Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1993 Sjötugur Gunnar Dal Hinn 4. júní sl. varð eitt merk- asta ljóðskáld okkar og rithöfund- ur, Gunnar Dal, sjötugur. Afköst hans eru undraverð — ekki aðeins hvað varðar margn heldur miklu fremur gæði. Eftir hann liggja 12 eða 13 ljóðabækur, tugir heimspeki- rita og nokkrar skáldsögur. Gunnar er Húnvetningur að ætt og upp- runa. Hann aflaði'sér menntunar í Evrópu og á Indlandi. Eitt ár var hann sendikennari í Bandaríkjun- um. Síðan reyndi hann að lifa á skáldskap við erfið kjör en dvaldist jafnframt langdvölum erlendis. í nokkur ár var hann kennari við Gagnfræðaskólann í Keflavík og leigði þá hjá Kjartani Ólafssyni lækni og konu hans Ásdísi. Gunnar var þá giftur Maríu Sigurðardóttur, sem hafði lifað með honum bæði súrt og sætt á Spáni og Arnarstapa á Snæfellsnesi. Frá Keflavík fluttist Gunnar til Reykjavíkur, gerðist kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Aðalkennslugreinar hans voru íslenska, enska og heim- speki. Við nemendur var Gunnar sérlega greiðvikinn, tók þá oft í aukatíma án endurgjalds. í Breið- holti var Gunnar eitt sinn kjörinn vinsælasti kennarinn af nemendum. í lok Keflavíkurtímans hafði hjóna- band þeirra Gunnars og Maríu slitn- að. Nokkrum árum síðar kynntist Gunnar Elísabetu Linnet, yndislegri konu úr Vesturbænum. Frá fyrsta hjónabandi á Gunnar þijá mann- vænlega syni, Gunnar, Jónas og Guðvarð. Við Gunnar Dal kynntumst fyrst á Laugavegi 11. Ég hafði skrifað kjaftfora grein gegn Gunnari Bene- diktssyni í Alþýðublaðið og var á /ðflí til Parísar. Við gengum upp í Hlíðar. Þar áttum við þá báðir heima. Síðan hefur samband okkar verið meira eða minna. Auk eigin rita hefur Gunnar þýtt margar bækur. Frægust þeirra er vafalaust hinn innblásni ljóðabálkur „Spámaðurinn“ eftir eitt mesta skáld og sjáanda þessarar aldar, Líbanann Kahlil Gibran. Fyrsta út- gáfa þeirrar bókar kom út hjá Al- menna bókafélaginu. Þegar Gunnar reyndi að fá hana endurútgefna, kom furðulegt svar frá valdamesta manni fyrirtækisins: „Gunnar minn! Pappír á íslandi er dýr.“ Það þýddi að ÁB hafði ekki áhuga á miklum ljóðum. Skömmu síðar kynntist Gunnar Guðjóni Elíassyni, sem þá hafði keypt Heimilisútgáfuna. Síð- an hefur Guðjón gefíð út flestar bækur Gunnars hvort heldur um er að ræða heimspeki, ljóð eða smásögur. Eins og áður sagði hefur Gunnar skrifað fjórar skáldsögur, Orðstí og auð, Kamelu, Á heitu sumri og Guró Góvindu. Á sínum tíma hreifst ég nokkuð af Orðstí og auði og vafalítið er Kamala sannferðug lýs- ing á Indlandi. Kannski fer ég rangt með. En varð ekki Guró Góvinda meðal annars tilefni þakkarbréfs frá Indiru Gandhi forsætisráðherra til skáldsins? Sem heimspekingur var Gunnar Dal lengi bannvara í skólum lands- ins. Dæmi: Keflvískir námsmenn úr Hamrahlíðarskólanum leituðu oft heimilda um heimspeki í bókasafn- inu hjá mér. Ég benti þeim á Ág- úst H. Bjarnason og Gunnar Dal. Þeir sögðu Ágúst viðurkenndan en ekki Gunnar. Ég sagðist vita það en bætti við: „Stelið þið eins miklu frá Gunnari og þið getið án þess að geta hans. Þótt kennarar ykkar banni hann þá hefi ég ekki trú á að þeir þekki verk hans.“ Þetta reyndist rétt. Sumir nemendanna komu síðar og spurðu hvers vegna ég hefði vitað um fáfræði lærifeðra þeirra. Svar mitt var: „Neander- dalskynslóðin hugsar ekki, les ekki. Hún bara fordæmir og hatar það sem er gott.“ Á langri ævi hefur Gunnar kom- ið víða við. Hann var um tíma hand- genginn Valtý Stefánssyni á Morg- unblaðinu og skrifaði m.a. fyrir hann afmælisgrein um Davíð Stef- ánsson. Þar stóðu honum til boða völd og mannaforráð. Á sama veg vildu Framsóknarmenn flest fyrir Gunnar gera eftir kjördæmaor- ustuna 1959. Skúli Guðmundsson, þingmaður Húnvetninga, bauð hon- um t.d. þingsæti sitt. Mörgum árum síðar, þegar Gunnar kom til Kefla- víkur, þá höfðu Framsóknarmenn þar ekki gleymt ritstjóra Kjör- dæmablaðsins. Honum var boðin ritstjóm Faxa, sem þótti virðingar- .staða. Öllu þessu hafnaði Gunnar fyrir rithöfundarfrelsi sitt. Hins vegar er Gunnar auðsærður, ef honum finnst á hlut sinn gengið. Af því að hann skorti sálfræðipróf, greiddi menntamálaráðuneytið hon- um mun lægri laun en honum bar. En aldrei kvartaði Gunnar út af þessari rangsleitni. Og nú fær þessi mikilvirki rithöfundur og þjóðskáld 90 þúsund á ári i skáldalaun frá íslenska ríkinu. Vitaskuld er slíkt hneyksli á heimsmælikvarða. Stundum hefur komið fyrir að hann hefur gefið út tvær bækur sama árið en ekki fengið krónu úr svoköll- uðum launasjóði rithöfunda. Margir mundu vafalítið leggja árar í bát við þessar aðstæður en Gunnar hefur harkað þennan menningar- fjandskap af sér, sent frá sér hverja bókina annarri betri og merkari. í Hörpu Gunnars eru margirtón- ar. Sumir tregafullir í ætt við þjóð- kvæði. Kastið ekki steinum í kyrran sjá. Dvelur ógn í dimmunni .djúpunum frá. Gárið ekki lognsæinn en gleðjist yfir því, að himinninn getur speglast hafinu í. (Kastið ekki steinum, fyrri gerð) Aðrir hvassari og beittari: Land mitt þarfnast ekki þeirra sem dýrka hið dauða skurðgoð, sem múgborgin kallar gyðju felsisins, ekki þeirra sem gefa þyrstum brauð, ekki þeirra sem gefa svöngum að drekka, ekki þeirra sem leika á lága strengi. Hinn fijálsi norræni andi skal risa á ný eins og dögun yfir hvítum fjarlægum fjöllum. Nei, land mitt þarfnast ekki stærri þjóðar, aðeins betri manna. (úr Röddum morgunsins) Nú margvísleg fræði um mannheim berast. Og menntamenn andlegir þrælar gerast. Og byija að sá í sálir manna safnhaug af grilium foringjanna: skoðanir gamlar og úteltar einar, ofbeldi, slagorð og ritningagreinar. Fyrst viljann til frelsis þeir rifa upp með rótum, svo réttlæti og mannúð þeir troða undir fótum. Dável þeir rökfræði og rétttrúnað kunna, og ríki sitt bijóta þeir niður til grunna. Og kerfið, sem réttlætis kröfunum neita, kemur í stað hinnar frjálsu leitar. (Úr Öld fíflsins) Þá koma ljúfir tónar um ástina: „Lík var ást þín ljúfu kvæði, ljósperla á veikum þræði, sem mær við bijóst sér ber. Sandsins heitu nátta naustu og nakin gullna hlekki braustu, og gullkálf gerðum vér!“ (Nótt á Sínaí) Þú leggur í langar ferðir litla bamið mitt. Hinu megin við homið er húsið þitt. Heimurinn fijáls og fagur þér fagnandi mætir nú. 1 vatninu vaðið þið saman vorið og þú. Barnið mitt í bæinn berðu ljós og yl. Við skulum hjálpa vorinu að verða til (Langferð) Við hjónin sendum þeim Gunnari og Elísabetu okkar bestu kveðjur og framtíðaróskir héðan frá Dan- mörku. Hilmar Jónsson. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Norrænir formenn dýralæknafélaga þinga NORRÆNIR dýralæknar þinguðu á Hótel Örk í Hveragerði í byijun mánað- arins. Með þeim á fundinum var formaður dýralæknafélagsins í Litháen, en Litháar komu til samstarfs við norræna dýralækna árið 1989. Næsti fundur þessara aðila verður síðan í Vilnius, höfuðborg Litháen, 7. til 8. nóvember og munu þá formenn dýralæknafélaga í öðrum Eystrasaltslöndum einnig sitja fundinn og verður þar rætt samstarf Norðurlandanna og Eystra- saltslandanna á sviði dýralækninga. Á myndinni eru í fremri röð frá vinstri: Rögnvaldur Ingólfsson formaður Dýralæknafélags íslands, og Maija Hatakka formaður dýralæknafélags Finnlands. í aftari röð frá vinstri eru: Algirdas Smatavicius frá Litháen, Niels-Ole Bjerregaard frá Danmörku, Herleiv Björnöy frá Noregi og Her- bert Lindström frá Svíþjóð. Lífssýn - sumarsólstöður Hittumst í Heiðmörk, Lífssýnar- reitnum við Strípsveg mánudag- inn 21. júní kl. 21.00. Kristilegrt félag heilbrigöisstétta Fundur verður mánudaginn 21. júní kl. 20.00 í safnaðarheimili Laugarneskirkju. Séra Jón Bjarmann les Ijóð. Ræðumaður séra Magnús Björnsson. ■Allir velkomnir. Orð lífsins, Grensásvegi8 Almenn samkoma í dag kl. 11. Allir hjartanlega velkomnir! Sjónvarpsútsending á OMEGA kl. 14.30. S^mhjálp Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00. Mikill söngur. Vitnisburðir Sam- hjálparvina. Kórinn tekur lagið. Barnagæsla. Ræðumaður Brynjólfur Ólason. Kaffi að lok- inni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. #!<■ VEGURINN J Krístið samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Almenn vakningarsamkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Ath.: Fimmtudagskvöld kl. 20.00 verður lækningasamkoma þar sem kennt verður um guðlega lækningu. „Guð er mitt hjálpræði, ég er öruggur og óttast eigi." UTIVIST Hallveigarstig 1 • simi 614330 Dagsferð r dag kl. 10.30: Hest- fjall í Grímsnesi. Jónsmessunæturgöngur miðvikudag 23. júní kl. 20: Marardalur, fararstjóri Helga Jörgensen. Hengill, fararstjóri Anna Soffía Óskarsdóttir. Kvöldganga fimmtudag 24. jún/kl. 20.00: Stardalur - Haukafjöll. Sumarleyfisferð 23.-27. júní Látrabjarg - Rauðisandur Gist í Breiðavík, 3 nætur. Farið út á Látrabjarg að Rauðasandi og Sjöundá. Á fjórða degi ekið yfir í Ketildali og gist á Patreks- firði. Heim um Barðaströnd. Far- arstjóri Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir. SltlQ auglýsingar Undirbúningsfundir á Hallveigarstíg 1: Vegna ferða á Hornstrandir 2. júlí miðvikudag 23. júní kl. 20.00. Vegna ferðar í Reykjafjörð - Ingólfsfjörð 24. júní kl. 20.00. Helgarferðir 25.-27. júni: Bósar við Þórsmörk Fjölbreyttar gönguferðir um Goðaland og Þórsmörk með far- arstjóra. Gist í skála eða tjöldum. 26.-27. júní: Fimmvörðuháls Örfá sæti laus. Nánari upplýsingar og miðasala á skrifstofu Útivistar. Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SIMI 622533 Dagsferðir sunnudag 20. júní: Spennandi ferðir í Reykjanesfólkvangi: Kl. 10.30 Grænavatn - Kálfadal- ir - Vatnshlíðarhorn. Ekið um Móhálsadal og gengið að Grænavatni, síðan sunnan Kleifarvatns og meöfram þvi að austanverðu að Vatnshlíðar- horni. Verð kr. 1.000,-. Farar- stjóri: Páll Ólafsson. Kl. 13.00 Selatangar - fjöl- skylduferð. Margt að skoða fyr- ir yngri sem eldri. Selatangar eru gömul verstöð miðja vegu milli Grindavíkur og Krýsuvikur. Far- arstjóri: Ólafur Sigurgeirsson. Verð kr. 1.000,-, frítt fyrir börn með fullorðnum. Mánudagur 21. júní - brottför kl. 20: 1) Sólstöðuganga á Keili. Brottför í ferðirnar frá Umferð- armiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bil. Fritt fyrir börn 15 ára og yngri meö foreldrum sínum. f sunnudags- og mánudagsferð- unum er stansaö við kirkjug. í Hafnarfirði. Miðvikudaginn 23. júní: 1) Þórsmörk (dagsferð) brott- för kl. 8. 2) Jónsmessunæturganga: Árnakrókur - Sandfell - Heið- mörk (B-8). Helgarferðir: 25,- 27. júní Eiríksjökull. Gist í tjöldum. 25.- 27. júní fjallahjólaferð í kringum Snæfellsjökul. Sumarleyfisferðir: 1) 23,- 27. júní (5 dagar) Esju- fjöll. Gist í skála Jöklarannsókna- félagsins í Esjufjöllum. Fá sæti laus. Fararstjóri: Benedikt Hálf- dánarson. 2) 27.- 29. júní (3 dagar) Grímsey - Hrísey. Flogið til Grímseyjar á sunnudag. Góður tími til skoðunarferða um eyjuna. Siglt til baka með ferju til Hrís- eyjar og þaðan upp á Árskógs- strönd og síðan með rútu til Akureyrar. Ath. Breytta dag- setningu. Fararstjóri: Þórunn Þórðardóttir. Ný Hornstrandaferð 30. júní - 5. júlí: Húsferð til Hornvíkur. Brottför miðviku- dagskvöld og til baka mánu- dagskvöld. Takmarkað pláss. Gist í húsi að Horni. Gönguferð- ir þaðan m.a. á Hornbjarg. Farar- stjóri: Guðmundur Hallvarðsson og Guömundur Hjartarson. Ferðafélagið er með úrval ferða til Hornstranda I sumar, 11 ferð- ir í boði, m.a. framhald þessarar ferðar með dvöl í Hlöðuvík til 8. júlí. Ferðafélag íslands. Samkoma í Breiðholtskirkju í kvöld kl. 20.30. Eirný Ásgeirsdóttir prédikar. Mikil lofgjörð. Allir velkomnir. Ferð í ævintýradal á Vestfjörðum 18.-25. júlí Gönguferðir frá náttstað með fararstjóra. Svefnpokagisting. Ótrúlega hagstætt verð. Upplýsingar í síma 91-17982. SÍK, KFUM/KFUK Háaleitisbraut 58 Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30 f Kristniboössalnum. „Þér munuð öðlast kraft - og verða vottar mínir*4. Ræðumað- ur: Ragnar Gunnarsson, kristni- boði. Þú ert líka hjartanlega vel- komin(n). Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Brauðsbrotning kl. 11.00. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Almenn samkoma kl. 20.00. Gestir frá fsrael og af landsmóti ungra Hvítasunnumanna taka þátt í samkomunni. Mikil og fjöl- breytt dagskrá. Barnagæsla. Allir hjartanlega velkomnir. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. *Hjálpræðis* herinn Hjálpræðisherinn f kvöld kl. 19.30: Bæn. kl. 20.00: Hjálpræðissamkoma. Kveðjusamkoma fyrir flokks- stjórana Elbjörg og Thor Kvist og Jan Henning. Óskar Jónsson hermannaleið- togi stjórnar. Allir velkomnir. Ráðskona U.S.A. Einhleypur læknir óskar eftir ráðskonu á aldrinum 25-50 ára, á heimili i Boston, Mass.-svæð- inu, Bandaríkjunum. Tímabundið starf frá 4 mánuðum til 1 árs. Herbergi og fæði ( skiptum fyrir létt heimilisstörf með miklum fríum tíma til menntunar, ferða- laga eða viðskipta á Bos- ton/New England svæðinu. Við- komandi mun hafa til umráða einstaklingsíbúð i skógi vöxnu umhverfi, þaðan sem sést til Boston. Bíll til umráða. Vinsamlegast sendið upplýs- ingar um sjálfar ykkur og áhuga- mál ásamt nýlegri mynd til: Milton R. Okun, M.D. 115 Forbes Rd„ Milton, MA 02186 USA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.