Morgunblaðið - 18.07.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.07.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 1993 11 Sú endurskipulagning stóð í liðlega eitt ár, eða til ársloka 1988. 1989 er í framhaldi þessa ákveðið að skilja að rekstur fyrirtækisins, þannig að sérstakt fyrirtæki yax stofnað um gosdrykkja- og vatnsframleiðsluna, Islenskt bergvatn hf. Það var gert til þess að nýta vélakost verksmiðj- unnar og þá fjárfestingu sem þar lá að baki. Smjörlíki hf. á helming í fyrirtækinu á móti Gunnari Helga- syni og fleirum í Kanada. Björgunaraðgerð Davíð hikar ekki við að fullyrða að stofnun vatnsútflutningsfyrirtæk- isins hafi verið björgunaraðgerð, sem hafi gengið upp að öllu öðru leyti en því að markaðsmálin vestanhafs hafi með öllu brugðist. í þeim efnum segir Davíð að Gunnar, samstarfsað- ili Smjörlíkis beri einn alla ábyrgð. „Þegar við sömdum við Gunnar, þann 13. mars 1990, þá seldum við sál okkar, hvað aldrei skyldi verið hafa. Þá fékk samstarfsaðili okkar og meðeigandi einkarétt á allri söiu og dreifíngu frá íslensku bergvatni um allan heim, nema á Bretlandi og ís- landi.“ Það er alkunna að allt sem heitir markaðssetning á framleiðslu Is- lensks bergvatns í Bandaríkjunum og Kanada hefur forklúðrast, svo ekki sé meira sagt. Gunnar setti meðeigendum sínum hér á íslandi það skilyrði, að átöppunarverksmiðj- an væri stækkuð og framleiðslan aukin, og þá fyrst myndi hann hefja söluna. Segja má að afdrifarík mi- stök hafi átt sér stað, þegar ákveðið var að uppfylla skilyrði Gunnars um stækkun, síðla árs 1990. Óhemju stórir og miklir draumar voru bundnir vatnsútflutningnum og tekjumöguleikum af honum. í dag eru margir þeirrar skoðunar að vænt- ingarnar hafí verið fullkomlega óraunhæfar. Eigendur íslensks bergvatns, þ.e. Smjörlíki og Gunnar Helgason, réð- ust í kjölfar þessa í enn frekari fjár- festingu, keyptar voru vélar fyrir á annað hundrað milljónir króna og ráðist í fjárfrekar breytingar til þess að koma þeim fyrir og þar af leið- andi var skuldsetning fyrirtækisins aukin sem þeim útgjöldum nam. Davíð segir að Smjörlíki hf. hafí lagt í Islenskt bergvatn yfir 400 milljónir króna, frá því fyrirtækið var stofnað. Mistökin endurtekin Davíð hnýtur því tvisvar sinnum um sama þröskuldinn, og er hann í formi dósaverksmiðjunnar í bæði skiptin, þ.e. upphaflega eru það mi- stök að ákveða að reisa slíka verk- smiðju hér með ekki meira aðlaðandi framleiðslu að vopni en Sólkóla og enn meiri mistök að ákveða svo að stækka hana til þess að hefja vatns- útflutning í stórum stíl, án þess að markaðir hafí verið tryggðir fyrir vöruna. Síðari ákvörðunina tekur Davíð auðvitað í þeirri trú að meðeig- andi Smjörlíkis að Islensku bergvatni muni tryggja markaðsmál vatnsút- flutningsins vestan hafs. Til sanns vegar má færa að í vatnsvandamálum Smjörlíkis krist- allist vandi okkar íslendinga að því er varðar uppbyggingu útflutnings- atvinnugreina, sem einatt hefur gert það að verkum að minna hefur orðið úr vexti útflutningsgreina en að var stefnt í upphafí. Einblínt er um of á framleiðsluaukningu, með það fyrir augum að aukin framleiðsla þýði auknar tekjur. Grundvallaratriði til að svo megi verða, eru tryggir mark- aðir fyrir framleiðsluna og gott verð. Eftirspurn getur fullkomlega stjórn- að framboði, það er markaðslögmál, en ekki er þar með sagt að framboð stjórni eftirspurn. Um það bera millj- ónir fullra vatnsdósa í hillum í Bandaríkjunum og Kanada glöggt vitni. Markaðir verða ekki til af sjálfu sér og enn síður eftirspurn eftir nýj- um vörutegundum. Markaði þarf að finna og vinna. Til að skapa eftir- spurn, þarf að sjálfsögðu að vinna gríðarlega mikla markaðssetningar- vinnu, leggja mikla fjármuni í kynn- ingar- og auglýsingastarf og þá hugsanlega, hefur eftirspurn verið tryggð. Eftirspurn sem þó þarf alltaf að halda vakandi, með því að minna á vöruna. Markaðssetning er því ekki kynningarátak, sem einungis verður unnið um skamma hríð og hefur þar með verið tryggð til fram- búðar. Hún et stöðug vinna og stöð- ug útgjöld. Öðru vfsi næst ekki var- anlegur árangur. Davíð segir að vissulega geti menn álasað sér fyrir að hafa haft tröllatrú á inarkaðssetningaráformum Gunn- ars Helgasonar, en í einlægni sagt, þá hafi ekki verið neitt tilefni til þess að efast um hæfni mannsins og ásetning, enda hafi hann lagt stórfé í íslenskt bergvatn, eða sam- tals um fimm milljónir dollara, sem eru að núvirði nálægt 360 milljónum króna. Verður meðeigandanum stefnt? „Við höfum tvo kosti í dag, að því er varðar samning okkar við meðeig- andann að íslensku bergvatni. Við Davíd Scheving Thorsteinsson, stjórnar f jórhags- legri endurskipu- lagningu fyrirtæk- isins næstu món- udi, til þess að upp- fylla skilyrói lánar- drottna Smjörlíki hf. hefur þegar afskrifaó 50% hlut sinn í Ís- lensku bergvatni hf. eða rúmar 400 milljónir króna getum stefnt Gunnari fyrir „none performance“ (vanefndir vegna að- gerðaleysis - innskot blm.) en slíkur málarekstur tekur mjög langan tíma. Eða við getum krafíst þess að Gunn- ar kaupi okkur út úr fyrirtækinu. Ég á alveg eins von á þvi að síðari kosturinn verði fyrir valinu, hvort sem það verður Gunnar eða einhver annar sem kaupir, en þó er stefna vissulega enn inni í myndinni. Ef við stefnum honum, verðum við að sækja málið á Barbados, því gróðinn sem átti að verða af dreifíngarfyrirtækinu vestanhafs, var hugsaður svo rosa- legur, að fyrirtækið var skráð í skattaparadísinni Barbados, í Karab- íska hafinu, undir firmanafninu Ice- landia Water Corporation," segir Davíð. Verði niðurstaðan sú að Gunnar Helgason kaupi Smjörliki hf. út úr íslensku bergvatni, segir Davíð það koma sér mjög vel fyrir Smjörlíki, því fyrirtækið sé staðsett á íslandi, og þannig gæti Smjörlíki farið að þéna á húsaleigu og aðstöðu. „Það myndi kosta á milli 100 og 200 millj- ónir króna að flytja verksmiðjuna, þannig að slíkt yrði ekki gert nema á mjög löngum tíma,“ segir Davíð. Davíð hefur ennþá tröllatrú á framtíð útflutningsframleiðslu ís- lensks bergvatns. „Ég er búinn að sanna að þetta getur gengið og geng- ið vel, með útflutningnum til Bret- lands. Þar vex útflutningurinn um 30 til 40% á ári og hvaða önnur út- flutningsvara okkar íslendinga getur státað af slíkum vexti á milli ára?“ spyr Davíð. Hann segist sannfærður um að íslenskt bergvatn hefði getað selt framleiðslu sína á góðu verði í Bandaríkjunum, eins og ekkert væri, ef fyrirtækið væri ekki bundið af einkaleyfi samstarfsaðilans á dreif- ingu og sölu. Teikist hafa samningar við breska fyrirtækið Seltzer, í þá veru að þeir taki að sér rekstur á Islensku berg- vatni tímabundið. Davíð segir það mikið happ fyrir Smjörlíki hf. að Bretarnir hyggist reka seltzerfram- leiðslu Islensks bergvatns undir eigin nafni og ætla að leigja húsnæðið af Smjörlíki og vélakostinn af íslensku bergvatni. Hörð gagnrýni Smjörlíki hf. er eins og áður segir að uppistöðu til í eigu fárra fjöl- skyldna. Úr þeirra hópi heyrast þau sjónarmið að eigendur séu sárir yfír því hvernig komið er fyrir fyrirtæk- inu. Þar til fyrir átta árum eða svo, hafi eigendumir verið sannfærðir um að Smjörlíki hf. væri svo öflugt og sterkt fýrirtæki, að bókstaflega væri ekki hægt að setja það á hausinn. Ákveðnir eigendur virðast nú iðrast þess að hafa ekki verið ákveðnari í andstöðu sinni, við gosdrykkja- og vatnsævintýrið, sem snerist upp í martröð. „Það er nú einu sinni svo, að Davíð hefur slíka töfra og sann- færingarkraft, að enginn fær staðist hann,“ voru orð eins úr hópi eig- enda. Hann bætir við, að í þessum efnum sem öðrum, sé svo ósköp auð- velt að vera vitur eftir á. Davíð var spurður hvort hann hefði ekki orðið fyrir harðri gagnrýni meðeigenda sinna, vegna þeirra fjár- muna sem tapast hefðu við þær ákvarðanir, sem nú líta út fyrir að hafa verið rangar ákvarðanir: „Auð- vitað, það segir sig sjálft. Þó held ég að gagnrýni sú sem ég hef hlotið og hlýt, sé engin í samanburði við þá gagnrýni sem ég hlýt frá sjálfum mér. Það er ekkert sem aðrir geta sagt við mig, sem ég hef ekki mar- goft sagt við mig sjálfur,“ segir Davíð. En það væri ólíkt Davíð Scheving Thorsteinssyni að gefast upp og leggja árar í bát, enda eru viðmæl- endur sammála um að takist Davíð ekki að ganga frá fjárlíagslegri end- urskipulagningu Smjörlíkis og end- urfjármögnun, á þann veg að lánar- drottnar geti við unað, þá geti það ^kki nokkur maður. Þegar Davíð er spurður hvað hann sjái gerast í rekstri fyrirtækisins næstu mánuði og misseri, svarar hann: „Framundan er mikið og erfítt verk, það er alveg ljóst. Fara mun fram fjárhagsleg endurskipulagning á Smjörlíki hf. þar sem aflað verður nýs hlutafjár, upp á um 100 milljón- ir króna. Við afskrifum íslenskt bergvatn sem dótturfyrirtæki og í framtíðinni verður það ekkert annað en leigjandi hér, sem við þénum von- andi eitthvað á, upp í þær 400 millj- ónir sem við höfum þegar afskrifað. Það munu koma nýir hluthafar inn í fyrirtækið, sem er af hinu góða, en frómt frá sagt er það hlutur sem hefði þurft að gerast fyrir svona 20 árum. Svo þurfum við að semja um skuldbreytingar við lánardrottna, afskriftir skulda og þess háttar, sem ég vona að gangi að óskum. Framtíð- arstarfsemi Smjörlíkis hf. verður öflug, því lofa ég. Auðvitað vona ég að Smjörlíki hf. verði áfram vinsæl- asta fyrirtækið á íslandi eins og það hefur verið í tvígang. Við verðum áfram öflugt og þarft fyrirtæki, sem sparar landsmönnum gjaldeyri með framleiðslu í samkeppni við innflutt- ar vörur og höldum ótrauð áfram útflutningi á Svala, sem við höfum flutt út með mjög góðum árangri frá árinu 1986.“ Framtíðin ræðst á næstu mánuðum Stjórn Smjörlíkis hf. kom saman til fundar síðastliðinn föstudag, þar sem samþykkt var að stofna sérstakt félag um rekstur Smjörlíkis hf. tíma- bundið. Félagið verður eign Smjörlik- is og allur afrakstur af því, á meðan á þessu stendur, gengur þar með til Smjörlíkis og er að því leyti innlegg í að samningar takist um fjárhags- lega endurskipulagningu og endurfj- ármögnun. Samkomulagið við lánastofnanir felur í sér þau skilyrði af hálfu lána- stofnana að aðrir og minni lánar- drottnar fyrirtækisins séu reiðubúnir að semja um samskonar skuldbreyt- ingar og afskriftir og þeir stóru, að samningar takist á milli Smjörlíkis hf. og breska fyrirtækisins Seltzer um leigu á húsnæði Smjörlíkis og á vélum Islensks bergvatns og að það markmið að ná inn nýju hlutafé upp á 80 til 100 milljónir króna náist. Náist þau markmið sem að er stefnt, mun skuldabyrði Smjörlíkis léttast verulega, eða samtals um 400 milljónir króna, sem er nálægt því að vera sama upphæð og fyrirtækið hefur tapað á íslensku bergvatni hf. Munu skuldir að aflokinni fjárhags- legri endurskipulagningu því verða um 650 milljónir króna. Einhveijir mánuðir munu vænt- anlega líða, áður en fyrir liggur hvort þessi markmið nást, en línur verða þó Ijósar um hver og hvers konar framtíð bíður fyrirtækisins, áður en þetta ár er liðið. Það verður þá í verkahring nýrrar stjórnar fyrirtæk- isins, með tilkomu nýrra hluthafa að taka ákvarðanir þar að lútandi. Náist ekki að uppfylla skilyrði lán- ardrottnanna um fjárhagslega 'end- urskipulagningu fyrirtækisins og endurfjármögnun, þá kemur sam- komulag það sem gert hefur verið að öðru leyti ekki til framkvæmda, og við blasir það eitt að lánastofnan- irnar taki yfir rekstur fyrirtækisins og eigur. Þó verður í lengstu lög reynt að forðast þá niðurstöðu, þar sem lán- ardrottnar meta stöðuna á þann veg, að við slíkt myndu lánastofnanir tapa mun meiri fjánnunum en þær gera með samningum sem þeim sem hér var lýst. Grunnurinn að slíku mati er sá, að hér er um afar viðkvæman rekstur að ræða, og hvers konar truflanir eða stöðvun hans, myndu skaða viðskiptavild fyrirtækisins, sem er jú sá þáttur sem mestu máli skiptir, til þess að halda verðmæti Smjörlíkis hf. í hámarki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.