Morgunblaðið - 20.06.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1993
5
Morgunblaðið/Silli
Héraðsskjalasafnið fékk bréfin
Húsavík.
HÉRAÐSSKJALA.SAFNI Suður-Þingeyinga barst 17. júní frumrit þeirra
bréfa sem fóru á milli sr. Friðriks A. Friðrikssonar, fyrrum prófasts og prests
á Húsavík, og vinar hans Jóhanns Jónssonar skálds á árunum 1912 til' 1925.
Ingvar Þórarinsson, bóksali og tengdasonur sr. Friðriks, afhenti þessa góðu
gjöf fyrir hönd barna prófastsins, en þau voru einhuga um að þetta merka
bréfasafn skyldi varðveitast í Héraðsskjalasafni Suður-Þingeyinga, en ævi-
starf sr. Friðriks var lengst af meðal Þingeyinga. Bókaútgáfan Vaka-Helga-
fell gaf þessi bréf út í bók sem kom út á sl. ári. Guðni Halldórsson héraðs-
skjalavörður veitti gjöfunum viðtöku og lýsti ánægju sinni yfír því að safn-
inu skyldu hlotnast þessar góðu gjafír. _ w -t+ •* •
Grænlendingar skoða
tillögn um laxakvóta
Á nýafstöðnu NASCO-þingi var samþykkt að leggja þá tillögu fyrir
fulltrúa Grænlensku landsstjórnarinnar og fiskimanna að laxakvóti
Grænlendinga á komandi vertíð verði 213 tonn í stað 840 tonna eins
og verið hefur. Grænlendingarnir hafa ekki náð að veiða upp í kvóta
sinn síðustu ár heldur verið að veiða 300 til 400 tonn. Fulltrúar Græn-
lendinga á þinginu gátu ekki tekið afstöðu til tillögunnar, en ætla að
taka afstöðu til hennar á næstunni.
6. júlí næstkomandi verður haldinn
í Kaupmannahöfn fundur með full-
trúum Grænlenskra fiskimanna og
stjórnvalda annars vegar og fulltrú-
um frá Alþjóða kvótakaupanefndinni
hins vegar, en henni veitir Orri Vig-
fússon forstöðu. „Afstaða Grænlend-
inga til neyðartillögunnar þarf að
liggja fyrir þegar þessi fundur hefst,
því ég veit sannast sagna ekki hvað
ég er að fara að kaupa ef magnið
sem um ræðir liggur ekki fyrir,“
sagði Orri í samtali við Morgunblað-
ið. Orri sagði jafnframt, að þó Græn-
lendingar hafí tekið líklega í að semja
um kaup á laxakvótunum fyrir
nokkru, væri hollast að mæta þeim
ekki með of mikilli bjartsýni. En
hann vonaði það besta.
Islendingur starfar að
friðargæslu í Sómalíu
STEINAR Berg Björnsson, framkvæmdastjóri friðar-
gæsluliða Sameinuðu þjóðanna var skyndilega sendur
til friðargæslunnar í Mogadishu í Sómalíu 10. júní sl. og
á hann að vera þar fyrst um sinn í tvo mánuði. Hann á
að aðstoða og síðan leysa af framkvæmdastjóra þessa
umfangsmikla friðargæsluliðs um tíma. Framhaldið hef-
ur ekki verið endanlega ákveðið. Morgunblaðið náði
tali af Steinari í Nairobi í Kenýa, þaðan sem stjórnað
er framkvæmdum og rekstri starfs Sameinuðu þjóðanna
í Sómalíu. En Steinar á allt eins von á að fara yfir til
Sómalíu eftir helgina.
Steinar kom á staðinn rétt í
þann mund sem pakistönsku
friðargæsluliðarnir voru drepnir
og það setti verulegt strik í reikn-
inginn, eins og hann orðaði það.
Hann segir ástæðuna fyrir því
þá að hermenn uppreisnarseggs-
ins Aideeds ráku á undan sér
konur og börn og skýldu sér með
þungavopn að baki þeirra. Pa-
kistanarnir skutu ekki og því
voru þeir varnarlausir og drepn-
ir. Það verður ekki endurtekið,
segir Steinar. Friðargæslan hef-
ur fengið leyfi til að skjóta. Átök-
in eru í Suður-Mogadishu og
segir Steinar að þau geri allan
rekstur Sþ miklu erfiðari. Engar
flugvélar fara inn eða út utan
vélar Sþ.
Steinar segir að friðargæslan
í Sómalíu sé gríðarlega erfið og
flókin. Þama er 28 þúsund
manna lið frá mörgum þjóðum
og rekstrarkostnaðurinn 1.550
milljón dollarar fyrsta árið. „Við
erum með mikinn hluta óbreytta
starfsliðsins í Nairobi og ég hefí
tekið að mér stjóm á rekstrinum
þaðan. Starfsliðið er um 160
manns og em sem allra fæstir
sendir yfír um meðan þetta
hættuástand varir.
I aðgerðum sem þessum eru
endalaus stjórnunarverkefni við
að útvega herliðinu allt sem það
þarf. Það var gífurlegt átak að
koma í gang þessari aðgerð á
skömmum tíma, því Sameinuðu
þjóðirnar eru á þremur mánuðum
að taka við öllu af Bandaríkja-
mönnum í Sómalíu“, segir Stein-
ar.
Hann hefur að undanförnu
verið framkvæmdastjóri friðar-
gæsluliðsins í Líbanon og þar
áður friðargæsluliðsins í Gólan-
hæðum eftir að hafa verið í
Bagdad vegna friðargæslu í kjöl-
far styrjaldárinnar milli íran og
írak. Kona hans María Árelíus-
dóttir er nú enn einu sinni að
pakka saman búslóð þeirra og
fara með hana til Kýpur, þar sem
hún mun bíða átekta. Þau hjónin
ætluðu að koma heim í frí í ág-
Við friðargæslu
STEINAR Berg Björnsson
vinnur að friðargæslu í Sómalíu
ústmánuði og kvaðst Steinar
hafa beðið um að þetta frí yrði
virt í ár, því það er eiginlega
ágústfríið frá í fyrra. En eins
og hann segir: „Maður gerir eng-
ar áætlanir. Þetta verður að hafa
sinn gang. Guð má vita hvar við
dönsum næstu jól. Út á það
gengur þetta Sameinuðu þjóða
starf.“
m
Beint flug til Orlando á besta tíma:
klukkan 1230
þann 22.6., Flug Og gisting
29.6., Og . WsmémawæmmML
6.7. m
Lent i Orlando
kl. 16.15.
í 5 næíur
á The Gateway Inn
í Orlando:
Wm 40.885 kr. . W
m.v. 4 í herbergi. (2 fullorðna og 2 börn, 2ja-l 1 ára).
(Verð frá 58.180 kr. m. sköttum og forfallagj. m.v. 2 fullorðna).
Fyrirtaks gisting: m.a. 2 sundlaugar (barnalaug)
og veitingastaður. Örstutt í Walt Disney World.
,Jíp|l|
Ödýrasta sumarleyfið
vestan hafs: bandarísk
gæði í aðbúnaði og þjónustu.
Beint flug til Orlando alla mánudaga og þriðjudaga frá 8.6. til 31.8.
Frábœrir gististaðir í Orlando og St. Petersburg Beach
og um allan Floridaskaga. Gististaðir þar sem þú fœrð
meira fyrir peningana: stór, hrein og björt herbergi
og íbúðirmeð loftkœlingu og öllum bandarískum
nútímaþœgindum.
FLUGLEIÐIR
Traustur tslenskur ferðafélagi
• ••••••••••••••••••••• •
Fyrir 8.000 kr.
gmmm viðbótargjald:
Þœgindi og
munaðarlíf
á Saga Business Class
aðra leiðina
(16.000 kr. báðar leiðir).
E
CC
O
m d) QATLASrff
: 11
1 18 i
Engtnn bókunarfyrtrvari -
en það borgar sig að ganga strax frá pöntun.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar,
umboðsmenn um allt land, ferðaskrif-
stofurnar eða t st'ma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.)