Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1993 7 Heilsugæslustöðin á Blönduósi Fyrsti hluti verks- ins formlega afhentur Blönduósi. FYRSTA hæð viðbyggingar sjúkrahússins á Blönduósi var formlega afhent til notkunar daginn fyrir þjóðhátíð. Það var fyrrverandi heilbrigðisráðherra Sighvatur Björgvinsson sem afhenti formanni stjórnar sjúkrahússins, Gunnari Richards- syni, heilsugæslustöðina til rekstrar. Alþingismenn héraðsins svo og Héraðsnefnd, stjórn sjúkrahússins, fulltrúar starfsfólks og aðrir sem tengjast byggingu þessa áfanga sjúkrahússins voru viðstaddir athöfnina. Skólalúðrasveit Blönduós lék nokk- ur lög fyrir samkomugesti í upphafi afhendingarathafnar. Framkvæmdir hófust fyrir 15 árum Ófeigur Gestsson bæjarstjóri á Blönduósi, formaður byggingar- nefndar sjúkrahússins, sagði að framkvæmdir við viðbyggingu sjúkrahússins hefðu hafist fyrir fimmtán árum og núna væri fyrsta hæðin tilbúin til notkunar. Jafn- framt sagði Ófeigur að allri ytri umgerð hússins væri lokið en eftir væri að taka ákvörðun um með hvaða hætti nýta ætti aðra hæð hússins. Eins og fyrr greinir þá afhenti fyrrverandi heilbrigðisráð- herra heilsugæslustöðina til afnota og gat hann þess að þetta væri sjötta heilsugæslustöðin sem opn- uð væri á kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar. Nokkur ávörp voru flutt við þetta tækifæri og má geta þess að Valgarður Hilmars- son, oddviti Héraðsnefndar A- Húnavatnssýslu nefndi það í ávarpi sínu að huga ætti að því að framtíðarverkefni heilsugæslu í héraðainu yrðu á sviði endurhæf- ingar og þjálfunar. Að sögn Bolla Ólafssonar, framkvæmdastjóra sjúkrahússins, þá er gólfflötur þess húsnæðis sem nú er í notkun tekið 420 fermetrar. Arkitektar Listasafn Sigur- jóns Ólafssonar Kvartettinn Út í vorið með tónleika KVARTETTINN Út í vorið heldur tónleika í Listasafni Siguijóns Ólafssonar 22. og 24. júní kl. 20.80 bæði kvöldin. Kvartettinn skipa þeir Einar Clausen 1. tenór/2. tenór, Halldór Torfason 2. tenór/1. tenór, Þorvaldur Friðriksson 1. bassi og Asgeir Böðvarsson 2. bassi. Allir hafa þeir verið félagar í Kór Langholtskirkju um árabil, en hófu að syngja saman sem kvartett í október 1992. í upphafi lagði kvartettinn sér- staka rækt við þá hefð er ríkti í söng íslenskra karlakvartetta fyrr á öldinni og var helst sótt í sjóði Leikbræðra og MA-kvartettsins og ber fyrri hluti tónleikanna þess merki. Auk þess spreytti hann sig á bandarískri Barber Shop-tónlist og því eru þijú slík lög á efnis- skránni. Tónleikunum lýkur með syrpu af sjö Bellman-lögum, en sænska tónskáldið Bellman er vel þekkt á íslandi. Mörg íslensk skáld hafa þýtt ljóð hans og hefur flytur kvartettinn Út í vorið lög hans við ýmsar þessara þýðinga. Öll lögin í Bellman-syrpunni eru því sungin á íslensku utan eitt. Hljóðfæraleikari með kvart- ettinum er Bjarni Jónatansson píanóleikari. Hann starfar sem píanókennari í Reykjavík og hefur auk þess starfað með fjölda ein- söngvara og kóra. Kvartettinn Út í vorið hefur ekki haldið opinbera tónleika fyrr, en komið fram á ýmsum samkom- um í vetur og í Ríkisútvarpinu. viðbyggingar sjúkrahússins á Blönduósi eru Ormar Þór Guð- mundsson og Örnólfur Hall. Jón Sig Frágangi lokið utanhúss Morgunblaðið/Jón Sigurðsson VIÐBYGGING sjúkrahússins er mikið mannvirki og er öllum frágangi lokið utan húss. Heilsugæslu- stöðin er á fyrstu hæðinni. * Verð m.v. staðgreiðslu ferðakostnaðar í síðasta lagi 23. júní eða 2 vikum fyrir brottför. á úftsölu Hringdu eða komdu á staðinn! Sólin bíður þín og þú getur notið hennar með okkar aðstoð! QAIXAS^ EUROCARD FLUGLEIDIR Æm Traail»r hltmhmr JrrAr/rUgi > f Mjódd: stmi 699 300, við Austurvöll: sími 2 69 00, í Hafnarfirði: stmi 65 23 66, við Ráðhústor/’ á Akureyri: sítni 2 50 00 og bjá umboðsmönnum um land allt. & ÚRVAL-ÚTSÝH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.