Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INIMLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1993
EFIMI
Mb. Heiðrún heldur í sína fyrstu veiðiferð undir merkjum Ósvarar hf.
A veiðar
eftír fjóra
mánuði
Bolungarvík.
ÞAÐ var létt yfir áhöfn mb.
Heiðrúnar er hún lét úr höfn í
sína fyrstu veiðiferð eftir að al-
menningshlutafélagið Ósvör hf.
í Bolungarvík keypti skipið í
kjölfar gjaldþrots Einars Guð-
finnssonar hf. en skipið hefur
verið bundið við bryggju frá 18.
febrúar síðastliðnum.
Skipstjóri í þessari fyrstu veiði-
ferð undir nýjum merkjum er Jón
E. Sigurgeirsson, en hann ásamt
Einari Hálfdánarsyni, eru og hafa
verið skipstjórar á skipinu um ára-
bil. 13 manna áhöfn skipsins verður
hin sama og var á Heiðrúnu er hún
stöðvaðist við gjaldþrotið.
Jón E. Sigurgeirsson sagði að
þessi veiðiferð legðist vel í sig.
Hann væri bjartsýnn á framtíðina
þó aflabrögð væru. erfið. Hann kvað
litlar fréttir vera af miðunum og
óljóst hvert hann stefndi.
Hitt skip Ósvarar hf. Dagrún
þarf að fara í flokkunarviðgerð og
er áætlað að hún geti farið til veiða
eftir um 3 vikur. - Gunnar
Haldið á miðin
Morgunblaoið/uunnar
SKIPVERJAR á Heiðrúnu gera klárt fyrir fyrstu veiðiferð skipsins í eigu almenningshlutafélagsins
Ósvarar hf. í Bolungarvík á föstudag. Heiðrún hefur legið við landfestar í fjóra mánuði vegna
gjaldþrots Einars Guðfinnssonar hf.
Staðan á útflutningsmörkuðum sjávarafurða
A
► 1-48
Akureyri í djúpum dal
►Iðnaðurinn á Akureyri er kom-
inn í þrot. Landsbankinn er orðin
einn stærsti vinnuveitandinn í
bænum. Atvinnuhorfur iðnverka-
fólks í bænum eru slæmar./lO
Lífstíðarforseti lætur í
minni pokann
►Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem
fram fór í Malaví í liðinni viku,
virðist hafa bundið enda á valda-
feril Hastings Banda forseta./14
ísland er mín orkustöð
►María Guðmundsdóttir, ljós-
myndari og fyrrum fyrirsæta, er
að hefjast handa við tvö stórverk-
efni hér á landi. Annars vegar
hyggur hún á töku ljósmynda, með
fjölbreytta útgáfu í huga, og hins
vegar gerð kvikmyndar um Djúpu-
vík á Ströndum./16
Að leggja ekki upp
laupana
►Tveir vinir, sem báðir slösuðust
til sjós, neituðu að leggja upp laup-
ana og hafa nú opnað veitingahús-
ið Gullborg í Reykjavík./ 18
B
Meðalverð afurða
er nánast óbreytt
MEÐALVERÐ sjávarafurða um miðjan júní lækkaði lítillega frá maí
mælt í SDR eða um 0,8%, skv. upplýsingum Þjóðhagsstofnunar. Staf-
ar lækkunin að mestu af innbyrðis breytingum á gengi gjaldmiðla,
einkum vegna hækkunar Bandaríkjadals. I krónum talið hefur af-
urðaverð lítið breyst og er raunar um að ræða 0,1% hækkun meðal-
verðs í krónum talið. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur lyá Þjóðhags-
stofnun, segir að um litlar breytingar sé að ræða á verðum í júní
en segir að verð á hörpudiski hafi hækkað örlítið eftir verulegar
verðlækkanir í vetur.
Aukablað frá
Kringlunni
í AUKABLAÐI sem fylgir
Morgunblaðinu í dag eru kynnt-
ar nýjar vörur sem boðnar
verða með afsiætti á Kringlu-
kasti í Kringlunni 22.-24. júní.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir að litlar
breytingar hafi átt sér stað á mörk-
uðum fyrir útfluttar sjávarafurðir á
síðustu vikum. „Það gefur í sjálfu
sér ákveðnar vonir um að botninum
hafí verið náð en það kann líka ein-
ungis að tákna að lítið sé að gerast
á mörkuðum um þessar mundir.
En það hefur greinilega dregið úr
hraða verðlækkana að undan-
fömu,“ segir Þórður.
Meðalverð á sjávarafurðum
lækkaði mjög á síðustu tveimur til
þremur misserum. Verðlækkunin í
maí stafaði fyrst og fremst af lækk-
un á verði saltfísks, humars og
loðnumjöls en meðalverð sjávaraf-
urða er nú 13-14% lægra en að
meðaltali á sfðasta ári.
Áætlað verðlag sjávar-
afurða 1992-93
125------ Vísitala á SDR-gengi,
1987ersettá100
95-i -t i i t i i i i i > ii . i ii
J A J 0 J A
Rækjuveiðar við Nýfundnaland ganga vel
Aflaverðmætið er
þrjár millj. á dag
RÆKJUVEIÐAR íslensku skipanna fimm á miðunum við Nýfundnaland
sem kallast Flæmski hatturinn hafa hingað til gengið vel. Að sögn
Róberts Guðfinnssonar framkvæmdastjóra Þormóðs ramma hf. hefur
aflaverðmæti skips Þormóðs ramma, Sunnu, verið um 3 milljónir króna
á dag að meðaltali síðan það kom á miðin á sunnudaginn var.
Róbert kvaðst í samtali við Morg-
unblaðið ekki óttast fréttir um að
mikill afli muni valda verðhruni á
rækjumarkaði. „Rækja er og hefur
Vopnað rán í Kópavogi
Mennirnir í
gæsluvarðhald
MENNIRNIR þrír sem réðust inn
í byssuverslun í Kópavogi síðdegis
á föstudag vopnaðir haglabyssu
og kylfu voru. úrskurðaðir I 16
daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær að kröfu Rann-
sóknarlögreglu rikisins.
Mennimir þrír, sem etu ailir undir
tvítugu, voru yfirheyrðir hjá Rann-
sóknarlögreglunni í gærmorgun.
Fram kom við rannsókn málsins að
haglabyssan sem mennimir beindu
að eiganda verslunarinnar var óhlað-
in samkvæmt upplýsingum Gísla
Pálssonar, lögreglufulltrúa hjá RLR.
verið sveiflukennd afurð," sagði
hann. „Ekki má gleyma því að ef
þessi skip væru ekki þama að veiðum
þá væru þau bara á öðrum miðum.
Ég sé ekki ástæðu til að ætla að
nokkuð verðhrun eigi sér stað.“
Róbert bendir á að allar veiðar á
þessu svæði þýði umframtekjur fyrir
útgerðarfélögin enda séu þessar veið-
ar utan kvóta. Hann telur það koma
til greina að afla verði lagt upp á
Nýfundnalandi en líklegt sé að það
ráðist um mánaðamótin júní-júlí.
Jón Finnsson RE fer heim með
aflann
Gísli Jóhannesson skipstjóri og
útgerðarmaður upplýsti Morgunblað-
ið að skipi hans Jóni Finnssyni gengi
þokkalega á miðunum og að það
fengi um 7-10 tonn í kasti. „Þetta
er týran í myrkrinu," sagði Gísli, „en
hún er jafnframt veik.“ Hann sagði-
næsta öruggt að skipin legðu upp
afla sinn á Islandi.
Litlar breytingar til hausts?
„í krónum reiknað virðist ekki
vera um framhald á þeim verðlækk-
unum sem verið hafa að ræða og
nú erum við að fara inn í mjög
rólegt tímabil í sölumálum. Það er
hugsanlega skýringin á þessum litlu
breytingum og er ef til vill vísbend-
ing um að engar frekari breytingar
verði fyrr en þá undir haustið,"
segir Ásgeir Daníelsson.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
15 eftirlitsmynda-
vélar eru á svæðinu
EFTIRLITSMYNDAVÉLIN í ijáfrí nýs flugskýlis Flugleiða á
Keflavíkurflugvelli, sem olli truflunum í búnaði Ratsjárstofnunar
á föstudaginn, er hluti af eftirlitsbúnaði tollgæslunnar á Keflavík-
urflugvelli. Að sögn Gottskálks Ólafssonar yfirtollvarðar er toll-
gæslan með um 15 slíkar eftirlitsvélar víðsvegar á tollfijálsa
svæðinu, bæði ínni
„Við höfum verið að prófa okk-
ur áfram með þetta. Þetta er það
stórt svæði að við höfum ekki tök
á að vera með menn á öllum þeim
stöðum sem við teljum þörf á og
notum því þessar eftirlitsvélar til
að fylgjast meðal annars með því
hvort nokkrir séu þama á ferð í
heimildarleysi og eins vegna þess
að þetta er tollfijálst svæði,"
sagði Gottskálk.
í og fynr utan hana.
Hafa skilað árangri
Hann sagði líkiegast að orðið
hefði bilun í myndavélarbúnaðin-
um sem olli umræddum truflun-
um á búnaði Ratsjárstofnunar.
Aðspurður sagði Gottskálk að
myndavélamar hefðu orðið að
gagni við eftirlitið á Keflavíkur-
flugvelli og meðal annars upplýst
um ferðir manna í heimildarleysi
inn á svæðinu.
► 1-28
g - J>lirriw»ln»Ú ,, fí
Brattur er Grænlands
bryggjusporður
►Þrír íslendingar gengu í vor á
skíðum þvert yfir Grænlandsjökul,
alls 600 kílómetra leið. Þeir lentu
í Piteraq, heimskautastorminum
ógurlega, gengu fram á yfirgefna
radarstöð á miðjum jökli og náðu
til byggða í þann mund sem færi
var að spillast vegna leysinga./l
Elexír sköpunarinnar
►Rætt við Rebekku Rán Samper
myndlistarmann, en hún er ný-
komin heim eftir langa námsdvöl
á Spáni og í Suður-Kóreu, þar sem
hún fékkst einnig við kennslu./2
Sverðin þrjú
►Hópur íslendinga naut nýlega
leiðsagnar Jóns Böðvarssonar um
slóðir Egilssögu í Noregi. Heim-
sóttu þau meðal annars Herðlu,
Sognsæ og Gulaþing./4
Þú getur skipt um
hljóðfæri - ekki rödd
►Stórsöngkonan Victoria Zeani
segir frá ákvörðun sinni um að
yfirgefa óperusviðið og snúa sér
að kennslu./6
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 14b
Kvikmyndahúsin 22 Kvikmyndir 16b
Leiðari 24 Fólk I fréttum 22b
Helgispjall 24 Myndasögur 24b
Reykjavlkurbréf 24 Brids 24b
Minningar 26 Stjömuspá 24b
Iþróttir 42 Skák 24b
Otvarp/sjónvarp 44 Bíó/dans 25b
Gárur 47 Bróf til blaðsins 28b
fdag 6b Velvakandi 28b
Mannlifsstr. 8b Samsafnið 30b
INNLENDAR FRÉTTIR;
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4