Morgunblaðið - 20.06.1993, Side 6
6 FRÉTTIR/ININILENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JUNI 1993
Þjóðhátíð á Austurvelli 17. júní
Breyting á út-
gönguröð gesta
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND Reykjavíkurborgar gerði breytingu á venju-
bundinni útgönguröð gesta úr Alþingishúsinu inn á á Austurvöll á
þjóðhátíðardaginn 17. júní. Borgarstjóri og forseti borgarsljórnar
gengu nú næstir á eftir formanni þjóðhátíðarnefndar og forsætisráð-
herrafrú, sem gengu fremst eins og venja hefur verið á undanförn-
um árum. Til þessa hafa hins vegar borgarstjóri og forseti borgar-
stjórnar gengið inn á Austurvöll á eftir ráðherrum ríkissljórrarinnar.
Einnig var gerð sú breyting á
röðinni að forseti Alþingis gekk nú
á undan ríkisstjórninni úr Alþingis-
húsinu en ekki næst á eftir ráðherr-
um eins og verið hefur á undanförn-
um árum. Forseti íslands og forsæt-
isráðherra gengu að venju ekki inn
á Austurvöll fyrr en að loknum
söng Karlakórs Reykjavíkur.
Utgönguröð gesta úr Alþingis-
húsinu var því að þessu sinni sú,
að á eftir formanni þjóðhátíðar-
nefndar og forsætisráðherrafrú
gengu borgarstjóri og forseti borg-
arstjómar. Því næst komu biskup
íslands og frú, þá forseti Alþingis
og svo í þessari röð; ráðherrar,
borgarfulltrúar, lögreglustjóri og
frú, forsetaritari og frú, fulltrúar
erlendra ríkja og á eftir þeim gengu
embættismenn Reykjavíkurborgar,
prestur og loks fulltrúar íþrótta-
og tómstundaráðs.
Undanfari frekari breytinga
1994
Júlíus Hafstein, formaður þjóð-
hátíðarnefndar, segir að þjóðhátíð-
arnefnd hafi ákveðið að gera þessa
breytingu og talið hana eðlilega þar
sem Reykjavíkurborg stæði fyrir
athöfninni á Austurvelli á 17. júní
og líta megi á hana sem undanfara
frekari breytinga sem rætt hafí
verið um að gera á hátíðahöldum
við Austurvöll á næsta ári á 50 ára
afmæli Jýðveldisins. Þá sé meðal
annars rætt um að tengja Ráðhúsið
þeirri hátíðarathöfn sem fram fari.
Morgunblaðið/Ágúst
Framleiða salt
ÁBÚENDURNIR á bænum Seldal finna nýjar leiðir þegar samdrátt-
ur er í hefðbundnum búgreinum. Þau Stefanía Gísladóttir og Gavin
Dear hafa nú hafið framleiðslu á birkisalti unnið úr ómenguðum
íslenskum náttúruefnum.
Framlag íslenskra aðalverktaka til atvinnuuppbyggingar
C-línan frumsýnd
NÝ gerð af Mercedes-Benz var frumsýnd hjá
Ræsi hf. í gær, en bíllinn var þá frumsýndur
um alla Evrópu. Um er að ræða svonefnda
C-línu sem leysir af hólmi Mercedes 190-lín-
una sem framleidd hefur verið frá 1982 í
nálægt 1,9 milljónum eintaka. Verðið á þess-
um bílum verður svipað og á Benz 190, eða
rúmlega þijár milljónir ódýrasta gerðin.
Akvörðun um tugi millj.
úthlutun í lok vikunnar
ÍSLENSKIR aðalverktakar munu í lok næstu viku taka ákvarðan-
ir um fjárframlög til fyrirtækja á Suðurnesjum til atvinnuupp-
byggingar á svæðinu. Sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum hafa
lýst óánægju sinni með hversu seint framlög Islenskra aðalverk-
taka hafa borist. Af um 300 milljón króna framlagi sem vilyrði
hafði verið gefið fyrir, hefur félagið lagt til 6 milljónir í Heilsufé-
lagið við Bláa lónið og 3 milljónir til Fiskmarkaðar Suðurnesja.
stjórnarformann íslenskra aðal-
verktaka sagði hann það regin
misskiling að Islenskir aðalverk-
takar ætluðu ekki að styrkja fyrir-
tæki í sjávarútvegi og engin at-
vinnugrein væri útilokuð.
Málin skýrast
Bændur framleiða
alíslenskt birkisalt
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í
Njarðvík, segir sveitarstjórnar-
menn á Suðurnesjum óánægða
með hversu lítið framlag íslenskra
aðalverktaka hafi verið fram að
þessu. „Félagið hefur nánast úti-
lokað öll þau erindi sem til þeirra
hafa borist og jaframt lýst því
yfir að ákveðnar atvinnugreinar
muni það ekki styrkja, þ.á.m. eru
fyrirtæki í sjávarútvegi," sagði
Kristján.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Ragnar Halldórsson
Neskaupstaður.
ÁBÚENDUR á bænum Seldal í
Norðfirði, þau Stefanía Gísla-
dóttir og Gavin Dear hafa verið
útsjónarsöm við að skapa sér
aukin atvinnutækifæri nú á tím-
um samdráttar í hefðbundnum
búgreinum, t.d. með bleikjueldi
og fleiru. Það má segja að þau
fari ekki troðnar slóðir að þessu
sinni því þau eru nú að hefja
framleiðslu á alíslensku nátt-
úrukryddi, sem þau nefna
Birkisalt.
Saltið saman-
stendur af birki-
laufí, sem safnað
er í landi Seldals
og steinefnasalti,
sem unnið er úr
tærum sjó og
jarðhitasvæðinu á
Reykjanesi. Að
sögn Stefaníu
hafa þau verið að
þróa þetta verk-
efni í heilt ár, en
í fyrrasumar
kynntu þau saltið
lítillega hér austanlands og fékk
það mjög góðar viðtökur. Nú eru
þau að heíja framleiðslu af fullum
krafti og hyggjast framleiða um
eitt tonn í sumar. Þá er að fara
af stað kynningarátak á höfuð-
borgarsvæðinu og verður saltið
t.d. kynnt almenningi í Kolaport-
inu 26. júní.
Ágúst
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Laxar heimtir úr hafbeit,
STARFSMENN Vogavíkur taka hafbeitarlax úr sjó en helnmtur eru svipaðar nú og í fyrra.
800 laxar á land í Vogavík
Vogar.
UM ÁTTA hundruð Iaxar hafa verið heimtir úr
hafbeit hjá hafbeitarstöðinni Vogavík I Vogum.
Að sögn Viktors Guðmundssonar hjá Vogavík eru
heimturnar svipaðar og á sama tíma á síðasta ári.
Mestar heimtur voru þriðjudaginn 15. júní þegar á
þriðja hundrað laxar komu á land. Næstum allir laxarn-
ir hafa verið tvö ár í sjó og hefur meðalþyngd þeirra
verið 5,9 kíló. Það er í samræmi við reynslu fyrri ára
að tveggja ára laxinn gengur fyrstu vikurnar en árs-
gamli laxinn kemur síðar.
- E.G.
„Það er verið að vinna í nokkr-
um málum og ég á von á að ein-
hverjar fréttir verði af fjárfram-
lögum í lok næstu viku,“ sagði
Ragnar jafnframt. Hann sagðist
ekki geta greint frá hvaða fyrir-
tæki kæmu til greina en þau væru
fjölmörg. „Ég á jafnvel von á því
að þar á meðal verði fyrirtæki í
sjávarútvegi."
Aðspurður um hversu stórt
framlag íslenskra aðalverktaka
gæti orðið í næstu viku sagði
Ragnar að það gæti orðið allveru-
legt, tugir eða jafnvel hundruð
milljóna króna.
------» ♦ ♦----
Skólakór frá
Skanderborg
í heimsókn
HÉR Á landi er nú staddur Still-
ing skólakórinn frá Skander-
borg á Jótlandi. í kórnum eru
34 söngvarar á aldrinum 12-17
ára og er stjórnandi þeirra
Kenny Jensen.
Kórinn hefur getið sér gott orð
fyrir góðan og vandaðan söng og
hefur margsinnis hlotið viðurkenn-
ingu og verðlaun fyrir söng sinn.
Kórinn syngur við messu í Skál-
holti á sunnudaginn 20. júní kl.
14 og kl. 16 sama dag heldur
hann tónleika í kirkjunni. Mánu-
dagskvöldið 21. júní kl. 20.30
syngur kórinn í Kópavogskirkju,
en kórfélagar gista á heimilum
barna úr Skólakór Kársness í
Kópavogi.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.