Morgunblaðið - 19.06.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JUNI 1993
21
Fjárlög fá grænt ljós á Bandaríkjaþingi
Afdrif orkuskatts-
ins afhjúpa veik-
leika Bill Clintons
New York. Frá Huga Ólafssyni fréttaritara Morgunblaésins.
FYRSTU fjárlög BiIIs Clintons Bandaríkjaforseta fengu grænt ljós
í öldungadeild þingsins i Washington í gær. Fjárlaganefnd öldunga-
deildarinnar samþykkti að minnka ríkissjóðshallann, en féll frá al-
mennum orkuskatti, sem var einn af hornsteinum efnahags- og
umhverfisstefnu sljórnar Clintons. Orlög orkuskattsins þykja sýna
glöggt hvernig hagsmunahópar og talsmenn þeirra á þingi geta
bundið hendur forsetans.
Reuter
Flust í öruggára hverfi
SÓMALSKI drengurinn á myndinni er að hjálpa fjölskyldu sinni við að flytjast milli hverfa í Mogadishu
en hún hefur verið nágranni stríðsherrans Aideeds. Hefur verið heldur ófriðlegt í kringum bækistöðv-
ar hans síðustu daga en sjálfur hefur hann farið huldu höfði. Samkvæmt síðustu fréttum mun þó felu-
staður hans vera fundinn.
Friðargæsluliðar ráðast á höfuðstöðvar helsta stríðsherrans í Sómalíu
Aideed fer huldu
höfði í Mogadishu
__ Mojradishu, Nairobi. Reuter, The Daily Telegraph.
ÁRASARÞYRLUR flugu í gær yfir Mogadishu, höfuðborg Sómalíu,
en hermenn á vegum Sameinuðu þjóðanna reyndu ekki að hafa uppi
á Mohamed Farah Aideed, helsta stríðsherra landsins, sem er í felum
í borginni eftir árás á höfuðstöðvar hans á fimmtudag. Sómalska
þjóðarbandalagið, pólitísk hreyfing undir sljórn Aideeds, kvaðst
hafa tekið 14 friðargæsluliða til fanga, tvo Bandaríkjamenn og tólf
Marokkómenn, en talsmaður friðargæsluliðsins vísaði því á bug.
Bandarískar herþotur gerðu árás
á höfuðstöðvar Aideeds á fimmtu-
dag og eyðilögðu þak þeirra. 50
Pakistanskir hermenn réðust síðan
inn í höfðustöðvarnar en stríðsherr-
ann hafði þá flúið þaðan og hugsan-
lega fengið upplýsingar um tíma-
setningu árásarinnar. Óstaðfestar
fregnir hermdu að hann væri í fel-
um í sjúkrahúsi í einu af úthverfum
borgarinnar.
Allt var með kyrrum kjörum á
götum borgarinnar í gær. Bill Clint-
on, forseti Bandaríkjanna, sagði að
hernaðaraðgerðunum væri lokið og
skæruliðasveitir Aideeds hefðu ver-
ið brotnar á bak aftur.
Jonathan Howe, sérlegur sendi-
maður Sameinuðu þjóðanna í Sóm-
alíu, fyrirskipaði friðargæsluliðun-
um að handtaka Aideed og sagði
hann „ógnun við Sómalíu og samfé-
lag þjóðanna".
Fréttaskýrendur sögðu að hand-
taka Aideeds myndi skapa tórnarúm
sem öðrum stríðsherrum, sem eru
illræmdir fyrir grimmd og spillingu,
væri umhugað að fylla.
60 Sómalir biðu bana
Læknar í Mogadishu segja að
rúmlega 60 Sómalir hafi beðið bana
og 100 særst í bardögunum á
fimmtudag. Óljóst var hversu marg-
ir friðargæsluliðar féllu. Embættis-
maður Sameinuðu þjóðanna í New
York sagði að fimm friðargæslulið-
ar, fjórír Marokkómenn og Pakist-
ani, hefðu beðið bana og 44 særst.
Yfirmaður ítölsku hersveitanna í
Mogadishu sagði hins vegar sjö frið-
argæsluliða hafa fallið, sex Marok-
kómenn og Pakistana.
Stjórnmálaskýrendur segja að
Clinton hafi aldrei reynt að skýra
fyrir kjósendum kosti orkuskattsins
og því hafi hann orðið auðveld bráð
fyrir hagsmunagæsluliða í Wash-
ington. I meðförum fulltrúadeildar-
innar náðu þingmenn norðaustur-
ríkja fram undanþágu fyrir olíu til
húshitunar, fulltrúar landbúnaðar-
héraða fyrir etanól unnið úr korni,
og þingmenn með álverksmiðju í
bakgarðinum fyrir rafmagn til ál-
bræðslu. Skatturinn var orðinn míg-
lekur þegar hann var sendur til öld-
ungadeildarinnar, þar sem þing-
menn frá olíuvinnsluríkjum sökktu
honum endanlega. Takmarkaður
bensínskattur sem koma á í staðinn
lendir líklega beint á neytendum,
en ekki á fyrirtækjum og skilar inn
aðeins þriðjungi af því sem almenni
skatturinn átti að afla ríkissjóði.
Búist er við að öldungadeild þings-
ins greiði atkvæði um fjárlögin í
næstu viku og síðan þarf að sam-
ræma þær útgáfur sem samþykktar
voru annars vegar í öldungadeild
og hins vegar í fulltrúadeild.
Margir hagfræðingar töldu orku-
skatt kjörráð til að draga úr sóun,
en Bandaríkjamenn eyða tvöfalt til
þrefalt meiri orku á mann en flest-
ar aðrar iðnvæddar þjóðar. Orku-
verðið sýnir þó ekki „falinn kostn-
að“, sem almenningur borgar meðal
annars í skatta til að standa straum
af mengunarvörnum og orkuskatt-
urinn átti að draga úr mengun með
einföldum verðskilaboðum til mark-
aðarins í stað þess að styðjast við
boð og bönn og kostnaðarsamt eft-
irlit.
Slík hagsýn umhverfisverndar-
stefna væri mjög í anda Als Gore
varaforseta, en hann virðist fá lítinn
hljómgrunn um þessar mundir.
Stjórn Clintons boðaði fyrir nokkru
mikla hækkun á gjöldum fyrir skóg-
arhögg og beit á ríkisjörðum, sem
höfðu verið óbreytt í áratugi og
jafngiltu víða stórfelldum niður-
greiðslum á umhverifsspjöllum. Til-
lögurnar voru lofaðar jafnt af frjáls-
hyggjumönnum og græningjum, en
voru þó fljótlega dregnar í land
vegna andstöðu þingmanna frá
vesturríkjunum, sem töldu vegið að
valdamiklum hagsmunahópum sem
græddu á sukkinu og voru gjafmiid-
ir í kosningasjóði.
Nú spytja margir hvernig Clinton
ætli að koma umdeildum stórmálum
eins og umbótum á heilbrigðiskerf-
inu i gegn fyrst hann gat ekki náð
fyrrgreindum stefnumálum í gegn-
um þing þar sem demókratar ráða
ríkjum. Það bólar enda hvergi á
heilbrigðisstefnu forsetans, sem
hann ætlaði að opinbera fyrir 50
dögum og hann á á brattann að
sækja gegn ásökunum um að hann
sé veikur leiðtogi í spennitreyju
sérhagsmuna og agalausra smá-
kónga á þingi.
Airbus-þota slær
öll fyrri flugmet
París. Rcutcr.
FRÖNSK Airbus A-340 farþegaþota sló öll met er hún flaug 19.100
kílómetra vegalengd í einum áfanga frá Le Bourget flugvellinum í
París til Auckland á Nýja Sjálandi á 21 klukkustund og 32 mínútum
í fyrradag. Lengdarmetið stóð skammt því á heimleiðinni bættu flug-
menn þotunnar um betur, flugu þá 19.258 kílómetra á 21 stund og
46 mínútum. Er það 1.258 kílómetrum lengra flug en Boeing 747
breiðþota flaug árið 1989.
Þotan, „Heimsflakkarinn", var
hálfri klukkustund fljótari á leiðinni
til Auckland en áætlað hafði verið
og átti eftir eldsneyti til rúmlega
þriggja stunda flugs er hún lenti.
Þotan flaug frá París í austurátt
yfir Evrópu norðanverða,'Rússland,
niður yfir Japan og vesturhluta
Kyrrahafsins. Aðeins var höfð fimm
stunda viðdvöl í Auckland áður en
heimferðinni til Parísar var haldið
áfram. Þangað var farið í einum
áfanga. Enn var flogið í til austurs
yfir Kyrrahafið, Alaska, yfir Norður-
pólinn, rétt austur af íslandi og svo
niður yfir Bretland áður en lent var
á hádegi í gær á Le Bourget flugvell-
inum í París. Er það sami flugvöllur
og Charles Lindbergh lenti á er hann
flaug fyrstur allra yfir Atlantshaflð
í einum áfanga árið 1927.
Lítil þægindi
Öll flugferðin að viðdvöl meðtal-
inni tók innan við 48 stundir og 22
mínútur en brottförin tafðist vegna
mikils áhuga nýsjálenskra blaða-
manna á viðtölum við ferðalangana.
Engin farþegaflugvél hefur lokið
hnattflugi á skemmri tíma ef hin
hljóðfráa Concorde er undanskilin
en í fyrra flaug slík þota í eigu
franska flugfélagsins Air France
umhverfís jörðina á 32 stundum og
49 mínútum með viðkomu til elds-
neytistöku á mörgum stöðum.
Um borð í Airbus A-340 þotunni
í hnattfluginu voru 22 menn, helm-
ingurinn flugmenn en einnig blaða-
menn og flugfreyja. Aukasæti voru
tekin úr þotunni og annar ónauðsyn-
legur búnaður til að auka nýtingu
þess eldsneytis sem rúmast í tönkum
þotunnar og urðu ferðalangamir
þannig að gera sér lítil þægindi að
góðu, meðal annars að sofa í svefn-
pokum á hörðu gólfi flugvélarinnar.
Airbus A-340 er ein af nýjustu
flugvélum Airbus Industrie flugvéla-
verksmiðjanna sem eiga í harðri
samkeppni við bandaríska flugvéla-
framleiðendur um hylli flugfélaga.
Hún er fjögurra hreyfla og tekur
263 farþega.
Reuter
Gleðjast yfir flugafreki
TVEIR af flugmönnum Airbus A-340 þotunnar fyrir framan flugvél-
ina á flugvellinum í Auckland eftir að hafa flogið 19.100 kílómetra
í einum áfanga á 21 klukkustund og 32 mínútum. Þaðan flaug þotan
svo í einum áfanga til Parísar og sló sólarhringsgamalt lengdarmet
sitt, flaug 19.258 km leið á 21 stundu og 46 mínútum.
Kosið á Ítalíu
Norður-
sambandið
sigrirvisst
Mílanó. Reuter.
ALLT útlit er fyrir að Norður-
sambandið komist til valda í
Mílanó á Ítalíu í seinni umferð
sveitarstjórnarkosninganna sem
fram fer á morgun. Frambjóð-
andi sambandsins til embættis
borgarstjóra, Marco Formentini,
nýtur mun meira fylgis en rithöf-
undurinn Nando dalla Chiesa,
sem er fulltrúi kosningabanda-
lags vinstri manna.
Reiði í garð spilltra stjórnmála-
flokka sem hafa haft tögl og hagld-
ir í ítölskum stjórnmálum í áratugi,
hefur átt stærstan þátt í skjótum
árangri Norðursambandsins, sem
hefur á stefnuskrá að breyta ítaliu
í fylkjaskipt ríki, til þess að draga
úr söfnun valds í Róm. í fyrrí um-
ferð sveitarstjórnarkosninganna,
sem fór fram þann 6. júní, fékk
Norðursambandið 41% atkvæða til
borgarráðs, og er það mesta fylgi
sem mælst hefur einum flokki þar
síðan í seinni heimsstyijöld.
Andstæðingar Norðursambands-
ins benda á, að sú stefna þess að
leggja áherslu á hagsmuni Norður-
Ítalíu, bendi til kynþáttafordóma.
Ókunn sýki bæklar fílana
London. The Daily Telegfraph.
FÍLAR í Matusadona þjóðgarðinum, norðarlega
í Zimbabwe, þjást nú af áður óþekktum sjúk-
dómi sem lamar á þeim ranana. Bæklunin dreg-
ur þá til dauða, því þeir eru ekki færir um að
afla sér matar.
Lömunin byijar í ranabroddinum, en breiðist síðan
út. Bill Jordan, formaður breskra dýraverndunar-
samtaka, segir vöðva dýranna rýrna smám saman,
þar til þau geta ekki lengur notað ranann til að
lyfta gróðri af jörðinni og upp í munninn á sér. Nú
þegar hafa tvö dýr verið aflífuð. „Ef ekki verður
brugðist skjótt við munu fleiri deyja,“ sagði Jordan.
Dýraverndunarsamtökin hafa hafið herferð til
þess að aðstoða verndunarsinna í Zimbabwe við
rannsókn á sjúkdómnum. Yfirvöld í landinu óttast
að mengun kunni að vera orsök sjúkdómsins.