Morgunblaðið - 20.06.1993, Síða 38

Morgunblaðið - 20.06.1993, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1993 TENNIS / WIMBLEDON MOTIÐ GOLF / ATVINNUMENNSKA Bless félagi Andre Agassi (á litlu myndinni) er ekki líklegur til að veija Wimbledontit- ilinn. Hann hefur átt við meiðsli að stríða og er í lítilli leikæfmgu. Steffi Graf (á stóru myndinni) ætti hins veg- ar að vinna auðveldan sigur á Wimble- don en meiðsli gætu þó sett strik í reikninginn. ÍÞtémR FOLX ■ ÞAÐ eru fjórum sinnum meiri líkur á því að Elvis Presley sé lif- andi og helmingi meiri líkur á að Loch Ness skrímslið sjáist en að Breti sigri á Wimbledonmótinu að mati breskra veðbanka. Erfítt fyrir Agassi en auðvelt hjá Graf Wimbledonmeistararnirfrá því ffyrra hefja titilvörnina á morgun Á MORGUN hefst í London hið þekkta Wimbledon-tennismót, sem á sér meira en hundrað ára sögu, og er eitt vinsælasta tennismót í heiminum í dag. Þar munu Bandaríkjamaðurinn Andre Agassi og hin þýska Steffi Graf freista þess að verja titla sína í einliðaleik í karla og kvennaflokki, sem þau unnu eftirminnilega á síðasta ári. Steffi Graf er talin líkleg til að verja titilinn, hún er efst á heimslistanum og helsti keppinautur hennar, hin júgó- slavneska Monica Seles, er enn að jafna sig eftir hnífstungu sem aðdáandi Steffi Graf veitti henni í apríl sl. Þó Graf sé líkleg til að verja titilinn verður hið sama ekki sagt um Agassi, sem hefur lítið getað æft ítvo mánuði vegna meiðsla. Hann er í nær engri leikæfingu og tapaði ífyrstu umferðátennismóti i'þýskalandi í vikunni. Agassi gæti lent í erfiðleikum strax í fyrstu umferð, því þar mætir hann Þjóðveijanum Bernd Karbacher. Þjóðveijinn Boris Bec- ker, fyrrum Wimbledonmeistari, þarf líka að gæta sín á andstæðingi sínum í fyrstu umferð, landa sínum Marc Goellner. Pete Sampras, sem er efstur á heimslistanum, og Svíinn Stefan Edberg virðast hins vegar eiga greiða leið inn í 16 manna úrslit. Tvöfalt álag Sinabólga sem hijáð hefur Ag- assi í hægri úlnlið hefur gert það að verkum að hann hefur ekkert keppt sl. tvo mánuði. Auk þess á hann við meiðsli í olnboga að stríða, og meira að segja þjálfari hans á ekki von á því að hann geri stóra hluti í ár. „Meiðslin leggjast ofan á það álag sem fylgir því að veija titilinn. Hann er því undir tvöföldu álagi,“ sagði Bollettieri þjálfari hans. Jim Courier, sem tapaði mjög óvænt í úrslitum á Opna franska fyrir Spánveijanum Sergi Brugu- era, er ekki líklegur til að gera stóra hluti á Wimbledon frekar en fyrri daginn, en grasvellimir í London henta honum mun verr en leirvöllur- inn á Roland Garros. Til þess að komast lengra en í fjórðungsúrslit þarf hann að sigra Króatann Goran Ivanisevic, og gæti það orðið erfiður biti að kyngja. Ivan Lendl, sem aldrei hefur sigr- að á Wimbledonmótinu, ætlar að reyna enn einu sinni. Hann þarf þá að sigra Svíann Stefan Edberg vilji hann komast í undanúrslit, og bú-' ast fæstir við því. Edberg er í góðu formi þessa dagana og er líklegur til að leika til úrslita. Sigri hann Lendl í átta manna úrslitum mætir hann annaðhvort Courier eða Bec- ker í undanúrslitum, að því gefnu að úrslit í leikjum þeirra verði í samræmi við styrkleikalista móts- ins, og þeir möguleikar sem hér er velt upp em allir byggðir á því að úrslitin verði eftir bókinni. Graf virðist örugg Steffi Graf er líklegust til að sigra í kvennaflokki að flestra mati. Gabriela Sabatini frá Argentínu og Martina Navratilova gætu veitt henni harða keppni, og aðrar sterk- ar tenniskonur eru einnig inn í myndinni. En Graf hefur aðeins tapað einu sinni á Wimbledonmót- inu sl. fimm ár, fyrir Zinu Garrison í undanúrslitum 1990, en þá var hún enn að ná sér eftir að hafa fing- urbrotnað á skíðum nokkrum mán- uðum áður. Hún sigraði Monicu Seles ömgglega í úrslitunum í fyrra, og þar sem hún keppir ekki nú eru það aðeins meiðsli sem gætu sett strik í reikninginn hjá Graf. Hún meiddist á fæti á Opna franska fyrir skömmu og var á tímabili ótt- ast að þau meiðsli kæmu í veg fyr- ir að hún keppti á Wimbledon. Þau vom hins vegar ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu. Milljónalisti þeirra bestu Þeir bestu í tennisheiminum hala inn slatta af verðlaunafé yfir árið og hér á eftir fylgir listi yfir hvað átta bestu spilaramir á Wimbledonmótinu fengu í verðlaunafé á mótum sem þeir kepptu á, á síðasta ári. Tekið skal fram að þetta er aðeins það fé sem þeir fá fyrir frammistöðu á mótum, ekki tekjur af auglýsingasamningum eða bónusgreiðslur tengdar þeim. Karlar: krónur Boris Becker.............149.854.250 ■Fæddur í Þýskalandi 22. nóv. 1967. Stefan Edberg............149.854.250 ■Fæddur í Svíþjóð 19. janúar 1966. Jim Courier..............147.221.190 ■Fæddur í Bandaríkj. 17. ágúst 1970. Pete Sampras.............130.345.680 ■Fæddur í Bandaríkj. 12. ágúst 1971. Goran Ivanisevic.........121.405.050 ■Fæddur í Króatíu 13. sept 1971. PetrKorda.................88.223.030 ■Fæddur í Tékkósl. 23. janúar 1968. Andre Agassi..............73.685.122 ■Fæddur í Bandaríkj. 29. apríl 1970. IvanLendl.................62.822.312 ■Fæddur í Tékkóslóvakíu 7. mars 1960. Konur: Steffi Graf..............110.487.750 ■Fædd í Þýskalandi 14. júní 1969. Arantxa Sanchez...........89.921.860 ■Fædd á Spáni 18. desember 1971. Gabriela Sabatini.........78.894.214 ■Fædd í Argentínu 16. maí 1970. Martina Navratilova.......47.819.590 ■Fædd í Tékkósl. 18. október 1956. Mary Joe Femandez........39.586.022. ■Fædd í Dóminík. lýðv. 19. ág. 1971. Jana Novotna..............33.397.332 ■Fædd í Tékkóslóvakíu 2. október 1968. Conchita Martinez.........29.123.542 ■Fædd á Spáni 16. apríl 1972. Jennifer Capriati.........20.612.732 ■Fædd í Bandaríkjunum 29. mars 1976. Úlfar skilar áhugamannaskírteini sínu í haust og reynir við atvinnumennskuna Bemskudraumur ÉG er búinn að æfa golf öll þessi ár og hef átt mér þann draum frá þvf að ég byrjaði að leika með stóru nöfnunum sem ég fylgd- ist með í sjónvarpinu. Ég er enn ungur og ætla að láta reyna á það hvort draumurinn rætist. Markmiðið er að gefa sértvö ár. Að þeim tíma liðnum kemur það í Ijós hvort mér líkar sá lífsstíll að vera atvinnumaður og hvort getan sé næg,“ segir Hafnfirðing- urinn Úlfar Jónsson, sem í haust skilar inn áhugamannaskírteini sínu til að reyna fyrir sér sem atvinnukylfingur. ■ LÍKURNAR eru 1/1000 og að sögn veðbaríka hefur enginn veðjað á það ennþá. Jafn miklar líkur eru á því að kona verði páfi. ■ TVEIR breskir feður verða milljónamæringar verði synir þeirra Wimbledonmeistarar. Þeir hafa lagt tæpar tíu þúsund krónur und-' ir, annar segir að fjögurra ára son- ur sinn James Davison-Lungley verði meistari en hinn að fímm mánaða sonur sinn, Alexander Balogac hirði titilinn einhvem dag- inn. Líkurnar eru einn á móti tíu- þúsund að mati veðbankanna. ■ / venjulegum leik á Wimble- donmótinu fer boltinn rúma tíu kílómetra. Rúmlega 32 þúsund tennisboltar em notaðir á mótinu, og eru þeir allir seldir á eftir. Gulir boltar vora fyrst notaðir árið 1986. ■ UM sjöhundruð leikir verða leiknir á Wimbledon og búist er við að 400.000 áhorfendur komi til að fylgjast með. ■ TUTTUGU og fjögur tonn af jarðabeijum og ijóma munu renna ofan í áhorfendur og 12 þúsund flöskur af kampavíni verða opnað- ar. Hver þeirra kostar um 35 pund, og fara því rúmlega 40 milljónir króna bara í kampavínið. ■ STJÖRNUR eins og Ivan Lendl, Boris Becker og Martina Navratilova gefa mikið fyrir að fá húsnæði sem næst keppnisstaðnum. Það þykir góð búbót að búa nálægt Wimbledon því allt uppundir 980 þúsund krónur eru í boði fyrir ein- býlishús í nágrenninu. Morgunblaðið kom að máli við Ulfar i vinnunni hjá Golf- klúbbi Keilis þegar hann var að ^■■1 mála nýbyggingu Fr0sti klúbbsins, glæsileg- Eiðsson an golfskála sem skrifar tekin var í notkun sl. haust. „Ég starfa meðal annars við að klára þennan skála. Svo tekur maður það sem til fellur hveiju sinni. Ég er í öllu mögulegu og kannski fæ ég að spreyta mig í markaðsfræðinni líka því það þarf að kynna klúbbinn út á við og þá aðstöðu sem við höf- um,“ segir Úlfar sem útskrifaðist í vor sem markaðsfræðingur frá há- skólanum í Louisiana. Nú eða aldrei Ákvörðun Úlfars um að fara í atvinnumennsku var tekin á síðasta hausti eftir gott gengi á íslands- og Norðurlandamótinu. _ „Mér fannst ég spila það vel á íslands- mótinu að mér fannst ég ætti það inni að láta reyna á atvinnumennsk- una. Ekki bara sjálfs míns vegna, heldur einnig fyrir golf almennt á íslandi. Ég er búinn að æfa mig í Bandaríkjunum síðustu árin en er nú búinn með skólann og því annað hvort að hrökkva eða stökkva." Eftir keppni _á EM áhugamanna í haust heldur Úlfar til Lafayette í Louisiana þar sem hann mun halda til á meðan hann er - í atvinnu- mennskunri. „Kærastan mín er í námi þar í innanhússarkitektúr og það liggur beinast við að fara þang- að og keyra þaðan á mót. Ég fæ að nota æfingasvæði golfklúbbs sem háskólaliðið æfir á en þeir hafa verið mér mjög hjálplegir. Þá er hægt að keyra þaðan til Texas og Florida þar sem flest mótin eru. Bilið á milli áhuga- og atvinnu- mennsku er mikið og það þarf að standa straum af tíðum ferðalögum, inntökugjöldum á mót svo ekki sé minnst á uppihald. Úlfar telur að það muni kosta um fjórar milljónir að stunda atvinnumennsku í tvö ár og hefur leitað til fyrirtækja hér á landi um stuðning. „Það er einfaldlega ekki hægt nema með stuðningi bakhjarla sem gera manni kleift að einbeita sér að því að stunda íþróttina. Ég veit að þetta er ekki besti tíminn eins og efnahagsástandið er. Ég er held- ur ekki fyrsti íslendingurinn sem reyni fyrir mér, Sigurður Pétursson og Ragnar Ólafsson reyndu það sama fyrir átta áram en ég er sá fyrsti sem ætla að gefa mér tíma í þetta." Dýrt þátttökugjald Það er hægt að verða atvinnu- kylfingur með ýmsum hætti. Augu flestra beinast að PGA - mótaröð- inni en á þeim mótum era skærustu stjömurnar og mesta greitt í verð- launaíé. Til þess að keppa á þeim mótum þurfa kylfingar að komast í gegn um inntökumót sem haldið er á hveiju hausti. Um þúsund manns manns keppa þar um 40 - 50 sæti í PGA - mótunum en þátt- tökugjaldið á mótinu er rúmlega þijú hundrað þúsund ÍSK, fyrir utan ferðakostnað og uppihald. Mótun- um er skipt í þijú stig. Um það bil þijú hundruð komast áfram á annað stig og þeir 150 sem komast á loka- stigið keppa um PGA - sætin auk um fimmtíu sæta á Nike mótunum sem hafa getið sér gott orð fyrir styrkleika. Inntökumót eru einnig haldin fýrir stórmótin og ef vel gengur getur kylfíngur unnið sér inn þátt- tökurétt. Standi hann sig vel á stór- móti er líklegt að styrktaraðilar annarra móta taki tillit til þess. Þriðja leiðin er að leika á minni mótum sem styrkt era af ýmsum aðilum. Úlfar er nú á bilinu með + 2-3 í forgjöf og því kannski viðeigandi að spyija hvar hann standi miðað við aðra kylfinga sem farið hafa í atvinnumennskuna. Forgjöfin skiptir ekki öllu máii Sú forgjöf sem ég er á núna skiptir ekki öllu máli. Bernhard Langer og Ian Woosnan gerðust atvinnumenn ungir en voru þá ekki með sérstaka forgjöf. Þeir eru hins vegar vinnuhestar og fáir hafa lagt eins mikið á sig við æfíngar og þeir. Atvinnumennskan átti við þá og þeir hafa þénað vel en þegar þeir voru að byija áttu þeir hins vegar ekki fyrir salti í grautinn. Paul Azinger reyndi sex eða sjö sinnum við PGÁ - inntökumótið áður en hann komst í gegn en þarf ekki að hafa áhyggjur af því lengur. Golf er draumastarf Mér finnst ég eiga það mikið inni að ég geti bætt mig töluvert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.