Morgunblaðið - 18.07.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.07.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993 3 / Iðandi mannlíf í blíðunni * # p Morgunblaðið/Bjarni Isinn goður ÞÆR Jóhanna Gunnarsdóttir, Jósefína Pétursdóttir, Ósk Sigurrós Ásgeirsdóttir og Þóra Hreinsdóttir, sem allar starfa í Landsbankanum, fengu sér ís og spókuðu sig í miðbænum í góðviðrinu í kaffitíman- um. Þær segjast nota hvert tækifæri til þess að njóta sólarinnar þegar hún láti sjá sig. IÐANDI mannlíf var í miðbæn- um í veðurblíðunni í liðinni viku. Á kaffihúsum höfðu borð verið flutt út og þar sat fólk og naut blíðunnar. Von er á áframhaldandi blíð- viðri yfir helgina. Á veðurstofunni fengust þær upplýsingar að útlit væri fyrir norðaustan átt með bjartviðri á Suður-, Suð-Vestur- og Vesturlandi og einnig á Vest- fjörðum. Á Norður-og Austurlandi á að vera að mestu skýjað en úr- komulítið. Fyrir norðan og austan er gert ráð fyrir 6-8 stiga hita, en sunnan- og vestanlands getur hitinn farið upp í 17 stig. Sólarinnar notið HJÓNIN Ólafur Þorvaldsson og Steinunn Guðleifsdóttir segjast oft ganga niður í bæ þegar veðrið er gott og njóta sólarinnar og fylgjast með mannlífinu. Blómarósir í bænum BERGLJÓT Ragn- arsdóttir, sem er níu ára, lék sér á Austurvelli með 10 mánaða gamalli frænku sinni, Evu Rut, og skemmtu þær sér konung- lega í sólskininu. Lesið í sólinni ÞAÐ getur verið gott að liggja í grasinu og lesa þegar sólin skín hátt á lofti. ;, \ Q'. m I.m i j Ætlar þú að sœkja um námslán hjá LIN fyrir 1. ágúst? Á Menntabraut, námsmannaþjónustu íslandsbanka, eiga námsmenn m.a. kost á lánum í tengslum viö fyrirgreiöslu Lánasjóös íslenskra námsmanna. Lánafyrirgreiöslan er í formi stighœkkandi mánaöarlegrar yfirdráttarheimildar. Fyrirkomulagiö tryggir lágmarkskostnaö námsmanna þar sem þeir greiöa aöeins vexti af nýttri yfirdráttarheimild. í boöi á Menntabraut er meöal annars: • Tékkareikningur meö 50.000 kr. yfirdráttarheimild óháö fyrirgreiöslu vegna LÍN • Vönduö Skipulagsbók • Námsstyrkir « Niöurfelling gjaldeyrisþóknunar fyrir námsmenn erlendis ’ viö millifcerslur eöa peningasendingar milli landa Creiöslukort o.fl. skipulagsbók u r ‘ftJISYFInuj ytXAN MANABarat s ' ™ '^’OÚ >1» ea ^•.fíSBsa .. | ISLANDSBANKI Námsmenn, kynniö ykkur fjölmarga kosti Menntabrautar. . Komiö og rœöiö viö þjónustufulltrúa íslandsbanka um fjármálin, þeir hafa sérhœft sig í málefnum námsfólks. Menntabraut íslandsbanka - frá menntun til framtíöar! MENNTABRAUT Námsmannaþ/ónusta íslandsbanka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.