Morgunblaðið - 19.06.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
41
Þverskurðarmynd af
þjóðinni á líðandi stund
Frá Pétri Má Ólafssyni:
Sunnudaginn 13. júní birtist
grein eftir Auðun Braga Sveinsson
í Morgunblaðinu þar sem hann fjall-
ar um bókina Samtíðarmenn sem
kom úr hjá Vöku-Helgarfelli fyrir
skömmu. Hann velti þar fyrir sér
vali á einstaklingum í ritið og fínnst
honum að býsna margir komi við
sögu sem almenningur hafi ekki
hugmynd um að séu til.
En hvernig er fólk valið í bók
um íslenska samtíðarmenn? Út frá
hvaða forsendum er gengið? Slíkar
og þvílíkar spumingar eru meðal
þeirra sem við hjá Vöku-Helgafelli
höfum heyrt að undanförnu eftir
að nýjasta og viðamesta ritið af
þessu tagi, Samtíðarmenn, kom út.
Þær eru mjög eðlilegar og auðvitað
geta allir haft skoðun á því hvort
þessi eða hinn eigi að vera í ævi-
skrárriti sem þessu. Það er ánægju-
legt að finna hve viðbrögð við bók-
inni hafa verið góð í heildina og
að sjá hve notadijúg hún reynist
fólki sem þegar hefur eignast hana.
Það er ljóst að með bókinni hefur
verið bætt úr brýnni þörf þar sem
ekkert sambærilegt rit var búið að
vera á markaðnum í áratug.
Sú nýbreytni var tekin upp við
val á mönnum í bókina að miðað
var við það eitt að viðkomandi
væri áberandi í þjóðlífinu um þessar
mundir. Ritstjóm verksins og rit-
stjóri, Vilhelm G. Kristinsson frétta-
maður, fengu til liðs við sig hjóp
valinkunnra karla og kvenna við
valið. Þessir ráðunautar vom þau
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari, Haraldur Ólafsson dósent,
Helgi Seljan fræðslufulltrúi, Sigur-
veig Jónsdóttir fyrrverandi frétta-
stjóri og Þóra Kristjánsdóttir list-
fræðingur, en þetta fólk þekkir vel
til á ólíkum sviðum þjóðfélagsins.
Hópurinn ber þó á engan hátt
ábyrgð á því hveijir em í bókinni.
Einnig var leitað til fjölda samtaka,
starfsgreina, félaga og stofnana um
ábendingar um nöfn. Leitast var
við að hafa sem mesta breidd í
þessum hópi og sýna þannig þver-
skurðarmynd af þjóðinni og við-
fangsefnum hennar á.líðandi stund.
í Samtíðarmönnum standa þannig
saman hlið við hlið kornungur
íþróttamaður, miðaldra kaupsýslu-
maður, aldraður stjórnmálamaður,
ungt fjölmiðlafólk og listafólk á öll-
um aldri. Áður vom hins vegar nær
eingöngu embættismenn og há-
skólamenntað fólk haft í slíkum
bókum. Mönnum fínnst hins vegar
Kvennahlaupið
Frá Unni Stefánsdóttur:
„Ætlar þú ekki að koma með í
kvennahlaupið?“ Þessa spurningu
heyrði ég konu spyija aðra konu
í biðröðinni í bankanum í vikunni.
Sú sem spurð var svaraði því til
að auðvitað ætlaði hún með, dóttir-
in og dótturdóttirin líka. Það er
einmitt þetta sem er svo einkenn-
andi fyrir kvennahlaupið að allar
konur geta verið með. Sumar
hlaupa og hlaupa hratt, aðrar
hlaupa hægar, enn aðrar ganga
rösklega og sumar ganga hægt.
Það er orðinn fastur liður í tilver-
unni á vorin að taka þátt í kvenna-
hlaupinu og nú ber hlaupadaginn
upp á 19. júní, sjálfan kvennrétt-
indadaginn.
Hvað er svona skemmtilegt við
kvennahlaupið?
Nýlega spurði félagi minn að
því hvað væri svona skemmtilegt
við þessi kvennahlaup. Það er al-
veg sérstök stemmning sem fylgir
því að vera með, sagði ég honum.
Þarna koma saman konur á mis-
munandi aldri og taka þátt hver
í sinni forsendu. Konur sem vinna
saman æfa gjarnan sérstaklega
fyrir þetta hlaup, saumaklúbbar
sem eru þekktir fyrir annað en
hlaupa mæta, svo maður tali nú
| ekki um alla trimmhópana sem eru
á sífelldri hreyfíngu og mæta galv-
askir á staðinn. Einn af kostunum
við þetta hlaup er að engu skiptir
hversu lengi er verið á leiðinni og
að þessu sinni ætla ég til dæmis
VELVAKANDI
Síamsköttur hvarf frá
Kaplaskjólsvegi
SÍAMSHÖGNI, eyrnamerktur
og með bláa og rauða ól, hvarf
frá Kaplaskjólsvegi 59 þann 16.
júní sl. Hafí einhver orðið katt-
arins var er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma 11894.
Kettlingur
FALLEG þriggja mánaða læða
óskar eftir góðu heimili. Uppiýs-
ingar í síma 673796 á kvöldin.
Kettlingar í heimilisleit
TVEIR tveggja mánaða gamlir
kettlingar, fress og læða, fást
gefíns. Þeir eru kassavanir og
hreinlegir. Upplýsingar í síma
54366.
Týndur köttur
SNÚLLI týndist 5. júní sk Hann
er grár og hvítur högni með
bláa hálsól og býr á Básenda
10. Ef einhver hefur orðið hans
var er hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma 32142.
alltaf vanta einhveija í rit af þessu
tagi. Á því kunna að vera ýmsar
skýringar, s.s. að viðkomandi hafí
ekki skilað inn upplýsingum sem
leitað var eftir þrátt fyrir ítrekaðar
óskir ritstjóra (hringt var átján
sinnum í suma!) eða menn hafa
ekki viljað að um þá væri fjallað á
síðum bókarinnar af persónulegum
ástæðum. Varð ritsjórnin að sjálf-
sögðu við slíkum óskum.
I valinu á fólki í bókina Samtíðar-
menn felst á engan hátt dómur um
það hversu merkilegir menn eru.
Þessir íslendingar eiga það eitt
sameiginlegt að vera í sviðsljósinu
nú um stundir og samferðamenn
þeirra kann að vanta upplýsingar
um þá, bæði heima og í vinnunni.
Þetta er þannig hagnýt bók með
skýrt notagildi og verður mönnum
vonandi til fróðleiks og ánægju. Val
á mönnum í slíkt rit er hins vegar
umdeilanlegt og myndu líklega eng-
ir tveir velja sama 2.000 manna
hópinn í það og valið getur líka
orðið breytilegt eftir því hvenær það
fer fram því að sumir hverfa fljótt
úr sviðsljósum fjölmiðlanna og sí-
fellt beinist athyglin að nýjum sam-
tíðarmönnum. Kjarni málsins er sá
að bókin Samtíðarmenn birtir þver-
skurðarmynd af íslensku þjóðinni
og viðfangsefnum hennar á líðandi
stund.
F.h. Vöku-Helgafells hf.,
PÉTUR MÁR ÓLAFSSON
útgáfustjóri.
KVENNAHLAUP ÍSÍ
19.júní 1993
að njóta þess að fara með litlu
dóttur mína í vagninum sínum og
vinkona mín úr íþróttunum sem
nýlega er staðin uppúr veikindum
ætlar að ganga með okkur. í ár
verður hlaupið á meira en 50 stöð-
um á landinu og er það að þakka
röggsemi starfsfólks hjá samtök-
unum íþróttir fyrir alla, sem hefur
nú tekið að sér framkvæmd
hlaupsins.
íþróttadagar kvenna
það er mikið um að vera hjá
konum í íþróttum í kringum 19.
júní. Umbótanefnd ÍSÍ í kvenna-
íþróttum stendur fyrir íþróttadög-
um kvenna í samvinnu við sérsam-
bönd ÍSÍ. Margskonar tilboð verða
hjá hinum ýmsu sérsamböndum
af þessu tilefni og hvet ég konur
til þess að nýta sér þau tækifæri
sem þar bjóðast.
Á sérstöku veggspjaldi sem gef-
ið er út í tilefni íþróttadaga kvenna
eru myndir af afrekskonum í hin-
um ýmsu íþróttagreinum, allt frá
Ólympíuförum til kvenna í kvenna-
hlaupi. Einmitt þannig viljum við
hafa þá fyrirmynd sem stúlkur
hafa af íþróttum, íþróttaiðkand-
ann og afrekskonuna hlið við hlið.
UNNUR STEFÁNSDÓTTIR
formaður umbótanefndar ÍSÍ
fyrir kvennaíþróttir
iwifm
----
Vinningstölur . . •
miðvikudaginn:! 16- iúni 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPH/EÐ Á HVERN VINNING
m 6 a» 6 1 (á ísl. 0) 25.140.000,-
51 5 af 6 tÆ+bonus 1 2.535.025,-
Rl 5 af 6 2 157.465,-
| 4 af 6 232 2.159,-
n 3 af 6 t*J+bónus 977 220,-
BÓNUSTÖLUR
©@@
Heiktarupphæð þessa viku
28.705.783,-
á fsi.: 3.565.783,-
LÝSINGAI
LUKKULÍNA 9910 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FVRIRVARA UM PRENTVILLUR
LEIÐRETTINGAR
Heilsa en ekki
heild
Nokkrar stafavillur urðu í grein
Guðrúnar Agnarsdóttur forstjóra
Krabbameinsfélags íslands í blað-
inu hinn 17. júní. Ein er þó sýnu
verst, þvf að hún gerir merkingu
síðustu málssgreinar óskiljanlega,
þar sem orðið „heild" kom í stað
orðsins „heilsu". Setningin átti að
hljóða svo: „Méð þátttöku eflum við
eigin heilsu, en sýnum 'jafnframt
öðrum konum samstöðu og for-
dæmi. Komdu og vertu með á
kvennadaginn". Átt er við kvenna-
hlaup ÍSÍ, sem fram fer í dag. Beð-
ist er velvirðingar á þessum villum.
Akstur og sigling
um Evrópu
Áætlun fyrir ógústferð okkar er nú komin út. Logt verður af stoð fró
Reykjavík 18. ógúst og ekið um íslond, Þýskaland, Danmörku og Noreg.
Komið aftur til Reykjavíkur 3. september.
íslenskur fararstjóri._ Áætlað verð kr. 104.860,-
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónssonar
Símí 683222
Borgartúni 34, Reykjavfk, sími 683222.
arorstjóri. A
Búfræðikandi-
datar
í frétt í Morgunblaðinu á mið-
vikudag, þar sem skýrt var frá
brautskráningu búfræðikandidata
frá Hvanneyri stóð í fyrirsögn „bú-
fræðistúdentar“. Engin slík próf-
gráða er til og átti þar að sjálf-
sögðu að standa „búfræðikandidat-
ar“.
Nafn misritaðist
í frétt Morgunblaðsins á fimmtu-
dag frá afhendingu landgræðslu-
verðlauna í Gunnarsliolti misritaðist
nafn manns, sem tók við verðlaun-
um fyrir hönd Guðrúnar Dagbjarts-
dóttur. Villan var í myndatexta, en
hann heitir Guðmundur Ingimund-
arson. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Hluti úr setningu
féll niður
Við vinnslu greinar um verð-
tryggingu í viðskiptablaði sl.
fimmtudag urðu þau mistök að hluti
úr setningu í samtali við Birgi ísleif
Gunnarsson, seðlabankastjóra, féll
niður þannig að hún varð óskiljan-
leg. Setningin átti að hljóða svo:
„Verðtryggingin hamlar gegn því
að íslensk verðbréf verði gjaldgeng
á erlendum mörkuðum." Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Kjuklmgar
á kostaboði
Velkomin í kjuklingakrœsingarnar okkar
Fjölskyldupakki fyrir 5.
10 kjúklingabitar, franskar,sósa og salat Verb 1990 kr
Athugiö abeins 398 kr á mann
Fjölskyldupakki fyrir 3.
6 kjúklingabitar,franskar,sósa og salat Verb 1290 kr.
Pakki fyrir 1
2 kjúklingabitar,franskar,sósa og salat Verb 490 kr
Hraórétta veitingastaður
'hiarta borqarinnar
O
4 Sími 29117
Þú getur bæöi tekiö matinn meö þér heim eöa boröaö hann á staönum