Morgunblaðið - 20.06.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1993
15
17. júní hátíðarhöld á Húsavík
Hefðbundin dag-
skrá í köldu veðri
Húsavík.
17. JÚNÍ-hátíðarhöldin á Húsavík fóru fram að nokkuð
hefðbundnum hætti í frek^r köldu en að mestu þurru veðri,
svo meginhluti dagskrárinnar fór fram í íþróttahöllinni.
Um morguninn fór fram mikil hjólreiðareið um bæinn,
hvar æskan lét á sér bera og
hlaupi.
Kl. 13.30 söfnuðust bæjarbúar
saman við sundlaugina og gengu
til íþróttahallarinnar undir lúðra-
blæstri Lúðrasveitar tónlistarskól-
ans undir stjórn Normans Denis.
Hátíðarhöldin í íþróttahöllinni
hófust með ávarpi Vilhjálms Páls-
sonar, formanns Völsunga, sem
sáu um hátíðarhöldin. Síðan flutti
sr. Björn H. Jónsson ávarp og
bæn. Hátíðarræðuna flutti Halldór
Kristinsson sýslumaður og ávarp
fjallkonunnar flutti Jónasína Jóns-
dóttir framhaldsskólanemi og lúð-
rasveitin lék.
Verðlaun fyrir unnin afrek um
morguninn voru afhent og börnin
einnig var keppt í víðavangs-
fóru í margskonar leiki og
skemmtu sér hið besta. Hið árlega
17. júní-sundmót fór fram í sund-
lauginni kl. 16.30.
Ljósmyndaklúbbur Húsavíkur,
sem er nýstofnaður oghefur starf-
að vel í vetur, hafði sína fyrstu
ljósmyndasýningu í sal barnaskól-
ans og var þar margar eftirtektar-
verðar myndir að sjá.
Um kvöldið var svo farið í leiki
og menn stigu dans sér til hita á
planinu við Borgarhólsskóla, en
heldur var kalt, þó hlýnað hafi
frekar með kvöldinu.
- Fréttaritari.
Morgunblaðið/Silli
Fjallkonan
FJALLKONAN á Húsavík var Jónsína Jónsdóttir.
Fagnaðarlátum ætlaði seint að linna. Ghena Dimitrova ásamt stjórnandanum Christo Stanischeff.
Ghena Dimitrova
Tónlist
Ragnar Björnsson
Röddin er stór, nær yfir mikið
svið, er hádramatísk og strax í
fyrstu aríunni úr Manon Lescaut,
eftir Puccini, fannst strax að á
bak við röddina var listamaður.
En það tók hann tíma að sanna
sig. Hún hefur slavneskan skóla
sem þýðir að stórum dramatískum
röddum hættir til að vibrera um
of og svo var um hana í byijun
og ekki gat maður varist þeirri
hugsun að stórstirnið Dimitrova
væri að byija að missa glitið úr
röddinni. Ef hægt væri að tala
um fallega söngrödd ætti rödd
Dimitrovu ekki endilega heima
undir því merki, en slík skilgrein-
ing er vitanlega út í hött, spili
eigandinn vel á hljóðfærið sitt
spyr enginn um fallega eða ekki
fallega rödd, flytjandinn hrífur
mann, - eða að hann hrífur mann
ekki og þá er fegurðin lítils virði.
Alfredo Catalany var uppi á
síðari hluta 19. aldar, skrifaði
nokkrar óperur, m.a. óperuna „La
Wally“, sem Dimitrova söng úr
eina aríu og sýndi sterka túlkun.
Síðast fyrir hlé söng hún aríu
Santuzzu úr Cavalleria Rusticana,
Voi lo sapete, og hér var stórglæsi-
lega sungið. Dimitrova hefur mjög
góða dýpt, en samt leyfði hún sér
að nota bijósttóna, á efra sviði,
óvenju hljómmikla, en verður samt
að teljast spuming um stíl og
smekk. Fram að hléi sat undirrit-
aður til hliðar í salnum, niður við
gólf. Þar hljómuðu strokhljóðfæri
hljómsveitarmanna nokkuð vel, en
blásturhljóðfærin miklu miður. Int-
ermessoin sem hljómsveitin lek,
úr samnefndum óperum fyrri híut-
ans, hægferðug og byggðu mikið
strokhljóðfærunum, hljómuðu því
ekki illa út í sal. Eftir hlé færði
undirritaður sig upp á efsta bekk
hliðarvængsins og þar bitnaði
svömn salarins illa á strokhljóð-
færunum og kom það niður á for-
leiknum úr Valdi örlaganna eftir
Verdi, reyndar nutu blásararnir sín
ekki heldur - þótt vel heyrðust -
þarna upp í hæðirnar til mín.
Venjulega er Leonora í Valdi ör-
laganna skilgreind sem „ungleg
dramatísk“, en tæplega er hægt
að staðsetja rödd Dimitrovu undir
þá mælistiku, enda mætti nokkuð
að þeim flutningi finna, einnig hjá
hljómsveitarstjóranum, samlanda
söngkonunnar, Christo Stanisc-
heff. Nokkuð sama var um atriðin
úr La Gioconda, þar sem á stund-
um nokkuð vantaði á fullkomna
samvinnu allra aðila. En nú var
röddin orðin heit og mjög áhrifar-
íkur var flutningur hennar á Vieni
t’affretta úr Macbeth, en kannske
reis hún allra hæst í öðru aukalag-
inu, aríunni úr Turandot, þar sýndi
hún allar hliðar stórbrotinnar list-
ar. Þrátt fyrir mikil fagnaðarlæti
áheyranda í lokin held ég að Kapla-
krikinn verði áfram fyrst og fremst
handboltahöll, og að Hafnfirðingar
eigi eftir að fagna þar mörgum
handboltasigrum, - en er nú ekki
komið að tónlistarhöllunum?
BMW 3 LINAN
Sportlegur fjölskyldubíll
TEKUR
ÖÐRUM FRAM
Á ÖLLUM
SVIÐUM
' ,
. é
// Áií
i Áte
ÍMIXV 86891
Verö á BMW-3 línunni er frá kr. 1.969.000,- (Bíll á mynd er búinn ýmsum aukabúnaöi sem fáanlegur er í 3-línunni).
BMW ráöleggur: AkiÖ varlega.
Miklar vinsældir BMW bíla má meðal annars rekja til þess að þeir hafa
skapað ímynd fyrir lífsstíl sem gefur sérstöðu og margir sækjast eftir.
Fólk skapar sér ímynd með vali á því sem er í þess nánasta umhverfi, svo sem
húsgögnum, fötum eða bílum. Bílar í BMW 3-línunni höfða til nútímafólks sem gerir
miklar kröfur til gæða, fullkominnar tækni og fallegrar hönnunar. í BMW-3 línunni er
að finna sportlega, stílhreina og glæsilega fjölskyldubíla sem bjóða upp mikið rými,
þægileg sæti, góða hljóðeinangrun og frábæra aksturseiginleika við allar aðstæður.
Bílar í BMW-3 línunni eru meðal annarsbúnirglæsilegri innréttingu, kraftmiklum
vélum, samlæsingu með þjófavörn, lituðu gleri, rafdrifnum útispeglum, þjónustutölvu,
hraðatengdu aflstýri, hæðarstillanlegum framljósum, 6 hátalara BMW
hljómkerfi og Blaupunkt útvarpstæki með þjófavörn. Hægt er að velja
um mikið úrval af öðrum búnaði.
Söludeildin er opin alla virka daga BíldUmbOÖÍð hf
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633
kl. 8-18 og á laugardögum kl. 13-17.
Engum
líkur