Morgunblaðið - 19.06.1993, Side 44

Morgunblaðið - 19.06.1993, Side 44
-t Dollara- bréf fyrir 32 millj. þegar seld ALLS hafa borist óskir um kaup á um hálfri milljón dollara af skuldabréfum ríkissjóðs í dollur- um sem fyrirhugað er að hefja sölu á hér á landi í næstu viku. Það svarar til 32 milljóna ís- lenskra króna. Að sögn Pálma Sigmarssonar, framkvæmdastjóra hjá Handsali hf., sem annast sölu bréfanna, hafa bæði lífeyrissjóðir og einstaklingar sýnt því áhuga að kaupa bréfin og hafa viðbrögð þeirra verið mjög jákvæð. Bins og fram kom í Morgunblaðinu —>•Mimmtudag hefur ríkissjóður ákveð- ið að setja á markað hér á landi skuldabréf í dollurum sem gefín voru út fyrir alþjóðlegan íjármálamarkað í síðustu viku. Pálmi sagði að líklega yrði unnt að útvega meira af bréfunum ef sal- an færi fram yfir þá einu milljón dollara sem ráðgert er að selja í fyrstu. Verðbréfafyrirtækið Goldman Sachs hefði keypt talsvert af bréfum og því mögulega hægt að fá margar milljónir dollara í viðbót. Flugskýli Flugleiða Þrír grímuklæddir menn frömdu vopnað rán í byssuverslun í Kópavogi Á vettvangi með táragasið AGNAR Guðjónsson, eigandi Byssusmiðju Agnars, við búðarborðið þar sem grímuklæddir menn beindu að höfði hans haglabyssu. Hann heldur á táragasbrúsanum sem hann beitti til að stökkva tveimur þeirra á flótta, en þann þriðja sneri hann niður. Eftirlits myndavél truflaði ratsjár ~~ STARFSMENN Fjarskiptaeftir- litsins sem síðdegis í gær voru að leita að því hvað ylli truflun- um í búnaði Ratsjárstofnunar á Miðnesheiði fundu skýringuna í eftirlitsmyndavél í rjáfri nýs flugskýlis Flugleiða. Vélin var tengd sendibúnaði sem sendi inn á skrifstofu til Tollgæsl- unnar í Leifsstöð þar sem var bún- aður til að fylgjast með sendingum vélarinnar. Ekki tókst að fá stað- fest hvort senditíðni búnaðarins hefði verið skráð hjá yfirvöldum. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var starfsmönnum í flugskýlinu tjáð að myndavélin vseri á vegum íslenska ríkisins. Að sögn Gottskálks Ólafssonar, yfirtollvarðar á Keflavíkurflugvelli, er um að ræða hluta af hreyfanleg- um eftirlitsbúnaði, sem komið var upp í tilraunaskyni fyrir 10 dögum. --------» ♦ ♦--- Sá stærsti úr Laxá -rtptT ÆRSTI lax sumarsins var dreg- inn úr Laxá í Aðaldal í fyrrakvöld. Það var Ingólfur Bragason, fram- kvæmdastjóri Laxárfélagsins, sem veiddi laxinn, 19,5 punda nýgenginn hæng, í Kistukvísl. Veiðin hefur far- ið rólega af stað í íslenskum laxveiði- ám, en verið einna líflegust í Aðal- dalnum, um 70 laxar. Sjá: „Eru þeir að fá ’ann?“ á bls. 5. Beindu haglabyssu milli augna búðareigandans Tókst að yfirbuga einn ránsmanna og hinir tveir náðust í gærkveldi Morgunblaðið/Kristinn Sópransöngkonu innilega fagnað „ÞETTA var mín tónlist, svona er ég,“ sagði Ghena Dimitrova sópran- söngkona að loknum tónleikum í Kaplakrika í Hafnarfírði í gærkvöld. Þar söng hún frægar dramatískar aríur úr ítölskum óperum við undir- leik Sinfóníuhljómsveitar íslands undir stjórn Christos Stanischeffs. Tónleikagestir kunnu sér vart læti að loknum tónleikunum og fögnuðu Dimitrovu vel og lengi. „ÞEIR komu inn í verslunina með haglabyssu og kylfu og maður verð- ur smeykur þegar haglabyssu er beint að andliti manns. Ég veit hvað hægt er að gera með þessum verkfærum," sagði Agnar Guðjónsson, eigandi Byssusmiðju Agnars á Kársnesbraut í Kópavogi, en þrír grímu- klæddir menn, allir undir tvítugu, réðust inn í verslun hans rétt fyrir lokunartíma í gær, vopnaðir hafnaboltakylfu og haglabyssu, í þeim tilgangi að ræna skammbyssum, að því er Agnar taldi líklegast. Tveir mannanna komust undan en voru handsamaðir skömmu síðar. Agnar slasaðist í viðskiptum sínum við mennina, marðist og skarst á hendi. Agnar úðaði úr táragasbrúsa í andlit þess sem beindi að honum byssunni á meðan hinir tveir létu kylfuhöggin dynja á honum. Tveir þeirra lögðu síðan á flótta en Agnar sneri þann þriðja niður og náði að gera lögreglu viðvart. Lögreglan handsamaði félaga hans á flótta í gær. Agnar kvaðst hafa táragas í verslun sinni sérstaklega til þess að grípa til við aðstæður sem þessar, sem hann hefði þó vonast til að ættu aldrei eftir að koma upp. Henti byssunni frá sér „Þeir voru með lambhúshettur fyr- ir andlitinu, eins og Víkingasveitar- menn. En þeir vildu hvorki peninga né stórar byssur. Þeir voru greinilega á höttunum eftir smærri verkfærum, þ.e.a.s. skammbyssum. Þeir vildu fá að gramsa í hillunum. Ég náði í táragasbrúsann sem var innan seil- ingar, hélt flautunni frá og náði að sprauta framan í þann sem beindi að mér haglabyssunni. Hann henti byssunni frá sér. Ég sneri mér að hinum tveimur, sprautaði framan í þá, og náði að halda öðrum þeirra meðan hinir flýðu,“ sagði Agnar. Lagt á ráðin Meðan á átökunum stóð létu mennirnir kylfuhöggin dynja á hægri hönd Agnars og öxl og hann skarst á hendi eftir haglabyssuna. „Sá sem ég náði að snúa niður vogaði sér ekki að hreyfa sig meðan ég hringdi á lögreglu, því ég hef aldrei orðið jafnillur á ævinni. Hann lagðist í gólfið, tók af sér hettuna, og sagðist gefast upp. Ég get ekki skýrt hvað ég var að hugsa meðan á þessu stóð, kannski geta menn ímyndað sér hvað þeir myndu gera ef haglabyssuhlaupi er beint á milli augna þeirra." Agnar kvaðst fullviss um að menn- irnir hefðu lagt á ráðin áður en þeir réðust inn í verslunina. Mennirnir hefðu verið mjög æstir og rutt um koll byssum og öðrum varningi þegar þeir forðuðu sér út úr versluninni. Telur Agnar að tjónið sem mennirnir ollu nemi á bilinu hálfri til heilli millj- ón kr. Hann taldi vlst að mennirnir hefðu verið undir áhrifum eiturlyfja miðað við atgang þeirra og útlit. Óljós tilgangur Gísli Pálsson, lögreglufulltrúi hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, sagði að á þessu stigi málsins væri óljóst hver tilgangur mannanna hefði verið og því erfitt að svara því til hvort þetta mál eigi sér einhverja hliðstæðu hér á landi. Lögreglan hefur áður haft afskipti af tveimur mannanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.