnvaldur Sigur-
jónsson, píanóleikari, lög á píanó
sem staðurinn hefur nýlega eign-
ast og hlaut hann frábærar undir-
tektir.
Að dagskrá lokinni voru svo
bornar fram veitingar í boði
Hrafnseyrarnefndar og staðar-
haldara, þeirra Hallgríms Sveins-
sonar og Guðrúnar Steinþórsdótt-
ur.
í Hrafnseyrarnefnd sitja þeir
Þórhallur Ásgeirsson, formaður,
Matthías Bjarnason, Jón Páll Hall-
dórsson, Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli og Ágúst Böðvarsson.
Safn Jóns Sigurðssonar á
Hrafnseyri var opnað á þjóðhá-
tíðardaginn og er opið til ágúst-
loka. - Helga.
Þjóðhátíðin
á Hrafnseyri
Þingeyri.
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN