Morgunblaðið - 19.06.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.06.1993, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993 Nýjar áætlanir um Komsomolets-kafbátmn Hyggjast inn- sigla kjamaofn og tundurskeyti Moskvu. Reuter. RÚSSAR hyggjast á næsta ári hefjast handa við að innsigla tundur- skeyti og kjarnaofn Komsomolets-kafbátsins sem sökk úti fyrir strönd Noregs fyrir þrem árum. Þær aðgerðir eiga að koma í veg fyrir mengun frá flakinu og kváðu vera mun ódýrari í framkvæmd en fyrri hugmyndir um að lyfta því af hafsbotni. Haft var eftir Tengis Borisov, formanni rússneskrar nefndar sem hugar að neðansjávarframkvæmd- um, að í næsta mánuði yrði gerður út leiðangur til þess að rannsaka flak kafbátsins, og í ljósi niðurstaðna þeirra athugana yrðu lagðar fram tillögur um aðgerðir. Rannsókn, sem gerð var fyrr á þessu ári, leiddi ekki í ljós neina geislavirkni við flak Komsomolets, sem fórst í apríl 1989 og með honum 42 menn. Borisov sagði að þrátt fyrir þá niðurstöðu væri ekki hægt að útiloka möguleika á að plútóníum gæti farið að leka úr flakinu upp úr 1995, og valda talsverðri mengun í norðurhöfum. Rússar hurfu frá fyrri áætlunum um að lyfta flakinu af hafsbotni, en það liggur á 1685 metra dýpi á al- þjóðlegu hafsvæði. í nýju áætluninni er gert ráð fyrir að kjarnatundur- skeyti og kjarnaofn bátsins verði lokaður af með sérstöku efni sem mun draga í sig allan geislaleka. Haft var eftir Borisov að ráðist yrði í þessa framkvæmd á næsta ári. Rússneska nefndin komst að þeirri niðurstöðu að þessi áætlun myndi kosta sem svarar tæpum tíu - milljörðum íslenskra króna, en kosn- aður við að lyfta flakinu var áætlað- ur 30 milljarðar. „Við erum fyrst og fremst að vinna okkur tíma,“ sagði Borisov. „Eftir 5-6 ár getum við, ef nauðsyn krefur, sótt tundur- skeytin, sem mest hætta stafar af.“ Hann sagði ennfremúr að kjamaofn- inn gæti legið á hafsbotni í nokkur hundruð ár án þess að hætta stafaði af honum. Reuter Dapur Miyazawa MIYAZAWA, forsætisráðherra Japans, var ekki með neinu sérstöku gleðibragði við umræður og atkvæðagreiðslu um vantraust á ríkis- stjóm hans. Var það samþykkt fyrir atbeina margra flokksbræðra hans. Japanska þingið leyst upp og boðað til kosninga 1 kjölfar vantrausts Völdum „peningafurst- anna“ hugsanlega lokið Tókýó. Reuter. JAPANSKA stjórnin boðaði í gær til almennra þingkosninga í júlí eftir að þingið hafði samþykkt vantraust á Kiichi Miyazawa for- sætisráðherra. Er niðurstaðan mikið áfall fyrir Fijálslynda lýðræðis- flokkinn, stjórnarflokkinn, en margir þingmanna hans greiddu van- trauststiílögu stjórnarandstöðunnar atkvæði. Er jafnvel búist við, að þeir verði reknir úr flokknum fyrir vikið. Þá er einnig talið hugsanlegt, að með kosningunum verði bundinn endi á næstum fjögurra áratuga valdatíma Fijálslynda lýðræðisflokksins. Skáldkona segir frá Clinton í Oxford Bill Clinton svaf með saxófóninn London. Reuter. BILL Clinton „svaf með saxófóninn“ á skólaárum sínum í Oxford, og kunni vel félagsskap kvenna. Þetta kemur meðal annars fram í nýju viðtali við bresku skáldkonuna Söru Maitland, sem segir ennfremur, að hinn verðandi forseti Bandaríkjanna hafi fyrir 20 árum breytt lífi hennar, með hóglátri framkomu sinni við konur og kórréttu viðhorfi til femínisma. Clinton femínisti Svaf með saxið Vantrauststillagan var borin fram vegna tillögu stjórnarinnar um end- urbætur á kosningakerfinu með það fyrir augum að draga úr mikilli spill- ingu í stjórnmálum. Var hún efnis- lega aðeins á þá leið, að tekin skyldu upp einmenningskjördæmi, en stjóm- arandstaðan heldur því fram, að með því vilji spilltir „flokksbarónar" stjómarflokksins tryggja, að þeir fari með völdin lengi enn. Stjómar- flokkurinn hefur meirihluta í neðri deild en vantrauststillagan var samt samþykkt með 255 atkvæðum gegn 220. Greiddu 39 stjómarþingmenn henni atkvæði en 16 sátu hjá. Fremstur í flokki uppreisnarmanna í stjórnarflokknum er Tsutomu Hata, fyrrverandi fjármálaráðherra. Ásakanir um spillingu Umræðan um vantrauststillöguna hófst með tilfinningaþrunginni ræðu Sadaos Yamahana, leiðtoga Sósíal- istaflokksins, sem sagði, að Miy- azawa hefði svikið Japana um raun- vemlegar aðgerðir gegn spillingu og kallaði hann lygara. Viðstaddir um- ræðuna voru Yasuhiro Nakasone og Nobora Takeshita, fyrrverandi for- sætisráðherrar, sem stjórnarand- staðan kallar jafnan „peningafurst- ana“ en þeir og Fijálslyndi lýðræðis; flokkurinn eru sakaðir um að hafa tryggt sér völdin með því að ganga erinda stórfyrirtækja, og þegið fé fyrif, og með því að þóknast dreifbýl- inu með geypidýram, opinberum framkvæmdum. Mikil spenna Milljónir Japana um allt land fylgdust með umræðunni í sjónvarpi og spennan náði hámarki þegar kom að atkvæðagreiðslunni. Fögnuðu þingmenn stjómarandstöðunnar ákaflega þegar stjómarþingmenn, hver á fætur öðrum, komu upp með hvítan atkvæðaseðil til marks um stuðning við vantrauststillöguna. Japanska stjórnin leysti upp þingið í gær og verður efnt til kosninga til neðri deildarinnar innan 40 daga. Er hún valdameiri en efri deildin en þar hafa stjórnarandstæðingar verið í meirihluta síðan 1989. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur verið einn við völd í 38 ár en fréttaskýrendur telja hugsanlegt, að nú verði bundinn endi á þau. Efnahagssam- dráttur í Evrópu Brussel. Reuter. SAMDRÁTTUR verður í efnahagslífi Evrópubandalagsrílqanna (EB) á þessu ári og aðeins er útlit fyrir lítils háttar vöxt á næsta ári, að því er fram kemur í spám sem unnar hafa verið fyrir framkvæmda- stjórn EB. Maitland deildi húsi með Clinton og Strobe Talbot, sem nú er starfsmaður Hvíta húss- ins, á skólaárum þeirra í Ox- ford. Hún segir í viðtali við breska blaðið Evening Stand- ard, að hún hafi ekki síður orð- ið fyrir áhrifum frá hlýlegu við- móti Clintons en pólitískri skarpskyggni hans, og að hann hafi opnað augu hennar fyrir femínisma. Hann fékk hana til að koma með sér á fund með kvenréttindakonunni Germaine Greer. „Bill kunni vel við sig í félagsskap kvenna og gekk verr að samlagast strákaveröldinni í Oxford heldur en þeim mönnum sem komu úr skólum sem höfðu verið fyrir stráka eingöngu. Við vorum perluvinir." í blaðinu kemur fram að fátt fékkst upp úr Maitland hvað varðar svefnvenjur þeirra þre- menninga þarna í húsinu í Oxford, nema hvað hún sagði: „Bill svaf með saxófóninn sinn; eða hafði hann að minnsta kosti alltaf við rúm- ið.“ Maitland segir að hún hafi dansað við Karl Bretaprins árið 1967, og að sennilega sé hún ein af fáum konum sem hafi bæði dansað við verðandi Eng- landskonung og forseta Banda- ríkjanna. Efnahagssamdráttur á þessu ári verður 0,5% í EB og yrði það í fyrsta sinn frá 1975 að landsframleiðsla dregst saman á vettvangi þess bandalagsins. Þá gera bjartsýnustu spár aðeins ráð fyrir 1,25% hag- vexti árið 1994. í ljósi þessara upplýsinga mun Jacques Delors forseti fram- kvæmdastjórnar EB leggja að leið- togum og ríkisstjómum aðildarríkja EB á leiðtogafundi bandalagsins í Kaupmannahöfn á mánudag að þeir blási kröftuglega í glæður efna- hagslífsins og grípi til ráðstafana gegn atvinnuleysi. Banda þráast enn við BANDA lífst- íðarforseti í Malaví berst nú við að halda völdum í landinu þrátt fyrir ör- uggan sigur lýðræðisaf- lanna í und- angenginni þjóðarat- kvæðagre- iðslu. Segir harðstjórinn að úrslit kosninganna gefi aðeins til kynna áhuga kjósendanna á fijálsum kosningum. Full- trúar lýðræðisflokkanna reyna nú að ná samkomulagi við stjórnvöld í landinu um næsta skref í lýðræðisátt. Vilja þeir þjóðfund innan viku og drög að nýrri stjórnarskrá, en Banda segir bráðabirgðastjórn ekki koma til greina. Fyrsta hrefn- an veidd NORSKIR hvalfangarar veiddu í fyrradag fyrstu hrefn- una á nýhafinni vertíð. Dýra- læknir hefur staðfest að hval- urinn hafi dáið samstundis. Ekki hefur orðið vart aðgerða af hálfu friðunarsamtaka. Tuttugu og átta norsk skip halda nú til hvalveiða, og er áætlað að veiða 160 hrefnur í ábataskyni og 136 í vísinda- skyni. Svartahafs- flotanum skipt BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands, og Leoníd Kravtsjúk, forseti Ukraínu, samþykktu á fimmtudag í grundvallaratrið- um að skipta Svartahafsflot- anum á milli ríkjanna og binda enda á deilu sem hefur varpað skugga á samskipti þeirra frá hruni Sovétríkjanna. „Við byrjum að skipta flotanum til helminga í september," sagði Kravtsjúk. Stríðið í Angóla rask- ar olíuvinnslu BANDARÍSK olíufyrirtæki hafa flutt hundruð erlendra starfsmanna sinna frá olíu- lindum í Angóla, Afríkuríkinu stríðshijáða, og krefjast þess að bandaríski herinn veiti þeim vemd. Stjómin í Angóla til- kynnti í gær að hún gæti ekki staðið við nokkra olíusö- lusamninga vegna þess að olíuframleiðslan hefði minnk- að vegna bardaganna í landinu að undanfömu. Samið um stjórn Kambódíu LEIÐTOGAR tveggja helstu flokkanna í Kambódíu náðu í gær samkomulagi um skipt- ingu ráðuneyta í bráðabirgða- stjórninni sem verður við völd- in þar til þing lándsins setur nýja stjórnarskrá. Norodom Sihanouk prins verður þjóð- höfðingi og æðsti yfirmaður hersins þar til stjórnarskráin verður sett, eða í allt að þijá mánuði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.